Tíminn - 29.09.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.09.1964, Blaðsíða 8
Morguninn fyrir morðiS ræddi Kennedy um hættuna sem forsetum stafaSi af því aS koma fram opinberlega. Hann ræddi þetta við frú Kennedy og Kenneth O' Donnell aðstoðarmann sinn. Samkvæmt framburði O'Donnell, sagði forset- inn, að ef einhver ætlaði sér að skjóta forseta Bandaríkjanna, þá væri það alls ekki miklum erfiðleikum bundið. Allt og sumt sem þyrfti að gera, væri að fara einhvern dag upp í háa byggingu með kíkisriffill, og enginn gæti gert neitt til að verjast slíku. (úr Warren-skýrslunni). WARREN-NEFNDIN FINNUR Morðið á John F. Kennedy, for- seta Bandaríkjanna, hinn 22. nóv- ember 1963, var hryllilegur glæp- ur, framinn, ekki aðeins á einum manni, heldur og gagnvart fjöl- skyldu og heilli þjóð, jafnvel öllu mannkyni. Þetta var í fjórða sinn í sögunni, að forsetamorð var framið í Bandaríkjunum, og í þetta sinn varð fórnarlambið þrótt mikill þjóðarleiðtogi í broddi lífs- ins, er virtist eiga framundan lang- an feril þjónustu í þágu þjóðar sinnar. Rannsóknarneínd sú, er þessa skýrslu sendir frá sér, var skipuð 29. nóvember 1963. Hún viður- kennir rétt fólks hvarvetna til að M vitneskju um hið sannasta og fétta, er rannsóknir hafa leitt í ljós um þennan atburð. í því skyni er skýrsla þessi gefin út, gerð eftir beztu samvizku og af þeirri ráð- vendni, sem hlýtur að eiga að ráða mati á öllum gögnum, og hefur nefndin gert sér Ijósa þá ábyrgð, sem hún ber gagnvart bandarísku þjóðinni í sambandi við þessa harmsögu. Klukkan 11.40 árdegis föstudag- inn 22. nóvember 1963 lenti John F. Kennedy forseti ásamt frú sinni og fylgdarliði á Love-flugvelli í Dallas-borg í Texas. Þá var liðinn fyrsti dagur áformaðrar ferðar um Texas, en að undirbúningi hennar höfðu helzt starfað Lyndon B. Johnson varaforseti Bandaríkj- anna og John B. Connally ríkis- stjóri í Texas. Það hafði orðið að ráði, að forsetinn og fylgdarlið hans færu í bílalest um borgina, sem menn gerðu sér vonir um að yrði til að endurvekja vinsældir forsetans meðal fólksins, sem hann hafði ekki náð kosningu hjá árið 1960. Fyrst átti ferðin til Tex- *as að taka tvo daga, en svo töldu þeir, er mestu réðu um skipulagn- ingu, fyrst og fremst Connally rík- isstjóri og Kenneth O’Donnell, sérlegur aðstoðarmaður for- • setans, að bílferð um borgina væri æskileg. Hinn 8. nóvember var leyniþjónustunni tilkynnt, að 45 mínútur væru ætlaðar til bíl- ferðarinnar frá Love-flugvelli til staðarins, þar sem framámenn í viðskiptalífi og borgarmálefnum ætluðu að halda forsetanum há- degisveizlu. Eftir að athugun hafði farið fram á öllum staðháttum og rannsökuð öryggisgæzla í sambandi við nokkrar byggingar, var ákveð- ið að hádégisverðurinn skyldi framreiddur í svonefndum Trade Mart. Að svo búnu og í því skyni að sem flestir gætu fylgzt með ökuferð forsetans, sem venja er, þótti eðlilegt, að sú leið væri valin, sem farin var, enda var hún sam- þýkkt bæði af gestgjöfunum í borginni og umboðsmönnum Hvíta hússins 18. nóvember og birt í blöðunum í Dallas og grennd dag- inn eftir. Sú tilkynning gaf öllum til kynna, að bílalestin mundi . fara út úr Main Street og fram hjá gatnamótum Elm- og Houston- stræta, þegar stefnan yrði tekin Lögreglumenn standa með vopnin reidd og fólkið hefur kastað sér til jarðar andartaki eftir að skotið var á forsetann. að Trade Mart eftir Stemmons- vegi. Þegar forsetinn hélt innreið sína í Dallas morguninn 22. nóvember, var heiður himinn, og þar eð ekki var