Alþýðublaðið - 18.11.1952, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.11.1952, Blaðsíða 3
Hanneð i WöfiilffB e i rva n g u r agsiii$ i s «6 1 DAG er þriðjudagurinn 18. Iióvember 1952. Næturvarzla er í Ingólfs apó-' teki, sími 1330. Næfurvörður er í læknavarð Btöfunni, sími 5030. Flugffc/ðír í dag verður flogið til Akur- eyrar, Bíldudals, Blönduóss, IFlateyrar, Sauðárkróks, Vest- mannaeyja og Þingeyrar, á morgun til Akureyrar, Hólma- víkur, ísafjarðar, Sands, Siglu- fjarðar og Vestmannaeyja. Skipafréttír Eimskip: Brúarfoss fór frá Hamborg . 14. þ. m., væntanlegur til Rvík ur 19. þ. m. Dettifoss fór frá Reykjavík 13. þ. m. til New York. Goðafoss er í .New York. ■Gullfoss fer frá Reykjavík kl. 17 í dag til Leith og Kaup- mannahafiiar. Lagarfoss fór frá Gdynia í gærkvöldi til Rotter. dam, Antwerpen, Hull og Rvik ur.® Réykjafoss fór frá Kaup- mannahöfn í gær til Álaborgar, Hamborgar, Rotterdam og Reykjavíkur. Selföss er i Rvík. 'Tröllafoss kom fil Reykjavíkur í gær frá Néw York. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla er vætanlsg til Hafn- arfajrðar 20. þ. m. Skipadeild SÍS: Hvassafell fór frá Vaasa í •gær áleiðis til íslands. Arnar- feil lestar salf í Ibiza. Jökul- fell er í New York. Ríkisskip. Hekla fer frá Reykjavík á mdrgun austur um land í hring férð. ■ Skjaldbreið fór frá Rvík kl. 19 í gærkveldi til Breiða- fjarðar og Vestfjarða. Þyrill er á Austfjörðum. Skaftfellingur fer frá Reykjavík í kvöld til Vestmannaeyja. Blöð og tímarit Tímaritið Úrvál. Blaðinu hefur borizt ö. hefti Úrvals. Efni þess er: Þegar IVIarzbúar hertóku New Jersey Ótilhlýðileg fresting, smásaga eftir Harald Beijer, Hvað vit- um við um krabbamein? Kóngu lóin og vespan, Kanasta — nú samba, Sálfræðingarnir athuga •eðli drauma, ,.Lífræn ræktun“ ■og verksmiðjuáburður. ..Tengda foraldrar, Schmidt fallbyssu- maður í dýrðinni, Þeg.ir gröf Tut-ankh-Amon fannst, Ö'g nú kemur plastbíllinn. Fyrsti skóla dagurinn, Kvennabúr á klöpp- unum, Næstu milljón árin, Hrollvekjan sem hættulegt þjóð félagsfyrirþæri, Fyrsta svæf- ing við skurðlækningu, Kynlíf roskins fólks, Sjálfsstjórn. í skólum, Knut Hamsun, grein eftir norska rithöfundinn Sig- urd Hoel, Á fyrirlestrarferð, frásöguþáttur eftir Knut Ham- son. Fundir Prentarakonur halda fund í kvöld í Aðalstræti 12. Brúðkaup Á laugardaginn voru gefin saman í hjónaband af séra Sig- urjóni Árnasyni ungfrú Sús- anna Halldórsdóttir, verzlunar- mær frá Vesfmannaeyjum, og Jón Atli Jónsson vélstjóri, Með , alholti 8. Heimili þeirra er Meðalholti 10. Dr öllum áttum Ilappdrætti Hringsins. Dregið var á föstudaginn 14. þ. m. hjá borgarfógeta um happ drætti, sem haft var til styrkt- ár barnaspítalasjóð Hringsins. Upp komu þessi númer: 0985 þvottavél, 0480 strauvél. 0072 steikarofn, 0686 gólfteppi, 0717 hálsfesti, 0501 le.'khúskjóll. 