Tíminn - 07.10.1964, Blaðsíða 15
6 srLDVEIÐISKIP
Framhald af 16. s(3u.
710, Bjarni II Dalvík 32.463, Þórð
ur Jónasson, Reykjavík 32.046,
.Cðcótta Reykjavík 29.882 Guðrún
Jónsdóttir fsafirði 29.231, Faxi
: Bafnarfirði 28.518, Vonin Kefla-
vík 28.485, Hannes Hafstein Dal-
|vík 27.568, Loftur Baldvinsson Dal
Ívík 26.097, Ólafur Magnússon Ak-
1 ureyri 25.646.
HÆGRI HANDAR AKSTUR
Framhald af 1. síðu.
hverju árinu sem líður. T.d.
sagði hann, að það myndi í
dag kosta um 1 milljón króna
að flytja þau umferðarmerki,
sem nú eru komin upp víða
um landið, og að þessi kostnað
ur myndi vaxa um kvartmilljón
á hverju ári. Jafnframt gat
hann þess, að bifreiðaaukning
in hér á landi yrði að öllum
líkindum mjög mikil. Um ára-
mótin síðustu voru hér á landi
29.324 hifreiðar, en árið 1985;
verða þær 92.200 samkvæmtj
, útreikningum Efnahagsstofnun ]
• arinnar. Það þyrfti því bráð-
lega að leggja út í byggingu (
- stórra umferðarmannvirkja, og
væri því bráðnauðsynlegt að
I ákveða, hvort út í breytinguna1
verður farið, áður en slík mann
1 virki eru byggð.
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri
j Strætísvagna Reykjavíkur, taldi
sjálfsagt að taka upp hægri
handar akstur hér á landi, og
því fyrr því betra. Hann sagði
að aðalkostnaðurinn hér fælist
í breytíngum á strætisvögnum
því að bæði þyrfti að flytja
hurðimar og stýrið, en ekki
lægi ennþá Ijóst fyrir, hversu
mikill sá kostnaður yrði. í sam
bandi við kostnaðinn hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur,
sagði Eiríkur, að bíla-
floti þeirra væri nú það
góður, að hann þyrfti ekki end-
umýjunar við næstu tvö árin,
og yrði.því kostnaðurinn mun
minni en ella, ef breytingin
kæmi til framkvæmda innan
næstu 2—3 ára. Þá myndu þeir
sennilega kaupa 5 nýja vagna
sem væra jafnvígir á bæði
hægri og vinstri handar akstur,
^ og nota þá sem skiptivagna.
Gætu þeir þannig haft 5 vagna
í eínu á verkstæði til breytinga.
Sígurjón Sigurðsson, lög-
reglustjóri, er formaður um-
ferðalagnefndar, sem nú hef-
ur með höndum undirbúning
þessa máls. Sagði Sigurjón, að
nefndin vperi nú að afla sðr
gagna sem víðast að, til þess að
fá sem bezt yfirlit yfir hversu
' rniklu þyrfti að breyta á hverj
' um stað og hver kostnaðurinn
yrði. Hann sagði, að mörg rök
' mæltu með þessari breytingu,
1 og að hann teldi líklegt, að
hægri handar akstur yrði tek-
inn upp hér á landi. Hann
minntist einnig á, að árið 1940
voru sett hér á landi lög um,j
að hægri handar akstur skyldij
tekinn upp, en er Bretar komu
hingað skömmu síðar, var af
öryggisástæðum ákveðið að
hætta við breytinguna. Árið
1940 var áætlað, að breytingin
kostaði 50 þúsund krónur, en
árið 1958 var kostnaðurinn á-
ætlaður 5.6 milljónir.
Eins og kunnugt er, munu
Svíar taka upp hægri handar
akstur vorið 1967. í grein, sem
skrifuð var um þetta efni í
Tímann 15. maí 1963, seglr að
kostnaðurinn þar verði ekki
innan við 400 milljónir sænskra
króna. Tæpur helmingur, eða
180 milljónir, fara í breyting-
ar á strætisvögnum, en breyt-
ingar á umferðarmerkjum, Ijós
um og fleiru slíku kosta um
90 miUjÖnir. Þegar málið var
fyrst rætt í Svíþjóð árið 1930
hefði breytingin aðeins kostað
7—8 milljónir sænskra króna.
Vinstrí flokkarnir
r r
unnuat
NTB-Helsingfors, 6. október.
Sveitar- og borgarstjómarkosn-
ingaraar í Finnlandi nú um helg
ina hafa verið mikill sigur fyrir
jafnaðarmenn. Hafa þeir hlotið
samtals 470,000 atkvæði og er það
meira en nokkur hinna flokkanna
fékk, eða rúmlega helmingur allra
greiddra atkvæða.
Við borgar- og sveitarstjórnar-
kosningarnar árið 1960 unnu borg
aralegu flokkarnir í 420 sveitar-
stjórnum, en jafnaðarmenn í 127.
