Tíminn - 26.08.1964, Qupperneq 15

Tíminn - 26.08.1964, Qupperneq 15
 PRESTASTEFNAN FB-Reykjavík, 25. ágúst. Prestastefna fslands hófst í Reykjavík í dag. Hún heldur á- fram á morgun og byrjar dagur- inn með morgunbæn í kapellu Háskólams kl. 9:30, bænina flytur séra Andrés Ólafsson prófastur. Eftir það halda áfram umræð- um um fermingarfræðsluTia, en framsöguerindi voru flutt í dag. Klukkan 14, flytur dr. K. Schmidt- Clausen framkvæmdastjóri Lút- herska heimssambandsins, ávarp, og sömuleiðis flytur dr. Richard Beck prófessor ávarp. Klukkan 14:30 flytur séra Ósk- ar J. Þorláksson dómkirkjuprest- ur erindi á vegum Hins íslenzka Biblíufélags, og klukkan 15 verð- ur sameiginleg kaffidrykkja á Garði í boði biskupsins. Eftir það halda umræður áfram um ferm- ingarundirbúninginn, en kl. 18 verður flutt erindi með skugga- myndum í I. kennslustofu Háskól- ans. Það gerir Bo Giertz biskup í Gautaborg, og nefnist erindið Kirkjulegt starf í Svíþjóð. Er öll- um heimill aðgangur á meðan hús- rúm leyfir. Um kvöldið flytur séra Lngólfur Ástmarsson biskups- ritari, erindi í útvarpið, Lút- herska heimssambandið, nefnist erindi hans. SÁU LANDMYNDUN Framhald af 16. síðu. til leiðsagnar um ýmislegt. Fengu þátttakendur mjög raun sæja mynd af landinu í þess- ari ferð, fengu á sig flest þau veður, sem hér geta komið, sáu landmyndun og landeyð- ingu, lentu í moldroki og sand- foki og jafnvel landskjálfta, svo að það var ekki að undra, þótt þeir væru ánægðir með endaða för, þegar við spjöll- uðum við þá í dag. Margir þátttakendanna höfðu komið til íslands áður til fræðslu og rannsókna. Frá Nor- egi komu prófessor Tom Barth bergfræðingur, sem m.a. hefur skrifað bók um íslenzka hveri og dr. Björn Andersen, kvart erjarðfræðingur. Finnskii þátt takendur voru prófessor K Neuvonen, bergfræðingur, pró fessor í Turku, og Veikko Okko, sem skrifað hefur dokt- orsritgerð um jökla og dvaldist við jöklarannsóknir hér fyrir 15 árum, ferðaðist þá m.a. á hestum um Skeiðársand og Breiðamerkursand og virtist eiga Ijúfar endurminningar frá þeirri ferð. Frá Danmörku komu Arne Noe-Nygárd, pró- fessor við Hafnarháskóla, sem m.a. hefur skrifað um íslenzka móbergið, rannsakað Gríms- vötn og fleira, prófessor Asger Bertelsen í Árósum, og pró- fessor Borge Fristrup, yfirmað- ur jöklarannsókna á Græn- landi. Fulltrúar Svíþjóðar voru prófessor Gunnar Hoppe við há- skólann í Stokkhólmi, sem einnig var með í fræðsluferð, sem gerð var hingað 1948, pró- fessor Filip Hjulström i Upp- sölum, sem rannsakað hefur jölculár hér á íslandi, Frans Wickman, prófessor við nátt- úrugripasafnið í Stokkhólmi, sem ransakað hefur hveri á fs- landi, fil. lic. Tomes Lindquist, eldfjallafræðingur í Stokk- hólmi, og dosent Valte Schytt, sem mun þekktastur jöklafræð- inga á Norðurlöndunum. Schytt og Berteisen sátu ekki blaða- mannafundinn í dag, þar eð þeir voru farnir af landinu. Náttúrufræðingarnir voru á einu máli um ómetanlegt gildi fyrirhugaðra fræðsluferða nor- rænna náttúrufræðistúdenta hingað, ekki sízt eftir þessa vel heppnuðu för þeirra um land ið. fsland er engu líkt, sögðu þeir, hér er flest, sem hugur náttúrufræðinga stefnir til. Tveir þeirra ræddu sérstaklega um hinar merku aldursákvarð- anir jarðlaga, sem hér hafa verið unnar, og prófessor Hoppe sagði það vera álit vís- indamanna, að rannsóknir Sig- urðar Þórarinssonar þar að lútandi væru undirstöðurann- sóknir í aldursákvörðunum jarðlaga, hávísindalegar og mjög merkilegar. Prófessor Barth