Tíminn - 20.11.1964, Page 3
FÖSTUDAGUR 20. nóvemfoer 1964
3
TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Undanfarnir mánuðir hafa
verið viðburðaríkir fyrir Önnu-
Maríu Danaprinsessu, núver-
andi Grikklandsdrottningu.
Þegar hún hafði lokið skóla-
göngu, hófst hún handa um að
velja brúðargjafir og innrétta
tilvonandi heimili sitt i Grikk-
landi, láta sauma á sig brúðar-
kjólinn, skreppa í nokkrar
heimsóknir til Grikklands og
taba svo á móti Konstantín,
þegar hann kom til Danmerk-
ur að sækja hana. Þá tók brúð-
kaupið við, en þar var allt
helzta fyrírfólk licimsins sam-
an komið, síðan fór hún ásamt
manni sínum í brúðkaupið, þá
í opinbert ferðalag um Grikk-
land, og núna siðast eru þau
hjónin í nokkurra daga heim-
sókn í London. Þangað komu
þau 15. þ.m., og er myndin
tekin af Önnu Maríu, þar sem
hún stígur út úr leigubíl, sem
ók hemni að CLaridges-hóteli,
en þar dveljast þau þá fimm
daga, sem þau eru í London.
Ekki cr annað að sjá en drottn-
ingin sé hraustleg og líti vel
út, en nýlega var gert opfci-
bert, að hún ætti von á barni
í júní næstkomandi.
Greta Garbo er nú í heim-
sókrn í Hollywood, en hún neit-
ar því harðlega, að heimsókn-
in standi í sambandi við það,
að hún sé að snúa aftur til
kvikmyndanna. Gefur Greta
þessa skynsamlegu skýringu á
því, að hún v'ill ekki leika fram
ar í kvikmyndum; „Ég ætla
ekki framar að standa fyrir
framan kvikmyndavél, því ég
vil að áhorfendur muni eftir
mér, eins o>g ég var í minni
síðustu kvikmynd.“
Það er að verða vaijdlifað í
New York. Konurnar í Crown
Heights-héraðunum í Brook-
lyn, geta helzt ekki látið sjá
sig á götu nema tvær og tvær
saman, og þær verða að hafa
með sér stafi og lögregluflaut-
ur, þegar þær fara út að verzla.
Ástæðan er sú, að undanfarið
hefur verið ráðizt á sex ein-
samlar konur, sem hafa verið
úti að verzla. Glæpamennimir
ræna töskum þeirra og svívirða
konurnar á eftir. Þrátt fyrir
aukinn lögregluvörð, hafa árás-
armeranirnir ekki náðst.
Firú Joan Kennedy, mágko<na
Kennedys heitins forseta, er
þarna stödd í Frankfurt í
Þýzkaland!i í tilcfni af minin-
ingarsýningu, sem þar var kom-
ið upp til heiðurs hinum látna
forscta. Myndin af Joan er tek-
in þar sem hún er vfð hinn
fræga ruggustól forsetans, en
hann var, sem kunnugt er, veill
í baki og féll bezt að sátja í
ruggustól, ef hann þurfti að
sitja langan tíma. Sýningin,
sem var opnuð hinn 15. þessa
máinaðar, er haldin í Frank-
furt.
[ ^ v ^ r .j|r, |
rS
f
Mikfð hefur verið sagt og
skrifað um það, hver Colum-
bus var í raum og veru, og nú
hefur liinn 72 ára gamli faðir
Andres Sonchez Serrano í
Madrid, sett fram nýjustu hug-
myndina. Honum hefur tekizt,
eftir margra ára vinnu, að Iesa
úr dulmáli, sem skráð er hin-
an á armband, sem Columbus
bar. Þar segir, að í raun og
veru hafi Columbus veirið
munkur að nafni J.C. Donado,
fæddur í spánska þorpinu
Santa Maria de Val de Olliva
sem er skammt firá landamær
um Portúgals. Á armbamdinu
stendur: „Hinn mikli latid-
könnuður flúði úr munkaregl-
unni, þegar hann varð ástfang-
inn. Hann sagði yfirvöldunum
í Feneyjum á ítaliu, að því
mfður hefði hann týnt öllum
pappírum sínum.“ Þcssar nið-
urstöður eru nú f frekari rann-
sókn hjá háskólanum í Madrid.
