Tíminn - 22.09.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.09.1964, Blaðsíða 1
FLUGVÉLIN Á HAFINU Sá óvenjulegi atburður gerð ist á sunnudaginn, að eins hreyfils flugvél á leið • frá Bandaríkjunum til Evrópu nauðlenti á hafinu fyrir sunn an land. Flugmanninum var bjargað í þyrilvængju frá Keflavíkurflugvelli, en vélinni bjargaði vélbáturinn Ögri, og kom hann með hana til Reykja víkur aðfaranótt mánudagsins. Nánari frásagnir af þessu slysi og aðdraganda þess er að finna á 3. og 16. síðum í blaðinu í dag. GE tók myndina um borð í Ögra við komuna til Reykja víkur. "m v\ Gunnar Guðbjartsson um samkomulagið í Sex-mannanefndinni SAMNINGARNIR AFANGI, EN LANGT AD MARKINU IGÞ-Reykjavík, 21. sept. Á öðrum stað í blaðinu í dag er birt niðurstaða samninga Sex-mannanefndarinnar um verðlagsgrundvöll landbúnaðar vara. Tíminn sneri sér í dag til Gunnars Guðbjartssonar for manns Stéttarsambands bænda, er á sæti í nefndinni, og spurði hann um álit hans á samkomu- laginu. Kom fram í viðtalinu við Gunnar, að hér er um á- fanga að ræða, þótt enn sé langt að því marki, að bændur beri réttan hlut frá borði. — Hvað villt þú segja okk- ur um samningana ,um verð- ÞINGIÐ VEITTI STJÖRN BSRB OTVIRÆTT TRAUST EJ-Reykjavík, 21. september. 23. þing Bandalags starfs-1 manna ríkis og bæja vottaði í gær j bandalagsstjórninni traust sitt og neitaði að láta sundra samtökun- | um eftir pólitískum sjónarmiðum. i Var Kristján Thorlacíus endur- kjörinn formaður með 13 atkvæða meirihluta. Þingið samþykkti marg ar ályktanir, m. a. í launa- og m&m!:-dxxivxií&s:wamiœm Kristján Thorlacius skattamálum, og er bandalags- stjórninni falið að hefja nú þegar undirbúning að kröfugerð í vænt- anlegum samningum. Stjórnarkjör fór fram á BSRB- þinginu í gær og kom þar fram eindreginn vilji þingfulltrúa um, að kjarabaráttan skuli háð á stétt arlegum grundvelli, en ekki eftir pólitískum línum. Var Kristján Thorlacíus endurkjörinn formað ur BSRB með 64 atkvæðum, en Ólafur Einarsson fékk 51 atkvæði 1. varaformaður var kjörinn Júl- ísu Björnsson og 2. varaformaður Haraldur Steinþórsson. Meðstjórn endur voru kjörnir: Anna Lofts- dóttir, Ágúst Geirsson, Bjarni Sig- urðsson. Einar Ólafsson, Guðjón B. Baldvinsson, Magnús Eggerts- son, Teitur Þorléifsson og Valde- mar Ólafsson, en í varastjórn Þor steinn Óskarsson, Sigurður Sigurðs son, Jakob Jónsson, Sigurður Inga son og Ingibergur Sæmundsson. í samþykkt þingsins um launa- mál er því beint ti) bandalags- stjórnar, að hún hefji nú þegar úndirbúning að kröfugerð í vænt anlegum samningum, og verði þar lögð áherzla á. að iaunastiginn verði mi^aður við það, að opin- berir starfsmenn fái að fullu bætta þá hækkun verðlags, sem átt hef ur sér stað frá gildistöku núver andi launastiga, og hliðsjón höfð af því, að Kjaradómur hafi ekki gengið nægilega til móts við rétt mætar kröfur opinberra starfs- manna, að laun opinberra starfs manna verði aldrei lægri en raun verulegar launagreiðslur til sam bærilegra starfshópa á frjálsum launamarkaði. að leiðréttingar verði gerðar á skipun þeirra starfa í launaflokka, sem vanmet in eru, og jafnframt leitast við að starfsmenn beri starfsheiti, sem eru í sem nánustu samræmi við störf þeirra. að unnið verði áframhaldandi að leiðréttingu á launakjörum kvenna með það fyr- ir augum að íaunajafnrétti verði náð fyrir 1. ’anúar 1967, að öllum starfsmönnum verði tryggð ur a. m. k. einn frídagur í viku og að vinnutími þeirra sem vinna yfir 40 stundir á viku, verði stytt ur. Jafnframt segir í samþykktinni Framh. á 15. síðu lagsgrundvöll landbúnaðarins, Gunnar? — Ég vil fyrst taka fram, að aðstaða bændanna er allt önn- ur og verri en verkalýðsfélag anna, af því að þeir hafa ekki löghelgaðan verkfallsrétt, eða rétt til sölustöðvunar á land búnaðarvörum. En verði ekki náð samkomulagi í Sexmanna- nefnd skal verðlagið úrskurðað í yfirnefnd, sem er eins konar kjaradómur. Lögin um framreiðsluráð landbúnaðarins, sem ákvarða meðferð þessara mála voru sett 1947, en þá voru allt aðrar þjóðfélagsástæður hér á landi heldur en nú eru. 1 þeim eru ekki neínar ákveðnar reglur um það, hvernigð framleiðslu kostnaður búvaranna skuli fundinn, né heldur eftir hvacia reglum yfirnefnd skuli úr- skurða. í yfirnefnd ræður afl atkvæða og þá verða tveir af þrem að vera sammála til þess að afgreiðsla fáist þar. Aðalmarkmið laganna felst í 4. greín þeirra, og er um það að þeir sem landbúnað stun ía skuli hafa sambærilegar tekj ur við aðrar vinnanndi stéttir. En þar sem engar fastar regl ur eru um, hvernig þetta skuli fundið, hefur oft orðið um þetta ágreiningur og reglan sýnt, að bændur eru nær alltaf með lægri tekjur en aðrar stétt ir. Ákvæðum laganna um þetta efni hefur ekki fengizt breytt, þrátt fyrir eindregnar óskir Stéttarsambands bænda um bað efni. Á síðustu árum hefur hallað mjög á bændurna fjárhagslega og afkoma þeirra hefur versn að í hlutfalli við ýmsar aðrar stéttir. Þar kemur cil hinn geíg vænlegi vöxtur dýrtíðarinnar. Rekstrarvörurnar hafa hækkað ört í verði og má þar m. a. nefna fóðurbæti og áburð. Enn fremur hefur fjárfestingar- kostnaður hækkað stórkost- lega. Hins vegar hefur sú að- stoð, sem ríkið veitir með framiögum, samkv. jarðræktar og búfjárræktarlögum staðiö að méstu í stað þessi ár, en lánakjör víð Búnaðarbanka ís lands stórversnað miðað við það sem áður var og afurðalán minnkað all mikið hlutfallslega frá því sem var um skeið fyr- ir 1959, sem leiddi til þess að fyrsta útborgunarverð til þeirra fyrir afurðirnar hækkaðl ekki eðlilega. Bændum var orðið ljóst, að þeir hlutu, í þessu kapphlaupi við dýrtíðina alltaf að verða á eftir, og að það er ekki hægt að leysa allan þeirra vanda með verðlagshækkunur. einum — Hvaða ieíðir vilja þeir bá fara jafnframt? Framhald á 2. síðu. Gunnar Guðbjartsson 1 ' í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.