Alþýðublaðið - 08.05.1954, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 08.05.1954, Blaðsíða 7
Laugárdaginn 8, maí 1951 alþyðublaðið Ræða Braga Framhald af 5. síðu. hverjum fél-agssamtökum hættulegastur. Þess vegna hef ég leitt huga ykkar að innvið- unum. VÍGSMUNURINN Sumir telja. að nú sé óvenju bjart fyrir stafni þjóðar okk- ar. Aldrei hafi aðrir éins mögu leikar blasað við henni og nú á sviði framfara og íækni. Aðrir segja, að það hafi ein- mitt aldrei verið svartara í ál- inn: Verzlunarhalli sívaxandi, atvinnuröskun ógni heilum landshlutum-, þjóðin sé á hraðri leið inn í erlenda efnahagsá- nauð og búin að glata sæmd sinni í hendur erlends her- veldis. Öllu má þessu finna nokk- urn stað. Það gnestur í fleiri en innviðum samtaka ykkar. Það gnestur í innviðum allrar íslenzku jþjóðarinnar, innvuí- um, sem alþýða landsins fær bó bezt treyst og stutt. í dag reynir til hins ítrasta á þjóð- ernislegan styrk. sðlilegt þrek ísienzks hugar. I dag eigum við svo margt að verja, um ieið og við eigum margt að sækja. Fyrir aðeins hálfri öld böfum við í raumnni allt að sækja. Það gerir vígsmuninn. FREISTIN GARNAR Og nú ætla ég' að ljúka þess um orðum- mínum með því að segja ykkur frá nokkru, sem öldruð kona hér í þorpinu, sem þið þekkið öll, Oddný í Krist- nesi, sagði mér fyrir eigi alls löngu sem dæmi um breyttar aðstæður. Svo bar við. er hún var ung- lingur vistráðið hjú á bæ ein- um. í Svarfaðardál, að svonefnt spekulantsskip kom sumar eitt á Dalvík, og flaug sú saga um sveitina, að þar væri mörg góð kaup hægt að gera. Flestir af bæ þeim, sem Oddný var á, fóru dag einn til Dalvíkur þess ara erinda, og var Oddný ein í þeirn hópi, en kaupeyrir hennar voru 5 krónur og fylgdi þeim sú áminning hús- bænda. að eyða þeim nú ekki fyrir óþarfa. Margt bar fyrir aug'un á kaupskipinu, svo sem .marglitir höfuðklútar og :girnileg svuntuefni, „en heim komu krónurnar 5 um kvöld- ið“, lauk Oddný máli sínu. Mundi henni ekki enn meiri ; þörf þeirra til amiars síðar? ;hafði hún hugsað. Þau eru mörg spekulants- . skApin í dag, sem freista ungs hugar með marglitum höfuð- klútum og girnilegum litklæð- um. Það þarf vissulega ein- .harðan Oddnýjarhug til að meta það rétt, hvenær halda skál og hvenær láta skal krón- urnar okkar 5. En mundi þann hug annars staðar fremur að finna en hjá alþýðusiéttunum? Ég held ekki. Þess vegna horfi ég þrátt fyrir allan geig von- . björtum augum yfir dimm gil framtíðarinnar milli bjartra rima. Ég befi þá bjargföstu . trú, að alþýðá þessa lands eigi þann rétta Oddnýjarhug til, sem kenni henni á hættunnar stund að velja og hafna, leiði ha-na- í þann sanhleika, að -ekki sé hagkv.æmt að hafa á- hyggjur af mörgum jörðum, heldur búa vel á einni. Og hverju skiptir hana þá, bótt burgeisinn brosi að hennar hóg væru kröfum. þeim, að blettur hennar verði æ fegri? Ekki neitt. Þá hefir húo tekið vö'ld- in hér í landi. Sér og alþjóð til blessunar. Bréfakassinn Framhald aí 5. síðu-. ú væri næturlælknir þessa. nptt. Hún hringdi 'því til !hans. Hann var við símann og svar- að: skjótt. Konan bað hann gera svo vel að koma og 'búa að meiðslum drengsins. Hann neitaði því. Aftur á móti kvaðst hann skyidu gera að meiðslum snáðans, ef konan kæmi með hgnn. Vegalengdin frá húsi mínu heim til læknis- ins er ca. 10—15 miwitna gang ur. Konan átti þess ekki kost að ná í bifreið. Hún varð .