Tíminn - 20.11.1964, Side 6
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 1964
Þjóðlagakvöld
Ameríska bókasafniö í Eeykja-
vík hefur upp á fleira að bjóða
en bækur einar. Það hefur um
800 hljómplötur til umráða og
lánar þær út, en sú starfsemi er
orðin harla vinsæl. Nú hefur safn
ið byrjað að leika þjóðlög af plöt-
pm í húsakynnum sínum að
kvöldi til. Fyrsta þjóðlagakvöldið
var haldið 15. október s.l og
annað í þessum mánuði. Næsta
þjóðlagakvöld verður á þr'ðjudag
inn, 24. þ.m. og hefst kl. 20.30 en
meiningin er, að þessar samkom
ur verði haldnar annað hvert
fimmtudagskvöld, þegar fram líða
Stundir.
Blaðið átti nýlega tal við Krist-
ínu H. Pétursdóttur, aðaJbóka-
vörð, sem stendur fyrir þessari
kynningu, og David Niekerson,
starfsmann bandaríska sendiráðs-
ins, sem mun leika á gítar og
syngja með Troels Bentsen n.k.
þriðjudagskvöld.. Þeir munu einn-
ig kynná lög, sem leikin verða
af plötum. Troels Bentsen leikur
sem kunnugt er í Savannatríóinu,
en Mr Nickerson er heldur eng-
inn viðvaningur, þar sem gítarinn
er annars vegar. Iiann er ættað-
ur frá Hawaii, þar sem menn
kunna öðrum fremur að með-
höndla það hlióðfæri. Gítarinn
65 ára í dag:
Jóhannes J. Albertz
Vestmannaeyjum
í dag (hinn 19. nóv.) verður
Jóhannos J. Albertz, fyrrvertmdi
löregiuþjónp í Vestmannaeyjum
65 ára. Hann er fæddur að Syðri-
Kárastöðum á Vatnsnesi í Vestur-
Húnavatnssýsiu þann 19.11 1899.
Foreldrar hans vorn Jóhanne'- Al-
hert Stefánsson oóndi þai og
kona hans Pagmey Sigurgeirs-
dóttir.
Jóhapnes naut ekki langrai vist
ar í foreldrahúsum. Þegar hann
var fimm ára gamall barði strgin
að dyrum. Klzti bróðinnn Ejörn
Líndal, lézt af slysförum. Sá miss
ir vgrð móður þeirra ofraun og
misstj hún heilsuna og átti síðan
skammt óJifað. Þá um haustið fór
Jóhannes að Melstað í Miðfirði til
séra Þoryaldar Bjarnasonai og
Sigriðar konu hans, og tóitu þau
hann i fpstur. Dvöl Jóhanresar
þar varð þó skemmri en fyrir-
hugað var, því á öðrum vetri
hans þar fórst séra Þorvaldur i
Hnausakvísl. Vorið eftir fés Jó-
hannes að Útibleiksstöðum ok þar
ólst hann upp. Þá þjó bai rosk
inn bóndi Jóhannes' Jóhannesson
ásamt konu sinni, og börnum. eft
ir að hún féll frá Var þar íeglu-
og myndarheimili, jörðin vej set-
in, búið gagnsamt, auk þess sem
nokkur hlunnindi íylgdu jörðinni
bæði útræði og selveiði.
Þegar Jóhannes komst á legg,
varð hann snemma mikill um herð
arnar, ýturvaxinn og vel að sér
ger um marga hluti, lagvirkur og
mikilyirkur, enda karlmenni að
burðum. Farkennsla var í sveit-
inni og naut Jóhannes þar tilsagn
ar í þrjá vetur, og varð það hans
skólanám. Samt náði hann að
skrifa fagra rithönd, auk þess sem
hann öðlaðist þekkingu af lestri
I góðra bóka en það hefur löngum
! verið hans tómstundaiðja.
