Tíminn - 14.11.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 14.11.1964, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 14. nóvember 1964 TÍMINN 9 — Þú ert búinn að fara nokkrar ferðirnar út í Surtsey? — Ætli ég sé ekki búinn að fara út að eyjunni með ein- kverjum hætti 60—70 sinnum, eða að meðaltali fjórða eða fimmta hvern dag. Það er allt annað að komast þangað nú en var í byrjun þessa árs. Það var ekki sérlega árennilegt þegar við fórum þangað út í febrúar til að komast þar í land, lentum í sjónum og myndavélin varð viðskila við mig svo ég hef ekki séð þann góða grip síðan, það an af síður skotthúfuna. í sum- ar hefur fjöldi fólks farið út í eyna, langflestir þó útlending ar og þeir hinir einu, sem dval izt hafa þar langdvölum. Fleiri fslendingar hefðu þó farið, ef betri samgöngur hefðu verið út í Surtsey td. ef helikopter hefði gengið þangað, það er nú sann arlega kominn tími til að fs- lendingar eignist slíkt farar- tæki. Oftast hef ég notið varð- skipanna til að komast út að ey. í vetur gekk þangað v. b. Haraldur úr Vestmannaeyjum og var orðinn vanur þessum ferðum, en svo var hann seldur á uppboði í sumar. Svo byrjaði annar bátur að ganga úr Eyj- um, Sæfinnur, sem Ólafur í Suður-Garði hefur verið með seinna í sumar. En það borgar sig bara ekki fyrir fiskibáta að standa í þessu. Það er líka erfitt að leggja þarna að iandi, ef eitthvað er að veðri eða brim, þetta er það langt úti í hafi. — Hafa ekki útlend blöð og tímarit sótt mikið til þín um Surtseyjarfræðslu? — Jú, það er nú t.d. að koma út í alþjóðaeldfjallatímariti, sem UNESCO gefur út í Nap- oli á Ítalíu, ritgerð eftir okk- ur Guðmund Sigvaldason og Þorleif Einarsson, um fyrstu þrjá mánuði gossins. Svo hef ég skrifað grein um Surtsey fyrir bandaríska landfræðitíma ritið National Geographic Maga zine. Það er nú það helzta. En má það annars um gosið segja, á þessu stigi, að það er meira að komast í bili úr hönd um okkar jarðfræðinga og í hendurnar á eðlisfræðingunum, mælingar á hita, leiðni. titr- ingi á eynni o.s.frv. er það, sem nú er helzt haft með hönd um í rannsóknum kringum Surtsey. Nú gera þangað tíð- astar ferðir eðlisfræðiprófess- orarnir Þorbjörn Sigurgeirsson og Trausti Einarsson, efnafræð- ingarnir Guðmundur Sigvalda son og Gunnlaugur Elísson. — Og hvað líður áformum bandarísku vísindamannanna við Duke-háskólann um að fylgjast með landnámi lífsins á Surtsey? — Þeir hafa víst alltaí sam- band við Rannsóknarráð og það veit Steingrímur Her- mannsson betur um Þeir sýndu mikinn áhuga á sam- vinnu um þetta, sem hingað komu, en það er ekki hiaupið að þessu, fyrst er að bíða og sjá, hvort eyjan verði varan- leg, því ekki þýðir að stofna til verulegra rannsóknaáætlana fyrr en líklegt þykir að eyjan standi a. m. k. í nokkra áratugi. En þeir hafa tjáð sig reiðubúna ti 1 að leggja fram nokkurt té til rannsókna á jarðfræði og lífi á eynn; og sjávarbotninum kringum hana á næstu árum og hafa sam- vinnu við okkur, og er víst væntanlegui maður að vestan á næstunni til skrafs og ráða — Er Surtsey orðin varan- leg? — Vonir stóðu fyrst til þess, þegar hraungos hófst um há- degi 4. apríl, og síðan hafa þær vonir styrkzt. En því er ekki að neita, að alltaf getur eitt- hvað komið fyrir með svona ey, hún getur sigið verulega eftir gosið, og sjórinn gæti hugsanlega brotizt inn í gíginn aftur, þótt líkur fyrir því fari minnkandi, því að hraunið er að leggjast meira að aðalvind- áttarmegin. En ef sjórinn kæm- ist inn í gíginn, yrði aftur sprengigos, sem gæti tætt eyna sundur að einhverju leyti. Þó hef ég ekki trú á því, eyjan er líka orðin það mikið land, og yfirborð hraunsins komið í 120 metra hæð, en gamla eyjan, er hæst rúmlega 170 metrar, eins og ég sagði áðan. Hraunpyttur inn, sem bullar og sýður í, er h.u.b. 130 metrar i þvermál. Stundum er hægt að komast á barminn, stundum ekki, allt eftir þvi, hvernig slettist úr honum. — Hafa verið teknar margar merkilegar kvikmyndir af Surtseyjargosinu? — Þeir eru orðnir æði marg ir, sem þar hafa brugðið kvik myndavél á loft, en fátt um heildarmyndir af þróun goss- ins, nema kvikmynd Ósvalds Knudsens, þegar hún er öll komin saman. Hann hefur verið iðnastur við kolann, hefur fylgt okkur eftir á öllum ferðum, og mynd hans verður ótvírætt langmerkasta og heillegasta heimildarkvikmyndin um þetta fágæta gos. Sumir Vestmanna eyingar og Ævar í Geisla hafa sótt allfast að taka þar myndir Kvikmyndafélagið Geysir tók þar ljómandi fallegar myndir. sem er ágætur kvikmyndakafli svo langt sem hann nær, en það þarf gott úthald til að eltast við þetta til langframa. En, sem sagt, eiga margir fallegar myndir í fórum sínum frá Surtsey, því fleira fólk hefur séð þetta gos í návigi en nokk- urt annað gos á íslandi. Eg hef fengið margar fallegar myndir í hendur í sambandi við bók- ina um Surtsey, sem ég hef verið að setja saman fyrir Al- menna bókafélagið og kemur út á næstunni. Þar birtast lit myndir eftir fjölda Ijósmynd- ara leikra sem lærðra Nú hef ég tafið dr. Sigurð meira en góðu hófi gegndi. Hann átti sem sé ýmislegt eftir ógert áður en hann legði af stað til Japans og fleiri Asíu- landa daginn eftir mæta á stjórnarfundum í Náttúiuvernd arráðinu, Sænsk-íslenza félag- inu o. fl., lesa prófarkir af Surtseyjarbókinni og fleiri rit- um. Þegar þetta birtist, er hann áreiðanlega kominn til Japan og ekki ómögulegt að hann sé að klifra upp á gígbarminn á Fuji-no-yama sem hann telur, á samt Snæfellsjökli, meðal feg urstu eldfjalla heims, og nú er hann í fyrsta sinn að sækja þetta helga fjall heim. Eg spyr hann loks, hvort hann háfi séð svo um að Surtsey héldi sé' í skefjum á meðan hann er burtu. — Eg vona, að ekkert sér -itakt gerist fyrr en ég kem aftur, því ég vil ekki fyrir nokkurn mun missa af því, ef eitthvað merkilegt skeður í Surtsey. G.B. Þróun Surtseyjar. — Efsto mynd- in var tekin 25. nóvemOor 1963. Miðmyndin var tekln 4. febrúar 1964 og neðsta myndin — tröll- karlinn — var tekin 17. apríl.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.