Tíminn - 22.09.1964, Blaðsíða 15
VERZLUN
Framhald af 16 síðu.
andi i verzluninni, þar af helming
ur íslenzkt starfsfólk. í hverfi því,
sem verzlunin er i, er mikið af
húsgagnaverzlunum.
Kristján Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri hinnar nýju verzl
unar, sagði blaðamönnum í dag,
að verzlun þessi ætti ekki að vera
forvitnileg á neinn hátt og það
ætti ekki að leggja áherziu á að
vörurnar væru íslenzkar, heldur
ætti að leggja álicrzlu á, að hafa
á boðstólum vandaða vöru. Það
var Kristján, sem fyrst bar upp
hugmyndina að þessari verzlun
á ársþingi Félags íslenzkra iðn-
rekenda í apríl síðastliðnum.
Hann sagði blaðamönnum, að þó
að þessi tilraun mistækist, mætti
ekki vanmeta hugmyndina, sem
stæði að baki tilrauninni. Hug-
myndsn væri sprottin af þeirri
ályktun, að fslendingiun sé nauð
synlegt, að breyta efnahagslífi
sínu. Með því að byggja upp iðn-
aðinn og skapa honum erlenda
markaði er þjóðinni tryggð góð
afkoma, þó sjávaraflinn vilji
bregaðst. Þetta er skoðun Krist-
jáns Friðrikssonar og fleiri fram
sýnna manna og vonandi fer til
raun þeirra vel.
HIRTI FLUGVÉL
Framhalt al bls 3
að spara benzínið eftir það.
Annars var veðrið svona all-
sæmilegt mestan hluta leiðar-
innar.
— Hvað varstu lengi á gúm-
bátnum, áður en þyrlan kom og
bjargaði þér?
— Ekki lengur en 10—15
mínútur. Veðrið var ljómandi
gott, nokkurn veginn sléttur
sjór, þótt öldurnar kæmust upp
í 3 fet. Ég fór út á væng flug-
vélarinnar og blés þar upp
björgunarbátínn og fór í hann.
— Það varð ekki löng bið í
bátnum, því ég hafði haldið
áfram að fljúga eins lengi og
ég gat vegna eldsneytisins, þar
sem ég hafði fengið vitneskju
um að þyrlan var á leið til mín,
og þótti mér réttast að reyna
að nálgast hana eíns mikið og
ég gat, enda þótt ég sæi nokkra
fiskibáta á þessum slóðum og
vissi, að þeir hefðu getað náð
mér ef á þurfti að halda. Flug
vélin hélzt svo á floti eftir að
ég nauðlenti, en það hefur ef-
laust verið vegna tómra benz
íntankanna, sem hafa virkað
eins og nokkurs konar flot.
— Hefur þú lent í nokkru
þessu líku áður?
— Nei, ekki hef ég gert það.
— Hversu langt er síðan þú
byrjaðir að fljúga?
— Ég byrjaði árið 1939, og
fór svo í flugherinn 1942. Eft-
ir stríðið hef ég verið í heima
varnarliðinu og flýg alltaf
meira og minna, og kenni þar
að auki. Ég hef aftur á mótí
aldrei flogið svona lítilli vél
yfir opið haf, en ég hef oft
farið á stórum vélum hér yfir
bæði í stríðinu og síðar.
— Eru Mooney Mark vélarn-
ar taldar góðar vélar?
— Þær eru að verða mjög
vinsælar í Bandaríkjunum, og
teljast góðar. Vélin, sem ég
flaug var alveg ný, hafðí ekki"
nema 16 flugstundir.
— Þekktust þið flugmennirn
ir þrír, sem fluguð þessum vél
um?
— Ég þekkti Wall, þann sem
var með vélina, sem nú er
týnd. Hann hafði verið flug-
maður álíka lengi og ég. Hann
hafði verið í flughernum, en
hættur þar.
— Og hvað er nú næst á
dagskrá?
— Ég er að fara heim aftur
til New Jersey. Mér skilst, að
flugvél frá PanAm fari hér
um annað kvöld, og ég ætla að
£ara með henni, sagði Moody
áS lokum.
LQFTLEDA-
VfflRÆDUR
HAFNAR
KJ-Reykjavík, 21. sept.
f morgun hófust hér í Iteykja-
vík viðræður milli íslenzkra og
skandinaviskra loftferðayfirvalda
um mál SAS og Loftleiða. Er þar
rætt um hina breyttu samkeppn
isaðstöðu Loftleiða eftir tilkomu
Rolls Royce vélanna. Blaðið hafði
í dag tal af Agnari Koefed Han-
sen flugmálastjóra og spurði hann
um gang viðræðnanna, en hann
kvað ekkert um þær að segja á
þessu stigi málsins. Þeir sem taka
þátt í viðræðum þessum auk ísl.
flugmálastjórans eru sænski flug
málastjórinn Winberg og fulltrúi
hans Smidberg, fulltrúi norska
flugmálastj. Heum og Stevner
fulltrúi dönsku flugmálastjómar-
innar.
