Tíminn - 22.09.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.09.1964, Blaðsíða 9
son áttu mörg börn auk Helgu. meðal annars Einar, sem lengi bjó I á Tannanesi, og Guðmund bónda á Vifilsmýrum. Ekki lifir nú ann- að þeirra systkina en Friðri'ka. sem mörg ár var i Ytri-Hjarðar-1 dal vinnukona, en er nú á sjúkra húsinu á ísafirði Helga Einarsdrittir og Guðjón ! Sigurðsson eignuðust níu börn. en ekki komust nema sex til fuilorð insára Var Hólmfríður elzt þcirra. er lifðu Hún ólst upp h.iá fóreldr um sínum. sem fyrst voru í hús- mennski^, en bjuggu síðan í ýms- um stöðum inni í Önundarfirði, jafnan efnalítil. Var Guðjón löng- urn hress í máli. nvar sem hann hittist, — við vorum saman í skipsrúmi eitt vor og fór vel á með okkur. — en Relga annálúð þrifnaðarkona og svo glöð og létl í lund. að til var tekið. Aldrei gekk Hólmfríður í skóla, nema lítið eitt i barnaskóla (far skóla). En nokkru eftir fermingu dvaldist hún vetrartíma í Hnífs- dai h.iá ValdimaT Þorvarðssyni bónda þar og konu hans, Björgu | Jónsdóttir. Hafði hún gott af þess- ari dvöl sinni á miklu myndarheim ili. Mun mega að nokkru rekja þangað, hvílík myndarkona Hólm- fríður hefur verið við matseld, en þrifnað lærði hún ung af móður sinni. Hóltnfríður giftist. á jóladag 1914 tvítug að aldri Þorgeiri Eyjólfs- syni, er þá átti heim? á Hesti í Önundarfirði. Hann var úr Álfta firði i föðurætt, sonur Eyjólfs : Eyjólfssonar, en Kristín móðir hans var súgfirzk. dóttir Björns Helgasonar á Klúku. Stundaði Þor I geir lengi sjó, en þó höfðu þau I Hólmfríður jafnframi i.okkurn bú- j skap, lengstum á nýbýli skammt i frá Hesti, Ármúla. Þaðan fluttust | þau suður árið 1947 Þeim varð : fjögurra barna auðið. Elzt er Að- 1 alsteinn. ráðsmaður á Korpúlfs- stöðum í Mosfellssveit; næst Krist ján, starfsmaður hjá Búnaðarsam- bandi Kjalarneshrepps, búsettur í Leirvogstungu; síðan Guðmundur, bóndi í Þormóðsdal í Mosfellsveit, og yngst Þórunn. húsfreyja í Reykjavík. Ævi Hólmfríðar Guðjónsdóttur hefur ekki verið viðburðarík. Hún hefur gegnt hljóðlátu hlutverki al- þýðukonunnar, unnið hin daglegu heimilisstörf með vandvirkni og handlagni, notinvirk, snyrtileg og hreinlát. Hún lét sér mjög. annt um börn sín og taunar allt sitt heimilisfólk, hvort sem það var henni skylt eða vandalaust, bæði i atlæti öllu og aðbúnaði. eftir því sem föng voru á. Viðmót henn ar var hlýtt og vingjarnlegt við hvern sem var. Og jafnlyndi henn- ar og geðprýði. tilgerðarlaus glað Framnaia a síðu 13 b'iSiudTciinn 22. seatember 1964 Loftmynd frá Washington. Jón R. Hjálmarsson: Þættlr úr vesturfö|; Lítið félag, sem stækkað Isiandáfáum hefur Það dróst á langinn að kom- ast af stað. Eitthvað hafði taf- ið flugvélina á leið hennar frá meginlatidi Evrópu. — Einnig var sagt að veðrið væri óhag- stætt til lendingar á flugvell- inum við Keflaví'k. Nokkru eftir miðnætti fékk ég að vita að hún mundi koma til Reykja- víkur. Góðir vinir fylgdu mér suður á völl, þegar tími var til kominn. Þokumengað nátt- myrkrið grúfði yfir votri jörð- inni. Enn var beðið Ianga hríð í fremur hrörlegu skýli suður á velli. Loks var allt tilbúið og far þegar gengu um borð. Hreyflar voru reyndir hver af öðrum. Flugvélin nötraði. Ekið var drjúgan spöl út á flugbraut. Svo tóku hreyflarnir að snúast enn meira en áður. Vélin rann af stað. Hraðinn óx sífellt og brátt lyfti hún sér frá hrjúfu yfirborði vallarins og sveif upp hærra og hærra. Götuljósin í Reykjavík bar snöggvast fyrir gegnum myrkrið og þokuna. En brátt var stefnan tekin í vestlæga átt og út um glugg- ann var ekkert að sjá lengur. nema dimtna nott, ísland var horfið að baki, en framundan beið ókunnur heimur langt i vestri. Skyndilega birti nokk uð yfir. Farkosturinn rann upp úr skýjaþykkninu og þar efra var heiður, dimmblár him- inn, stjörnum prýddur. Ég fór að líta umhverfis mig í vélinni, sem var