Tíminn - 29.09.1964, Blaðsíða 3
Síðasti innritunardagurinn er á morgun, miSviku-
daginn 30. sept.
Innritun:
Reykjavík: í síma 1 01 18 og 3 35 09 frá 2—7.
Kópavogur: 1 sírna 1 01 18 frá 10 f.h. — 2 e. li og
20—22.
Hafnarfjörður: í síma 1 01 18 frá 10 f. h. — 2
e. h. og 20—22.
Keflavík: I síma 2097 frá 3—7.
Dansskóli
HEIÐARS ÁSTVALDSSONAR
Iðnrekendur — Verktakar
HAGKVÆMARI VINNUBRÖGf)
— ÓDÝRARI VINNA.
Á undanförnum árum kefur notkun
Massey-Ferguson dráttarvéla við marg
vísleg störf stóraukizt Með dráttarvélun-
um má fá fjölbreytt úrval vinutækja. s a.:
Moksturs og lyftitæki, Ýtutönn, Veghefil,
Loftpressu, Flutntngavagna 2—10 tohna
Rafsuðutæki, Gaffallyftu, Lyftibómu o. fl.
o. fl.
Höfum fyrirliggandi MF-35.X o.e MF-65
dráttarvélar og getum útvegað vinnu-
tæki við þær með stuttum fvnrvara.
Nánari upplýsingar fúslega veittar
Z)/Lotiia/uAé^a/L A /
Sambandshúsínu — Revkjavík
Sími 170 80.
Bílasprautun
Alsprautun og blettanir einnig sprautun einstakra
stykkja.
Bílasprautun Vallargerði 22
Kópavogi, sími á kvöldin 1 93 93.
Kópavogur
Getum bætt við nokkrum mönnum i vinnu Upp-
lýsingar í síma 40 9 30.
Rörasteypan h. f.
Frá barnaskólum
Hafnarfjarðar
Nemendur skólanna mæti fimmtudaginn 1. okt.
sem hér segir.
12 ára börn kl. 9 árd.
11 ára börn kl. 10,30 árd.
10 ára börn kl. 1 e. h.
Skólastjórar.
Starfsstúlka
óskast að Samvinnuskólanum Bifröst. Unplýsing-
ar í símstöðinni Bifröst.
Samvinnuskolinn.
Til sölu
er 3ja herbergja íbúð á
Klepsveginum, félagsmenn
hafa forkaupsrétt lögum
samkvæmt.
Byggingarsamvinnuf él.
Reykjavíkur
SÍMI 14970
Á VÍDAVANGi
Hafnarbætur
á Suðurlandi
Blaðið Þjóðólfur ræðir ný-
lega um nauðsyn þess, að gert
sé stórátak í hafnarbótum á
Suðurlandi. Blaðið segir:
„Þegar ríkisstjórn Hermanns
íónassonar færði landhelgina
út í 12 mflur 1958, lagði hútn
gruindvöllinn að gjörbyltingu í
fiskveiðum landsmanna.
Til þess tíma voru togararnir
stórtækustu aflaskipin og meg-
instoðir utgerðarinnar. Áætl-
anir um hafnarbætur víðs veg-
ar um land þóttu því óraun-
sæjar eða hégómi helber, ef
þær miðuðust ekki við þessi
stóru skip.
Nú er þetta breytt. Nú er
útgerð togaraiwia aukageta,
jafnvel vandræðamál, en mótor
bátarnir eru kjarni veiðiflot-
ans.
Stórútgerð og stórvinnsla
sjávarfangs þarf ekki lengur
að vera bundin við stórar og
dýrar hafnir.Minni hafnir koma
að gagni og litlar liafnir geta
verið stórgróðafyrirtæki í þjóð-
arbúskapnum.
Hafnarstaðirnir á Suðurlandi
hafa því fengið þýðingu, sem
þeir höfðu ekki áður. Endur-
bætur á þeim er ekki lengur
mál, sem segja má, að geti
aðeins haft gildi fyrir lítið
svæði og lítinn hóp lands-
manna. Þcssar litlu hafnir geta
í raunmni orðið stórar hafnir
miðað við það aflamagn, sem
þær með hæfilegum endurbót-
um geta tckið við og þeim at-
vinnuumsvifum, sem þær þá
standa undir. Hafnarbætur á
Suðurlandi, við auðugustu fiski
mið landsmanna, er því mál,
sem öll þjóðin ætti að krefj-
ast, að sé tekið föstum og skipu
legum tökum.“
Athyglisverður
dómur
Eins og þeir munu minnast,
er hafa lesið Mbl. og Tímann
undanfarin misseri, hafa þessi
blöð öðru livoru deilt um af-
urðalánin til bænda. Tíminn
hefur haldið því fram, að land-
búnaðurinn byggi við lakari
kjör en sjávarútvegurinn í
þessu efni og bæri að tryggja
honum hliðstæða aðstöðu og
sjávarútvegurinm nyti. Mbl.
hefur sagt þetta ósatt. Land-
búnaðurinn byggi hér við sömu
kjör og sjávarútvegurinn. Það
væri ekki annað en nöldur hjá
Tímanum að halda öðru fram.
Þetta væri einn þátturinn í
þeirri viðleitni hans að reyna
að gera bændur óánægða.
Nú hefur sjálf ríkisstjórnin
fellt athyglisverðan úrskurð i
þessari þrætu blaðanna. Hún
hefur heitið bændasamtökun-
um að auka afurðalánin til
jafns við það, sem sjávarútveg-
urinn byggi við. Þetta hefði
vitanlega ekki þurft að gera, ef
málfutningur Tímans hefði ver-
ið rangur, en Mbl. haft rétt fyr-
ir sér.
Sjálf ríkisstjórnin, sem ekki
verður talin vilhöll Tímanum,
hefur hér fellt athyglisverðan
dóm um málflutning þessara
tveggja blaða.
Aðstaða frumbýlinga
Blaðið Þjóðólfur birtir ný-
lega afmælisviðtal við Stefán
Jasonarson bónda í Vorsabæ,
en hanr. varð nýlega fimmtug-
ur. Það spyr hann m.a. um
Framh á 15. síðu
BBBOBH39HIHMUMD
TÍMINN, þrlðjudaginn 29. september 1964 —
3