Borgaralegu flokkarnir munu enn
halda meiríhluta í fleiri sveitar-
stjómum en jafnaðarmenn, en
UMFERÐARKENNSLA
Framhald aí 16. síðu.
hafa yfirumsjón með þeim. Þá á
Ríkisútgáfa námsbóka að gefa út
námsbækur í umferðarmálum
Iranda þeim, sem hafa námsskyldu
samkvæmt reglugerðinni.
Þar eð umferðarslys færast sí-
fellt í aukana hérlendis, og þó
aldrei eins og á þessu ári, fannst
okkur rétt að kynma okkur, hvað
liði framkvæmd reglugerðar þess
arar.
Fræðslumálastjórnin fékk 1961
einn mann, Jón Oddgeir Jóns-
son, til að uindirbúa framkvæmd
þessarar reglugerðar, og hefur Jón
starfað við þetta í þrjú og hálft
ár, en þó aðeins hálfan daginn og
á hálfum kennaralaunum. Hefur
hamn á þessum tíma haldið nám-
skeið með öllum kennurum í við-
kom. skólum í Rvík og nágrenni
oig kaupstöðum landsins og einnig
unnið að samningu kennslubóka
í umferðarmálum. Er ein þeirra
þegar komín út í tveím útgáfum á
vegum Ríkisútgáfu námsbóka, Um-
ferðarhókin, esi tvær væntanleg-
at innan skamms. Önnur þeirra er
væntanleg eftir um það bil mán-
uð. Er hún eitnkum miðuð v'ið
kennslu yngri baraa, en mun not
uð við kcnnslu víðar, uinz hand-
bók fyrir kennara kemur út upp
úr áramótunUm, en hún mun
notuð við ketnnslu í kennaraskól-
anum. Þá er einn'ig væntanleg
kenslubók fyrir gagnfræðastig-
ið eftir áramót.
Þá hefur Jón einnig útvegað 6
kvikmyndir, sem notaðar eru við
umferðarkennslu og era þær lánað
ar út af Fræðslumyndasafni ríkis-
ins. Er þar bæði um að ræða inn-
lendar og erlendar myndir, og
hefur ekki verið fengin opin-
ber aðstoð við útvegun kvikmynd-
anna, en ýmis tryggingafyrirtæki
hafa lagt fram fjárstuðning og a.
m.k. eina myndina gáfu erlendir
aðilar.
Síðastliðið vor voru höfð
reynslupróf í umferðarkennslunni
í barnaskólum í Reykjavík, og í
vor verða í fyrsta sinn skipulögð
próf samkvæmt reglugerðinni og
einkunnir gefnar. Þá mun og í vet
ur hefjast kennsla í umferðar-
fræðslu í Kennaraskóla íslands,
sennilega í lok næsta mánaðar. í
vetur mun Jón Oddgeir Jónsson
einkum halda námskeið úti á landi
fyrlr kennara.
Ens og fram kemur. af þessu er
nú loks að komast skriður á
skipulagða umferðarkennslu hér-
lendis. Er vonandi að hún megni
að draga nokkuð úr hinum 6-
hugnanlega idysafaraldri hérlend
is, sem hvað mest hefuí komið
niður á börnum og unglingum.
Auglýsið í Tímanum
jafnaðarmenn munu við þessar
kosningar hafa haft yfirhöndina í
160 sveitarstjórnum. Hinn mikli
atkvæðamismunur liggur í því, að
borgaralegu flokkarnir unnu í
mörgum fylkjum, þar sem íbúar
eru tiltölulega mjög fáir. Niður-
staðan verður líklega sú, að jafn-
aðarmenn hafa 1000 færri fulltrúa
en borgaralegu flokkarnir, en árið
1960 var mismunurinn 2,500.
Stjórnmálasérfræðingar í Helsing
fors segja, að jafnaðarmenn eigi
vaxandi fylgi að þakka. unga fólk-
inu í landinu og svo formanni sín-
um, Rafael Paasio.
Dagur frímerkisins
FB-Reykjavík, 6. október.
Dagur frímerkisins verður á
morgun, miðvikudag, og verður þá
sérstakur dagstknpill í notkun á
póststofunni í Reykjavík. Frí-
merkjasalan mun bæði taka á
móti umslögum með álímdum gild
andi frímerkjum til stimplunar og
pöntunum á frímerkjum til álím-
ingar og stimplunar.
Þá má geta þess, að sérstakt
pósthús er opið á frímerkjsýning-
unni Frímex 1964, sem stendur yf-
ir í Iðnskólanum, en sýningunni
lýkur á laugardaginn.
BÍLAKJÖR
Consul corsair 64—65
Volkswagen 63. Verð kr. 85
þús.
Volkswagen 62. Alveg ný vél.
verð kr. 80 þús.
Opel Kapitan, de luxe 61 með
over drive og plötuspilara.
Ný innfluttur. Verð kr. 180
þús.
SAAB 63.
Príns 62. Verð kr. 95 þús.
