Tíminn - 20.10.1964, Blaðsíða 16
Myndin er frá kvikmyndun
Reiknlvélarinnar eftir Erling E.
Halidórsson í Tjarns*bæ. Yzt til
liægri er kvikmyndatökumaður-
inn Þorgeir Þorgeirsson með
vél sína í skugga utan sviðsljóss
ins, en GE ijósmyndari Tímarts
mátti ekki trufla með því að
beita leifturl jósi. Leikstjóri er
höfundur sjálfur, leiktjöld eftir
Benedikt Gunnarsson listmálara,
og leikendur Erlingur Gíslason,
Valdimar Lárusson, Brynja Bene-
diktsdóttir, Bjarni Steingrímsson
og Þorleifur Pálsson.
HJALPARSJODURINN
GEFUR ÚT JÚLAKORT
nu
FB-Reykjavík, 19. október.
Biskupsskrifstofan hefur
veitt móttöku 200 þúsund krómun
til Hjálparsjóðs æskufólks, og eru
þær ágóði af sýningum myndar-
innar Úr dagbók lífsins og sömu-
leiðis fé, sem hefur safnazt vegna
VERKFALL PRENT-
ARA Á
EJ-Reykjavík, 19. október.
í kvöld var haldinn sáttafundur
með prentmyndasmiðum, en þeir
fóru í verkfall á miðnætti s. 1.
Einnig verður fundur með offset-
prenturum, en þeir hafa ekki boð-
að verkfall enn þá. Prentarar hafa
boðað verkfall á miðnætti fimmtu
dagsins og verður haldínn fundur
með þeim á miðvikudaginn, að
því er Logi Einarsson, sáttasemj-
ari, tjáði blaðinu í kvöld.
áskrifta í bókina Réttið hjálpar-
hönd og gjafafé frá áhöfnum 50
skiþa. Alls hafa nú verið Iagðar
400 þúsund krónur í sjóðinn.
Hjálparsjóðurinn hefur nú látið
prenta 5 gerðir af jólakortum, sem
Halldór Pétursson listmálari teikn
aði, og verða þau seld til ágóða
fyrir sjóðinn.
Jólakortin segja sögu munaðar-
lausra barna. Á fyrsta kortinu eru
rACTI Ifk 1 systkini við leiði úti í kirkjugarði.
I Á öðru hefur systir tekið litla
bróður að sér, á þriðja kortinu
tilkynnir systirin bróður sínum,
að hún verði að láta hann frá sér.
Á fjórða er hún að hugga bróður
sinn og að lokum fer hún með
hann á nýja verustaðinn. — Með
þessum jólakoytum geta menn í
senn fengið ódýr og smekkleg
kort og styrkt gott málefni, sagði
Magnús Árnason stofandi sjóðsins
á fundi með blaðamönnum í dag.
Framh á 15. síðu
REIKNiVELIN
KVIKMYNDUÐ
GB-Reykjavík, 19. október.
Tvær s. 1. helgar hefur Þor-
geir Þorgeirsson kvikmynda-
tökumaður unnið að kvikmynd-
un á sýningu Grímu á sjón-
leiknum Reiknivélinni eftir
Erling E. Halldórsson, sem
frumsýndur var í vor undir
stjóm höfundar og sýndur verð
ur á ný innan skamms.
Þorgeir sagði Tímanum í
dag, að myndin væri hugsuð
sem heimildarkvikmynd, ein af
fjórum, er hann ynni að um
þessar mundir. Kvaðst hann
lengi hafa haft áhuga á að gera
heimildarkvikmynd um ís-
lenzka leiksýningu og sýningin
á Reiknivélinni hafi verið þeim
mun girnilegri og að því leyti
sérstæð, að þar værí um frum-
verk höfundar að ræða, sem
hann setti sjálfur á svið. Yrði
því myndin vonandi talin ekki
ómerk heimild, er tímar liðu.
f samráði við höfundinn voru
valin nokkur atriði úr leiksýn
ingunni og yrði lengd kvik-
myndarinnar 10—15 mínútur.
Aðspurður um hinar kvik-
myndimar, sem Þorgeír á nú
í gerð, sagði hann, að þær
fjölluðu ein um Grænland, önn
ur um síldarverksmiðju og sú
þriðja urn notkun gúmbjörgun
arbáta, kennslumynd gerð fyr-
ir Skipaskoðun ríkisins.
J
0TTAST ÞEIR FANGELSI
ÞÁ HfíM ER KOMIÐ?
MB-Reykjavík, 19. október.
Hvorki gengur né rekur í máli
rússnesku skipstjóranna á Seyðis-
firði, því að þeir neita að mæta
fyrir rétti og hafa bannað mönn-
um sínum að bera þar vitni. Sak-
sóknari ríkisins hefur fyrirskipað
SKIPT UM HITAVEITU-
MÆLA í HEILLI BLOKK
KJ-Reykjavík, 19. október.