Það er sjálfsagt óþarfi að
kynna þessa fjóra herramenn
fyrir Iesendum, en ef ske
kynni, að einhver þekkti þá
ekki, þá heita þeir, talið frá
vinstri: Quentin Hogg, Sir Al-
ec Douglas-Home, Nikita Krust-
joff og Lyndon B. Johnson
Ef ykkur sýnist eitthvað bil
vera á milli Johnsons forseta
og hinna þriggja, þá stafar það
af því, að Johnson er sá eini,
sem enn heldur embætti sínu,
hfciir þrír urðu allir nýlega að
hrökklast frá völdum. Hogg og
Home misstu embætti sín, þeg-
ar brezka íhaldsstjórnin tapaði
síðustu kosningum í Bretlandi,
og allir vita hvernig fór fyrir
Krustjoff. Annars eru þetta
höggmyndir, gerðar af Stefan
Baran, og eru þær á sýningu
félags brjostmynda myndhöggv
ara í London. Er þetta 12.
sýningin, sem félaglð heldur.
Á VÍÐAVANGI
„Refslungnir st[órn-
málamenn"
Sveinn Guðmundsson, bóndi í
Miðhúsum »í Reykhólasveit rit
ar athyglisverða grein i Morg-
unblaðið í gær, og hefst hún
. á þessa leið:
„Á íslandi er stéttarbarátta
í algleymingi. Hver stétt fyrir
sig reynir að ota fram sinum
tota, án þess að taka hið
minnsta tillit til þess hvernig
hinum stéttunum reiðir af eða
að taka nokkurt tillit til hags-
muna þjóðarbúsins. Þó hygg
ég að fúnasti þáttur í þessari
baráttu sé, hvernig refslungn-
um stjórnmálamönnum hefur
tekizt að koma saman eins og
reiðum hönum forráðamönnum
vinnandi stétta, verkamönnum
og bændum og á meðan þeir
bítast um eyrinn þá hirða þeir
krónuna.
Eg hef áður minnzt á það
í þessum þáttum, að farið sé
með bændur eins og skyni-
snauðan búpening. Það er
margsannað mál að stór hluti
bændastéttarinnar getur ekki
lifað menningarlífi á þeim tekj
um sem landbúnaðurinn gefur
af sér. Þeir geta ekki stækk
að bú sín vegna skorts á fjár
magni, en auðvitað má segja
og er sagt að þetta fólk geti
flutt á mölina. Jú, satt er það
en þá refsar þjóðfélagið þessu
fólki með því að gera það
eignalaust. Því að það getur
oft og tíðum ekki selt eignir
sinar og verður oft að byrja
á nýjan leik og að jafnaði eftir
langa og erfiða starfsemi með
tvær hendur tómar."
Olíuflutningarnir
Morgunblaðið ræðir í gær
samninga þá, sem gerðir hafa
verið við Rússa um olíukaup
og olíuflutninga landsins, er
hafa það í för með sér. að
eina stóra olíuskipið, sem ís-
lendingar eiga, getur ekki ann
azt þessa flutninga. Morgun-
blaðið segir svo um þetta:
„Morgunblaðið hefur ekki
upplýsingar um það, hve
miklu munar á þeim flutnings
gjöldum, sem Hamrafell þarf
að fá og gjöldum þeim, sem
Rússar bjóða, en augljóst er
þó að þar er um verulegan
verðmismun að ræða. En blað
ið getur tekið undir með for-
stjóra Skipadeildarinnar, að
ætíð verður að gjalda varhuga
við „annarlegum verzlunarhátt-
um.“
Við höfum um langt skeið
átt mikil viðskipti við komm
únistaríkin, i sumum tilfell-
um hafa þau verið okkur hag-
stæð, en i öðrum óhagstæð,
eins og t.d. sást á miklum verð
hækkunum á vörum frá þess-
um ríkjurn þegar unnt var
að kaupa þær einnig frá öðr-
um löndum. Þar sem allt efna
hagskerfið er undir stjórn
ríkisvaldsins er hægt að haga
viðskiptum eftir því sem vind-
urinn blæs hverju sinni, og
vissulega er illt til þess að vita
ef þessar aðgerðir Rússa verða
til þess að selja verður úr
Iandi eina stóra olíuflutninga-
skip íslendinga, þótt það sé
nú nokkuð farið að eldast og
muni ekki sérlega hagkvæmt
í rekstri."
Vill ekki taka ábyrgð
Morgunblaðið ræðir hógvær
lega um þessi annarlegu við-
skipti og vill augsýnilega ekki
taka fulla ábyrgð á þessum
Framhald á bls. 13.