Tíminn - 07.10.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.10.1964, Blaðsíða 2
Þriðjudagur, 6. október. NTB-Cordoba og Buenos Air- es. Þegar De Gaulle ók í gegn- um Cordoba í dag, þurfti lög- reglan að beita skotvopnum, kylfum, hundum og táragasi gegn Peronistum, sem gerðu uppþot. Tveir menn særðust í skothríðinni, en De Gaulle varð sjálfur fyrir óþægindum af tára gasinu. NTB-Ankara. — Að mínnsta kosti 10 manns misstu lífið í ■ jarðskjálfta, sem gekk yfir Vestur-Tyrkland í dag. Mestir voru jarðskjálftarnir 130 km. fyrir sunnan Istanbul og fjöldi húsa hrundi í rúst. Óttazt er 1 að fleiri hafi farizt en nú er i vitað. NTB-Moskva. — Sovétríkin i hafa vísað á bug mótmælum þeim, er Bretland og Banda- ríkin sendu sovézku stjóminni vegna húsrannsóknar, sem gerð var hjá mönnum þeirra í Kab- , arovsk. Segja Sovétríkin, að þetta hafi verið njósnarar og komu þeirra til landsins hafi áður verið mótmælt. NTB-Berlín. — Yfirvöldin í V-Berlín velta því nú fyrir sér, ' hvað þau eigi að gera við fjóra flóttamenn frá A-Berlín, sem komu af stað skothríðinni á mánudaginn, sem varð til þess að austur-þýzki landamæravörð urinn var drepinn. NTB-Tokio. — Japanska ut- anrikisráðuneytið hefur gert opinbert, að Krustjoff hafi fyrir viku síðan sagt fyrrverandi japanska utanríkisráðherranum Fujiyama, að Kína gæti nú framleitt kjarnorkuvopn og að það væri að þakka vísindalegri hjálp, sem Sovétríkin hefðu veitt landinu síðustu 10 árin. NTB-Tirana. — Albanski kommúnistaflokkurinn hefur lýst því yfir, að hann muni ekki taka þátt í fundi kommún ístaflokkanna, sem hefjast mun í Moskvu 15. desember næst komandi. NTB-Berlin. — Flokksforingi kommúnista í A-Þýzkalandi hef ur kunngjört, að í sambandi við 15 ára afmæli austur-þýzka ríkisins verði þeir fangar, er sýnt sé, að iðrist gerða sinna, látnir lausir fyrir 20. desember í ár. Meðal þessara fanga verð ur fjöldinn allur af pólitískum föngum. Hingað tíl hafa 1000 pólitískir fangar verið látnir lausir í Austur-Þýzkalandi. NTB-Berlin. Ludwig Erhard, kanslari, sagði á blaðamanna- fundi í dag, að hann vonaðist til að geta heimsótt hinn banda ríska forseta eftir kosningarn ar og fyrir áramót. Einnig sagð ist hann vona að hann mundi bráðlega tala við De Gaulle í París, það er áður en Krustjoff kecnur í heimsókn til Bonn, sem líklega verður í janúar. NTB-Washington. — 38 heims frægir bandarískir læknar og vísindamenn lýstu þvi yfir i dag sem fulltrúar 50,000 með- lima samtaka visindamanna, að þeir styddu Johnson forseta í kosningabaráttunni. Þrír Nób- elsverðlaunahafar voru í hópn- um. Tshom upp á aö reyna að sækja fundinn NTB-Kairo, 6. október. Forsætisráðherra Kongo, Moise Tshombe, lýsti því yfir í Kairo í kvöld, að hann mundi halda heim til Kongo í fyrramálið kl. 9, þar sem hann hefði ekki fengið inn- göngu á ráðstefnu hinna hlutlausu landa í Kairo. Tshombe kom til Kairo í morgun, öllum á óvart, með eþiópiskri farþegaflugvél. Kasavubu, forseti Komgó, hefur F0RSETAEFNIÐ FRUMSÝNT15. Forsetaefnið, nýtt íslenzkt leik- rit eftir