Tíminn - 20.11.1964, Blaðsíða 16
Föstudagur 20- nóvember 1964
236- tbl. 48. árg.
KÓREUBALLETT KOMINN
í gær kom til landsins 46
manna flokkur listdansara úr
Kóreuballettinum, sem ætlar
að sýna hér á vegum Þjó«5-
leikhússins. Flokkurinn kom
með Vilhjálmi Stefánssyn-i. flug
vél Loftleiða, en fyrsta svning
flokksins verður á laugardags
kvöld, og alls verða sýningar
listafólksins þrjár, á laugardag,
sunnudag og mánudag. Sala
aðgöngumiða er hafin í Þjóð
Fjölbreytt mið-
næturskemmtun
— TIL ÁGÓÐA FYRIR
■"^S-Reykjavík, 19. nóv.
Á mánudagskvöldið verður haldr
in óvenju fjölbreytt miðnætur-
skemmtun í Háskólabíói. Á
skemmtuninni koma fram þekktir
skemmtikraftar og Ustamenn og
skemmta gestum í um tvo tíma,
en allt, sem inn kemur fyrir
skemmtunina, rennur beint til sjó-
slysasöfnunarinnar á Flateyri. All-
ir, sem eitthvað hafa komið við
sögu í undirbúningi að skemmtun-
inni og allir, sem skemmta, hafa
gefið vinnu sína, og auk þess hef-
ur verið felldur niður söluskattur
FLATEYRARSÖFNUNINA
og skemmtanaskattur á aðgöngu-
miðum.
Miðnæturskemmtunin hefst kl.
11,15 á mánudagskvöldið, og fram
munu koma Hljómsveit Svavars
Gests ásamt söngvurum hennar.
Leikaramir Róbert Arnfinnsson
og Rúrik Haraldsson munu fara
með gamanþátt. Siglfirðingurinn
Ásmundur Pálsson sýnir töfra-
brögð. Söngkonan Sigrún Jónsdótt
ir, sem nýkomin er heim eftir
langa dvöl í Noregi og Nóva-tríóið
úr Leikhúskjallaranum leika og
syngja, og Ómar Ragnarsson gam
anvísnasöngvari og undirleikari
hans Grétar Ólason koma fram.
Allir kannast við Karlakórinn
Fóstbræður, en hann mun syngja
nokkur lög. Jón B. Gunnlaugsson
eftirherma verður þarna á ferð-
inni í gervi margra þekktra góð-
borgara. Guðmundur Guðjónsson
söngvari tekur lagið með aðstoð
Skúla Halldórssonar tónskálds, og
lestina reka þeir Árni Tryggva-
son leikari og Savanna-tríóið, sem
allir þekkja, og hefur vakið mikla
athygli að undanförnu.
Eíns og fyrr segir rennur allt,
se'm inn kemur fyrir skemmtunina
beint í sjóslysasöfnunina, enda
hafa allir gefið vinnu sina. Starfs-
fólk Háskólablós mun vinna end-
urgjaldslaust og bíóið er einnig
Framhald á 15. síðu
leikhúsinu og er sclt á allar
sýningarnar í einu. Hingað
komu ballettdansararnir frá
Bandaríkjunum, en þar hafa
þeir sýnt að utidanförnu í
60 borgum við mikla hrifningu
Vestur-Skaftfellingar
Aðalfundur Framsóknarfélags-
ins verður haldinn að Hrífunesi
sunnudaginn 29. nóv. n. k. og
hefst kl. 2. Dagskrá: 1. venjuleg
aðalfundarstörf, 2. rætt um stjórn-
málaviðhorfið. Þingmenn flokksins
i kjördæminu mæta á fundinum.
Tapaði 9 tíúsund
krónum
KJ—Reykjavík, 19. nóv
Bláfátækur maður varð fyrir
því óhappi í morgun að tapa níu
þúsund krónum í veski, sem hann
var á leíð með nliður í bæ tU að _________________________
borgia með víxil. Var hann að fara
í strætisvagn mn við Múia, og tei - Reykjaneskjördæmi
ur sig hafa tapað veskinu er harnij ' J ’
fóir upp í vagninn. Nafn manns- Formenn Framsóknarfélaganna
ins mun hafa verið i veskinu, og í Reykjaneskjördæmi eru beðnir
eru þeir sem gætu gefið upp- um að mæta á stjómarfund í kjör
lýsingar um veskið með níuþús- j dæmissambandinu í Tjamargötu i fb_Reykjavík, 19. nóv.
undunum í, be'ðnir að hiafa sam- i 26, klukkan 16 á sunnudag. — |
band við rannsóknarlöigregluna. Formaður. i Mikið vonzkuveður var inn allt
HEYVAGN
ÞAK AF FJÓSI
ÍSLENZKIR HESTAR EKKI
AF ARABISKUM UPPRUNA
GB-Reykjavík, 19. nóvember.
Michael Hesselholt, starfsmað-
ur við lífeðlisfræði og blóðflokk-
unardeild Landbúnaðarháskólans í
Kaupmannahöfn, hefur s. 1. tvö
haust starfað að rannsóknum og
blóðflokkun á hrossum hér á landi,
og sagði hann fréttamönnum nokk
uð frá því í dag.
