Tíminn - 14.11.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.11.1964, Blaðsíða 16
Laugardagur 14. nóvember 1964 231. tbl. 48. árg. SPORTVER HEFUR FRASILEIBSEU KARLMANNAFATA: KÓRÓNU-FÖT / NÆSTU VIKU EJ-Reykjavík, 13. nóvember. f næstu viku kemur á marka'ð- inn ný tegund karlmannafata, Kórónu-föt. Það er Sportver h.f., Kom frnmlpiðir hesKÍ föt. oe Lioflir fyrirtækið í því skyni sett upp nýja karlmannafataverksmiðju, sem hefur það markmið að fram- leiða föt sambærileg við erlenda framleiðslu. Blaðamönnum var boðið að skoða þessa nýju verksmíðju í dag, en hún tók fyrst til starfa í sept- ember s. 1. Vélarnar, sem eru frá Pfaff-verksmiðjunum í Þýzka- landi og Union Special í Banda- ríkjunum, eru allar nýjar og mjög fullkomnar. Þá eru einnig nýjar pressuvélar frá IBIS Hofman- verksmiðjunum í Bretlandi. Sér- stakur sérfræðingur frá Pfaff- verksmiðjunum aðstoðaði við skipulagningu framleiðslunnar í verksmíðjunni, en í henni vinna um 30 stúlkur. Full framleiðslu- afköst verksmiðjunnar eru um 15—20 karlmannaföt á dag. Sportver hefur um fimm ára skeið framleitt ýmiss konar íþróttabúninga og aðrar sportvör- ur, og er þetta nýr þáttur í fram leiðslu fyrirtækisins. Karlmanna- fötin eru sniðin með hliðsjón af sænsk-amérískum sniðum og á þessum tíma ársíns verða aðal- lega framleidd dökkleit föt. Öll fataefni eru flutt inn frá Bret- landi. Myndin sýnir hluta af vinnusaí Sportvers. (Tímamynd GE) Framkvæmdastjóri verksmiðj- unnar, sem staðsett er á 3 hæð á Skúlagötu 51, er Þorvarður Árna- son, en stjórnendur hennar eru tveir klæðskerameistarar, Bjöm Guðmundsson og Guðgeir Þórar- insson. Björn hefur unnið við fataframleiðslu um þrettán ára skeið, fyrst hjá Gefjun og síðan hjá Föt h.f., og sníður hann föt- in. Guðgeir, sem unnið hefur um árabil við klæðagerð, stjórnar framleiðslunni. Karlmannaföt verksmiðjunnar eru framleidd og seld undir merk- inu Kóróna, og eru þau væntan- leg á markaðinn í næstu viku. Fundur í Framherja Fundur verður haldinn í Fram- herja, félagi launþega, sunnu- daginn 15. nóv. í Tjarnargötu 25 og hefst kl. 2 e.h. Dagskrá: Rætt um verkalýðsmálin í dag — Sýnd- ar verða skuggamyndir frá Nor- egi. Félagar fjölmennið. Stjórn in. Hafnarfjörður Framsóknarfélag Hafnarfjarðar heldur aðalfund að Norðurbraut 19 í dag 14. nóvember kl. 17,00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosnir fulltrúar á kjördæmis- þíng 3. Jón Pálmason, bæjarfulltrúi, ræðir um bæjarmálin. 4. Önnur mál. Jón Skaftason, alþingismaður, mætir á fundinum. — Stjómin. NTB-Moskva, 13. nóvember. Kínverski forsætisráðherrann Chou En-Lai flaug heimleiðis frá Moskvu í kvöld að loknum viðræð um við sovézka leiðtoga um stefnu skrárágreining Sovétríkjanna og Kína. í greinargerð, sem gefin var út þremur tímum áður en kín- Fann arnarhræ KBG Stykkish., 12. nvó. Á miðv.- dag fann oóndinn að Breiða- bólstað á Skógarströnd Daníel Njálsson hræ af erni skammt fyrir framan svonefnt Kláfell sem er stutt frá bænum. Daníel telur eftir stærð beinanna að dæma að hér hafi verið um að ræða ungan fugl sennil, unga frá því í vor, , enda munu arnarhjón hafa komið upp tveim ungum í þessum hreppi í sumar. verska sendinefndin hélt heimleið is, segir, að viðræðumar hafi far- ið fram í opinskáu og félagslegu andrúmslofti, en þannig taka Rúss ar venjulega til orða, þegar ein- hver ágreiningsefni hafa verið á milli samningsaðila. Sagt var um viðræður þær, sem sovézku leiðtogarnir , áttu við sendinefndir Póllands og Ungverja lands, að þær hefðu verið vinsam legar og hreinskilnislegar. Sam- kvæmt AP-fréttastofunni urðu Kínverjar og Rússar sammála um að fyrirhuguðum alþjóðafundi hinna 26 kommúnistaflokka yrði frestað, en hann átti upprunalega að vera 15. desember. Fréttastof- an