Tíminn - 29.09.1964, Blaðsíða 13
Marina Oswald fylgdist með ferð
um Kennedy forseta í sjónvarp
inu að morgni 22. nóvember. Ruth
og hún grétu, þegar þær heyrðu,
að Kennedy forseti hefði verið
skotinn. Ruth þýddi, það sem fram
fór fyrir Marinu, þar á meðal þær
upplýsingar, að skotin hefðu að
líkindum komið úr bókageymsl-
unni, þar sem Oswald vann. Þeg-
ar Marina heyrði þetta mundi hún
eftir Walkermálinu og þeirri stað
reynd, að eiginmaður hennar átti
enn rlffilinn. Hún fór út í bíl-
skúrinn, þar sem riffillinn hafði
verið geymdur vafinn inn í rúm-
teppi á meðal annarra eigna
þeirra. Henni sýndist riffillinn
vera þar ennþá, enda þótt hún
vefði ekki sundur ábreiðunni.
Um klukkan 15, kom lögreglan
Hl heimilis Ruth Paine og s urði
Marinu Oswald, hvort maður henn
«r hefði átt riffil. Hún sagði, að
hann hefði átt hann, og fór með
þá út í bílskúrinn og benti á
uppvafið teppið. Þegar lögreglu-
maðurinn lyfti upp teppinu hékk
3>að máttlaust niður, riffillinn var
þar ekki.
Meðan þessu fór fram, hafði
Fritz höfuðsmaður byrjað að yf-
irheyra Oswald í lögreglustöðinni.
Stuttu eftir að yfirheyrslurnar hóf
ust komu starfsmenn FBI og
bandarísku leyniþjónustunnar og
tóku þátt í þeim. Oswald neitaði,
að hann hefði átt nokkurn hlut í
morði Kennedys forseta, eða morð
inu á lögreglumanninum Tippit.
Hann staðhæfði, að hann hefði
verið að borða hádegismat um
það leyti, sem forsetínn var
myrtur, og að síðan hefði hann
talað 5 eðá 10 mínútur við verk
stjóra sinn, áður en hann hélt
heimleiðis. Hann neitaði því, að
hann hefði átt riffil og( þegar
honum voru sýndar myndír ,af sér
með riffil og hyssu í hönd, stað
hæfði hann, að andlit hans sjálfs
hefði verið sett inn á myndina
ofan á búk einhvers annars
manns. Hann vildi engar upplýs-
ingar gefa um kort sem bar nafn
íð Alek J. Hiddel en með mynd
af honum sjálfum, sem fannst í
veski hans.
Á meðan á yfirheyrslunum yfir
Oswald stóð á þriðju hæð lög-
reglustöðvarinnar voru yfir 100
blaðamenn, útvarps- og sjónvarps-
menn á göngunum, sem Oswald
varð að fara um á leiðinni inn
á skrifstofu Frítz. Fréttamennim
ir reyndu að ná viðtölum við
Oswald þegar hann fór þarna um.
Frá íöstudagseítirmiðdegi og
fram á sunnudagsmorgun fór
hann að minnsta kosti 16 ferðir
um gangana. Stjórnleysið bæði
innan og utan skrifstofu Fritz
gerði yfirheyrslurnar enn erfiðari
Þega lögreglan tjáði honum, að
hann gæti haft samband við lög-
fræðing hringdi Oswald nokkrum
sinnum á laugardeginum til þess
að reyná að fá mann fyirr sig,
sem hann sjálfur veldi, og ræddi
um þetta við -.yfirmann lögfræð-
ingafélagsins, sem bauðst tíl þess
að útvega mann. Oswald hafnaði
boðinu, og sagðist fyrst ætla að
reyna það sem hann gæti sjálfur
til þess að fá einhvern fyrir sig.
Á sunnudagsmorgun hafði hann
enn ekkí fengið lögfræðing.
Klukkan 19.10 á 22. nóvember,
1963, var Lee Harvei Oswald form
lega skýrt frá því, að hann væri
sakaður um morðið á Tippit iög-
reglumanni. Allmörg vitni, sem
höfðu verið viðstödd morðið á
Tippit og síðan séð skotmanninn
flýja höfðu bent á Oswald, þegar
þeir voru látnir þekkja morðingj
ann úr hópi nokkurra manna.
