Tíminn - 31.07.1964, Side 5
RITSTJÓR1 HALLUR SÍMONARSON
Fram varð engin
hindrun fyrir FH
| — FH sigraSi Fram í útihandknattleiksmótinu í gær-
kvöidi með 19:16 eftir jafna og tvísýna haráttu.
Alf-REYKJAVÍK.
FRAM tókst ekki að stöðva sigurgöngu FH í útimótinu í handknatt-
leik á Hörðuvöllum í gærkvöldi — og kannski ekki nema von, þar sem
mikil forföll voru í liðinu, m.a. vantaði Guðjón Jónsson, sem hlaut
slæm meiðsli í Ieiknum við Val kvöldið áður. FH átti samt í talsverð-
um erfiðleikum og þegar yfir lauk skyldu þrjú mörk á milli, 19:16
fyrir FH. Og með þessum sigri er líklegt, að FH hafi tryggt sér sig-
ur í mótinu, nema þá Ármann setji strik í reikninginn.
T í M I N N, föstudaginn 31. júlí 1964 —
Jashin afhentur „gullknötturinn
HIÐ víðlesna blað, „France Football“ kaus nýlega „knatspyrnumann Evrópu“ og kom það
víst fáum á óvart, að hinn snjalli sovézki markvörður, Lev Jashin, skyldi verða fyrir valinu.
Á myndinni að ofan sést þegar fulltrúi „France Football“ afhendir Jashin verðlaunin, gull-
knött á stalli, áður en leiltur Sovétríkjanna og Svíþjóðar í Evrópukeppni landsliða hófst í
Moskvu á dögunum.
Aðstæður til að leika handknatt
leik að Hörðuvöllum í gærkvöldi
voru heldur slæmar, sundurtættur
og lélegur völlur og ekki bætti
rigning úr skák. Eitthvað var fram
kvæmd mótsins í molum og leikur
inn hófst 20 mín. eftir áætlun.
Það vantaði sem sé dómara, en að
lokum fannst þó í röðum áhorf-
enda dómari.
Fram byrjaði vel og eftir 6 mín.
var staðan 2:0 fyrir Fram. FH-
Ligar voru hálf feimnir fyrst í
Þróttur hafði alla möguleika
en mistókst beear á r "1M
stað, en feimnin rann af þeim,
þegar Ragnar Jónsson kom inn á
| og hann kom FH af stað. í hálf-
leik hafði FH tryggt sér 5 marka
íorskot, 11:6, og áhorfendur bjugg
ust við, að FH myndi auka þetta
forskot í síðari hálfleik.
En það fór á aðra leið. FH-ingar
settu mann til höfuðs Ingólfi Ósk-
arssyni og mátti hann sím lítils.
En þá losnaði um Gylfa Jóhannes
son og hvað eftir annað sendi hann
knöttinn í netið. Þegar 8. mí'n voru
eftir skildu einungis tvö mörk
á milli, 17:15. Talsverð stemmn
ing var meðal áhorfenda, sem
Pramhalo » iíðu
Þróttur kom sannarlega á óvart í 1. deild í gærkvöldi gegn Kefla-
vík og eftir fyrri hálfleikinn bjuggust áhorfendur á Laugardalsvelli
sannarlega við, að Þróttur myndi hljóta bæði stigin. Allan fyrri hálf-
leikinn sóttu Þróttarar af miklum krafti og skoruðu þá eitt mark,
á 10. mínútu, en Keflvíkingar virtust engan mótleik eiga. Og á síð-
ustu mínútu hálfleiksins ver varnarmaður Keflavíkur knöttinn með
höndum á marklínu — að sumra áliti fyrir innan línu — og dómarinn
Einar Hjartarson, dæmir vítaspyrnu. Þarna fengu Þróttarar upplagt
ta:kifæri til að gcra út um leikinn, en Ómari Magnússyni mistókst
spyrnan og skaut í stöng.
- OG KEFLAVÍK SIGRAÐI MEÐ 2:1
Þarna lék sem sé ólánið við
Þrótt, en tveggja marka forskoti
Aðils—Kaupmannaröfn 29. 7.
í sjöundu umferð á skákmótinu
í Amsterdam mátti Bent Larsen
vera ángæður með að ná jafntefli
við van Scheltinga Hins vegar náði
Jens Enevoldsen skemmtilegri
kóngssókn gegn júgóslafneska
stórmeistaranum og vann. Skákir
Enevoldsen í mótinu eru gáta,
segir Bent Larsen í Ekstrabladed.
Hann hefur aðeins unnið tvær
skákir en þær hafa hins vegar
b'ðar ve»'ið gegn stórmeisturum
(Barcza-Pirc) Staða efstu manna
er nú 1 Larsen 5 v . 2 Donner
4V? v 3 van Scheltinga 4 v., 4.
Lehmann 3y2 v.. og 2 biðskákir
Duck‘tein 3% v.. og biðskák Berl
ingskc Aftenavis segir. að ef Bent
Larsen 'inni ekki tvær síðustu
skákirna; er ekkert öruggt. að
Daninn verði sigurvegari á mótinu
í hálfleik hefði að öllum líkindum
nægt Þrótti til að hljóta a. m. k.
annað stigið. En knattspyrnan er
duttlungafull og spyr ekki um
lán eða ólán, það áttu Þróttarar
eftir að fá að reyna enn betur.