Guðmund Steinsson, verð ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtudagskyöldið 15. október, og verður það onnur frumsýning leik hússins á þessu hausti, en hið fyrsta af þrem nýjum íslenzkum leikritiun, sem flutt verða þar á leikárinu. Höfundurinn, Guðmundur Steins son, sem er fæddur á Eyrarbakka 1925, brautskráðíst stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði eftir það bókmenntanám í Bandaríkjunum, á Frakklandi og Spáni árin 1947—53. Eftir heim- komuna gaf hann út sína fyrstu skáldsögu, „Síld“, árið 1954 og síðan kom önnur skáldsaga út eftir hann 1959, „Maríumyndin". Forsetaefnið er nútímaleikur og fjallar um það sem nafnið bendir til, forsetakosningar. Skiptist leik ritið í sjö atríði, en leikendur eru sautján álls. Aðalhlutverkið leik- ur Róbert Arnfinnsson, en helztu hlutverk önnur leika Gunnar Eyj- ólfsson, Kristbjörg Kjeld, Rúrik Haraldsson, Valur Gíslasón, Lárus Pálsson, Guðbjörg Þorbjarnardótt ir og Gísli Alfreðsson. Leikstjóri verður Benedikt Árnason, en leik tjöld eru eftir Gunnar Bjarnason. gert opinbert, að hann leyfi eng- in erlend afskipti af þeim fulltrú um, sem Kongó kunivi að senda á ráðstefnuna í Kairo. Þegar Tshombe kom til Kairo í morgun, þurfti hann að bíða eina þrjá stundarfjórðunga á flugvell inum, en síðan var honum ekið í burtu í bíl frá kongóska sendiráð inu, en í humátt á eftir fylgdu bíl-! ar egypzku ríkisstjórnarinnar. | Tshombe var fluttur í höllina E11 Erouba en hún er notuð seim1 gestahúsnæði. Þangað fékk eng j inn að heimsækja hann, ekki einu sinni starfsmenn kongós'ka sendi I ráðsins, en lögregla og öryggis- verðir stóðu vörð um höllina. Egypzku yíirvöldin neita því, að Tshombe hafi verið haldið í stofu 1 fangelsi og segja, að hann geti farið, hvenær sem honum þók-nist, en það sé fulltrúanna á ráðstefnu hinna hlutlausu ríkja, að ákveða hvort hann fái þar aðgang. Mikil ólga ríkti í dag á fundum ráðstefnunnar, vegna nærveru Tshombe. Að minnsta kosti fimm fulltrúar lýstu því yfir, að þeir mundu yfirgefa ráðstefnuna, ef Tshombe kæmi þangað. Egypzku yfirvöldin hafa lokað sendiráði Egyptalands í Leopoldville um óákveðinn tíma, vegna þeirra j orðaskipta, sem Tshombe átti við einn af starfsmönnum þess á flug- j vellinum, áður en hann fór til Kairo. Þeir hafa samt ekki slitið j stjórnmálasambandi sínu við Kongo. r- ^ „Filipus prins“ í Sandhelgi FB-Reykjavík, '5; október. Varðskipið Óðinn tók í nótt brezka togarann Prince Philip frá Fleetwood að meintum ólöglegum veiðum 1,3 sjómílur innan land- helginnar við Barða. Farið var með togarann til ísafjarðar. f morgun tók svo Albert togbátinn Hafrúnu GK-90 að veiðum við Eld- ey. Málið var tekið fyrir í saka- dómi í dag, og búizt við að því yrði lokið í kvöld eða fyrramálið. í gærmorgun, þegar borgarstarfsmenn hófu vinnu í Fálkagötunni eftlr mlkla rigningarnótt, tókst svo til, að skurðbakkinn gaf eftir undan einni vinnuvélinni, svo að hún datt á afturendan ofan í skurði. Mikil umsvif þurft til að á henni upp aftur. TRYGGVIHELGASON FÉKK f GÆR s SKIRTEINI