0821‘ kertastjakar, 0746 kvöld- kjóll, 1708 handrit, 0759 app- j elsínukassi, 1000 myndavéi. —1 Vinninganna sé vitjað í verzl- j ub Haraldar Árnasonar (herra- de.ldin). Kennarar í Reykjavík! Nokkrir kennarar í Reykja- vík hafa eigi enn svarað spurn- ingum kennaratalsnefndarinn- ar. Vinsamlegast gerið það nú þegár. Það skal skýrt tekið fram, að kennaratalið er skrá yfir alla kennara landsins fyrr ig síðar, í æðri sem lægri skól- um. Auðveldið starf nefndar- innar, svarið greinilega spurn- ingum hennar og losið hana við , það ómak að þurfa að sækja blöðin heim til ykkar. Munið að senda mynd með, en vísið j ekki á myndamót. Margar hend ur vinna létt verk. — Kennara- tal á íslandi, pósthófl 2, Hafn- arfirði. LEIÐRÉTTIN G Nöfn þriggja manna í samn- inganefnd verkalýösfélaganna féllu niður í frétt hér í blað- inu í gær, og skulu því nöfn allra nefndarmannanna birt hér á eftir: Eðvarð Sigurðsson, Reykjavík, Jóhanna Egilsdótt- ir, Reykjavík, Óskar Hallgríms son, Reykjavík, Snorri Jóns- son, Reykjavík, Björn Bjarna- son, Reykjavík, Sæmundur E. Ólafsson, Reykjavík, Ólafur /ónsson, Háfnarfirði, Hanni- bal Valdimarsson .ísafirði, Björn Jónsson, Akureyri, Ragnar Guðleifsson, Keflavík, og Jón Sigurðsson, fram- kvæmdastj. Alþýðusambands- ins. Kaupmaðitr segir sögu, sem gefur glögga rnynd a£ hörmulegu ástandi hjá mörgum. — Er ekki hægt að gjörbreyta álagningarfyrirkomulagi og innhfeimtun útsvara. 20.30 Tónleikai’ symfóníuhljóm svéitarinnar. Stjórnandi Olav Kielland (útvarpað frá þjóð- leikhúsinu). 22.00Fréttir og veðiirfregnir. 22.1Ö Hæstaréttarmál (Hákon Guðmundsson hæstaréttar- ritari). 22.30 Undir ljúfum lögum: Carl Billich o. fl. flyta 1 éþt b 1 j ó ms v e it a r 1 ö g • 23.00 Dágskrárlok. Hverjir sigra í kvö!d! AB-krossgáta Nr. 578 Lárétt: 1 ónot, 6 stilltur, 7 dvelur, 9 tveir eins„ 10 brún, 12 limur, 14 hljóð, 15 mál, 17 þjöð. Lóðrétt: 1 gusa, 2 meira en nóg', 3 beygingarending, 4 bibl- íunfan, 5 greina, 8 sannanir, 11 biðja- um, 13 forfeður, 16 tónn. Laúsn á krossgáfu nr. 277. Lárétt; 1 andfýla, 6 fát, 7 Adam, 9 tv. 10 íöt, 12 ri, 14 kalk, 15 úða, 17 indæll. Lóðrétt: 1 aragrúi, 2 draf, 3 ýf, 4 lát, 5 atviks, 8 mök, 11 taíl, 13 iðn. 16 A.D. HANDKNATTLEIKSMOT REYKJAVÍKUR hélt áfram s. 1. föstudagskvöld. og léku þá fyrst Ármann og Fram. Ár- mann hafði yfir.tökin í leikn- um og sigraði með 10:3. í hálf- leik stóð 4:2 fyrir Ármann; dómari var Jón Þórarinsson og dæmdi hann vel. Annar leikurinn á þessu kvöldi var skemmtilegur í fyrri hálfleik, en leiðinlegur í þeim séinni, en þar áttust við ÍR og KR. Fyrir hálfleikur var jafn, og endaði hann með jafn- tefli, 2:2. Um miðjan seinni hálfleik gerðist nokkuð, sem aldrei á að eiga sér stað, dóm- arinn, Haukur Bjarnason, dæm ir vítakast á ÍR (réttur' dómur), en þá byrja nokkrir áhorfend- ur að baula alveg eins og belj- ur, en dómarinn lætur ekki framkvæma. vítakastið strax, heldur bíður þangað til baulið bættir, og það liðu 3% mín- úta þangað til- - Er þetta mjög skrílslegt, og ætti aldréi að koma fyrir, en rétt er að skýra frá því, að mark var skorað úr vítakastinu. Stúttu síðar. fá KR-ingar dæmt á sig vítakast. Þorleifur Einarsson ætiar að framkvæma vítakast- ið, en rúllar boltanum rólega eftir gólfinu til markvarðarins, og var vísað út af sem eftir var af leiknum. Það sæmir ekki prúðmennsku í leik að mót- mæla dómi. Ég vona að það komí ekki fýrir aff.ur, fyrir eins skemmtilegan leikmann og og Þorleifur getur verið. KR sigr'aði leikinn með 10:3. Næst léku Valur og. Þróttur, þetta var prúðmannlegur leikur ög 'úrslitin, 8:0, eru að vísu Áanngjörn, en sanrf hefðu þrótt arar átt að geta gevt að minnsta kosti tvö mörk, eti þá vantar algjörlega skotmenn. Dómari var Þórir Tryggvason, og dæmdi hann vel. Mótið