Tíminn - 13.11.1964, Blaðsíða 12
230. tbl
SIGLUFJARDAR.
FLUG AUGL YST
MB-Reykjavík, 12. nóvember.
f hádegisútvarpinu í dag var
lesin tilkynning frá Vestanflugi
um vikulegar flugferðir til Siglu-
fjarðar. Hyggst Vestanflug láta
flugvél sína fljúga þangað á hverj
um föstudegi, þegar veður leyfir.
Blaðið átti í dag tal við Guð-
björn Charlesson, flugmann Vest-
anflugs, um þessar ferðir. Hann
kvað þá hafa farið til Siglufjarðar
tvo síðastliðna föstudaga, en ekki
auglýst ferðir sínar fyrr, því að
Stofnfundur F.U.F.
Stofnfundur félags ungra Fram
sóknarmanna í Mosfells-, Kjalar-
nes- og Kjósahreppi verður í dag
13. nóvember að Hlégarði
og hefst kl. 20,30. Jón Skaftason,
alþingismaður og Örlygur Hálf-
dánarson mæta á fundinum. —
Undirbúningsnefnd.
Fundur í Framherja
Fundur verður haldinn í Fram-
herja, félagi launþega, sunnu-
daginn 15. nóv.' í Tjarnargötu 25
og hefst kl. 2 e.h. Dagskrá: Rætt
um verkalýðsmálin í dag — Sýnd-
ar verða skuggamyndir frá Nor-
egi. Félagar fijölmennið. Stjórn
in.
þeir hefðu ekki haft fast aðsetur
til afgreiðslu í Reykjavík, fyrr en
nú að þeir hafa fengíð húsnæði í
gamla flugturninum.
Áætlun er ekki leyfð á Siglu-
fjörð, svo að þarna verður um
tilraun að ræða, að sögn Guðbjarn-
ar, en hann kvað völlinn á Siglu-
firði vera nú eins góðan og hann
gæti verið og hafa verið í ágætu
lagi í sumar. Flugvél Vestanflugs
er sem kunnugt er tveggja hreyfla
Piper Apache vél, sem er fjög-
urra manna. Vélin hefur verið
staðsett í Reykjavík að undan-
förnu, þar sem ekkert flugskýli er
tSl á Vestfjörðum.
Þessi mynd var tekin á Miklubrautinni, en kafiinn á milll Háaleitisbrautar og Grensásvegar er sá siðasti
sem malbikaður verður j sumar. Fremst á myndinni er „eldvagn" sem notaður er til að þurrka undirlagið
undir malbíkið. í baksýn eru svo útlagningarvélar borgarinnar.
(Tímamynd K.J.)
Hafnarfjörður
Framsóknarfélag Hafnarfjarðar
heldur aðalfund að Norðurbraut
19 laugardaginn 14. nóvember kl.
17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosnir fulltrúar á kjördæmis-
þing.
3. Jón Pálmason, bæjarfulltrúi,
ræðir um bæjarmálin.
4. Önnur mál.
Jón Skaftason, alþingismaður,
mætir á fundinum.
Stjórnin.
Helmingi meira mal
bikað nú en í fyrra
HASKOLAMENNTADIR KENN-
ARAR STOFNSETJA FÉLAG
KJ-Reykjavík, 12. nóv.
Ánægjulegt og þarft átak hefur
verið gert í gatnagerðarmálum
j höfuðborgarinnar í stunar, bæði
! iivað viðvíkur malbikun gatna og
Iiellulagningu og steypun gang
j stétta.
í vor gerði borgarverkfræðing-
ur áætlun um malbikun gatna í
Reykjavík á sumrinu, og auk
þeirra gatna sem þar var getið og
sagt var frá í blaðinu á sínum
tíma, voru hluti Laugarnesvegar,
Otrateigur, Hrísatiegur og Eiðs-
grandi malbikaðar utan áætlunar
innar. Ingi Magnússon yfirverk-
fræðingur hjá borginni tjáðí blað-
inu einnig í dag að alls hefðu 145
þús fermetrar akbrauta verið
EJ-Reykjavík, 12. nóvember.
Háskólamenntaðir kennarar hafa
stofnað sitt eigið félag, þar sem
þeim þótti ekki nægilegt tillit tek
ið til menntunar kennara í Lands
sambandi framhaldsskólakennara,
sem þeir voru í áður. Telja þeir
réttmætt, að háskólamenntaðir
kennarar, sem lokið hafi prófí, fái
hærri laun en kennarar án sér-
menntunar, og munu vinna að því
I framtíðinni.
