Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 3
Í*ÖSTUDAGUR 11. desember 19S4 TÍMINN í SPEGLITIMANS Enn einu sinni liafa unglingarnir í Los Angeles fundið sér það til duíidurs að athuga, hversu margir þeirra geti komizt inn í Volkswagenbifreið í einu. Hér á myuidinni eru þeir 31, 21 stúlka og 10 drengir. Eddie Constanline, Leœmy, hefur átt við harða samkeppni að stríða síðustu árin, ekki sízt James Bond. En hann lætur ekki að sér hæða. Hann hefur stofnað sitt eigið kvikmynda framleiðslufélag og ætlar að framleiða 6—8 kvikmyndir á ári. Sú fyrsta þeirra er nú bom inn á markaðinn, ng er Lewmy þar á hælum stríðsglæpamanns að sjálfsögðu umkringdur fögr um stúlkum. Daut Ezig vann eins og venjulega í grætimetisverzlnn sinni dag einn fyrir nokkvn, peg ar fulltrúi yfirvaldanna kom heimsókn til hans »g íærði hon um afmælisgjöf, en Ezig varð þann dag 100 ára gamali! Af- mælisgjöfin var lausn frá öll- um opinberum gjöldum bæði til sveitarfélags og rikis. Ezig er Júgóslavi. Hollywood hefur sent nýja kvikmynd á markaðmn og það ..íerkasta við hana er að öllum Iíkindum það.að tvær frægar stjörnur tveggja kynslóða koma þar fram, sem sagt Bette Davis og Susan Hayward, en þær leika móður og dóttur í kvik- myndinni, sem heitir „Where Love Has Gone” og er fram- ’.eidd af Paramount. SikOey hefur i fyrsta sinn fengið konu sem ieigubílstiéra. Eiginmaður hennar slasaðist mikið í verksmiðju þeirri, s«m hann vann í, og því varð hún að vinna fyrir heimilinu. Aft ur á móti mun hún aðeins fá að aka með konur. 29. nóvember s.l. fór ung, ljóshærð og ógift frönsk kona niður í helli einn 100 mefcra fyrir neðan yfirborð jarðar og þar mun hún dvelja um nokk urn tíma. Hún gerðist sjálf- boðaliði til þessa verks, sem er þáttur í vísindalegri rann- sókn um áhrif einverunnar á fólk. Konan, sem heitir Josiana Laurres, kölluð Josie, er Ijós móðir við sjúkrahús eitt rétt fyrir utan Nice í Frakklandi. í frítíma sínum málar hún, dansar, fer á hestbak, les — eða þá að hún fer í hellagöng- ur, en þá „íþrótt“ hefur hún stundað í þrjú ár, og m.a. dval ið ein í helli í 10 daga. Hún dvelst nú í umræddmn helli, sem er um 50 km. fyrir ofan Nice. Inni í hellinum hef ur verið komið fyrir tjaldi, sem hún getur dvaliít í. Hún ætl- ar áð eyða tímanum með því að mála. Einnig hefur hún feng ið að hafa segulband hiá sér, en á spólunum eru ýmis upp- áhaldsverk hennar eftir ýmis helztu tónskáld sögunnar. Þarna mun hún dveljast í nokkrar vikur, og hugsanir hennair verða teknar inn á segulband hverju sinni. Vís- indamen'nirnir munu síðan rannsaka upptökurnar nákvæm lega. Sama dag o*g Josie lagði af stað n'íður i hellinn, hóf Antonie Senni, 35 ára, svipaða tilraun í öðrum helli. Hann ætlar sér að setja nýtt met sem „hellabúi“. Núverandi met, sem eru tveir mánuðir, setti Michel Siffre árið 1962, en Senni ætlar sér að dvelja í helli .sínum í fjóra mánuði. Þessa mánuði ætlar hann að nota til tréútskurðar, og tók hann með sér niður í hellinn 100 kg. þungan trjábol. ★ Pu-Yi, sem var keisari í Kína 1918-22 og var skipaður keisari Mansjúríu af hálfu Japan árin 1934—45*, hefur gef ið út endurminningar sínar og kallast þær „Fyrri helmingur lífs míns“ Hann er nú 58 ára gamall. Pu-Yi var handtekin af rússneska hernum árið 1945 en síðan afhentur kínverskum kommúnistum, sat mörg ár < fangelsi, en var síðan gerður að garðyrkjumanni í opinber- um skemmtigarði, þegar liann bafði Iýst yfir stuðningi sínum við stjórn kommúnista. í dag er hann aðstoðarmaður við sagnfræðilega rannsókmarstofn un í Peking. Marlene Dietrich kom nýlega fram á sviði í London í fyrsta sinn á ævinni og var að sjálf- sögðu geysivel tekið og hyllt með blómum í lok söngs síns. Og þegar hún yfirgaf leikhúsið, QueenS íheatre, stöðvaðist öll umferð í 15 mínútur. Og svo kemuir auðvitað ný hárgreiðsla í jólaönnunum. Þessi minnir ónei'anlega dá- •ít'ið á jólatré Mynd-in er tekin í Róm. ★ Hjón nokkur i London, George og Ethel Dabbs, nafa verið gift í 44 ár. Þegar þau giftu sig, áttu þau einn stór- an draum — það var að heim- sækja Nýja Sjáland. Og þau byrjuðu þegar að spara saman fyrir ferðinni, og toksins. þeg- ar þau höfðu næg fjárráð, var hann orðfcnn 70 ára og hún 67! Þau pöntuðu miðnna, en svo kom í Ijós að þau gátu aðeins fengið eins manns klefa á skipi því, sem sigldi til Nýja Sjálands. — Og þá hættu þau við ferð ina. — Við höfum verið saman hvern einasta dag allt hjóna band okkar — sögðu þau — svo að við viXjum ekki skyndi lega ferðast hvor í sinum klefa. Nýr sveitarst jóri E.J.