kvað það mikið undrun- arefni, að við Háskóla íslands skuli ekki vera deild í náttúru- vísindum, önnur eins aðstaða og hér væri fyrir hendi til rannsókna á þessu sviði. Dr. Sigurður Þórarinsson sagði okkur, að héðan í frá yrðu fræðsluferðir norrænna náttúrufræðistúdenta árlega, yrðu það hálfs mánaðar ferðir með um 25 þátttakendum frá öllum löndunum. Annað árið mundu það einkum verða jökla- fræðingar, sem þá yrðu aðal- lega við rannsóknir á hálendi Suðurlands, en hitt árið eld- fjallafræðingar, sem mundu þá ferðast til Mývatns og Öskju og Heklusvæðisins. Hvert land mun veita ákveðna tölu styrkja, en síðan mun nefnd velja úr þátttakendur. 'fsland mun leggja til leiðsögumenn, og verða þeir Sigurður Þórarins- son, Guðmundur Kjartansson og Guðmundur Sigvaldason, i ÞAKKARÁVÖRP Hjartanlega þakka ég öllum nær og fjær, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeyt- um og sýndu mér hlýja vináttu og tryggð á áttræð- isafmæli mínu 7. ágúst síðast liðinn. Guð blessi ykkur öll. Steinunn Sigurðardóttir, Miðskeri, Hornaiirði. Innilega þökkum við öllum, nær og fjær fyrir vináttu og samúð við andlát og jarðacför Sigríðar B. Þormóðsdóttur Nanna Jónsdóttir Vigdís Þormóðsdóttir Kristbjörg Þormóðsdóttir Árni Þormóðsson Kolbrún Þormóðsdóttir Sigriður Árnadóttir Sveinn Skorri Höskuldsson Egill Halldórsson Hjördís Thorarensen Lengi óttazt um /#/ 8 ára telpu, sem féll / grjóturð AG-Akranesi, 25. ágúst. Rétt fyrir sjö í gær féll 8 ára telpa iviður af vinnupalli við húsið Hjarðarholt 15, og var um tíma tvísýnt um líf áennar. Slysið varð er telpan Guðný Guðbjartsdóttir var að leika sér á vinnupöllunum við heim- ili sitt Hjarðarholt 15, og er fallið um tveir og hálfur metri. Lenti hún í grjóturð og drasli fyrir neðan vinnupallana, og var um tíma óttazt um líf henn- ar. Guðný var flutt á sjúkra- húsið hér, og er nú úr lífs- hættu. Hlaut hún höfuðkúpu- brot. Mikill mosabruni í Eldborgarhrauni HF-Reykjavík, 25. ágúst. Á sunnudaginn var kom upp eld ur í mosa í Eldborgarhrauni og er talið að kviknað hafi í út frá sígarettu. Reynt var að slökkva eldinn, en þegar það hafði engan árangur borið í gærmorgun var leitað aðstoðar hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði og tókst henni að sigrast á eldinum. 6 í HRAKNINGUM Framhald af 1. síðu. liggur niður í Bárðardal, því , þeir voru að verða olíulitlir, og þessi leið er heldur styttri en leiðin að Mývatni. Þegar þeir komu suður fyrir fjöllin lentu þeir í snjó og festu bílana, og auk þess var annar þeirra orðin olíulaus, og sáu þeir nú ekki annað ráð vænna en leggja af stað gangandi til byggða. Gengu þeir norður í Suð urárbotna, og fundu þar leítar- mannakofa, sem hefur komið sér heldur betur fyrir þá, því þeir voru orðnir bæði blautir og þreytt ir, enda var veður kalt og mikil úrkoma. Ellefu tíma gangur var frá bílunum og í leitarmannakof ann og bjargaði það þeim frá því að villast, að þeir gátu fylgt troðn ingum og bílaslóðum, sem þarna máttí vel sjá, þrátt fyrir snjóinn. Þeir létu nú fyrirberast í kof- anum yfir nóttina, en á sunnudags morgun lögðu þrír af stað aftur, og ætluðu að ganga niður í Bárð ardal. Komu þeir að Svarárkoti nokkru eftir hádegi, en frá kof anum að Svartárkoti eru rúmir 9 kílómetrar. Var mönnunum orðið ákaflega kalt og þeir orðnir ákaf- lega sárfættir að sögn Harðar bónda. Þeír voru ekki tiltakanlega illa klæddir til fjallaferða, en þó ekki búnir til göngu í því veðri, sem verið hafði á meðan þeir voru á ferð. Þremenningunum