Stjóm félagsins, sem stofnað
var s. 1. sunnudag, kallaði blaða-
menn á sinn fund í dag og skýrði
þeim frá stofnun félagsins. Sögðu
þeir, að hugmyndin um, að há-
skólamenntaðir kennarar stofnuðu
eigið félag vegna sameigínlegra
áhuga- og hagsmuaamála, hefði
verið lengi á döfinni, en megin-
orsök félagsstofnunarinnar væri
þó sú stefnubreyting, sem gerð var
á síðasta þingi L.S.F.K., en þar
voru gerðar samþykktir, sem fela
í sér að lítt skuU tekið tillit til
menntunar við ákvörðun launa, og
jafnframt sú yfirlýsing formanns
LSFK nýlega, að „menn skuli
hljóta sömu laun fyrir sömu
vinnu“. Sögðu stjórnarmennirnir,
að samkvæmt þessu ætti að setja
hlið við hlið réttindalausa menn
og kennara með fyllstu tilskilda
menntun, sem er 4—6 ára háskóla
nám. Yrðu því ævitekjur þeirra,
sem afla sér þeirrar framhalds-
menntunar, sem nauðsynleg er til
starfsins og lög krefjast, lægri en
hinna, sem minni menntun hafa.
Þeir sögðu, að verkefni félags-
ins væru tvíþætt. í fyrsta lagi
verði lögum um réttindi og mennt-
un kennara breytt, kröfum um
menntun verði auknar og einnig
Framhald á bls. 23
Ólafur Friðriksson |
látinn
Ólafur Friðriksson rithöfundur
og fyrrum ritstjóri Alþýðublaðsins
lézt í Reykjavík í nótt. Ólafur var
fæddur 16. ág. 1886 á Eskifirði
sonur Friðriks Möllers póstaf-
greiðslumanns og síðar póstmeist-
ara á Akureyri og konu hans,
Ragnheiðar Jónsdóttur. Gagnfræða
prófi lauk Ólafur 1903 og var í
Kaupmannahöfn frá 1906 við nám
og ritstörf. Ólafur var forgöngu-
maður um stofnun Alþýðuflokks-
íns og Alþýðusambandsins og sat
tvisvar sinnum í stjórn þess. Rit-
stjóri Alþýðublaðsins var Ólafur
1919—22 og ritaði fjölda greina
í blöð og tímarit og fékkst einn-
ig við skáldsagnagerð.
Stjórn Félags háskólamenntaðra kennara, f. v.: Gunnar Finnbogason, Guðmundur Hansen, Adolf Guðmunds-
son, Jón Böðvarsson, formaður, Gestur Magnússon, Ingólfur A. Þorkelsson og Flosi Sigurbjörnsson.
lagðar malbiki, en það samsvarar
21 kílómeter sjö metra breiðrar
akbrautar. Er það 100% aukning
á malbikunarframkvæmdum borg-
arinnar miðað við fyrra ár. f sum-
ar voru hellulagðir eða steyptir
.12.7 km. af gangstéttum eða um
34 þúsund fermetrar er það 93%
aukning frá því í fyrra.
Nýr háttur var á hafður vlð
gatnagerðarframkvæmdir í sumar,
er fólst í því að nú eru akbrautir
malbikaðar fyrst og síðan eru
yztu brúnir malbiksins sagaðar af
þar sem gangstéttarbrúnir eru
steyptar með sérstakri vél.
íbúar höfuðborgarinnar voru
orðnir heldur langeygir sum-
Framhald á bls. 23.
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykiavíkur
Gústaf Sigvaldason
einróma endurkosinn
KJ—Reykjavík 12. nóv.
Fjölmenur aðalfundur var hald
inn í Framsóknarfélagi Reykjavík
ur í gærkveldi, og var Gústaf Sig-
valdason einróma endurkjörinn
formaður félagsins.
Hjörtur Hjartar var kjörinn
fundarstjóri á fundinum og Sig-
urður Björnsson fundarritari. í
upphafi fundarins lágu fyrir inn-
tökubeiðnir frá 90 nýjum félög-
um og voru þeir allir samþykktir
í félagið. Gústaf Sigvaldason for-
maður félagsins flutti skýrslu
stjórnar um starfsemina á liðnu
starfsári, og bar hún með sér að
félagsstarfið hefur verið öflugt og
vel heppnað, mannfagnaðir og
fundir félagsins vel sóttir. Björn
Guðmundsson gjaldgeri félagsins
flutti þessu næst skýrslu um fjár
hag félagsins, og er hann góður.
Að loknum skýrslum formanns og
gjaldkera var gengið til kosninga
stjórnar og endurskoðenda. Gústaf
Sigvaldason var endurkjörinn for-
maður og með honum í stjórn
eru; Jón S. Pétursson Kristinn
Finnbogason, Hannes Pálsson,
Gunnar Steindórsson, Sverrir Jóns
son og Björn Guðmundsson. Stjórn
in mun síðar skipa með sér verk
um á fyrsta fundi. Varastjóxp
skipa þessir menn: Hjálmar Tóm-
asson, Einar Eysteinsson, Þórður
Hjaltason og Björn Stefánsson.
Endurskoðendur voru endurkjörn
ir þeir Sigurður Jóhannsson og
Ólafur Kristjánsson.
Einnig voru kjörnir 33 fulltrúar
í Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík og 17 til vara.
Alþingismenn Framsóknarflokks-
ins fyrir Reykjavík þeir Þórarinn
Þórarinsson og Einar Ágústsson
fluttu ræður á: fundinum, og auk
þeirra tóku fjölmargir aðrir til
máls.
Gústaf Sigvaldason