þéttsetin farþegum. Flestir höfðu þeir komið með henni utanlands frá á leið vestur um haf. Fólk af mörgum þjóðernum og tungum. Aðeins fáeinir höfðu bætzt við í Reykjavík. Flugþernur báru fram veitingar. Fólkið reyndi eftir föngum að láta fara vel um sig. Brátt voru ljósin slökkt og flestir tóku á sig náðir. En sjálfsagt hefur mörgum orðið óvær svefn við þuiigar drunur fjögurra hreyfla vélarinnar. Það var orðið vel bjart og veður hið fegursta. er við lent- um árla morguns á Ganderflug- velli á Nýfundnalandi. Þar stönzuðum við um hríð til að bæta eldsneyti á vélina Mér þótti vel til fundið að koma við í þessu landi á leiðinni til Vínlands hins góða, þar sem þeir höfðu nýverið sannað það Helgi Ingstad, Kristján Eld- járn og Þórhallur Vilmundar- son, að Leifur heppni eða aðrir frændur okkar á íslandi eða Grænlandi hefðu gert það sama. Fátt virðist þó markvert að sjá á þessum slóðum. Skógi vaxnar hæðir, stöðuvötn og afar strjál byggð voru helztu einkennin. Aftur var haldið af stað og flogið sem leið ligg- ur suður yfir Nova Scotia. Þar reyndu íslenzkir bændur eitt sinn að nema land og þar ger ist skáldsagan „Vornætur á Elgsheiðum. Veður var bjart hið efra, en skýjaþykkni nær jörðu byrgði sýn öðru hverju Áður en varir fljúgum við yfir Bandaríkjum Norður-Ameríku. Það rofaði vel til er við fór- um yfir stórborginni Boston. Þar hófu illa vopnaðir nýlendu- búar fyrir tæpum tvö hundr- uð árum örlagaríka uppreisn með því að varpa brezku tei i sjóinn. Allan morguninn voru flugþernur okkar önnum kafn- ar við að framreiða morgun- verð og aðrar góðgjörðir. Starf árum þeirra er afar mikilvægt, en mjög hlýtur það að vera erfitt og þreytandi. Tíminn líður fljótt og nú eygjum við heims- borgina New York, þar sem meira en tólf miiljónir manna eiga heima á tiltölulega litlu svæði. Fyrir þremur öldum var á þessum stað örlítið þorp. íbúar þess keyptu loðskinn af Indíánunum, sem voru í skóg- unum í nágrenninu. Vöruna greiddu þeir með mislitum töl- um og öðrum glysvarningi, sem gekk í augu þessara náttúru- barna. Þorpið var hollenzk ný- lenda og hét Nýja Amsterdam. Mikið hefur gerzt á skömmum tíma i Vesturheimi. Vél okkar lækkar flugið og hnitar hringa yfir skýjakljúf- unum. Brátt tekur hún beina stefnu og hraðlækkar. Út um gluggann sé ég fyrst á vatn. síðan gróðurlendi örskammt fyrir neðan. Svo fljúgum við inn yfir flugbraut. Hjólin snerta jörð. Vélin rennur hratt áfram. Svo er dregið úr ferð og ekið upp að flugstöðvar- byggingu. Við erum lent á Kennedy-flugvellinum við New York, mestu flugferðamiðstöð veraldar. Það gekk fljótt og vel að fara gegnum vegabréfa- og tollskoðun og að því loknu kom vingjarnlegt starfsfólk Loftleiða, til móts við farþega og greiddi götu sérhvers, sem einhvers óskaði. Þarna á Kennedy-flugvelli beið ég drjúga stund eftir vél til Washington, þangað sem ferðinni var heitið Eg snæddi hádegisverð á veitingahúsi í flugstöðvarbyggingunni. Nafn gildaskálans kom mér kunnug- lega fyrir. Hann heitir Gullna hliðið. Það var mjög gott útsýni út um gluggann, þar sem ég sat. Á þessum geysistóra velli voru flugvélar frá flestum flugfélög- um heims sífellt að koma og fara. Mest bar á rennilegum þotum, sem flugu með háum hvini, en einnig var mikið af skrúfuvélum. Við þessar athuganir hlýn- aði mér skyndilega um hjarta rætur. Þarna sá ég í einu þrjár myndarlegar flugvélar merkt ar íslenzku fánalitunum á stél- inu. Ég þekkti þetta merki og kom i hug, hversu mjög lítið félag hefur stækkað fsland á fáum árum. Loks var flugvél mín til Washington tilbúin. Ferðin þangað tók svipaðan tíma og að fljúga milli Reykjavíkur og Akureyrar. Vel gekk að kom- ast frá flugvellinum inn í borg ina. Innan skamms hafði ég kom ið mér fyrir á gistihúsi í næsta nágrenni við Capitol, Þinghús Bandaríkja Norður-Ameríku. 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.