Tíminn - 15.11.1964, Side 2

Tíminn - 15.11.1964, Side 2
TÍMINN SUNNUDAGUR J5. nóvember 1964 Laugardagur, 14. nóvember. NTB-Tokio. Bandaríski kjarnorkukafbáturinn yfirgaf -japönsku hafnarborgina, Sase- bo í dag eftír tveggja daga heimsókn. Koma kjarnorku- bátsins til landsins kost- aði miklar óeirðir yfir allt landið í þessa tvo daga. Sosia- listar og kommúnistar stóðu fyrir óeirðunum og héldu því fram, að þetta væri fyrsta skrefíð í þá átt, að innleiða kjamorkuvopn í Japan. Nýjar óeirðir höfðu verið skipulagð- ar í Sasebo í dag, en aðeins þúsund manns voru viðstaddir brottför bátsins. NTB-Peking. Fréttastofan Nýja Kína skýrir frá því í dag, að Shou En-lai forsætisráð- herra hafi snemma í dag kom- ið aftur til Pekíng að loknum viðræðum við hina nýju vald- hafa í Moskvu. Formaður kín- verslfa kommúnistaflokksins, Mao Tse-Tung, forseti landsins og aðrir háttsettir embættis- menn tóku á móti forsetan- um ásamt sendiherra Sovét- ríkjanna í Kína. NTB-Kaupmannahöfn. For- maður danska íhaldsflokksins, Pol Möller, sagði í Danmörku í dag, að hín smærri lönd Evrópu i^rftu sem fyrst að haíöp méð sér ráðstefnu og ákveða afstöðu sína gagnvart hinum sameiginlegu marköð- um, sem eru að myndast inn- an Efnahagsbandalagsins. Nefnir Möller eftirfarandi lönd í þessu sambandi: ísland, Finnland, Danmörk, Noreg, Svíþjóð og Austurríki. Sagðist Möller mundi leggja fram til- lögu um ráðstefnuna á lands- fundi íhaldsflokksins á næst- unni. NTB-Bonn. I. nóvember sl. skaut bandarískur hermaður á sovézkan herbíl, sem ók inn á .umráðasvæði bandaríska hers- ins við Núrnberg í Bayem. Farþegar bílsins voru síðan hafðir í haldi í fleiri klukku- tíma. Bandaríski herinn hefur mótmælt því framferði við sovézka herinn í Þýzkalandi, að farið sé ínn á yfirráðasvæði hans. NTB-Lubeck. A.-þýzkur fall- byssubátur skaut í gær fleiri skotum rétt fram hjá v.-þýzku flutningaskipi eftir upplýsing- um v.-þýzku hafgæzlunnar. Skipstjóri flutningaskipsins kallaði óðar á hjálp, er hann sá fallbyssubátinn stefna á skipið og þegar tvö önnui skip komu á vettvang,sneri a.-þýzki fallbyssubáturinn við yfir á a. þýzkt umráðasvæði. Geta ekki heimsótt afmælisbarnið MB-Reykjavík, 14. nóvember. Vísindamenn ætluðu að ganga á land í Surtsey í dag í tilefni eins árs afmælis gossins. Sjógangur er mikill við eyjuna og biðu vísinda- mennirnir um borð í varðskipi við eyjuna um hádegið án þess að hafa getað heimsótt afmælisbarn- ið. Varðskipið mun bíða við Surt fram í myrkur en koma til Reykja- víkur í nótt. GB-Reykjavík, 14. nóvember. Tvaer myndlistarsýningar, sem staðið hafa yflr hér í borg síðan í fyrrl vlku og vaklð mlkla ánægju sýningagesta, eru myndvefnaðarsýning Ásgerðar Búadóttur í Bogasalnum og málverkasýnlng Vllhjálms Bergssonar i Listamannaskálanum. Sumlr fara aftur og aftur að skoða þær. En nú lýkur báðum þessum sýningum á sunnudagskvöld, og hvorug verður framlengd. Meðfylgjandi mynd var tekin á dögunum á sýningu Ásgerðar í Bogasalnm. Sjötugur á morgun: GunnlaugurA. Jóhannesson Bakka Gunnlaugur Auðunn Jóhannes- son, bóndi á Bakka í Víðidal, verð ur sjötugur á morgun, 16 nóvem- ber. Hann fæddist á Auðunnar- stöðum í Víðidal, sonur hjónanna Ingibjargar Eysteinsdóttur og Jó- hannesar Guðmundssonar, og ólst þar upp með mörgum systkinum. Haustið 1911 fór hann til náms í Gagnfræðaskólann á Akureyri, og útskrifaðist þaðan vorið 1914 eftir þriggja vetra nám. Næsta haust settist hann í 4. bekk menntaskólans í Reykjavík, en fékk lömunarveiki þá um vetur- inn og,varð ,að. hverfa frá námi. Vorið 1921 kvæntist Gunnlaug- ur myndarlegri dugnaðarkonu, Önnu Teitsdóttur frá Víðidals- tungu. Á næsta ári byrjuðu þau búskap á Bakka í Víðidal, og hafa búið þar síðan. Þau eignuð- ust 9 börn. Árið 1925 misstu þau dreng á 1. ári, en hin 8 börnin komust til fullorðinsára og eru á lífi, 4 dætur og 4 synir. Öll eru þau að heiman farin, að und- anskildum yngsta syninum Ragn- ari, sem er búfræðingur frá Hvanneyri. Annar sonur þeirra hjóna, Egill dýralæknir, er nú heima í sínu ættarhéraði, nýlega kominn frá námi í