Enda 'þótt ekki væri enn búið að
ganga úr skugga um það, hvaða
vopn hefði verið notað, gat byss-
an, sem Oswald var með þegar
hann var handtekinn vel hafa ver
íð vopnið, sem notað var, þeg
ar Tippit var drepinn.
Formleg ákæra á hendur Os-
wald um morðið á Kennedy for-
seta kom skömmu eftir klukkan
1.30 aðfaranótt laugardags, 23.
nóvember. Klukkan 22 á morð-
daginn hafði FBI tekizt að rekja
slóð riffilsins, sem fannst á
sjöttu hæð í bókageymslunni til
pöntunarfyrirtækis í Chicago, sem
hafði keypt hann hjá sölufyrirtæki
í New York. Um það ,þjl„j
kiukkuslundum síöiir þiik.vujftti.
pöntunarfyrirtækið í Chicago, að
riffillinn hefði pantað maður að
inafni A. Hidel í marz 1963 og
beðið um að hann yrði sendur í
pósthólf 2915 í Dallas, Texas, hólf,
sem Oswald hafði á leígu. Greiðsl
an kom í formi póstkröfu, sem
undirrituð var af A. Hidell. Klukk
an 16.46, 23. nóvember, gat FBI
skýrt Dallas lögreglunni frá því,
sem niðurstöðu af rithandarrann-
sókn á skjölunum, sem útfyllt
höfðu verið í sambandi við ríffil-
kaupin, að riffilinn hafði Lee
Harvey Oswald pantað.
Bæði á föstudag og laugardag
skýrði lögreglan í Dallas opinber
lega frá mörgum smáatríðum í
sambandi við meintar sannanir
gegn Oswald. Lögreglumenn
ræddu mikilvæg atriði í málinu,
venjulega á óskipulegum og óundir
búnum blaðamannafundum á
göngum þriðju hæðarinnar. Sum-
ar upplýsingarnar voru rangar, og
oft stönguðust skýrslurnar á Þeg
ar blaðamenn fóru eindregið fram
á það, kom Jesse E. Curry lögreglu
foringi með Oswald á blaðamanna
fundinn í samkomusal lögreglunn
ar stuttu eftir miðnætti daginn
sem Oswald var handtekinn. Sam
komusalurínn var troðfullur af
blaðamönnum, sem komið höfðu
til Dallas alls staðar að úr land-
inu. Þeir æptu spurningar að Os-
wald og tóku myndir stanzlaust.
í þessum hópi var 52 ára gamall
næturklúbbahaldari, Jack Ruby,
Á sunnudagsmorgun, 24 nóvem-
er, var ákveðið að flytja Oswald
frá lögreglufangelsi borgarinnar
í fangelsi héraðsins, sem var tæpa
tvo kílómetra í burtu. Fréttamönn
um hafði verið sagt frá því á laug
ardagskvöld, að Oswald yrði ekki
fluttur fyrr en klulckan 10 á sunnu
daginn. Aðfaranótt sunnudagsins
milli klukkan 2.30 og 3 hafði
ónefndur maður hringt til FBI
lögreglunnar í Dallas og hótað að
Oswald yrði drepinn, og sömu-
leiðis hafði verið hringt til yfir-
lögreglustjórans. Samt sem áður
þyrptust fulltrúar blaða, útvarps
og sjónvarps inn í kjallara .stöðv
arinnar á sunnudagsmorgun, til
þess að vera viðstaddír flutning-
inn. Eins og sást í sjónvarpi átti
Oswald að koma um dyr fyrir fram
an myndavélarnar og ganga út
að lögreglubílnum, sem flytja átti
hann, til hægri var göngubraut
niður frá Main Street frá norðrí
og til vinsti var göngubraut upp
á C.pmm,erce Street til suðurs.
ILpp brynvarði bíll, sem flytja
átti Óswald kom rétt eftir klukk
an 11. Þá ákváðu lögreglumenn-
irnir, samt, að ómerktur lögreglu
bíll yrði heppilegri til flutningsins
vegna þess hve hratt hann gat far
ið og hve auðveldlega hann lét að
stjórn.