SEXMANNANEFNDIN
Framhald af 2. síðu.
lag við fulltrúa bænda í sex-manna
nefnd, setn felst í eftirfarandi yf-
irlýsingu landbúnaðarráðherra:
„I. Afurðalán landbúnaðarins úr
Seðlabankanum miðast við sama
hundraðshluta og afurðalán sjávar
útvegsins. Lán frá viðskiptabönk
unum verði að hundraðshluta sam
bærileg út á landbúnaðarafurðir
og sjávarafurðir.
II. Ríkisstjórnin Jeggur fyrir
næsta Alþingi frumvörp að búfjár
ræktarlögum og jarðræktarlögum,
sem feli í sér að jarðræktarfram-
lög hækki á næsta ári um allt að
30% í heild miðað við sömu fram
kvætndir og 1963. Jarðræktarstyrk
urinn verði greiddur samkvæmt
sérstakxi vísitölu,. sem miðast .við
framkvæmdakostnað. Bráðabirgða-
ákvæði við jarðræktarlögin tryggi
bændum fjármagn til uppsetningar
á súgþurrkunartækjum með mótor
og blásara, er nemi að meðtöldum
jarðræktarstyrk % kostnaðar. Sé
utn færanlega vél að ræða skal
styrkurinn miðast við hæfilega
stóran rafmagnsmótor. Bráða-
birgðaákvæði þetta gildir næstu 5
ár.
III. Verja skal árlega næstu 5
ár allt að kr 5 milljónum til að-
stoðar þeim bændum, sem verst
eru settir, eftir nánari ákvæðum
og í samráði við Búnaðarfélag ís-
lands, landnámsstjóra og stjóm
Stéttarsambands bænda.“
Fulltrúar bænda í sex-tnanna-
nefndinni gera ráð fyrir að aukn
ing afurðalánanna geri sláturleyfis
höfum og mjólkurbúum fært að
hækka fyrstu útborgun til bænda
um 10%.
Vegna samkomúlags ríkisstjórn
ar, verkalýðsfélaganna og atvinnu
rekanda frá 5. júní s.l koma verð
hækkanir á landbúnaðarvörum
fram í hækkuðu kaupi miðað við
kaupgreiðsluvísitölu nóvembermán
aðar, nema til komi auknar niður
greiðslur. Ekki er búið að ákveða
endanlega hverjar verða niður-
greiðslur úr ríkissjóði og er því
eftir að ljúka útreikningi útsölu-
verðs einstakra vörutegunda.
Lokið verður við þá útreikninga
og nýtt verðlag landbúnaðarvara
auglýst næstu daga.
Fréttatilkynning frá
Sex-mannanefnd.
VÍÐAV4NGUR -
hylja hneisu sína.
Væri nú ekki ráð, að ritstjóri
Morgunblaðsins labbaði sig aft
ur heim til Ágústs og bæði
hann um nýja yfirlýsingu. Hver
veit nema Jóhannes Iabbaði
líka með honum núna.
í STJÓRN WAY
Framhalo et 16. si8u.
WAY hefur frá öndverðu verið
að skipuleggja og efla frjálst æsku
lýðsstarf og hefur í því sambandi
efnt til fjölmargra námskeiða og
ráðstefna um hagsmunamál æsk
unnar og stuðlað þannig að aukn
um sMlningi og samskiptum æsku
fólks í heiminum.
Aðalmál þingsins í Amherst var
æskan og heimsfriðurinn á atóm
öld, auk fjölda annarra mála svo
sem mannréttinda og alþjóðamála
svo fátt eitt sé nefnt. Margir
ágætir fyrirlesarar og gestir sóttu
þingið, þeirra á meðal Robert
Kennedy, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna og doktor Martin
Luther King forustumaður í
jafnréttisbaráttu blökkumanna.