Þýzkalandi. Gunnlaugur Auðunn hefur ætíð boríð merki lömunarveikinnar, sem hann fékk fyrir 50 árum. En þó að hann sé mikið haltur, hefur hann unnið öll venjuleg störf sveitabóndans, og gengið að þeim með dugnaði og þrautseigju. Þeg- ar þau hjónin komu að Bakka var þar lítið tún og lélegar byggingar, en þau hafa gert þar verulegar Sjötug í dag: Olína Guðmundsdóttir jarðabætur. Og nú er Ragnar son- ur þeirra að byggja þar íbúðar- hús. Gunnlaugur Auðunn hefur komið mjög við sögu félagsmála í sveit sinni og héraði. Meðal annars hefur hann lengi verið for- maður búnaðarfélags Þorkelshóls- hrepps, og um fjölda ára hefur hann verið einn af deildarstjórum í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og átt sæti á fulltrúafundum þess. Má af þessu marka, að hann nýt- ur trausts hjá sveitungum sínum, enda vinnur hann af áhuga og trú mennsku að þeim störfum, sem honum eru falin á hendur. — Hann er söngmaður og hefur ver- ið góður þátttakandi i karlakór, sem starfað hefur í sýslunni. Ég sendí Gunnlaugi og fjöl- skyldu hans beztu óskir í tilefni af sjötugsafmælinu, og þakkir fyr- ir liðin ár. Sk.G. MINNING Jón Árnason, bóndi Norður-Hvammi Keflavík Frú Ólína Guðmundsdóttir, Hafnargötu 52 í Keflavík er 70 ára í dag. Hún er fædd í Höfnum í Gullbringusýslu, og voru for- eldrar hennar Guðmundur Jóns- son, og Kristín Brynjólfsdóttir, sem þar bjuggu Þau fluttust síð- an með dóttur sína unga austur á Eyrabakka, og ólst Ólína þar upp, 3 albræður átti Ólína, Sigurjón, Kristin og Stefán, og eru þeir allir látnir. Óiína giftist ung norður í Húna- vatnssýslu, Stefáni Björnssyni frá Gunnsteinsstöðum í Laxárdal. Missti hún mann sinn eftir stutta sambúð, árið 1921. Eignuðust þau einn son, Stefán verzlunarmann i Keflavík. Síðar giftist hún hinum lands- þekkta manni, Danival Danivals- syni, kaupmanni í Keflavík. Hófu þau bú sitt í Keflavík um 1930. Danival var ekkjumaður, og tók Ólina að sér uppeldi Guðmundar sonar hans, og Nönnu dóttur hans að nokkru. Með Danival eignaðist hún einn son, Sturlaug Kristin, bifreiðastjóra í Keflavík. Þau hjón settu fljótlega eftir komuna til Keflavíkur upp verzlun í húsi sínu, og sínnti Ólína verzlunar- störfum með manni sinum, auk húsmóðurstarfanna. Ólína hefur alla tíð verið hlé- dræg kona, og hneigð til að láta lítið á sér bera. Hún er dul og Hér lágu þín spor um lífsins leið nú lokið er jarðlífs göngu. Hér lifa þín blóm á mannlífs meið sem myndir af starfi löngu. Hvort vegur var beinn og gata greið eða grýttur, í erfiði ströngu. fáskiptin um annarra hagi, en góð ur vinur vina sinna. Munu þeir margir minnast hennar með hlýj- um hug í dag. Eftir lát síðari manns síns, hefur hún dvalið ým- íst hjá Kristni syni sínum eða haldið heimili með eldri syni sín- um, Stefáni. Þegar Ólína lítur yfir ævi sína á þessum sjötugasta afmælisdegi sínum, þá blasa við henni skin og skuggar liðinnar ævi, eins og oftast vill verða um flesta menn og konur. Margar glaðar stundir hefur hún lifað með ástvinum sín- um, og ýmsa hefur hún glatt með nærveru sinni og hjálpsemi. En á þessum tímamótum getur hún fagnað því að hafa jafnan gert skyldu sína í hvívetna, hún hef- ur j kyrrþey innt sín störf af hendi á nokkuð annariku heimili af þeirri dyggð sem eínkennt hef- ur margar góðar alþýðukonur á íslandi. VG. . Við þekkjum ei upphaf né orsakir þær þá ábyrgð er lífið oss gefur, Frá vöggu til grafar sú verrid var þér kær frá villu er anda vorn hefur. Þann lifandi kraft er í ljósinu grær þann lífsmátt er alla vefur Það vald er oss setti til vistar hér og vaxtar í dagsins önnum, því eins og við sáum, uppsker hver þann ávöxt um eilífð könnum. Við gleðjumst og hryggjumst, en guð einn sér hvern gróður í dyggðum sönnum. Og þegar svo lokið er lífsins ferð og landsýn að nýju við sjáum, og framtíðar landið svo fagurt sérð og fagnandi heim við náum Við lofum þig drottinn, þá ljós- anna inergð. er oss lýsir að bústöðum háum. B.E. (Ljóð þetta átti að birtast í gær, en sökum þrengsla í blaðiau varð það að bíða þar til í dag).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.