Tíminn - 07.10.1964, Blaðsíða 3
__ sS/'S&týbs -yvfo&x.
....
wx-í:::-xí>ííííí;->:wi:xNv:
HINN þekkti, ítalski leikari og kvikmyndaleikstjóri Yittorio de
Sica leikur um þessar mundir í kvikmyndimii ,,Ástarævintýri
Moll Flanders", sem verið er að taka í London. Hér á myndinni
er Penny Stevenson að Ijúka við að setja á hann hárkollu þá,
sem hanre hefur á höfðinu í kvikmyndinni. Af meðléikíirum hans
má nefna bandarísku stjörnuna Kim Novak.
Heljarmikið hneyksli átti sér
stað í Aþenu eftir brúðkaup
Önnu Maríu og Konstantíns
konumgs, og leiddi það til þess
að Konstantín konungur varð
að skila aftur einni brúðkaups
gjöfinni til þess að forða frek
ari ólátum!
í Grikklandi er því þannig
til hagað, að flugherimn og sjó
herinn bera nöfnin „konung-
Iegi flugherinn“ og „kosung
lcgi sjóherinn“ en landher-
inn heitir aftur á móti ein-
faldlega „gríski landherinn“.
Þegar brúðkaup Önnu Maríu
og Konstantíns nálgaðist fannst
varnarmálaráðherra Grtkklands
Garoufalias, og æðstu mönnum
landhersins, vel hæfa að breyta
þessu og kalla landherinn „hinn
konunglegi landher“. Hann lét
því skrifa út tilskipun um þessa
nafnabreytingu og færði hana
Konstantín konungi til undir
skriftar, en „gleymri“ aðeins að
láta Papandreou forsætisráð-
herra og aðra rá-ðherra vita um
þessa breytingu. Það var því
fyrst þegar tilkyinningin um
breytinguna kom í grísku
stjórnartíðindunum, Govern-
ment Gazette, að forsætisráð-
herrann og almenningur fékk
að vita um þetta mál.
Þegar mesti fögnuðurinn í
sambandi við brúðkaupið var
yfirstaðinn, hófust miklar um-
ryfirstaðinn, hófust miklar um
ræður og blaðaskrif um þetta
mál í Grikklandi og var þessi
ráðstöfun gagnrýnd harðlega,
og töldu ýmsir þetta ógnun við
grískt lýðræði og sögðu að
herinn væri Grikkja en ekki
kcnungsins. Varð forsætisráð-
herrann því að fara til konungs
og kvað það hyggilegast fyrir
hann að láta varnarmálaráð
herrann fá brúðkaupsgjöfina
aftur áður en vinsældir kon-
uingsihs minnkuðu vegna þessa
máls. Konungur féllst, á þctta,
og má nú telja fullvíst, að dag
ar Garoufal'ias sem ráðherra
séu taldir.
<*
Moskvitchbifreiðar eru mjög
tíðar hér á landi, og eigendum
þeirra til fróðlelks, getum við
upplýst, að Sovétríkin hafa «ú
á prjónunum áætlun um að
hefja framleiðslii á nýjum smá-
bíl sem fær nafnið „Moskvitch
408“. Bíll þessi verður fjögurra
dyra og minnir nokkuð á líti'nn
Fiat hvað útlit snertir, á að
vera 900 kg. á þyngd, með 50
hestafla vél og getur ekið 500
km. á einni tankfyllingu.
*
Fernandel, sem varð heims
frægur fyrir Don Camillo-kvik
myndir sínar, leikur í nýrri
Don Camillo-kvikmynd næsta
ár. Myndin fær nafmið „Don
Camillo í Rússlandi", og verður
hluti hennar tekinn í Moskvu.
STÚLKAN á myndinni, Patv-
cia McCoy, var neitað um þátt
íöku í fegurðarsamkeppni ný-
lega, vegna þess að unnusti
hennar vissi ekki hversu göm-
ul hún var. Fegurðarsam-
keppni þessi var á vegum TV
Times í Bretlandi, en þess var
krafizt að stúlkurnar væru a.
m. k. 17% árs gamlar. Unn-
... ■ ■ ■ ■ :■: ■ ■■■.- ■.■:■ ■■ ■:••■■ ■■:■•■ . ■: ■:■ :•:■:■■•■■: ■■■■.:
KVENHATTAR eru oft hinir furðulegustu í útliti, og vart verður því neitað, að þessi sé nokkuð
sérkennilegur. Þessi hattur er teiknaður af Peter Shepard í London og er einn af haust- og
vetrarhöttum hans. Sýningarstúlkan lieitir Brenda Harper, og er hún mun ásjálegri en liattur-
inn.
usti Patricia, Richard Dew-
berry, sendi þessa mynd af
henni til blaðsins og hún var
birt í því. Patricia fékk síðan
bréf, þar sem henni var til-
kynnt, að hún hefði verið valin
í úrslitakeppnina. En það var
aðeins stuttur draumur, því að
þegar fyrirtækið komst að
raun um, að hún væri aðeins
16 ára, neitaði það henni um
þátttöku.