-Reykjavík, 10. desember. Á fundi hreppsnefndar Seltjarn arneshrepps í gær baðst Bjarni Beinteinsson, sveitarstjóri, lausn- ar frá embætti frá og með áramót- um. Á sama fundi var ráðinn nýr sveitarstjóri, Sigurgeir Sigurðs- son, sölumaður hjá Kr. Kristjáns- syni. Hann er hreppsnefndarfull- trúi. ÞURRABÚÐARMENN Framhald ai Ols. i forsætisráðherra, sagði, er hann lagði málið fram, að það værí flutt af lýðræðislegri og þingræð- islegri nauðsyn, svo að sósíalistar ættu fulltrúa í nefndum. Ef þeirri hugsun er haldið til enda, getur komíð að því að enn verði að fjölga verulega í nefndum. Rétt væri og að minna á það, að fyrir tveimur dögum hefði Emil Jóns- son lýst því yfir, að utanríkismála- nefnd þingsins væri óstarfhæf vegna þess að sósíalistár ættu þar sæti. Einnig má ekki gleyma grein þeirri, sem Gylfi Þ. Gíslason skrif- aði um kosningaúrslitin eftir síð- ustu alþingiskosningar, þar sem hann sagði, að örlagaríkasta og gleðilegasta árangur kosninganna væri sá, að*kommúnistar ættu þess ekki kost lengur að fá menn kjörna í 5 manna nefndir. Ólafur sagði það persónulega skoðun sína að fjölgun í þing- nefndunum myndi gera þingstörf- in erfiðarí og þyngri í vöfum og væri ekki til bóta, en- með tilliti til þess, hvernig mál eru vaxin, myndi hann ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Alfreð Gíslason tók þá til máls og mótmælti því að frumvarpið byggðist á samkomulagi, sem gert hefði verið utan þings við Sósíal- istaflokkínn. A. m. k. væri sér með öllu ókunnugt um slíkt sam- komulag og spurði Ólaf hvort hann gæti staðfest þessa fullyrð- ingu. Enn fremur sagði Alfreð, að Sósíalistaflokkurinn ætti engan fulltrúa á þingi, heldur Alþýðu- bandalagið. Ólafur Jóhannesson kvaðst furða sig á þessarí spurningu Al- freðs. Furðulegt væri að hann vissi ekki af þessu samkomulagi stjórnarinnar við Sósíalistaflokk- inn og spurning hans væri upplýs- andi um sambúðina á Alþýðu- bandalagsheimilinu. Gengið hefði verið milli þingflokkanna þegar á fyrsta degi þingsins og skýrt frá því að samkomulag hefði tekizt milli Sósíalistaflokksins og stjórn- arflokkanna um að fjölga í þing- nefndum í 7 og strax í upphafi þings voru leyfð afbrigði frá þing- störfum samkvæmt þessu sam- komulagi. Rétt væri það, að á þingi væri til Alþýðubandalag að nafninu til, en utan þings er $kk- ert Alþýðubandalag til — aðeins Sósíalistaflokkur og samkomulag- ið var gert við Sósíalistaflokkinn. Orðrómur var á kreiki um það nýlega, að Liz Taylor hefði lent ur hún eftirmfcnnilega afsannað og sést hún hér taka í hendina átti að vera dauður. Við hlið hennar er Richard Burton. í bílslysi og látið lífið. Þetta hef á bílstjóra sínum, sem einnig KONA RÆND Framnald ai it> síðu hendinni. Tók ránsmaðurinn á rás eftir Fjölnisveginum. síðan yfir húsagarðana og hvarf upp á Sjafn argötu. Var hægt að rekja slóðina yfir garðana, en hún hvarf síðan í slóðir upp á Sjafnargötu. í töskunni voru um sex púiiind krónur í peningum, bankabók á Landsbankann og fleira verðmæti. Konan lýsii árásarmanninum þannig að hann hafi verið ungur hár vexti og vel vaxinn Var hann klæddur stangaðri nælonúlpu, dökkri, með hettuna yfir höfðinu og í dökkum buxum Þeir sem kynnu að hafa orðið varir við mann á þessum sióðum í morgun sem lýsingin gæti átt við. eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við rannsóknarlög regluna hið allra fyrsta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.