Tíminn - 22.09.1964, Síða 8

Tíminn - 22.09.1964, Síða 8
lataaaeaiiaSBJSSSBs^s^iifme^físimsiWKimjs1:'-. K;srrr,:~' y- Independence á siglingu TÓMAS KARLSSON SKRIFAR FRÁ FLOTAÆFINGUM NATO Rússar á hnotskó kringum flotann! Flugmóðurskipinu „USS Independance“, 20. sept. 1964. Þessa dagana standa yfir uui fangsmiklar flotaæfingar flota Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi. Taka þátt í þessum æfingum 125 skip af ýmsum gerðum. Floti og flug- her frá 7 aðildarríkjum Atl- antshafsbandalagsins taka þátt í þessum æfingum, Bandaríkj- unum, Danmörku, Noregi, Frakklandi, Hollandi, Bretlandi og Belgíu. Æfingarnar eru eins konar kafbátaveiðar, þ. e. skip og flugvélar elta uppi kafbáta og staðsetja þá með aðstoð hinna fullkomnu radartækja og Ieika bandarískir kafbátar hlut verk óvinarins í æfingunum. Æfingar þessar hafa staðið yf- ir nokkra daga og verður þeim ekki lokið fyrr en fyrstu daga októbermánaðar. Með æfingum þessum fylgj- ast blaðamenn frá aðildarríkj um Nato, 51 samtals, þar af 4 frá íslandi, Björn Thors, Benedikt Gröndal, Björgvin Guðmundsson og TK. Við lögð um upp frá Keflavíkurflugvelli snemma á laugardagsmorgni í 6 stórum þyrlum, en daginn áð ur höfðu hinir erlendu blaða- menn skoðað Keflavíkurflug- Kafbátaveiðar grundvallasr á ratsjártækjum. Hér er könnunar- vél á þllfari Independence. Ratsjáin er engin smásmíð, enda mjög langdræg. völl og setið blaðamannafund með Bjarna Benediktssyni, for sætisráðherra, eins og áður hef ur verið skýrt frá í fréttum. Eftir rösklega hálftíma flug lentum við um borð í „USS Vasp“ (Vespunni) suðvestur af Islandi, „Vespan“ er elzta flugmóðurskip bandaríska flot ans, smíðað í heimsstyrjöldinni, 40 þús. lestir að stærð. Okkur var skipt í flokka og hafði hver flokkur sinn fylgdarmann og veitti ekki af, því að örugga fylgd þurftum við í hvert skipti sem við áttum erindi til her- bergja okkar og auðvelt að týn ast í göngum og ranghölum þessarar 2700 íbúa „borgar“. Okkur var sýnt skipið hátt og lágt og hlýddum á fyrirlestra um hinn sameiginlega flota Nato-ríkjanna og æfingarnar, Framnaid a síðu 13 Fimmtugur í dag: ijijrgvin Frederiksen framkvæmdastjóri BJÖRGVIN Frederiksen, fram- kvæmdastjóri er fimmtugur í dag. Hann er fæddur í Reykjavík 22. sept. 1914, sonur Aage Frederik- sen vélstjóra, sem fluttist hingað til lands eftir aldamótin og kvænt ist íslenzkri konu, Margréti Hall- dórsdóttur, ættaðri úr Húnaþingi. Björgvin ólst upp í Reykjavík við ýmiss störf og tók próf í vél- virkjun 1932 en fór síðar til Dan- merkur, þar sem hann stundaði fraimhaldsnám í vélvirkjun og kynnti sér rekstur vélsmiðja, og meðferð og niðursetningu frysti- véla og dieselvéla. Meðan hann var úti skall heimsstyrjöldin á, en hann var einn þeirra félaga, sem komu heim með vélbátnum Frekj- an, en það varð fræg för. Árið 1943 fór Björgvin til Ameríku og kynnti sér meðferð kælitækja og frystivéla. Árið 1937 byrjaði Björgvin að starfrækja vélsmiðju að Lindar- götu 50, og óx það fyrirtæki fljót- lega, svo að þar unnu síðar á ár- um 