heldur áfram í kvöld, óg leika þá Vaiur og Fram, Ármann og ÍR og KR og Vík- ingur. DALLI. KAUPMAÐUR skrifaði mér í gær á þessa leið: „Mér datt í hug' að skrifa þér nokkrar lín- ur og segja þér frá atviki, sem kom fyrir í dag. Ég geri það vegna þess, að mér finnst það táknrænt um ástæður sums fólks hér í Reykjavík um þess- ar mundir, en um leið gefur það hugmynd um óheppilega innheimtuaðferð hjá bæjarfé- laginu. TIL MÍN kom kona í dag, sem verzlað hefur í búð minni um skeið. Ég hef veitt því at- hygli, að úttskt þessarar konu hefur alltaf verið íátækleg og útlit hennar sýnir það, að hjá henni mun ekki vera að leita auðæfa. Konan bað mig að tala við sig, og erindið var að biðja mig um 50 króna lán. BEIÐNI hennar fylgdi þessi saga: Maður hsnnar háfði ver- ið á síld í sumar og komið með litið í aðra hönd eiris og fleiri. Nokkru effir að hann kom heim, fékk hann vinnu hjá bænum. í dag (föstudag) f.ékk maðurinn útborgað, en honum brá: í brun, þegar hánn sá, að aðeins 15 krónur voru í um- slaginu, ásamt kvittun fyrir út- svari. Á þessum 15 krónum átti fjölskyldan að lifa til næsía föstudags. IIVERNIG GETER svona nokkuð viðgengist? Getur b:er inn þurrkað þannig út tekjur vsrkamanna sinna? Ber honum ekki skylda til að taka nokk- urn hluta launanna á löngum tíma, en ekki svo stórar upp- bæðir í einu að útilokað sé að lifa á því, sem effir er? — Hvað, sem þessu líður. finnst mér þetta mjög siæmt fram- ferði“. ÞANNIG er bréf kaupmanns ins og segir það sína sögu. Eri af þsssu tilefni vil ég minnast meir á innheimtu útsvaranna. Er ekki hægt að gjörbreyta iim. heimtufyrirkomulaginu? Er ekki hægt að taka ákveðna pró- senttölu af launum fólks tjl skatts og útsvárs, hvort sem vinnusali vinnur hjá sama vinnukaupenda. eða ekki, og hvort sem hann vinnur skemur eða. lengur? ÞAÐ VELDUR geysilegurn. erfiðleikum, bæði hjá skattþega inurn og eins hjá riki og bæ, að leggja útsvar og skatta ú ■tekjur liðins árs. Við skulurrc segja. að ungur maður hafi 40 þúsund króna. árstek.jur í ár, ■en á næsta ári, þegar hann a að greiða útsvar og skatt af tekjum fyrra árs, hefur hann ekki nema 20 þúsund króna tekjur. Innheimtumenn þæjar- ins hljóta að hafa komizt að- rau-n um, að erfift er að inn- heimta útsvör þessara manna. MÉR ER SAGT, að sums stað ar erlendis sé álagningu og innheimtu hagað þannig, að á- kveðin sé viss prósenttala af launum til skatts og útsvars og atvinnukaupanda gert skylt að draga þessa prósenttölu frá við gréiðslu launanna. Þetta er tví- mæláláust miklu betra fyrir- komulag. Hannes á horninu. ^OtOR Hi Jii jk L S \ j Ingimundur tilkynnir | s , s ^ að enn eru eintök af bók ^ S minni ,,Smámunir“, með S • gamangreinum, gamanvís- ^ ^ um og gamansögum, eftir í ^ S vörzlum umboðsmanns, \ ^ Kr. Linnet. sími 3546. Lát-^ S „V ^ ið hann vitá^-ef þið viljiö ^ S kaupa bókina. S, S S SKiPAVTGCRf) RIKISINS Hekla fer frá Reykjavík kl. 21 ann- að kvöld austur um land 1 hringferð. Sinfóníuhtjómsveitin í Austurbæjarbíó í kvöld. (18. nóv. 1952) kl. 9 síðd. Stjórnandi: Olav Kielland. Einleikari: Ruth Hermanns. Viðfangsefni eftir Mozart, Beethoven og Wagner. Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal, Bókum og ritföngum og Helgafelli, Láugavegi 100. 'g AB-3|

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.