útlit fyrir rigningu, hafði plast- þakið á forsetabílnum verið tekið ofan, því hafði aðeins verið ætlað að skýla fyrir regni. Forsetinn- heilsaði því mannfjöldanum úr opnum bílnum. Vinstra megin við forsetann í aftursæti sat forseta- frúin, en á aukastólum fyrir fram- an forsetahjónin sátu Connally ríkisstjóri og frú hans. William R. Greer leyniþjónustumaður sat við stýrið og annar úr leyniþjónust- unni, Roy H. Kellerman, við hlið hans í framsæti. Næst á eftir forsetabílnum var ekið opnum bíl með átta leyniþjón- ustumönnum innan borðs. Þeir höfðu fyrirmæli um að gefa nánar gætur að mannfjöldanum, húsa- þökum og gluggum, vegabrúm og gatnamótum, ef eitthvað grunsam- legt kynni að leynast þar. Næst á eftir þessum bíl fór bíll varaforset- ans, og með honum voru frú hans og Ralph W. Yarborough öldunga- deildarþingmaður. Síðan komu enn nokkrir bílar og strætisvagn- ar, og voru í þeim ýmsir tignir gestir aðrir, blaðamenn og fleiri. Bílalestin fór frá Love-flugvelli laust eftir kl. 11.50 og var fyrst ekið um nokkur íbúðahverfi og staðnæmzt tvisvar að beiðni for- setans til að taka við heillaóskum frá mannfjöldanum. í hvert sinn sem staðnæmzt var, fóru leyni- þjónustumenn úr bíl sínum og röð uðu sér hvorum megin við forseta- hjónin til varnar Þegar bílalestin kom inn í Main Street, sem er aðalgata í miðborginni og liggur í austur og vestur, urðu fagnaðar- læti mannfjöldans taumlaus. Vest- ast í Main Street beygði bílalest- in til hægri inn í Houston-stræti og hélt áfram að næstu gatnamót- um með það fyrir augum að beygja til vinstri inn í Elm-stræti, sem lá beinast við til að komast rakleitt að Stemmons-vegi, og í áfangastaðinn Trade Marrt. Þegar forsetabíllinn var að koma að gatnamótum Houston- og Elm- stræta, blasti við handan við norð- vesturhorn gatnamótanna, gult sjölyft vörugeymslu- og skrifstofu- hús, sem ber nafnið The Texas School Book Depository. Einn í bíl varaforsetans, Rufus W Young blood leyniþjónustumaður, veitti því athygli, að þakklukka á þessu húsi var hálfeitt, en það var ein- mitt sá tími, sem koma átti í áfangastað, að Trade Mart Forsetabíllinn, sem stefnt hafði í norður, tók snarpa beygju til suðvesturs að Elm-stræti. Á ellefu mílna hraða stefndi hann niður að járnbrautarþverbrú, sem bílalestin átti að fara undir áður en komið væri inn á Stemmons-veg. Nú var forhlið hússins Texas School Book Depository hægra megin við for- setann, og hann veifaði hendi til mannfjöldans um leið og farið var fram hjá byggingunni. Á vinstri hönd blasti við framundan Dealey Plaza, opið landslag vestan megin við miðborgina. Leyniþjónustu- maður i bílalestinni tilkynnti Trade Mart í gegnum talstöð, að íforsetinn kæmi eftir -fimm mín 1 útur. Nokkrum sekúndum síðar kvað við hver skothvellurinn eftir ann- an. Fólkið sá forsetann bera nend- urnar upp að hálsinum. Síðan virt- ist hann stirðna allt í einu og kipptist síðan fram í sæti sínu.. Byssukúla hafði hæft hann aftan í hálsinn neðarlega, rétt hægra megin við hrygginn. Hún fór nið- ur á við og kom út um hálsinn að framan og reif sig gegnum hnút- inn á hálsbindi forsetans. Áður en skothríðin hófst, hafði Connally ríkisstjóri snúið sér andspænis mannþrönginni til hægri. Um leið og hann sneri sér til vinstri, fann hann allt í einu koma högg á bak sér. Það var byssukúla, sem hæfði hann í bakið, yzt til hægri, rétt neðan við handveginn. Kúl- an hélt áfram gegnum brjóstið, niður á við og kom út ögn fyrir neðan hægri geirvörtuna, fór svo í gegnum hægri úlnliðinn, sem