Michael Hesselholt.
Starf þetta hefur verið innt af
hendi með styrk úr Vísindasjóðn
um danska. Búnaðarfélag íslands
hefur aðstoðað við skipulagningu
starfsins, en Tilraunastöðin á
Keldum hefur léð húsnæðisað-
stöðu til að flokka blóðið og látið
í té ýmsa fyrirgreiðslu.
Tilgangur blóðflokkana þessara
var að staðfesta ættgengi og eig
inleika ísl. hestastofna, hvern-
ig vissir eiginleikar erfast, o? upp
í-una, ef hægt væri. Hagnýti sliks
verks er samskonar og gerist um
slíkar rannsóknir á erfðum
manna, því eiginleikar hesta ganga
vitanlega að erfðum líkt hjá
hrossum eða öðrum dýrum sem
mönnum.
Hesselholt kvaðst hafa ferðazt
um norðanlands, vestan og sunn
an og haft sér til fylgdar Þor-
geir bónda Jónsson í Gufunesi,
sem veitt hefði sér ómetanlega að
stoð, og fyrirgreiðslu hefði hann
fengið ágæta hjá bændum og eig-
endum hrossa víða um land. Blóð
flokkaðir hefðu verið 31 stóðhest-
ur, 555 hryssur og folöld og 1050
einstakir hestar rannsakaðir að
auki. Nauðsynlegt hafi verið að
taka mikinn fjölda hrossa til rann
sókna til að hægt væri að reiða
sig frekar á niðurstöður. Prófuð
voru flest afkvæmi Nökkva, sem
er 27 ára og eign Einars Gislason
ar á Hesti í Borgarfirði. Þar næst
afkvæmi Fengs á Eiríksstöðum í
Svartárdal og Svaðilfara á Lága
felli í Landeyjum.
Niðurstöður þær, sem tengizt
hafa, leiða í ljós, að íslenzxi hest-
urinn á ekki skyldleika að rekja
til arabíska hestsins, eins og hing-
að til hefur verið ætlan manna.
En rannsóknum á blóðsýnishorn
um verður haldið áfram við Land
búnaðarháskólann í Kaupmanna-
höfn í vetur, og telur Hesselholt
mögulegt, að niðurstöður, sem fá-
ist með vorinu, geti staðfest skyld
leika íslenzkra hrossa við önnur
hestakyn í Evrópu. Rannsóknir af
þessu tagi sagði Hesselholt stund
aðar á fáum stöðum í heiminum,
en lífeðlisfræðingar víða um
lönd væntu góðs árangurs af þeim.
Suðurland í gær, eins og má með
al annars sjá af því að vindmæl-
irinn á Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum sprakk, en frá því var
skýrt í blaðinu í dag. f Vestur-
Eyjafjallahreppi var veðrið ekki
sfður óskaplegt. í Miðdal tók upp
stóran og geysiþungan heyvagn
fauk hann á fjós og braut niður
þakið, en kom síðan niður 15—
20 metra handan fjóssins.
Högni Rristófersson bóndi í
Miðdal sagði okkur svo frá þess-
um atburði: Þetta gekk þannig til
að strax í gærmorgun var kom
ið hér mikið óveður, norðaustan
hvassviðri og rigning. Fyrir aust-
an fjósið var heyvagn, velskorð-
aður, en allt í einu tókst hann
á loft, fór yfir þakið á fjósinu,
braut niður þakið og kom að lok
um niður 15—20 metrum vestan
við fjósið.
— Vegghæð fjóssins er um
tveir metrar, og svo er risþak
á því, sem er álika hátt og vegg
irnir. Veðrið var svo mikið hérna,
að við höfum varla þekkt annað
eins. Auðvitað reyndum við að
fara út, en það var stórhættulegt,
þvi járnplöturnar fuku um allt. í
fjósinu voru 9 kýr og þær þurft
um við að flytja yfir í fjárhúsin,
því ekki var hægt að hafa þær
áfram i þaklausu fjósinu. í dag
höfum við svo verið að reyna
að koma þakinu á aftur. Það var
mesta mildi, að kýrnar skyldu
ekki stórslasast, en þær hefðu ef-
laust drepizt, ef vagninn hefði
dottið niður í fjósið í stað þess
að fjúka yfir það.
— Um fjögurleytið f gær fór
svo að hægja aftur. Eg hef ekki
heyrt af skemmdum annars staðar
hér í kring, en þó veit ég að á
næsta bæ missti bóndinn töluvert
af heyi.
Minningar
Önnu Borg
Aðils-Khöfn, 19. nóv.
Gyldendals-bókaforlagið er nú
í þann veginn að senda frá sér
„Minningar Önnu Borg“, að því
er segir í frétt í Politiken i gær.
Poul Reumert, eiginmaður hinnar
látnu leikkonu, hefur safnað bréf-
um og ummælum og gefur bók-
ina út, en minningarnar ritar Inga
Morck blaðamaður og byggjast
þær á samtölum, sem Inga hafðí
átt við hina látnu.