því að fara gangandi með drang- inn út í storminn og kuldann. Seinni part nætur varð hún þegar sárlasin. Hún fór bó-af veikum burðum á fætur um morguninn. Klukkan 11.30 um daginn fór hivn í rúmið aftur G°' Vov Kp -vrjpi^ 40 hita. Konan haíði augijóslega ofkælzt. er hún fór með dreng inn til læknisins. Hún lá svp í þrjár vikur heima. en var þá flutt í Sjúlkrahús Akraness og hefur legið þar siðan. Stúlku var ekki hægt að fá, og ekki fátu börnin verið ein heima. Ég varð því að segja upp skip rúmi og vinna s.iálíur heimjl- isströfin. Ég hefi bví þegar tap að þúsundum króna' og býst iafnvel við að verða að leita á náðir annarra, ef konan verð- ur veik lengi enn, því að efna hagurinn er ekki sterkur. Börn in hafa verið svint móðurlegfi umhyggju allan tímann og kon an hefur þjáðst andlega og lík- amlega vegna þess að væru- kær héraðslæknir, sem tekið hafði að sér næturlæknisstarf neitaði að koma heim til að gera að blæðandi sári á briggja ára barni, en hrekuf bess í stað veiklaða konu út í kulda og storm til að láta búa að sári drengsins og hún of- kælist við það. Að endingu kngar mig til að snyria herra Vilmund Jónsson landlækni. sem hér á?\r fyrf hafði, og hefur vonandi enn, hug til að taka í hornin á hój| lífisseggium og mektárbokk-s um: Hvað þurfa héraðslæknaý v kaunstöðum að gera af sérí svo að hægt. sé að víkja beinj úr embætti? Er framanritað^ ur atburður ekki næg ástæjða? Sé bað ekki le«»o. ée titi?:að nefndur doktor fái framvegis kaim sitt allt af almarnafé. Það tel éð tvímælalaust ódvf- ast o°' sársaukaminnst fyrif bæíarbúa. Með bökk fvrir birtmguna.' Akranesi. 53. apvíl 1954. Hákon .Töx’iimíIssou. Æskulýðsheimilið Framhald af 8. síðu. þennan hátt í sína starfsemi og' var héimilið opið fyrir þær einu sinni í hálfum mántíði. Þessir tímar voru mjög vg| sóttir og. komu allt að 120 og unglingar. Um 1700 manns munu hafa- sótt heimilið frá 5. jan. til 25. apríl. 4 NÁMSKEIÐ í æskulýðsheirhiiinu fpru fram 4 námskeið á vetrinum. Voru það þrjú handavinmmám skeið og eitt í þjóðdönsum. Fóru handavinnunámskeiðin fram í ,.Grænu stofunnf'' á neðstu hæð hússins-, en þýóð- dansarnir í salnum. NámskeMs gjaidi var mjög stillt í hóf, s.vo að sem fiestir gætu sótt náni- skeiðin. AHt efni útvegaði heimilið með heildsöluverði til nemenda. Myndlistarskólinn að Ijúka vetrarstarf- semi sinni. Sérstakt vornámskeið fyrir born. MYNDLISTARSKÓLINN í Reykjavík, Laugavegi 166. er um þessar mundir að ljúka vetrarstarfsemi sinni í öllum deildum og aldursfiokkum. Kennt var í sömu greinum og undanfarin ár, þ. e. a. s. í teiknideild, kennarar Kjartan Guðjónsson og Hiörieifur Sig- urðsson, höggmyndadeild, kenn ari Asmundur Sveinsson. og málaradeild, kennari Hörður Ágústsson, og hefur hann einn ig kennt modelteiknirigu. í sér stökum barnadeiidum hefur ferð ýmis konar lita, bast- vinna, leirmótun og margs kon ar pappírsvinna. Barnadeiidir voru sjö og satrfaði hver deild tvo daea í viku, ails 2 klst. hvorn dag. Kennari barnanna er frk. Valgerður H. Árnadótt- ir. Aðsókn að skólanum var betri en undanfarin ár, og inn rituðust rúmlega 100 manna í fullorðins deildir, en 170 börn voru við nám í barnadeildum. í vetur hefur verið lögð á- herzla á að veita nemendum, jafnfrámt kennslunr.i, almenna fræðslu um myndlist, sem far- ið hefur fram í fyrirlestrum, umræðufundum, kvikmynda- sýningum og fjölmörgum hóp- ferðum nemenda á sýningar einstaklinga og í listasafnið. iSú nýbreytni hefur verið tekin upp að starfrækja sér- stakt vornámskeið fyrir börn og eru um 40 börn við nám í þeirri deild. •Um þessa helgi (þ. e. a. s. laugard. 8. og sunnud. 