hvílt hafði í kjöltu hans og særði hann síðan á vinstra læri. Kraftur- inn, sem fylgdi kúlunni, sýndist snarsnúa rikisstjóranum til hægri, og kona hans þreif hann til sín. Enn önnur kúla hæfði síðan for- setann aftan í höfuðið, skildi eftir stórt sár, og varð það hans bani. Þá hneig forsetinn ofan í kjöltu konu sinnar. Clinton J. Hill leyniþjónustu- maður, sem var hægra megin i næsta bíl á eftir, heyrði fyrst hljóð, sem var einna líkast i flug- eldi, og sá skyndilega forsetann lúta áfram og til vinstri. Hill stökk þegar úr bíl sínum og hljóp sem fætur toguðu að bíl forsetans. Youngblood ieyniþjónustumaður sat í framsæti varaforsetans og þegar hann heyrði sprengingu og tók eftir óvenjulegri hreyfingu í mannþrönginni, klifraði hann í aft- ursætið og settist ofan á varaforset ann til að vernda hann. Samtímis sneri Kellerman leyniþjónustumað- ur sér við í framsæti forsetabíls- ins til að sjá, hvað forsetanum liði. Um leið og hann sá, að forsstinn hafði verið hæfður, gaf hann öku- manninum þessa fyrirskipun: ,,Við skulum komast út héðan, það er búið að hæfa okkur,“ náði síðan talstöðvarsambandi við forustubíl- inn og skipaði fyrir: „Komið okk- ur til sjúkrahúss þegar í stað.“ Greer leyniþjónsutumaður jók strax hraðann á forsetabílnum. Um leið og bílhraðinn jókst, gat Hill leyniþjónustumaður komizt aftan í bílinn, þar sem forsetafrú- in var þá komin. Hill ýtti henni þegar niður í aftursætið og skýldi hinum særða forseta og forseta- frúnni á meðan bíllinn fór á mik- illi ferð til sjúkrahússins, Park- land Memorial Hospital, sem var fjórar mílur í burtu Þegar inn í Parkland-spítalann kom, var þar fyrir hópur lækna, sem kvaddir höfðu verið til að veita forsetanum viðtöku. Þeir fundu óreglulegan andardrátt for- setans, töldu mögulegt að hjartað starfaði, en ekki gátu þeir fundið, að slagæðin væri virk. Þeir rann- sökuðu hið mikla sár á höfði for- setans og annað smærra, á að gizka þumlungsfjórðung í þvermál neðarlega á hálsinum. Til þess að auðvelda öndun, gerðu læknarnir þegar í stað barkarsskurð með því að opna enn meira sárið á hálsin- um. Svo mjög einbeittu læknarnir sér að því að reyna hið bráðasta að bjarga lífi forsetans, að þeir gáfu sér aldrei tóm til að snúa honum á bakið til að skoða það. Klukkan eitt síðdegis, þegar hjart- að var hætt að slá og prestunnn hafði veitt nábjargimar, var til kynnt lát Kennedy forseta. Gerður var uppskurður á Connally ríkis- stjóra og greri hann um síðir heill sára sinna. Er Johnson varaforseti komst að raun um það, að forsetinn væri látinn, fór hann brott úr spítalan um og var vandlega gætt, er hann hélt út á flugvöllinn að forseta- flugvélinni. Forsetaekkjan fylgdi líki manns síns út þangað og sté um borð að vörmu spor. Kl. 2.38 síðdegis vann Lyndon B. Johnson eiðinn sem 36. forseti Bandaríkj- anna í viðurvist Sarah T. Hughes héraðsdómara, og fór sú athöfn fram í miðbiki flugvélarinnar, sem hélt þegar af stað til Washingt. D. C.,og lenti hún á Andrew-sflugvelli kl. 5,58 síðdegs, staðartíma. Lík forsetans var flutt í lækningamið- stöð bandaríska flotans í Bethesda, þar sem nákvæm krufning fór fram. Var úrskurðað að henni lokinni, að dánarorsökin væri „skotsár á höfði,“ og talið, að kúl unum, sem hæft hefðu forsetann, muni hafa verið skotíð „frá stað aftan og nokkuð ofan við „hinn látna.“ Á vettvangi skothríðarinnar ríkti birtir hér úrdrátt úr Warren-skýrslunni T í M I N N , þrl8|udaginn 29. september 1964 — 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.