En Patricia, sem trúlofaðist
Richard fyrir mánuði síðan, er
staðráðin f því að taka þátt í
keppninni næsta ár.
★
Jayne Mansfield virðist hafa
sérstakan áhuga á yöðvamikl-
um mönnum. Hér áður fyrr var
hún gift Mickey Hargitay, lyft
ingarmanni, em þau skildu á
þessu ári. Og nú ætlar hún að
giftast á ný, að þessu sinni
Broadway-leikstjóra, sem eitt
sinn var lyftingamaður, Thom-
as Vitale Ottaviano að nafni.
Þau hittust fyrst í apríl þeg-
ar Jayne lék í leikriti, sem
samið er upp úr Marlyn Mon-
roe-kvikmyndinni „Bus stop“,
í leikhúsi nokkru í New York.
Og nú fyrir nokkrum dögum
opinberuðu þau trúlofun sírna,
og Jayne segist vera ástfangin
í fyrsta sinn í lífi sínu og seg-
ir, að þau muni gifta sig i Mexi
co eins fljótt og hægt er. Og
húm hefur gnægð lýsingarorða
pegar hún ræðir um tilvon-
andi eiginmann sinn: — „Hann
er ekki aðeims snillingur, held
ur hefur hann þann fegursta lík
ama, sem ég hef nokkru sinni
séð, hann er eins og grískur
guð“ — segir Jayne!
Bifreiðastyrkir ti!
starfsmanna R.víkur
Á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur 1. þ.m., gerði
Björn Guðmundsson að um-
ræðuefni 5. lið í fundargerð
borgarráðs frá 25. sept. Dn
þar er greint frá, að $brgar
ráð ha.fi faliizt. á tillögur nefnd
ar, sem hefir úaihið að endur
fkoðun bif eiða tyrkja ti! ein-
stakra starfsmanna. B. G. fór-
ust m.a. orð á þessa leið:
Þessi liður lætur ekki mikið
yfir sér. Þó er hér verið að
ákveða skiptingu á miklu fjár
maguii, sem Reykjavíkurborg og
stofnanir hennar greiða., Fjár
hæðin nemur alls kr. 4 millj.
og 395 þús., sem skiptist í bíla
styrki tii 145 manna.
Nefndin og borgarráð tala
um styrki. Réttara myndi þó
að kalla þetta greiðslu á bif-
reiðakosíinaði vegna starfa í
þjónustu borgarinnar.
Starfsmönnum er skipt niður
í 11 flokka, sem er ætlað 9 til
48 þús. árlega í bílakostnað.
Langflestir eru i 4. — 6. flokki
þar sem greiðslan er 36, 32 og
28 þús. til hvers. Fara % af
allri upiphæðinni til þessara
flokka.
Nefmdin, sem unnið hefur að
málinu, hefur leyst mikið verk
af hendi, og sennilega gott. Um
það skal ekki dæmt. Alltaf get
ur orkað tvímælis um einstök
dæmi, þ.e. hvort þetta starf
krefjist bilanotkunar fyrir
þessa eða aðra upphæð árlega.
Auðsjáanlega hafa nefndar-
menm ckki verið vel ánægðir
með fyrri úthlutun eða skipt-
ingu. Hækkunin frá f. á. er að
meðaltali 15.76% til þeirra
sem greiðsla er ætluð. En
dæmi eru um, að einstakling-
ar hækki yfir 100%, en aftur
standa aðrir í stað (5) og ýmsir
lækka (23). Og dæmi eru um
að greiðsla falli alveg niður
(4).
Borgarstjóri kvaðst sammála,
að ekki væri rétt, að kalla þetta
styrki til e'imstakra manna. Hér
væri að ræða um greiðslu á
kostnaði vegna borgarinnar, en
ekki styrk.
ísland ocj Kína
Ríkisstjórnin virðist nú orð
in ósammála um afstöðuna til
Kína, engu síður en Sósíalista-
flokkurínn Þegar viðskiptamála
ráðherra þáði boð opimbers
kínversks aðila um að heim-
sækja Kína, varð það ekki
skilið á annam veg en þann, að
ráðherrann værí því fylgjandi,
að ísland fylgdi í slóð hinna
Norðurlandanma og viður-
kenndi Pekingstjórnina. Eftir
heimkomuna sagði ráðherrann
líka frá ummælum kínverskra
ráðamanna á vinsamlegan hátt.
Þetta hefur hins vegar ekki
öllum líkað á stjórnarheimil-
inu. Mbl. og Alþýðublaðið hafa
síðan birt forustugreinar, þar
sem mjög er fordæmd afstaða
hinma Norðurlandanna í Kína-
málinu og Varað við því, að
hún sé tekin til fyrirmyndar.
Valdamiklir menn í stjórnar-
flokkunum eru þanm'ig bersýni
lega á öðru máli en Gylfi.
Þeir fylgja einnig bersýnilega
allt annarri utanríkisstefnu en
ríkisstjórnir hinna Norðurland
mna fjögurra.
TÍMINN, miðvikudaginn 7. október 1964 —
3