Tíminn - 07.10.1964, Side 1

Tíminn - 07.10.1964, Side 1
ELEKTROLUX UMBOÐIÐ LAUGAVEGI 69 tMT& 21000 228. tbl. — Miðvikudagur 7. október 1964 — 48. árg. Frá fundi Stjórnunarfélagsins um hægri handar akstur. Eirikur Ásgeirsson í ræSustól. (Tímamynd K.J.) Vegamálastjóri, forstjóri strætisvagnanna og lögregiustjóri ræða hægri handar akstur. Hægri handar akstur eins fliótt og unnt er EJ—Reykjavik, 6. október. Mikið hefur verið rætt um það undanfarið, hvort ekki væri rétt að koma á hægri handar akstri hér á landi, m.a. hélt Stjórn- unarfélag íslands fund um málið rnú fyrir helgina. Sem stendur starfar um- ferðalaganefnd að því að safna upplýsingum um, hversu um- fangsmikil slík breyting yrði, og hvað hún myndi kosta. í dag bendir margt til þess, að hægri handar akstur verði tek- inn upp hér á landi í náinni framtíð, ekki sízt vegna þess, að kostnaðurinn vex mjög með hverju ári sem líður. Blaðið hafði í dag samband við Sigurð Jóhannsson, vega málastjóra, Eirík Ásgeirsson, forstjóra Strætisvagna Reykja víkur, og Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóra, sem voru frum mælendur á fundi Stjórnunar félagsins, og spurði um álit þeirra á því, hvort hér bæri að taka upp hægri handar akst ur. Sigurður Jóhannsson, vega- málastjóri, kvaðst fylgjandi því að hægri handar akstur yrði tekinn upp hér á landi, og það sem fyrst. Taldi hann rétt að ákveða nú þegar, að þessi breyt ing yrði gerð, en láta hann' síðan koma til framkvæmda eft ir 2—3 ár. Hann kvað flest rök hníga að því, að þessi breyting yrði framkvæmd, og benti á, að .kostnaðurinn við framkvæmd hennar ykist með Framh a i5 sfðu BLOÐTAPPAL YFIÐ FÆST HFR! MB-Reykjavík, 6. október. í blaðinu í dag birtist frétt, sem byggð var á grein er birtist í Ekstrablaðinu danska um það, að línolíusýra gæti hindrað myndun blóðtappa, og að nýkomið væri á markað á Norðurlöndnm lyf, er innihéldi þessa sýru. í dag var okkur bent á það, að að undanförnu hefði fengizt hérlendis lyf, er innihéldi línolíu sýru og er ætlað að útrýma Cole- sterol úr blóðinu, en það efni er eiturefni, sem stuðlar að myndun blóðtappa. Lyf það sem hér fæst er svissneskt, og nefnist Linosclérine og er selt í hylkjum. Hvert hylki inniheldur 400 milligröm af Eth yl-linoleic acid, auk minna magns af E og B vítamíni, er virka sem hvatar. Lyf þetta mun selt án lyfseðla, en fáum kunnugt um tilveru þess, þar eð hér má lög- um samkvæmt ekki auglýsa lyf, og gildir einu þótt þau fáist í hverri lyfjabúð án lyfseðla. Við birtum hér mynd at umbúðum lyfs þessa, sem, eins og fyrr er sagt, er talið geta hamlað móti myndun blóðtappa í mannslíkamanum. NYSÆNSKVEL GERIR KLEIFT AÐ LEITA AÐ KRABBAMEINI k FRUMSTIGI í STÚRUM STÍL NTB-Stokkhólmi, 6. október. í dag skýrðu Gunnar og Ing- mar Jungner tveir læknar á rann sóknarstofu í Stokkhólmi frá stór kostlegri nýjung í sambandi við leit að krabbameini á frumstigi. Nýjung þessi er vél, sem gerir efnafræðilegar rann-sóknir í stór um stíl, og hefur tilkoma hennar komið hinni sænsku læknastétt mjög á óvart. Rannsóknir þær, sem gerðar eru með hinni nýju vél, eru vélrænar, en vélin getur afkastað í kringum 30—40 milljónuim efnarannsókna á ári, það er 6.000 á klukkutíma. í Svíþjóð hefur verið búin til önnur svipuð vél, en hún af- kastar aðeins 400 efnarannsóknum á klukkutíma. Með tilkomu þess arar vélar geta Svíar vonast til þess, að innan skamms verði mögu legt að framkvæma allsherjar læknisskoðun í Svíþjóð, en samt dugir þessi vél ekki ein tU, þrátt B fyrir mikil afköst. í vélinni er hægt að rannsaka blóð, blóðvökva, þvag og aðra lík amsvökva á vélrænan hátt með imiklum afköstum og er hún því mikilvægur liður i læknisskoðun- um, sem eiga að ná til þorra fólks. Dr Gunnar Jungner sagði Eramh s ols i-> GENGIÐ FRÁ HALL VEIGARSTÖÐUM AD UTAN FB-Reykjavík, 6. október. Fyrsta hluta byggingar Hall veigarstaða er lokið, en húsið er orðið fokhelt. Næsta verk efnið verður að ganga frá því innan, og er búizt við, að það ætti að geta tekizt fyrir vor- ið, ef allt gengur eftir áætlun. 1 dag náðum við tali af frú Kristínu L. Sigurðardóttur for manni Hallveigarstaðanefndar. Sagði hún að þeir, sem hefðu tekið að sér fyrsta hluta bygg ingarinnar væru nú að ljúka verkinu, og næstu verktakarn ir að taka við Arkitekt húss- ms var Sigvaldi Thordarson, en hann hafði ekki lokið störfum, þegar hann lézt. og hefur nú Skarphéðinn Jóhannsson tekið við og mun sjá um það, sem eftir er af verkinu. í upphafi var ætlunin, að Hallveiga'"staðir yrðu heimili fyrir ungar stúlkur, en vegna breyttra aðstæðna hefur verið ákveðið, að parna verði að- staða fyrir ýmiss félög kvenna, t. d. Kvenfélagasamband ís- tands, Kvenréttindafélagið, Bandalag reykv. kvenna og fleiri. Fá félögin aðstöðu til fundahalda og annarrar starf- semi sinnar. I kjallara húss- ins verður deild Kvenskáta til húsa og auk þess verður Hús mæðrafélag Reykjavíkur þar til húsa með sýnikennslu og námskeið, sem það kann að vilja halda í framtíðinni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.