Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 16
mmm Föstudagur 11. desember 1964 253. tbl- VEGAÁÆTLUN KOMIN FYRIR NÆSTU 4 ÁRIN 48. árg. TK—Reykjavík 10. des. | árin 1965—68 var lögð fram á Tillaga til vegaáætlunar fyrir I Alþingi í dag. Er það 45 blaSsíðua tOPAPEYSAN SELD Á UM 1600 KRÓNUR í ICECRAFTS ICELANDIC WAYÍ EINA VIKUÍ FB-Reykjavík, 10. des f tilefni þess, að opnuð var ís- lenzk verzlun í New York ! vik- unni hringdum við vestur mn haf og ræddum stuttlega við forstjóra verzlunarinnar Kristján Friðriks- son í Últíma, og spurðum hann meðal annars um nafngift þá, sem Third Avenue, eða þriðja s*ræti þeirra New York-búa, hlaut í til- efni af opnun hinijar íslerzku verzlunar, en fréttir uöfðu borizt a< því, að gatan hefði verið skýrð Jcelandic Way. Upp úr kafinu lom að nafnið mun ekki rtanda nema í viku, en hafði í upphafi aðeins átt að bera þann <;ira dag, sem búðin var opnuð. — Þetta er nú aðeins auglýsmga atriði fyrir okkur, sagði Kristián- Krlstján Friðriksson. Bandaríkjamðurinn Steifel, sem er forstjóri fyrir auglýsingafyrirtæk- inu Co-operating Marketing Comp any, sem er hluthafi í Icecrafts, kom því til leiðar víð viðkomandi yfirvöld, að gatan yrði nefnd Ice- landic Way. Upphaflega átti nafn ið aðeins að standa á götuskiltun um í einn dag, en samgöngumála stjóri hér í New York leit inn til okkar í dag, og nann sagði, að það væri svo sem aiit í lagi sín vegna, þótt skiltin yrðu uppi í eina viku eða svo. Þetta var gert sem vináttuvottur við ísland og íslendinga, að nefna götuna upp. — Hvenær var búðin opnuð? — Að nafinu til var hún upnuð a laugardaginn, en formlega var það þó ekki gert fyrr en á þriðju dagseftirmiðdag. Þá var hér tjöldi fólks, meðal annars Thor Thors sendiherra. Sjónvarps- og blaða- menn voru hér einnig margir og tekin var fréttamynd til sýningar í sjónvarpinu, og var hún svnd síðar um daginn og tók 3 mínútur. Allir, seim við opnumna voru, luku miklu lofsorði á verzlunina og fyrirkomulagið í 'henni. Ar.nars vorum við tafðir mjög mikið, vegna þess að við fengum húsoæð ið svo seint, einum sex vikurn seinna en ráð hafði verið fyrir gert. Eftir það vorum við mjög fljótir að koma öllu fyrir. Því má skjóta hér inn . að Icecrafts er á horni Icelandic Way (Third Avenue) og 62. srræt is, hún er í nýju verzlunarhusi, og hefur Jón Haraldsson arkiiekt j lopapeysur. StarfsfóJkið í Ice- séð um innréttingu verzlunarinn-! crafvts er sex manns auk Krist- ar að öllu leyti, en innréttingarn ar voru smíðaðar í Húsgagnavcrzl un Hafnarfjarðar. — Hvernig hafa viðskiptin geng ið, Kristján? — Svolítil aðsókn var á laugar dag, og svo á mánudag og þrið.iu, dag en meira þó í dag. — Og hvað er það, sem tólkið spyr helzt um? — Dálítið er spurt um húsgógn in, og svo peysurnar — Eru þetta lopapeysur, sem þið seljið, og hvað kosta þær, þeg ar þær eru komnar þarna vestur um haf? — Við seljum peysurnar á 37 dollara, og þetta eru venjulegar jáns, sem er forstjóri verzlunarinn ar- Þama vinna tvær íslenzkar stúlkur, Anna Guðmundsdóttir og Framn a ns 1962 Th« Hall Synd. Inc. T. M. R«g. 1 þingskjal og verður hér minnzt á örfá atriði áætlunarinnar. Framlag til vegaviðhalds verði aukið úr 80 milljónum í ár í 90 millj. á næsta ári og síðan smám saman upp í 105 milljónir árið 1968. Áætlaðar eru 10 milljónir ár- lega til hraðbrauta og þar af 6.8 milljónir á ári til Reykjanes brautar Til annarra harðbrauta verða því aðeins til ráðstöfgunar 3.2 milljónir á ári og verður litl um framkvæmdum áorkað með því fé og segir í áætluninni að greinilegt sé að sérstakra úrræða verði