Tíminn - 22.09.1964, Side 4

Tíminn - 22.09.1964, Side 4
MTSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON ísland.meistararnir frá Keflavík ásamt þjálfara sínum, Óla B. Jónssyni. Allar myndirnar á síðunum tók Guöjón Einarsson. við KR á sunnudag nægði Keflvíkingum til sigurs Keflavík KR Akranes Valur Fram Þróttur TÍMINN, þriðjudaginn 22. september 1964 'Úrslitaleikur fslandsmótsins var háður í Njarðvíkum á sunnudag milli Keflvíkinga og KR og þar sem leiknum lauk með jafntefli 1:1 hafa Keflvikingar híotið titilinn „Bezta knattspyrnufélag íslands 1964“ og er það í annað skipti í sögu íslandsmótsins,' sem íslandsbikarinn Iendir hjá félagi utan Reykjavíkur. Og Keflvíkingar eru vel að þessum sigri komnir, þótt leikur þeirra á sunnudaginn líktist ekki beint leik meistaranna, en taugaspenna og slæmur völlur eiga þar nokkra sök. Blaðið óskar þeim til hamingju með þennan árangur og þá ekki sízt þjálfara liðsins, Óla B. Jónssyni, sem vissulega hefur unnið mikið afrek mcð því að breyta liði, sem barðist við að halda sæti sínu í deildinni í fyrra, í fslandsmeistara. Slíkt er ekki á allra færi. Áhorfendur streymdu á Njarð- víkurvöllinn og er talið að þeir hafi verið um 4000 eða mun fleiri en á knattspyrnuleik þar áður. Og þeir sem komu í þeirri góðu trú að sjá góðarv leik hafa eflaust orðið fyrir miklum vonbrigðum, því þctta er hiklaust einn lakasti leikur mótsins og er þá mikið sagt. Leikmenn liðanna náðu sér aldrei á strik, hverju, sem um er að kenna, en rétt er að taka það fram, að, ég minnist þess ekki að hafa séð skemmtilegan lcik á Njarðvíkurvelli. Keflvíkingar voru mun ákve'ðn- ari framan af án þess þó að ógna verulega, en er líða tók á leikinn jafnaðist hann og varð mest þóf á miðjunni, fallegt upphlaup sást varla, en hins vegar mikið kunn- áttuleysi og furðulegt að sjá til leikmanna, sem þurftu næstum því að hlaupa hring í kringum knöttinn til að geta spyrnt með „réttum fæti“. i Síðari hálfleikur var skárri án þess nokkurn tímann að vera skemimtilegur. Á 10 mín skoraði I Rúnar Júlíusson — bezti leikmað ur Keflavíkur — markið, sem færði þeim fslandsbikarinn. Stað | setning Heimis var slæm í þessu j tilfelli — einu mistök hans í leikn um — og því dýr. Framlína KR : var eins og vængbrotinn fugl — Gunnar Guðmannsson og Sigurþór ekki með — og Gunnar Felixson haltur úti á kanti eftir ómjúkar móttökur Högna. Maður bjóst því 1 ekki við, að KR myndi jafna þenn- an mun, svo tnáttlitJar höfðu sókn- 1 ar aðgerðirnar verið. En þetta breyttist þó, og raunverulega mun- aði litlu að KR færi með sigur af hólmi og það aðeins vegna nokk j urra upphlaupa rétt undir lokin. I Ellert Sehram átti t.d. tvívegis skalla rétt yfir — og þar brást hon um í sínu aðalfagi — en hann skoraði mark KR með skoti frá vítateig, sem rann undir mark- mann Keflvíkinga. Kjartan virtist mjög taugaóstyrkur þessar loka- mínútur leiksins — missti knött inn tvivegis og í annað skiptið rann hann framhjá opnu marki Það var því smáspenna undir lok- in — hin eina í leiknum. j Hjá Keflvíkingum var Rúnar j virkastur og Karl einnig sæmileg j ur á kantinum. í vörninni bar 1 Högni af, en var of grófur. Magnús Landsleikir Is- land-Sovétríkin NORSKA blaðið Aftenposten skýrir frá því á laugardag, að sovézka landsliðið í handknattleik muni í desember ferðast um Norðurlön-d og ljúka keppnisförinni með því að leika tvo lands- leiki á íslandi. Grein blaðsins er þannig: — Á hinu mikla al- þjóðlega handknattleiksþingi í Búdapest í dag (18.sept.) ræddu norrænir handknattleiksleiðtogar við sovézka. Það varð að samkomulagi, að sovézka landsliðið gisti Norðurlönd í vetur. — Fyrsti leikurinn verður gegn Dönum 5. desember og því næst leika Rússarnir í Árósum tveimur dögum síðar. Næst verður leikið f Svíþjóð, þar sem leiknir verða tveir landsleildr og því næst í Oslo og þar verður landsleikur Noregur-Sovétríkin. Förinni lil Norðurlanda lýkur með tveimur landsleikjum á fslandi. Þetta er í fyrsta skipti, sem sovézkt landslið heimsækir Norðurlönd. — f heimsmeistarakeppninni í Tékkóslóvakíu kom sovézka liðið mjög á óvart, og heimsókn liðsins til Norðurlanda mun vekja mikla eftirtekt. Torfason var einnig ágætur. Liðið er nokkur jafnt, en hefur oftast í sumar sýnt betri leik en þennan. KR-liðið var lélegt og baráttuvilj ann — þetta aðalvopn KR-inga — skorti nú. Hörður Fel. og Heimir voru beztu menn Uðsins, Þórður sæmilegur en hinir flestir langt frá sínu bezta. Eftir leikinn voru leikmenn Keflvíkinga hylltir mjög af áhorfenduen og kona færði lið- inu 5000 kr. gjöf vegna sigursins í mótinu. Dómari var Grétar Norðfjörð, Þrótti, og dæmdi vel — hsím.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.