Æskulýðssamband íslands gerð
ist aðili að Heimsþingi æskunnar
1958 og hefur æ síðan átt fulltrúa
á þingum samtakanna, en þau
hafa verið haldin í Nýju Dehli,
Accra, Árósum og nú í Amherst
Þlng Heimssambandsins er hald
in annað hvert ár og móta þau
stefnuna og hafa æðsta vald í
málefnum samtakanna. Milli þinga
fer kjörin framkvæmdastjóm
með málefni Heimssambands æsk-
unnar. í henni eiga sæti þrettán
fulltrúar frá öllum heimsálfunum,
auk forseta, framkvæmdastjóra og
gjaldkera. Aðalstöðvar samtak-
anna eru í Brussel. Meðal þeirra,
sem kjörnir voru í framkvæmda
stjórn Heimsþings æskunnar til
næstu tveggja ára er Ingi B. Ár-
sælsson. Á hann sæti í fram-
kvæmdastjórninni sem fulltrúi ís
lands og Norðurlanda. Þetta er
í fyrsta sinn, sem íslendingur er
kjörinn til slíkra trúnaðarstarfa
fyrir Heimsþing æskunnar, og
felst í því mikil viðurkenning fyr
ir íslenzk æskulýðssamtök á al-
þjóðavettvangi.
BSRB-ÞINGIÐ
Framhald af 1. síðu.
að þar sem starfsmönnum í sömu
starfsgrein hafi nú verið skipað í
fleiri en einn launaflokk miðað við
menntun, þá taki slík skipting
ekki til þeirra, sem hafa langa
starfsreynslu, og aldrei til starfs
manna sem voru í starfi 1. júlí
1963, heldur njóti þeir launa sam
kvæmt hæsta flokki síns starfs, og
að í störfum, þar sem hækkunar-
möguleikar séu takmarkaðir, sé
leitast víð að veita viðurkenningu
fyrir langa þjónustu með persónu
uppbótum eða fjölgun aldurshækk
ana, og einnig gefinn kostur á við
bótarfræðslu, er veiti rétt til
launahækkana.
f samþykktinni um skattamál
er bent á að launamenn beri óeðli
lega þungan hluta skattanna, og
er skorað á ríkisstjórn og Alþingi
að breyta gildandi skattalögum og
framkvæmd skattheimtu á þann
veg, er tryggi fullt réttlæti í þess
um málum, og bendir á eftirfar-
andi atriði:
Að tekjuskattur og útsvar verði
sameinað í einn skatt, sem verði
innheimtur um leið og tekna er
aflað, að persónufrádráttur verði
stórhækkaður og hæklci jafnan í
samræmi við framfærslukostnað,
að neyzluskattar verði gerðir sem
einfaldastir í framkvæmd, til þess
að unnt sé að koma við öruggu eft
irliti með innheimtu þeirra og
skilum, og að eftirlit með skatt-
framt. verði hert og refsing við
skattsvikum þyngd. Jafnframt skor
að þingið á önnur launþegasam-
tök landsins að taka upp sam-
stillta baráttu í þessum málum.
Auk þessara ályktana, gerði
þingið samþykktir í fleiri málum,
svo sem um samningsrétt, starfs
mat, hagstofnun launþegasamtak
anna, starfsaldur til eftirlauna,
starfsmannamál, fulltrúakjör á
þing BSRB, samstarf við erlend
stéttarsamtök opinberra starfs
manna og um lífeyrissjóð opin-
berra starfgmanna. , .
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
Keimilistæki
V
og alls konar búsáhöld, leir og glervara
fjölbreytt úrval, verð við allra ’næfi
sendum gegn póstkröfu, áherzla lögð á
örugga og hraða afgreiðslu.
Búsáhaldadeild KEA,
Akurey ri
RÁÐSKONA
Reglusöm kona óskast sem váðskona í pláss í ná-
grenni Reykjavíkur. Mætti hafa með ser barn.
Upplýsingar í síma 50 6 49.
Bílaeigendur athugið
Ventlaslípingar, hringjaskiptingu og aðra mótor-
vinnu fáið þið hjá okkur.
BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ 10
VtNTILL*
SIMI 35313 mm
Trygglngar á v3rum i flulnlngi
Trygglngar á elgum sklpverja
Áhafnaslysatrygglngar
Ahyrgíarfrygglngar
SKIPATRYGGINQÁR
Velðafærafrygglngar
Aflalrygglngar
henlar yJur
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf
L1NOARGAIA 9 REYKJAVlK SlMI 21260 SlMNEFNI.SURETY
Innilegar þakir til barna, tengdabarna og barna-
barna, ættingja og vina sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á sextugs af-
mæli mínu 12. sept. s. 1.
Lifið heil.
Lárus Guðmundsson frá Bakka, Arnarfirði.
GuSfinrta GuBmundsdóttlr.
Hughetlar þakklr fyrlr auðsýnda samúð vlð andlát og jarðarför föð-
ur, bróður, tengdaföður, afa og frænda
Benedikfs Péturssonar
Stóra-Vatnsskarði, Skagafirði
Drottlnn blessl ykkur öll.
Aðstandendur
prl M I N N, þrjðiudaglnn 22. september 1964
15