Og 15. mín. síðari liálfleiks var
vettvangur stórra atburða. Þá snér
ist taflið við og á þessari einu
mínútu skorar Keflavík tvö mörk
— og einmitt þessi tvö mörk
færðu' Keflavík tvö dýrmæt stig. f
fyrra skíptið skallaði Sigurður Al-
bertsson framvörður i mark úr
hornspyrnu, án þess, að Guttorm
ur markvörður Þróttar fengi
nokkrum vörnum við komið. Og
í síðara skiptið á Karl Her-
mannsson, bítill, heiður af undir
búningi, þegar hann óð upp
vinstra kant, lék á bakvörð Þrótt-
ar, og gaf skemmtilega fyrir út
til Jóns Ólafs, sem kom aðvífandi
og skoraði með föstu skoti.
Og fleiri urðu ekki mörkin í
leiknum. Keflvikingar sóttu mun
meira í síðari hálfleik, en tókst
ekki að skapa sér tækifæri. Eftir
öllum gangi leiksins geta Keflvík-
ingar hrósað happi að hafa hlotið
bæði stigin, það hefði ekki verið
ósanngjarnt, að liðin hefðu deilt
þeim með sér.
Ekki er ástæða til að fjölyrða
um einstaka leikmenn. Leikurinn
var ekki upp á marga fiska og mót
aðist af hinum mjög svo hála
grasvelli, en ekki hafa íslenzkir
knattspyrnumenn enn. þá komizt
upp á lagið að fóta sig almenni-
lega undir slíkum kringumstæðum.
— Hjá Keflavík átti Högni fyrir-
liði að vanda góðan, leik — og
bítlarnir, Karl og Rúnar, voru
mjög virkir. — Hjá Þrótti voru
Axel og Haukur skárstir. Það var
Haukur, sem skoraði eina mark
Þróttar.
Dómari var Einar Hjartarson.
KJARTAN GUDJÓNSSON.
Bætti unglingamet Arnar Clatf-
sen í tugþraut verulega. K|art-
an hlaut samanlagt 5905 stlg, ea
met Arnar var 5665 stlg. Kjart-
an verður meSal keppenda í 3ja
landa keppnlnnl, sem verður háS
1 hér f Reykjavfk í næstu vtku.
Staðau í 1 deild er nú þessi:
Góður árangur í tugþraut
Kjartan Guðjónsson setti ungiingamet — og Ólafur Guðmundsson drengjamei.
Keflavik
Akranes
IÍR
Valur
Fram
Þróttur
Skemmtilegri keppni í tugþraut
lauk í fyrrakvöld á Melavellinum
með sigri Kjartans Guðjónssonar,
ÍR, sem hlaut samanlagt 5905 stig,
en það er 240 stigum betra en
unglingamet Arnar Clausen. Ann
ar í tugþrautarkeppninni, sá eini
sem lauk keppni utan Kjartans,
var Ólafur Guðmundsson, KR, sem
hlaut samanlagt 5295 stig og bætti
Ólafur þarna drengjamet Kjartans
Guðjónssonar, sem var 5174 stig.
-j- Árangur þeirra Kjartans og
j Ólafs er sérlega ánægjulegur með
| hliðsjón af því, að framundan er
! þriggja landa keppni í tugþraut á
Laugp-"J"'sve!linum í næstu viku,
keppni íslands, Noregs og Sví- :
I þjóðar. i
í sambandi við tugþrautarkeppn
ina tóku nokkrir íþróttamenn þátt
í einstökum greinum — og náði
þá Guðmundur Hermannsson sín-
um bezta árangri í kúluvarpi, 16.
32 metra. Jó Þ. Ólafsson stökk tvo
metra í hástökki 6g Þorsteinn
Löve kastaði kringlu 47.90 metra.
í kringlukastinu náði Þorsteinn
Alfreðsson, prýðisáiangri, 46,80
metra, en hann hefur ekkert keppt
í tvö ár, og kemur árangur hans
því mjög á óvart.
Hér á eftir fer árangr þeirra
Kjartans og Ólafs í tugþrautinni:
Kjartan Guðjónsson:
100 m. hlaup: 11,7 sek 678 st.
Kúluvarp: 14,32 m. 802 st.
Langstökk: 6.31 m.
400 m. hl.: 57,7 sek.
Hástökk: 1.95 m.
Kringlukast: 43,96 m.
Stangarstökk: 3.15 m.
110 m. grindahl. 16.0 sek.
Spjótkast: 55,65 m.
1500 m. hl. 5.28.4 mín.
Ólafur Guðmundsson:
100 m. hlaup: 11,2 sek
Kúluvarp: 10.63 m.
Langstökk: 6,65 m.
Hástökk: 165 m.
400 m. hl. 51.3 sek
110 m. grhl.: 18.2 sek
Kringlukast: 33,29 m.
Stangarstökk: 3.15 m.
Spjótkast: 36,78 m.
1500 m. hl.: 4.26.3 mín.
590 st.
404 st.
976 st.
742 st.
382 st.
593 st.
638 st.
99 st.
834 st.
470 st.
684 st.
605 st.
751 st.
272 st.
454 st.
382 st.
304 st.
542 st.
I