Tíminn - 25.11.1964, Blaðsíða 1
29. þing A.S.Í.
Frá setningu 29. þings A.S.f.
Timamynd KJ.
l:|H :íl|
Einbeittur meirihluti hafnaði
29. þing Alþýðusambands ís-
lands var sett mánudaginn 16.
nóvember í KR-húsinu við Kapla-
skjólsveg og lauk kl. 6.15 að
morgni laugardagsins 21. nóvem-
ber. Skipað var í margar starfs-
nefndir á þinginu, og sendu þær
frá sér álit, sem flest voru sam-
þykkt á þinginu, sum þó með
nokkrum breytingum.
Fyrsta nefndarálitið, sem kom
til umræðu og afgreiðslu, var
álit fræðslunefndar, og var Hrafn
Sveinbjarnarson, Hallormsstað,
framsögumaður, en auk hans voru
í nefndinni Björgúlfur Sigurðs-
son, Tryggvi Emilsson, Karvel
Pálmason, Jón H. Guðmundsson,
Pjetur Stefánsson og Gunnar S.
Guðmundsson. Er þar lögð áherzla
á, að það sé „beinlínis lífakkeri
samtakanna, að ungu fólki lærist
stöðugt að þekkja hlutverk og
tilgang þeirra“, og verði samtök-
in því að efla fræðslustarf sitt til
þess að ná til unga fólksins Tal-
ið er óhjákvæmilegt:
Að ráðinn verði sérstakur
ritstjóri við ,,Vinnuna“ og að tíma
ritið verði fært í nýtízkulegra
horf.
•fc Að samtökin auki fræðslu
um félagsmálalögjöfina.
•fr , Að reynt verði að koma á
fót stuttum námskeiðum í sam-
bandi við orlofsheimili verkalýðs
ins í Ölfusi.
☆ Að gefin verði út sérstök
handbók fyrir launþega, þar sem
í verði öll lög, reglugerðir, dómar
og opinberar samþykktir. er varði
rétt, vernd og öryggi launþega.
☆ Að samtökin greiði veg
fyrir hverskonar vinnuhagræðingu
eins og unnt er.
☆ Að nú sé aðkallandi orðið,
að hefja söfnun sögulegra gagna
um sögu verkalýðssamtakanna á
íslandi.
TRYGGINGAMÁL
Þá var tekið fyrir álit ti-ygginga
og öryggismálanefndar, framsögu
maður Hermann Guðmundsson,
Hafnarfirði, en aðrir í nefndinni
voru Kristján Ág. Eiríksson, Bald
ur Svanlaugsson, Ásbjörn Pálsson.
Jóhanna Egilsdóttir, Pétur Sigurðs
son og Kristján Jóhanns-
son. Álitinu er skipt í þrjá kafla,
Öryggismál sjófarenda. Öryggi á
landi og Tryggingamál. Er þar
gerð grein fyrir þeim kröfum,
sem ASÍ gerir til öryggistækja í
skipum og eftirlit með þeim, um
sýnikennslu í meðferð björgunar-
tækja, að reynt verði að Koma
á fyllri trýggingu varðandi slys
á vinnustöðum og margt fleira.
í kaflanum um trj’ggingamáj er
lögð áherzla á eftirfarandi breyt-
ingar á almannatryggingalögun-
um:
Að örorku- o-g ellilaun verði
hækkuð, og verði skattfrjals
★ Að dánarbætur verði hækk
aðar verulega.
★ Að þeir sem hafa elli- og
örorkulífeyri, fái 25% af launum
til eigin þarfa, ef þeir dvelja á
sjúkrahúsum eða elliheimilum.
★ Greiddur sé lífeyrir með
banni látinnar móður á sama hátt
og nú er með barni látins föð-
ur
★ Barnalíteyrir vegna munað
arlausra barna sé greiddur tvö-l
faldur. í stað heimildar komi skil-
yrðislaus réttur.
★ Ellitryggingum sé breytt í
það horf, að þeir sem þeirra njóta
fái fullan lífeyri.
★ Skylt se að láta rétt til elli-
lífeyris ekki falla niður við sjúkra
húsvist allt upp í 26 vikur á ári,
sbr. 59. grein.
Þá fagnar þingið því, að hreyf-
ing skuli komin á það hagsmuna-
mál verkalýðsins, að stofnaður
verði lífeyrissjóður fyrir alla laun
þega, og treystir því, að hann
komi til framkvæmda sem fyrst.
Síðan er rætt um endurskoð-
un laga um atvinnuleysistrygging
ar og telur þingið, að taka beri
þar tillit til eftirfarandi:
★ Að eftir samfellt atvinnu-
leysi í eina viku séu heimilaðar
bætur. '
ic Að tími sá sem bætur greið
ast árlega, verði eigi skemmri en
7 mánuðir.