Fjölskyldan á fyrstu hæð til
hægri að Meistaravöllum 19
vaknaði við heldur vondan
draum á föstudagsmorguninn,
er hitaveitumælir hafði sprung
ið í eldhúsinu, og sjóðheitt
vatnið flóði um alla íbúðina.
íbúðir þessar, sem eru alveg
nýjar af nálinni, keypti borgar
sjóður og leigði síðan fólki, er
bjó í lélegu húsnæði. Fjöl-
skyldan, sem býr í íbúðinni,
þar sem mælirinn sprakk, flutti
inn fyrir tveimur mánuðum,
og fannst því að vonum að hlut
irnir ættu að vera í lagi í nýrri
íbúð. Sams konar mælar eru í
öllu húsinu, og var í dag unn-
ið að því að fjarlægja þá úr
íbúðunum, og setja rörbúta í
staðinn.
Húsmóðirin á heimílinu fór
fram klukkan fimm aðfaranótt
laugardagsins til að ná í mjólk
handa tveggja ára syni sínum,
og varð þá vör við að vatn
flæddi úr eldhúsinu og fram
um alla stofu. Vatnsuppsprett-
an var auðfundin, því að út úr
skáp undir eldhúsvaskinum
flóði sjóðheitt vatnið, og þar
hafði hitaveítumælirinn sprung
ið. Undinn var bráður bugur
að því að skrúfa fyrir heita-
vatnsinntakið í húsið, og síðan
tekið til óspilltra málanna við
að ausa og vinda upp vatnið.
Framh á 15 síðt
Myndirnar tvær voru teknar I
gær, og á annarri er einn af
mælunum áSur en hann var fjar
lægður, og á hinni mælislaus
leiðsla.
bæjarfógetanum að halda málinu
áfram á venjulegan hátt, en sam-
komulag mun vera um að bíða
átekta í málinu, unz ambassador
Sovétríkjanna hér fær nánari fyr-
irmæli yfirmanna sinna í Moskvu.
Eins og frá var sagt í blaðinu
á sunnudaginn neita rússnesku
skipstjóramir að mæta fyrir rétti
á þeirri forsendu, að skip þeirra
séu eign ríkisins og njóti þeir því
svokallaðra ex-territoral réttinda.
Á þetta vilja íslenzk yfirvöld ekki
fallast og hefur saksóknari fyrír-
skipað að dómur skuli ganga í
málinu samkvæmt venju.
Þar eð rússneska sendiráðið hef
ur skorizt í málið hefur verið
reynt að liðka málið eftir dipló-
matískum leiðum. Rússneski am-
bassadorinn var í gær kallaður fyr
ir utanríkisráðuneytíð og hélt
hann þar stíft fram þeirri skoðun,
að rússnesku skipstjórarnir þyrftu
ekki að mæta hér fyrir rétti. Fór
hann þó fram á að mega ráðgast
við yfirmenn sína í Moskvu og
ákvað dómsmálaráðuneytið því að
bíða átekta í málinu, unz ambassa-
dorinn léti frá sér heyra að nýju.
Síðdegis í dag hafði hann ekki
tílkynnt neina niðurstöðu.
Rússnesku skipin liggja bundin
utan á varðskipinu á Seyðisfirði
og verður ekki sleppt úr höfn,
fyrr en dómur hefur gengið.
Rússnesku skipstjórarnir hafa
virzt mjög æstir út af þessu máli
og velta menn því fyrir sér, hvort
þeir óttist móttökurnar heima,
samanber fréttina um pólska skip-
stjórann, sem birt er á öðrum
stað á þessari síðu.
Skipstjóri
Wizloks er
í fangelsi
MB-Reykjavík, 19. október.
Eins og menn rekur minni til
strandaði pólski togarinn Wizlok
á Krossandi í vor. Skipstjóri tog
arans var mjög áhyggjufullur eft-
ir strandið og lét það í ljós við
íslendinga, að hann ætti von á
hinu versta, er út kæmi. Lét hann
orð falla um, að það bezta, sem
hann gæti búizt við, væri fangelsi.
Nú fyrir nokkru hefur borizt hing
veður gott. Er heildaraflinn nú | að til lands bréf frá einum yfir-
orðinn nær milljón málum meiri j manna skipsins, sem skýrir svo
en í fyrra, en þó er enn ekki búið ; frá, að skipstjórinn sitji í fangelsi.
að salta eins mikið og gert var á , Virðast Pólverjar því taka á því
vertíðinni í fyrrasumar. af fullri hörku, ef skipstjórnar-
Samkvæmt skýrslu Fiskífélags mönnum verður á alvarleg skyssa
íslands, sem blaðinu barst í dag,; í starfi. Þess má þó geta, að skip-
var heildaraflinn síðustu viku ' stjóri var ekki sjálfur við stýrið,
Framh. á 15 síðu er atburðurinn varð.
MILU0N MALUM
MEIRA Á LAND
NÚ EN í FYRRA
MB-Reykjavík, 19. október.
Mjög góð síldveiði var
austan síðustu viku, enda
fyrir
veiði-
i
r
r