17 manns. Vélsmiðja Björg- vins annaðist stníðar og niður- setningu véla í mörg frystihús landsins, ekki sízt á vegum kaup- félaganna. Var þar allt unnið af góðri fyrirhyggju og kunnáttu, og hafa tæki þessi reynzt vel. Björgvin Frederiksen var kjör inn formaður Meistarafélags jám- iðnaðamanna 1950 og forseti Lands sambands iðnaðarmanna 1952, átti um skeið sæti í stjóm norræna iðnsambandsins og hefur lengi átt sæti í stjórn Iðnaðarmálastofnun íslands. Árið 1960 var hann kjör- inn heiðursfélagi Landssambands iðnaðarmanna. í margvíslegum öðrum félags- imálum hefur Björgvin tekið mik- inn þátt, enda er hann góðum gáf- um búinn og félagslyndur. Hann var kjörinn í bæjarstjóm Reykja- víkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1954 og átti þar sæti tvö kjörtíma- bil og sat þá í bæjarráði um skeið. Hann á og sæti í stjórn Samvinnu- sparisjóðsins og Áhaldahúss Rvík- borgar. Að undanförnu hefur hann átt sæti í skilanefnd Faxaverk- smiðjunnar í sambandi við sölu hennar og uppgjör skulda. Björgvin kvæntist árið 1939, Hallfríður Björnsdóttur úr Reykja vík og eiga þau fjögur böm, Hilm- ar Kristján lögfæðinema, Friðrik verzlunarmann, Birnu, seotn gift er Bjarna Stefánssyni og Sigurbjörgu sem er yngst og í heimahúsum. Heitnili þeirra b.ióna að Lindar götu 50 er sérlega ánægjulegt, og eiga þau hjón margt vina. Björg- vin er vinsæll maður og vel metinn af þeim, sem þekkja hann bezt. — h. 70 ára Hólmfríður Guðjónsdóttir [* Þota hefur slg til flugs af Independence. HÓLMFRÍÐUR Þóra Guðjóns- dóttir er fædd á Þorfinnsstöðum í Valþjófsdal í Önundarfirði 21. sept ember 1964. Voru foreldrar henn- ar efnalítil húshjón þar, Guðjón Sigurðsson og Helga Einarsdóttir. Guðjón var ættaður úr Arnar- fiði, en hafði flutzt til Önundar- fjarðar rúmlega tvítugur. Helga kona hans var dóttir Einars, er lengi bjó á Sela-Kirkjubóli í Ön- undarfirði, Guðmundssonar á Þóru stöðum, Bernharðssonar, sem um aldamótin 1800 bjó á Kirkjubóli í Firði, Guðmundssonar. Móðir Helgu hét Ingibjörg, og var dótt- ir Hallgríms á Brekku á Ingjalds- sandi, er drukknaði 1833, Guð- mundssonar á Brekku (drukknaði 1812), Hákonarsonar á Arnarnesi í Dýrafirði, Bárðasonar á Arnar- nesi, Nikulássonar. Það var þessi Bárður, sem þetta var kveðið um, þegar hann átti í kvonbænum til Ástu nokkurrar Hákonardóttur: Mig stanzar á stirðum fréttum sem strjúka yfir hann Dýrafjörð, þar Ásta með gráum glettum gerir Bárði svo efnin hörð: Frú vill ei sig fastna láta: fær hann nei, þegai hun skal játa. Br.jáluð mey. — Bregzt mér ei sú gáta. En Bárður fékk þc Ástu sinn- ar áður en lauk og er margt vaskra manna frá þeim komið vestra. Móðir Ingibjargai Hallgríms- dóttur var Guðrún Jónsdóttir, syst ir Bergljótar í Tröð, seinni konu Kjartans Ólafssonar. Þær systur voru dætur Jóns Thorbergs verzi- unarstjóra á Patreksfirði og Sig- íðar Þóroddsdóttur beykis, föður- systur Jóns skálds Thoroddsen Ingibjörg og Einar Guðmunds- TÍMINN, þrlíjudaginn 22. september 1964

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.