Volvo 445 stat. 55. Verð kr. 70
þús.
Peguet 64. Verð kr. 150 þús.
Ford 59 stat. Fallegur. Verð
kr. 120 þús.
Ford 59 2ja dyra orginal. Verð
kr. 130 þús.
Ford 57. Fæst fyrir skuldabréf.
Chevrolet—Impala 60. Verð
kr. 140 þús.
Rambler amb. 59. Verð kr. 130
þús.
Pontiac 57. Verð kr. 70 þús.
Plymouth 57. Verð kr. 110 þús.
Merzer-smith 3ja hjóla lítið
ekið.
BÍLAKJÖR
Rauðará, Skúlagötu 55, sími
15812.
Framhaldsrannsókn í
máli Taylors skipstj.
MB-Reykjavík, 6. október.
Eins og kunugt er áfrýjaði Sak
sóknari ríkisins frávísunardómi
bæjarfógetans á ísafirði í land-
helgismáli Táylors skipstjóra á
dögunum, til Hæstaréttar. Málið
hefur þó ekki verið tekið þar til
dóms enn þá, þar eð Saksóknari
fyrirskipaði framhaldsrannsókn í
málinu. Fór hún fram á sunnudag
inn fyrir Sakadómi Reykjavíkur
og voru 6 varðskipsmenn kallaðir
fyrir til að gefa nákvæmari
skýrslu um stöðvun togarans og
eftirför. Er framhaldsrannsókn
þessari nú lokið og gögn hafa ver
ið send saksóknara. Gengur dómur
í þesu merkilega máli sennilega
í hæstarétti í næstu viku.
NÝ VÉL
Framhald aí 1. síðu
blaðamönnum í dag, að margir
leituðu ekki til læknis fyrr en
of seint og aðjúr ættu erfitt með
að lýsa sjúkdomseinkennum sín-
um, þegar til læknis væri komið.
í báðum tilfellum væri hægt að
taka fyrir lífshættulega sjúkdóma
á byrjunarstigi fleiri en krabba-
mein með ítarlegri læknisskoðun
með hjálp hinnar nýju vélar. Þetta
á ekki sízt við um krabbamein,
sem mjög erfitt er að uppgötva að
frumstigi. ' Vél þessi mun vera
framleidd fyrir fjöldarannsóknir
og sérstaklega fyrir sjúkrahús.
TILBOÐ OSKAST I
EFTIRTALIN TÆKI:
Federal vörubílar með grjótpalli, 2 stk.
Federal dráttarbíll.
Autocar dráttarbíll
Þungaflutningavagnar, 40 tonna, 2 stk.
Caterpillar jarðýta D-4
Cletrac jarðýta, 7 tonna.
Cletrac beltabíll.
Sullivan loftþjöppur 105 og 210 c.t.m., 4 stk.
Diamond dráttarbíll 190 Hö, diesel.
FWD bíll með staurabor og snjóplóg-
Ford sorphreinsunarbíll.
Plymouth 6 manna fólksbifreið, smíðaár 1955.
Tækin verða til sýnis frá kl. 9—5 miðvikudaginn
7. október n. k. að Skúlatúm 1 Upplýsingar veitir
vélaeftirlitið á sama stað.
Tilboðin verða opnuð í sknfstofu vorri kl. 11,00
fimmtudaginn 8. október n. k.
INNKAUPASTOFNUN RE YKJAVÍKU RBORG \R
ÞAKKARAVÖRP
Hjartanlega þakka ég öllum ættingjum, sveitung-
um og öðrum vinum mínum, sem heiðruðu mig
með nærveru sinni, gjöfum, blómum, heillaskeyt-
um og á ýmsan annan hátt á áttatíu ára afmæli
mínu.
Guð blessi- ykkur öll.
Gunnar Oddsson,
Bjarnastöðum, Grímsnesi.
öllum þeim fjölmörgu ættingjum og vinum, sem
glöddu mig á áttræðisafmæli mínu þ. 27. sept.
með gjöfum og heillaskeytum, íæri ég mínar hjart
ans þakkir og bið guð að blessa ykkur öll.
Ásmundur Jóhannsson,
Kvenná, Grundarfirði.
‘IV
Inmlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Haraldar Lárussonar,
rafvirkjameistara.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki í Borgar
spítalans fyrir frábæra hjúkrun og aðhlynningu í veikindum
hans.
Guðný Sæmundsdóttir, Haukúr Haraldsson,
Hrafn Haraldsson, Sæmundur Vilhjálmsson,
Örn Haraldsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Hjartans þökk til allra sem sýndu okkur samúðar og vinarhug við
andlát og jarðarför eigin-manns míns, föður, og tegndaföður og
afa,
Árna Andressonar
Vesturgötu 117, Akranesi.
Og heiðruðu minningu hans á annan hátt,
Þuríður Guðnadóttir, börn, tengdabörn og baraab'ra.
T f M I N N , mlðvikudaglnn 7. október 1964 —
15