9.) hef- ur skólinn sýningu í húsakynn um sínum að Laugavegi 166 á verkum nemenda í fullorðins deildum. Þar eru sýndar högg- myndir, teikningar og' mál- verk. Sýningin er aðeins opin i tvo daga kl. 2—22 e. h. Frír aðgangur. íslenzkrar fónlisfar gefið í blaðagrein í Noregi. DR. OLE MÖRK SANDVIK ritar 21. apríl grein í Morgen- bladet í Osló. Tilefni hennar er útgáfa í mörgum bindum, ,,Ny musik i Norden“, sem kemur út á vegum „Nordens publikationsnámd“ undir stjórn E. Bjelle. Yfirlitsgrein um tónlist hvers lands fyllir bókina, en í hana skrifa Frede Sohandorf Petersen (Ðan- ixiönk), Veifcko Helasuvo (Finn Tar.d), Baldur Aaudrésson (ís- iand), dr. Olav Gurvin (Noreg- ®) og Bo Wallner (Svíþjóð). Um framlag' íslands segir dr. Sandvik: „Lýsingjn á tónlist íslands, samin af Baldri And- réssyni, er aðallöga söguleg greinargerð um þróunina frá fornöld fram á vora daga. Við höfum haft tækifæri til að kynnast hér nokkrum íslenzk- um tónskáldum nútímans. Ber þar að nefna Jón Leifs, Pál ís- ólfsson og Hallgrím Helgason. Eftirtektarverðar mótettur hins síðastnefnda haf averið fluttar í ríkisútvarpi Noregs. Á mörg- T AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA verður haldinn að Bifröst í Borgarfirði dagana 30. júní. —2. júlí og hefst miðvikudaginn 30. júní kl. 10 ár- degis. en EKKI laugardaginn 26. júní eins og áður hefur verið auglýst. Dagskrá samkvæmt samþykktum Sambandsins. Ástæðan fyrir breytingu íundartímans er almennar sveitarstjórnarkosningar um land allt 27. júní nk. Reykjavík, 7. maí 1954. STJÓRNIN. AÐALFUNDUR SAMVINNUTRYGGINGA GT. 77' wr«”r T.'•a:- - -,v í íiLiuíIáginn 2. júlí og hefst kl. 9 árdegis, en EKKI mánudaginn 28. júní eins og áður hefur verið auglýst. Dagskrá samkvæmt samþykktum tryggingastofn- unarinnar. Ástæðan fyrir breytingu fundartímans er almennar sveitarstjórnarkosningar um land allt 27. júní nk. • Reykjavík, 7. maí 1954. STJÓRNIN. AÐALFUNDUR LÍFTRYGGINGAFÉLAGSINS ANDVAKA GT, verður haldinn að Bifröst í Borgarfirði föstudaginn 2. júlí og hefst að loknum aðalfundi Samvinnutrygginga. en EKKI mánudaginn 28. júní eins og áður hefur verið auglýst. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Ástæðan fvrir breytingu fundartímans er ahnennar sveitarstjórnarkosningar um land allt 27. júní nk. Reykjavík, 7. maí 1954. ' STJÓRNIN. AÐALFUNDUR Fasteignalánafélags Samvinnumanna verður haldinn að Bifröst í Borgarfirði föstudaginn 2. júlí og hefst að loknum aðalfundi Líftryggingarfélags- ins Andvaka, en EKKI mánudaginn 28. júní eins og áður hefur verið auglýst. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Ástæðan fyrir breytingu fundávtímans er almennar sveitarstjórnarkosningar um land allt 27. júní nk. Reykjavík, 7. maí 1954. STJÓRNIN. AÐALFUNDUR Vinnumálasambands Samvinnufélaganna verður haldinn að Bifröst í Borgarfirði föstudaginn 2. júlí og hefst að loknum aðalfundi Fasteignalánafélags samvinnumanna, en EKKI mánudaginn 28. júní eins og’ áður hefur verið auglýst. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Ástæðan fyrir breytingu fuaidartímans er almennar sveitarstjórnarkosningar um land allt 27. júrú nk. Reykjavík, 7. maí 1954. STJÓRNIN. um sviðum vinnur ísland ó- sleitilega að' eflingu tónlistar- innar. Hið nýreista þjó^le/.- hús hefur skapað skilyrði til að flytja ýmsar óperur, þótt er lendir söngvarar væru fyrst um sinn til aðstoðar. Hljóm- sveitina skipa innlendir kraft- ar, Olav Kielland hefur stjórn að henni nú um skeið. Kórsöng ur þrífst ágætlega á sögueyj- unni, skólar og háskóli láta sig söngmennt rniklu skipta. Skil- yrði fyrir ríkulegri þróun virð- ast því vera fyrir hendi, og' við viljum óska þess, að- tengslin við Noreg megi eftirleiðis verða enn nánari en fram til þessa.“ HANNES A HORNINU. Framhald af 1. síðu. halda lífinu í því, sem ekki stenzt samkeppnina á neinn hátt, en jafnframt vantar fólk við hin lífsnauðsynlegu fram- leiðslustörf. MENN RÆÐA ÞETTA all- •mikið um þessar mundir. Menn sjá bliku á lofti. Sumir spá nýrri gengislækkun og aðr ir telja, að óhjákvæmilegt sé að setja aftur á innflutnings- höft. Það ætti nú að koma í ljós, að hinn ótakmarkaði inn flutningur erlendra vara hafi verið helber gýligjöf fyrir þjóðina. Hannes á horninu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.