hermir eínnig, að samkomu- lag hafi orðið um nýjar viðræð- ur milli helztu leiðtoga Sovét- ríkjanna og Kína í byrjun næsta árs. Greinargerð sú, sem í dag var gefin út í Moskvu um viðræðum VistheimHi fyrir af vegaieiddar stúlkur EJ-Reykjavík, 13. nóv. Nú mun vera í undirbúningi Framsóknarkonur Félag Framsóknarkvenna held- ur fund í Tjarnargötu 26, miðviku- daginn 18. nóvember klukkan 8,30, Fundarefni: Guðríður Jónsdóttir og Rannveig Þorsteinsdóttir segja frá þingi húsmæðrasambands Norðurlanda í Bodö. Sagt verður frá húsmæðraorlofi. Félagsmál. — Stiómin. stofnun vistheimilis og skóla fyrir afvegaleiddar stúlkur, en það er Hjálpræðisherinn, sem hyggst koma á fót þessu heimili. í því tilefni hefur herinn fest kaup á húsinu að Melabraut 10 á Sel- tjarnarnesi í þessum tilgangi. Búizt er við, að þaraa verði rúm fyrir 10 til 15 stúlkur, og yrði þetta eins og fyrr segir ráð- gert að hafa þetta bæði heimili og skóla. Málið er enn á algeru byrjunarstigi, og ef úr verður kemur fyrst til framkvæmda á næsta vori. ar, segir ekkert um hinn fyrir- hugaða fund kommúnlstaflokk- anna og nýjar samningaviðræður. Samkvæmt greinargerðinni tók öll hin sjö manna sendinefnd Kín verja þátt í viðræðunum. Þeir, sem tóku þátt í viðræðunum af hálfu Sovétríkjanna, voru Leonid Bresnév, aðalritari, Alexej Kosy- gin, forsætisráðherra, Anastas Mikojan, forseti, Níkolaj Pod- gornij, Jurij Andropov, Boris Ponomarev og Gromyko, utanrík- isráðherra. Mikhail Suslov var ekki sagður hafa verið meðal þátt- takenda. Ekki er minnzt á það í greinargerðinni, hvað margir fund ir hafi verið haldnir. Fréttastofan Nýja Kína skýrir frá því í dag, að viðræður hafi farið fram milli sovézkra og kín- verskra í Moskvu. Gefin voru upp nöfn þeirra, er tóku þátt i við- ræðunum, en ekki minnzt á það um hvað hafi verið rætt. Brott- för kínversku sendinefndarinnar frá Moskvu var í dag frestað um fjóra tíma og er ekki vítað, hvort það var vegna veðurs eða frekari Framhald á 15. síðu. Skagaljörður Aðalfundur Framsóknarfélags Skagfirðínga verður haldinn á Sauðárkróki laugardaginn 21. nóv. og hefst kl. 2 e. h. Á fundinum mæta alþingismennirnir Björn Pálsson og Ólafur Jóhannesson og Jón Kjartansson, forstjóri. Um kvöldið verður skemmtisamkoma á vegum Félags ungra Framsókn- armanna i Skagafirði, sem hefst kl. 8,30. Þar flytur ræðu Steingrím- ur Hermannsson, framkvæmda- stjóri. Surtseyjarflug Fl í tilefni afmælisins FB-Reykjavík. 13. nóv. Á morgun verður Surtsey eins árs, en f tilefni af afmæl- inu efnir Flugfélag íslands til Surtseyjarflugferða, og hefur félagið í því sambandi gefið út sögu Surtseyjargossins fjölrit- aða og er áætlað að hver flug- farþegi í Surtseyjarflugi fái eitt eintak ókeypis. Höfundur ritsins er Þorleifur Einarsson jarðfræðingur. Á fyrstu dögum gossins flugu margir'út að gosstöðvun- um og litu náttúruhamfarirnar úr lofti, og flestir ef ekki allír farþegar, Flugfélagsins í milli- landaflugi síðan Surtsey varð til hafa litið hana augum, og að sjálfsögðu hafa þeir, sem til Eyja hafa flogið, séð eyna. Flugferðum til Surtseyjar verður nú hagað þannig, að flogið verður frá Reykjavík um það leyti dags, að bírtu tekur að bregða og verður eyj an og gosið skoðað í rökkri. Það er tilkomumikil sjón að sjá glóandi liraunið streyma úr gýgnum á Surtsey, yfir eldra hraun og steypast fram af brún inni í hafið, en hvítir gufu- bólstrar þyrlast upp. Fargjöldum í Surtseyjarflugi verður mjög stillt í hóf og kostar farmiðinn 500 krónur, en skólanemendum verður veitt ur sérstakur afsláttur, og kosta farmiðar fyrir þá aðeins 450 krónur. Fyrsta ferðin verður farin á sjálfan afmælisdaginn, laugardaginn 14. nóv. kl 15,30 Surtsey á sinum fyrstu dögum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.