★ Að dagpeningar, án óuiaga
séu eigi lægri en 75% af kaupi
verkamanns.
+ Að stefnt verði að ovi að
verkalýðsfélög fái óskorðuð yfir
ráð sjóðsins í sítvar hendur
Einnig ályktaði þrngið, að snú-
ast einhuga til varnar gegn ásókn
andstæðinganna til aukinna valda
yfir sjóðum eða tilraun til skerð
ingar á atvinnuleysistryggingum.
ATVINNUMÁLIN
Þá lagði Verkalýðs og atvinnu
málanefnd fram álit sitt um at-
vinnumál. og var Tryggvi Helga
son framsögumaður en auk hans.
Ivoru í nefndinni Eðvarð Sigurðsl
son, Björn Jónsson, Sturla H. Sæ-
mundsson, Snorri Gunnlaugsson,
Björgvin Jónsson, Björgvin Sig-
hvatsson, Elínbergur Sveinsson,
Jón Sigurðsson, Guðjón Sigurðs-
son og Sverrir Hermannsson. Er
nefndarálitið tvíþætt; fyrst er rætt
um þróunina og ástandið í dag,
en síðan eru tekin fram þau at-
riði, sem þingið telur, að brýnt
sé að hrundið verði i framkvæmd
á næstu tveimur árum. Hljóðar sá
kafli samþykktarinnar þannig:
Þingið telur brýnt, að eftirtöld
um aðgerðum til eflingar atvinnu
lífinu verði hrundið í framkvæmd
á næstu tveimur árum:
•& Endurnýjun fiskiskipaflot-
ans verði haldið áfram bæði með
því að keypt verði stór og vönduð
fiskiskip, sem vel henta til síld-
veiða og þorskveiða. Einnig ' erði
gerðai sérstakar ráðstafanir og
sérstök fyrirgreiðsla til endurnýj
unar minni fiskibáta, sem vel
henta til daglegra róðra með sér-
stöku tilliti til hráefnisöflunar
fyrir fiskvinnslustöðvarnar víðs
vegar i landinu. Gerðar verði nú
þegar ráðstafanir til nýsköpunar
togaraútgerðarinnar Verði þær
framkvæmdir undirbúnar af sér
fróðum mönnum um togaraútgerð.
■ft Keppt verði að því að full
nýta fiskaflann til matvælafram-
leiðslu svo sem kostur er Sér-
staklega verði unnið ötullega að
uppbyggingu .iðnaðarfyrirtækja til
að leggja niður verulegt magn
síldaraflans og sjóða niður Verði
við uppbyggingu bessa iðnaða Atn
. ir sitja í fyrirrúmi þeir staðir,
I þar sem atvinna er ófullnægjandi
Þegar verði hafizt handa, undir
forystu stjórnarvalda, að leita
markaða fyrir framleiðsluna er-
lendis og leitazt við að gera sölu
samninga, heizt til fleiri ára í
senn, ef kostur er.
☆ Komið verði upp skipastól,
er sérstaklega hafi það verkefni
að flytja síldarafla, þegar mikið
veiðist á takmörkuðum svæðum,
frá veiðiskipunum til verksmiðja
og jafnvel söltunarstöðva, sem
vantar síld til vinnslu, en liggja
of fjarri viðkomandi veiðisvæði
fyrir fiskiskipin að sigla til þeirra
með aflann. Verði nú í vetur haf
izt handa um stofnun félags n.eð
þátttöku ríkisins, bæjar- og sveítar
félaga og annarra aðila, er mikilla
hagsmuna eiga að gæta í þessu
efni. Leitazt verði við að kaupa
hæfilega stór og hentug skip til
þessara flutninga.
■& Kappsamlega verði unnið
að því að bæta og koma við hagan
legri aðferðum við fiskvinnsluna.
Sérstaklega verði lögð áherzla á
að koma á betra geymslufyrir-
komulagi á t'iskinum en verið hef
ur, og með því tekið fyrir það, að
mikið af fiskafla stórspillist við
geymslu og flutninga. Þegar nýjar
fiskvinnslustöðvar eru byggðar,
verði þeim undantekningaiaust
valinn staður við hafnarmannvirki
þar sem aflanum er landað.
☆ Fiski- og hafrannsóknir
verði efldar með auknu fjármagni
frá ríkinu. ftannsöknarstarfsemi '
fyrir sjávarútveginn verði sam-
einuð undir eina stiórn — Tækni
stofnun sjávarútvegsins — og að
hafizt verði handa á næsta ári