1923 kvæntist Jóhannes Kristínu
Sigmundsdóttur frá Hamraendum í
Breiðuvík. Þegar hér var komið
I sögu hafði Jóhannes sótt sjó á
vetrarvertíðum, frá Suðmnesjum
og Vestmannaeyjum, og árið 1925
fluttu þau hjónin til Vestmanna-
eyja og hefur Jóhannes dvalif hér
síðan. Komu þau hér upp ágætu
heimili, sem var rómað fyrii reglu
semi og myndarskap, enda sam-
hent og lögðu fram krafta sína
Þeim varð átta barna auðiö en
tveir elztu synir þeirra, fædchr á
Snæfellsnesi létust kornungii
Hjónaband þeirra Jóhannesa: og
Kristínar varð ekki langt. pví 193é
andaðist hún eftir erfiða sjúk-
dómslegu. Missir hinnar ágætu
konu varð Jóhannesi að vonum
þungur í skauti, ekki sízt þaj sem
skapgerð hans er bæði viðkvæm
hans er fimmtíu ára gamall ættar
gripur. Mr. Nickerson hefur starf
að hér í sendiráðinu frá því í
september í fyrra. Þjóðlög eru
áhugamál hans sérstakt, en um
þá tegund tónlistar sagði hann
m.a.:
— Þjóðlög eiga rætur sínar
meðal alþýðu, þau berast frá kyn-
slóð til kynslóðar á vörum fólks-
ins. Ef fólkið fagnar ekki strax
tilkomu nýs lags og tekur að
syngja það, er það dauðadæmt og
hverfur áður en varir. Úr því
verður aldrei þjóðlag, nema það
finni hljómgrunn meðal alþýðu
manna.
Þegar talað er um þjóðlög er
ekki átt við lagasmíðar, sem gefn
ar eru út fullgerðar handa öllum j
almenningi. Þjóðlög eru ekkú
samin mönnum til lífsframfæris j
eða sem atvinna einstaklinga. Ef I
menn heyra nokkru sinni talað
um fyrirtæki, sem framleiðir þjóð
lög, þá er eitthvað bogið við slíka
fullyrðingu og henni að 'íkindum
haldið fram til að gera gys að j
mönnum. MikilVægasti þáttur þjóð
laganna er sá, að þau eru aldrei
fullgerð. Þau eru sífelldum breyt
ingum háð, taka sífelldum stakka
skiptum í meðförum fólksins.
Þjóðlög eru ekki sköpuð skyndi-
lega, verða ekki íullgerð í einni
svipan eins og rnargvísleg laga-
smíð af öðru tagi. í hvert skipti
sem þau eru flutt, eru þau sköp
uð á ný.
Kristín Pétursdóttir sagði, að
um þrjátíu manns hefðu komið
hvoru sinni á fyrri þjóðlagakvöld-
in, en það voru boðsgestir.
— Við viljum gjarnan fá fólk,
sem hefur virkilegan áhuga fyrir
þessu; sagði Kristín, og vonumst
til að finna nægilega marga
David Nickerson sagði, a? sér
virtust íslendingar söngelskir og
hafði við orð, að gaman væri að
stofna hér þjóðlagasöngflokk
Næsta þjóðlagakvöld nefnist
„ballads and spirituals“, en þá i
verða sungin söguljóð og sálmar. i
Mest af þeim lögum, sem flutt j
hafa verið, eru amerísk eða í
amerískum búningi, en meiningin
er að gefa víðtækt yfirlit um þjóð
lög.
Efri-Dálksstaðir
Sjötugur:
Benedikt Baldvinsson
bóndi, Efri-Dálksstöðum
I gær átti Benedikt Baldvinsson
bóndi á Efri-Dálksstöðum á Sval-
barðsströnd í Suður-Þingeyjar-
sýslu, sjötugsafmæli (f. 19. nóv.
1894.)
Benedikt er einn af hinurn
bjartsýnu og athafnasömu bænd-
um þessarar aldar. Hann hefii um
skapað bújörð sína í góðbýli og
verið sveit sinni einnig í félags-
málum einn af hennar beztu son-
um. Gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum í sveitinni og löngum ver
ið fulltrúi hennar á ýmsum mál-
þingum. Hann er greindur maður
og bókhneigður. Góðviljaður létt-
ur í tali og gamansamur og gott
með honum að vera.
