Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 5
................ . . IH RITSTJORI: HALLUR SÍMONARSON IÞROTTAÞING SETTI DAG Framkvæmdamefnd fþróttasam- bands íslands boðaði blaðamenn á sinn fund í gær í hlinum nýju húsakynnum samtakanna í Laug- ardalnum, en ÍSÍ hefur nýlega flutt starfsemi sína þangað og hefur efstu hæð húsins ásamt sér- samböndum ÍSÍ. Er hér um mjög iglæsilegt húsnæði að ræða, sem létta mun alla starfsemi ÍSÍ og áðstöðu. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, hafði orð fyrir stjórninni og sýndi hin nýju húsakynni. Hann skýrði einnig frá því, að í dag kl. 2 yrði íþróttaþing sett í salar- kynnum Slysavarnafélagsins við Grandagarð. Störf þess verða þannig. 1. Þingsetning, forseti ÍSÍ. 2. Kosning 5 manna kjörbréfa- nefndar. 3. Kosning 1. og 2. þingvarafor- seta. 4. Kosning 1. og 2. þmgritara. 5. Lögð fram skýrsla fram- kvæmdast j órnarinnar. 6. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar. 7. Umræður og fyrirspurnir um störf sambandsráðs og fram- kvæmdastj órnarinnar. 8. Kosnar nefndir: a) Kjörnefnd, þriggja manna. b) Fjárhagsnefnd, 5 manna. c) Allsherjarnefnd, 5 manna. d) Aðrar nefndir. 9. Teknar fyrir tillögur um mál, sem lögð hafa verið fyrir þingið, og önnur mál, sem þingmeirihluti leyfir. Sunnudagurinn 20. september 10. Tekin fyrir fjárhagsáætlun og tillögur fjárhagsnefndar. 11. Ákveðin ársgjöld. 12. Þingnefndir skila störfum. 13. a) Kosin framkvæmdastjórn ásamt varamönnum. b) Kosnir fulltrúar landfjórð- unganna og Reykjavíkur í sambandsráð. c) Kosnir tveir endurskoð- endur og tveir til vara. d) Kosinn íþróttadómstóll. 14. Þingslit. ALFREÐ ÞORSTEINSSON SKRIFAR FRÁ LUNDÚNUAA; Héláa KR-inga bítla og margir féllu í yfirlið Margt var um að vera í hafnarborginni Liverpool um síðustu helgi, þessari borg, sem státar af „bítlun- um“ og ensku meisturunum í knattspyrnu, Liverpool FC. Á laugardaginn skeði það, að tveir hópar héldu innrcið sína í Liverpool, annars vegar heimsfræg „bítlahljómsveit“ frá London, The Rolling Stones, og hins vegar ískaldir knattspyrnumenn frá Reykjavík FC, en svo er KR-liðið venjulegast kallað hér í Englandi. Hvað vildu þessir tveir hópar eiginlega til Liverpool? Hafði ekki Liverpool nóg af „bitl'um“ og góðum knattspyrnumönnum? The Rolling Stones komu sáu og sigruðu í borginni — og það má reyndar segja um KR-in-gana, sem komnir voru til að leika síðari leikinn í Evrópubikarkeppninni. Þeim tókst að vísu ekki að sigra enska meistaralið ið, en þeir unnu hug og hjörtu yfir 30 þúsunda áhorf enda á Anfield Road. Blöðin í Liverpool skrifuðu eftir leikinn, að aldrei fyrr hefði nokkru gestaliði verið fagnað svo gífurlega og KR-liðinu s.l. mánudagskvöld. Eg kom til Liverpool snemma á mánudagsmorgni og lá leið mín að stærsta hóteli borgarinnar, Ad elphi Hotel, en þar gisti KR-liðið. Mér brá í brún, begar ég nálgaðist hótelið, því að það var umkringt lögregluþjónum. Skýringin kom fIjótlega í ljós, „bítla-hijómsveit in“ frá London bjó þá einnig á hótelinu — og kvöldið áður hafði það gerzt, að sægur unglinga gerði aðsúg að hótelinu til að nálgast þessi átrúnaðargoð sín. Og í þessu sambandi lenti KR-liðið í smáævin- týri Hinir hárprúðu hljólmlistar- menn voru ekki viðlátnir — og gerðu þá nokkrir liðsmenn KR sér að leik að veifa til fjöldans frá gluggum sínum. Áhrifin urðu meiri en þá nokkurn tímann ór- aði fyrir — fjöldinn byrjaði að æpa og- öskra af hrifningu — stóð sennilega í þeirri meiningu, að KR-ingarnir væru „bítlar“. Eng ar sögur fara af því hve margir féllu í yfirlið, en eftir á var mik ið gaman hent að þessum atburði. í sambandi við hina ströngu löggæzlu yið hótel Adelphi má einnig geta þess, að um helgina gisti þar frægur stjórnmálamaður, Mr. Harold Wilson, formaður brezka verkamannaflokksins. Var hann staddur í Liverpool vegna undirbúnings fyrir þingkosningarn ar, sem verða innan skamms. Wil- son ræddi stuttlega við nokkra íslendinga — og kom mjög vel fyrir. ☆ Leikurinn milli KR og Liverpool í flóðljósum á Anfield Road var heilt ævintýri. Ég skal játa það, að fyrir leikinn var ég mjög smeyk Framhald á 9. síðu. Hér eru nokkrar myndir frá leik KR og Liverpool. Efst siást leikmenn Liverpool klappa fyrir KR-ingum, þegar þelr, yfirgefa lelkvanginn. Næst smýgur knötturinn efst í markhornið og fyrsta mark Liverpool er stað- j reynd. „Viltu skrifa nafnið þitt', segja Liverpool strákarnir og umkringja Svein Jónsson. Og á þrídl. myndinnl fagnar Gunnar Fellxson, efir tað hafa skorað ágætt mark fyrir KR. TÍMINN, laugardaginn 19. september 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.