var gef in hressing, og síðan var lagt af stað upp í Botna til þess. að sækja þá þrjá, sem þar voru í kofanum og að lokum voru þeir allír keyrð ir út að Mývatni. Mennirnir voru allir töluvert eftir sig eftir þetta volk, og sér í lagi einn, sem var svo sárfættur, þegar björgunar- mennirnir komu til hans i leit armannakofanum að hann komst ekkí í nokkra skó. Eins og fyrr segir lögðu s.Iðan menn frá Bílaleigunni Bílnum upp frá Reynihlíð í dag til þess að sækja Land-Roverana tvo, sem VÍÐAVANGUR — Framhald af bls. 3. berum framkvæmdum nú í haust undir því yfirskyni, að þess þurfi til að mæta þeim skattalækkunnm, sem hún hef- ur verið að burðast Við að Iofa á næsta ári? Það var nær 2 hektara svæði, sem brann, og er það í landi Her dísarvíkur, sunnan við Lyngfjall og austan við Sýslustein. Hjálpar sveitin úr Hafnarfirði, starfaði undír stjórn Jóns Gunnarssonar og notaði ekki vatn eða neiíft þess háttar til að kæfa eldin, heldur kartöfflugaffla og garðhrífur. Með þessum áhöldum mynduðu skát- arnir tveggja metra breiða geil í kringum allt eldsvæðið. Mjög mikinn reyk lagði af þess um mosabruna og það langt út á haf. Á þessum tíma er mosi mjög þurr og eldnæmur og verð ur ferðafólk því að fara varlega með eld. VEGIR FÆRIR HE—Vestmannaeyjum, 25. ágúst Á meðan síldarflotinn liggur í höfn fyrir austan veiða Vestmanna eyjabátar vel. Síldin er nú aðal- lega austur í Meðallandsbugt út af svokallaðri SkarðSfjöru Þar hafa bátamir verið að fá góð köst á aðeins 12 faðma dýpi. í gær komu þessir bátar með eru í eigu Bílsins. Var búizt við mönnunum niður að Mývatni aft ur einhvern tíma í nótt ef allt gengi að óskum. BEIÐ DAUÐA SÍNS þeir Jón og Smári komu að, hafði hesturinn vafið taumnum um staurinn, þannig að hann gat vart hreyft höfuðið. Allt var úttraðkað þarna þeim megin girðingarinnar sem hesturinn hefur verið, eitt flag þar sem áður var tún. Tvær skeifur hefur hesturínn traðkað undan sér og voru þær í flaginu, og staurinn mikið nagaður. Hestamaður úr Mosfellssveit fór ásamt Baldri og ætluðu þeir að handsama hestinn seinna í gær- kveldi, en það tókst ekki. Ekki þekktu þeir hann. í dag var hest- urinn svo horflnn, og ekki að vita, nema eigandinn hafi séð að sér og náð í hestinn í nótt eða morgun. Lítil umferð er um staðinn þar sem hesturinn var, ekki nema hestamenn um helgar, og svo börn sem fara niður að Leirvoginum til leiks. Vítavert kæruleysí má það telj ast að skilja hestinn eftir svona tjóðraðan við staur úr alfara- leið, og er ekki að vita nema hann hefði orðið þarna allur, ef þeir Jón og Smári hefðu ekki átt þarna leið um, og veitt honum athygli. SEX SKAÐBRENNDUST Framhald af 1. síðu. unum. Starfskraftar á heirnil- inu eru að vonum alveg lam- aðir, en sonur Davíðs, sem er búsettur í Hafnarfirði, kom á- samt konu sinni í Miklaholt eftir slysið, til þess að bjarga búskapnum. síld til Eyja: Meta með 954 tunn ur, Reynir 754, Gulltoppur 658, Gullborg 1075 og Pétur Ingjalds- son 1125. í morgun kom Leó tneð 846 tunnur, Marz með 300, Erling ur III. 430 og Huginn 874. Tveir bátar eru nú á leiðinni til Eyja með góðan afla, Halkion sem -er með fullfermi og Ófeigur II. með góðan afla. Lögfræðiskritstofan Iðnaðarbankahúslmi IV. hæð. rómasar Arnasonar og Vihiáms Árnasonar RYDVORN Grensásveg 18, sími 19945 RySverium bílana meS Tectyl SkoSum og stillum bílana fliótt og vel. BÍLASKOÐUN Skúlagötu 32. Sími 13-100 TÍMINN, mlSvikudaglnn 26. ágúst 1964 — 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.