A ADRA NYJU VELINA SILOAR MB-Reykjavík, 6. okt. Eins og áður hefur verið sagt frá, hefur orðið dráttur á því að Tryggvi Helgason á Akureyri fengi loftferðaskírteini fyrir hinar nýju Höfundurlnn Áreksturinn á Seyðisfirði á lauga rdagskvöldið Bifreiðaáreksturinn, sem varð á Seyðisfirði á laugardagskvöld, mun hafa stafað af því, að vöru- bifreiðinni var ekið aftur á bak út á götuna, sem Ópel-bifreiðin kom eftir. Það var aðkomumaður á staðnum, sem ók Ópel-bifreið- inni, en farþeginn meiddist aðeins lítilsháttar. Ópelbifreiðin er lítið skemmd. vélar sínar vegna þess að flugskýli vantar 'á Akureyrarflugvelli. Nú hefur þó verið ákveðið að veita Tryggva skírteinið, þar eð til stend ur áð reisa flugskýli á flugvellin um á næstunni. í dag var skoðun- armaður fyrir norðan og flaug vél- inni TF-JMD til prófs og gekk flug ið ágætlega og mun Tryggvi fá skírteini sitt nú alveg á næstunni. Vél þessi tekur 7 farþega, eins og hún er nú innréttuð og mun notuð til leiguflugs á sama grundvelli og aðrar flugvélar Tryggva. Maðurinn sem lézt IH-Seyðisfirði, 6. október. — Mað urinn, sem lézt eftir bílslysið í Gufufossbrekku á Seyðisfirði á j mánudagsmorguninn, hét Kristján Þorgeirsson og var frá Ketilsstöð- um í Jökulsárhlíð. Bóman stórslasaði verkstjórann KJ-Reykjavík, 5. okt. Skömmu fyrir hádegi í dag varð vinnuslys við húsið Kleppsveg 47 í Reykjavík. Verið var að hifa steinsteypu upp á fyrstu hæð húss ins með vélkrana, er bóman féll niður og á verkstjórann, sem stór- slasaðist. Reykjavíkurborg er þarna að byggja íbúðarhús, en verktakafé- lagið Sökklar s.f. sér um fram- kvæmdir. Var verið að byrja á að steypa plötuna á fyrstu hæðina, og notaður vélkrani við að hífa steypuna upp á hæðina. Er steypu- tunnan hafði verið hífð upp á hæð ina, ætlaði verkstjórinn og einn af eigendum Sökkla að losa úr tunn- unni, en þá féll bóman á hann. Lenti bóman á höfði og baki mannsins. Nærstaddir verkamenn gátu lyft bómunni ofan af mann- inum, sem síðan var fluttur á Landakotsspítala. Var líðan hans eftir atvikum í kvöld. Orsökina til slyssins má rekja til bolta í bómuriní, sem lét undan. AFUNN Þriðjudaginn 6. október. Óhag- stætt veður var á sfldarmiðunum sJ. sólarhring, en undir morgun var veður tekið að batna. Skipin voru einkum að veiðum 55—60 míl ur SA af Dalatanga. Sfldarleit- inni var kunnugt um afia 19 skipa með samtals 9.100 mál og tunnur. Arnar RE 600 mál. Gjafar VE 950 mál. Snæfugl SU 500 mál. Hannes Hafstein EA 600 mál. Jón Kjartansson SU 700 tn. Súlan EA 250 mál. Óskar Halldórsson RE 900 mál. Gunnar SU 400 mál. Hamra- vík KE 300 mál. Steingrímur trölli SU 200 mál. Páll Pálsson GK 200 mál. Faxi' GK 1000 mál. Siglfirðingur SI 450 mál. Mána- tindur SU 400 tn. Arnfirðingur RE 600 mál. Ásbjörn RE 150 mál. Guðbjörg ÍS 300 mál. Helgi Fló ventsson ÞH 200 mál. Bjai;mi II EA 400 mál. fi TÍMINN, miðvikudaginn 7. október 1964 — i i!Jí1 'JJJ' ' 'VV :t 11 !] :)'•) 1]-;) 1 V l' II )! ") ’ . ' iil' i- \jj jh’ ", >,7 ;/ ÍjJlM i. i - .

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.