Um klukkan 11.20 kom Oswald
út úr kjallara fangelsisins með
lögreglumenn við báðar hliðar og
fyrir aftan hann. Hann steig nokk
ur skref í átt tii bílsins, og var
í skjannabirtunni frá sjónvarps-
myndatökuvélunum, þegar mað
ur stökk allt í einu frá hægri, þar
sem fréttamennirnir höfðu staðið.
Maðurinn var með colt, 38 byssu
í hægri hendínni, og meðan millj
ónir manna fylgdust með í sjón-
varpinu, hreyfði hann sig snöggt
í átt til Oswalds og skapt einu
skoti í kvið Oswalds. Oswalds æpti
af sársauka um leið og hann féll
til jarðar, og missti strax meðvit
und. Áður en 7 mínútur voru liðn
ar var Oswald kominn í Parkland
sjúkrahúsið, þar sem tilkynnt var
að hann hefði dáið án þess að fá
aftur meðvitund, klukkan 13.07
Maðurinn, sem drap Oswald var
Jack Ruby. Hann var handtekinn
þegar í stað, og nokkrum mínút
um síðar, lokaður inni í klefa á
fimmtu hæð í Dallas fangelsinu.
Við yfirheyrslu, neitaði hann að
hafa drepið Oswald í nokkru sam
bandi við samsæri sem átt hafði
að vera í sambandi víð morðið á
Kennedy forseta. Ilann hélt því
fram, að hann hefði drepið Oswald
í tímabils sorg og reiði yfir dauða
forsetans. Ruby var fluttur næsta
dag til héraðsfangelsins, án þess
að blöðum eða lögreglumönnum
öðrum en þeim, sem önnuðust
flutninginn vséri skýrt frá honum.
| Ruby var sakaður um morðið á
Oswald 26. nóvember, og sekur
fundinn 14. marz 1964 og dæmdur
til dauða; í september 1964 hefur
, dómxnum enn ekki verið fullnægt,
þar sem honum hefur verið áfrýj
að.
Skólafö? Ibúð óskast
Drengjajakkaföt trá ö—
14 ára verð frá kr. 69ö,—
Drengjajakkar siakir
margir litir frá kr. 430.
frá kr 250.
Drengiabuxur '6—13 ára
Kuldantpur - Vattúlpur
Matrosröt frá 2—7 ára
Malroskjólar írá 3—7 ara
Kragasett — Flautubönd
Dúnsænpr
Vöggusængur koddar
Æðardúnn — Hálfdúnn.
íbúð óskast til leigu. 1—2
herbergi Upplýsingar í
síma 15658.
h*$. Merjólfur
M. s. Herjólfur fer til V.m. og
Hornafj. á miðvikudag. Vöru-
Sængurver — Damask Lök hörléreft Patons ullargarmð 4 grl 50 litir Póstsendum M. S. Baldur fer til Snætells- nes- Gilsfjarða- og Hvarnms fjarðahatna og Flateyjar á fimmtudag. Vörumóttaka á mið vikudag
1 vær duglegar og
ábyggiiegar
Vesturgötu 12 Sínu 13570 lösftræðiskrifstotan stúlkur óskast önnur r.il afgreíðslu í có-
Iðnaðarbankahúsínu baks- og sælgætisbúð, hin
«V. ha>ð. til eldhússtarta
Tómasar Arnasonar og Vilhjálms Árnasonar Upplýsingar i Hótei Tryggvaskála
HJOLBARDAVIDGERD VESTURBÆJAR
AUGLÝSIR — „Nýjungar í þjónustu hjólbarðaviðgerða hér á landi“.
Höfum fengið viðgerðabifreið sem við sendum nm bæinn og víðar, ef menn eíu i nauðum staddir og getum
við framkvæmt allar venjulegar viðgerðir í bifreiðinni. Fyrst um sinn veitum við þessa þjónustu trá kl. 8,00
f. h. til kl. 19,00 alla daga nema sunnudaga.
REYNIÐ ÞESSA NÝJU ÞJÓNUSTU OKKAR“
Einnig er verkstæðið opið alla daga helga sem virka frá kl. 8.00 f.h. — kl. 23.00
Eigum fyrirliggjandi flestar stærðir af hjólbörðum og slöngum.
B 1
VESTURBÆJAR
við Nesveg — Sími 23120
T í M I N N , þriðjudaginn 29. septcmber 1964 —
13