Benedikt er giftur ágætri konu,
Friðriku Kristjánsdóttur Eiga
þau þrjú börn: Kristján, Guðlaugu
og Inku Sigríði Öll eru börnin gift.
Dæturnar eru Durtfluttar en
Kristján býr á Efri-Dálksstöðum í
félagi við foreldra sína.
Sj.v
Friðrika og Benedikt
Benedikt var, þegar fundum
okkar bar saman fyrir fáura dög
um, enn sem ungur væri, léttur í
spori, glaður og reyfur og áhuga-
samur um framtíðarmálefni lands
og lýðs.
Eg óska honum og vandamönn
um hans til hamingju með afrek
hans frá liðnum árum, — og bið
að hann megi lengi lifa.
Karl Kristjánsson.
og dul. Samt tókst honum aö balda
sínu karlmannlega jafnvægi og
byggði heimilið upp að ný.ju með
aðstoð seinni konu sinnar Mörtu
Pétursdóttur frá Stóru-HiJdisey.
Þau giftu sig árið (946. Þau eign-
uðust tvö börn. sem nú eru upp-
komin
Árið 1927 garðist Jóhannes lög-
regluþjónn í Vestmannaeyiun. og
gegndi því starfi i hartnæi 3ö
ár Fyrstu 16 árin var hann e næt
urvalct, og var vinnutíminn 10
til 14 stundir á sólarhring
Löggæzla í Vestmannaeyjum,
stærsta útgerðarbæ landsins yar
enginn barnaleikur sérstaklega
fyrr á árum þegar aigengt var
að menn litu á störf lögreglunnar,
sem óþarfa og jafnvel fjandsam-
lega afskiptasemi. Kom sér því vel
að Jóhannes hafði marga þá kosti
til að bera, sem prýða einn lög-
reglumann. Hann var prúðut í
framgöngu, ljúfur í viðmóti, en
fastur fyrir og ef á reyndi einstakt
hraustmenni í átökum. Það fói því
að líkum, að hann varð vinsæll og
farsæll í vandasömu starfi, og það
að leysa af hendi 36 ára lögreglu
starf, án slysa eða óhappa er lán
og ef til vill meiri gæfa en marg
an grunar í fljótu bragði
Sé Jóhannes beðinn að segja
frá einhverju, sem á dagana hef-
ur drifið, segir hann aðeins, að
hann hafi kynnzt góðu fólk; og
hvarvetna mætt velvilja og biður
fyrir þakklæti til allra. Og sé
minnzt á voveiflega hluti, sem
hann hafi komið að segir hann að
þeir hafi aldrei komið alvarlega
við sig. Jóhannes er fámáll um
það eins og annað, enda er það
ein af dyggðum góðs lögieglu-
þjóns.
En þó ég, sem þessar Jínui rita,
fái ekki úr miklum frásögnura að
moða hjá Jóhannesi, heyri ég að
hann neitar ekki tveimur litlum
drengjum, sem biðja afa ura að
segja sér sögu í kvöld. Þeir eiga
skjól hjá afa og ömmu eim og
raunar öll hin barnabörnin 25 að
tölu.
Að lokum sendi ég afmælisbarn
inu mínar beztu þakkir fyrir
fjórtán ára samstarf og veit að
félagar mínir í lögreglunni í Vest
mannaeýjum taka undir þær
Sigurgeir Kristjánsson.
m
<?efírre
Einangrunargler
Kramleitt einungb úr
úrvals ?leri — 5 ára
ábyrgð
Pantið tímanJega.
Korkiðian h. f.
Skúlagötn 57 Simt 23201)
ÞAKKARÁVÖRP
Iljartanlegt þakklæti færi ég öllum þeim, er sýndu
mér vinsemd á áttatíu ára afmæli mínu 13. þ. m.,
með skeytum, blómum og öðrum gjöfum.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Kristjánsdóttir, Stykkishólmi.
i