að leita til að leysa úr hinni brýnu þörf nýrra hrað- I brauta. Ráðgert er að Ólafsfjarðarvegi milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar verði lokið á næsta ári og fram- kvæmdum við Siglufjarðarveg um Stráka verði lokið á árinu 1966, en þessar framkvæmdir verða báð ar unnar fyrir lánsfé. Framlög til brúa verða svipuð ár hvert og í ár og að auki verði byggðar 70— 80 smábrýr á tímabilinu. Til endur nýjunar véla verða alls veittar 76.6 milljónir næstu 4 ár. VERKAMENN AUÐMJÚK VINNUDÝR I SOVÉTI Jólabingó Jólabingó Fra»nsóknarfé)ags Reykjavíkur verður að Hótel Sögu sunudaginn 13. desember og hefst klukkan 39.30. Skemmt unin hefst með því að spilað verður bingó um fjölda g,æsi- legra vinninga meðal annars um hvíldarstól, málverk, mat- vörur til jólanua, heimilisfæki og margt, margt fleira, en vinnings verðmæti er um 6<> 000 kr. Þá mun Einar Ágústsson al- þingismaður flytja ávarp óvæntur gestur kcmur í bcim- sókn. Á eftir verður stiginn dans, hljómsveit Svavars Gests leikur, söngvarar Elly Vil- lijálms og Ragnar Bjarnason. Aðgöngumiða má panta í sím- um 1-55-64 og 1-60-66, og er mönnum ráðlagt að gera það hið fyrsta. Miðar verða seld ir í dag í Tjarnargötu 26 og á afgreiðslu Tímans í Bankastr 7. IGÞ—Reykjavík 10. des. Arnór Hannibalsson, höfundur bókari'nnar „Kommúnism'i og vinstri hreyfing á fslandi“, gefur sovét-skipulaginu þann vitnisburð í grein í nýútkomnu eintaka af Frjálsri þjóð, að þar séu bændur knýttir með hervald'i í samyrkju bú, verkamenn auðmjúk vinnudýr í verksmiðjum ríkisims og mennta ! menn ambáttir valdhafans. Þessi lýsing á Sovétríkjunum er liður í svari Arnórs við grein, sem Magnús Kjartansson ritaði í Þjóðviljannn um síðustu helgi, um bók Arnórs. Sagði Magnús m.a. að ekki örlaði á sósíalískum við- horfum í bók Arnórs, og sagði að ekki þyrfti að tala um vinstri hreyfingu handa mönnum eins og honum, enda væri Sjálfstæðis- flokkurinn fyrir hendi. í svargrein sinni bendir Arnór Magnúsi á, að sá sósíalismi, sem hæfi Magnúsi, og sé honum að skapi, sé einmitt sósíalisminn, sem rekur bændur með hervaldi í sam yrkjubú, gerir verkamenn að auð- mjúkum vinnudýrum i verksmiðj- um ríkisins og menntamenn að ambáttum valdhafans. Orðrétt seg ir Árnór: „Magnús Kjartansson kvartar mjög undan því, að í umræddri bók minni votti ekki fyrir sósíal ísskum viðhorfum, ég gagnrýni Sósíalistaflokkinn fyrir að vilja að koma á sósíalísku hagkerfi. En hvað á ritstjórinn við með þess um orðum? Ekki annað en þjóð skipulag, þar sem ríkið hefur einkarétt á öllu lífi, en einn flokk ur stjórnar ríkinu, og einn maður — eða í bezta lagi samvirk for- usta lítillar klíku — stjórnar flokknum.“ Síðan kemur fyrr- greind skilgreining á meðferð stéttanna. Og látið fylgja, að Magnúsi hafi ekki til einskis geng ið í skóla hjá Brynjólfi og Einari og nú nýlega beygt kné sín í lotn - ingu við fótskör meistaranna (Mao&Co) í Höll himinsins. í rauninni hafa ýmsir margt að segja um kommúmsta, en það gerist sjaldan, að maður eins og Arnór, sem dvalið hefur við nám í Moskvu árum saman. gerist svo opinskár í vitnisburði sínum um stöðu þegnanna í „sæluríkinu“ mikla. Og eftir þá reynzlu, sem Arnór hefur að austan, er kann ski engin furða þótt hann vilji eft irláta Brynjólfi, Einari og Magn- úsi að reka íslenzka bændur með hervaldi í samyrkjubú, gera verka menn að auðmjúkum vinnudýr um í verksmiðjum ríkisins og menntamenn að ambáttum vald hafanna Kona rænd KJ—Reykjavík 10. des. f morgun um tíuleytið var full orðin kona rænd, þar sem hún var á gangi eftir Fjölnisveginum. Hafði ránsmaðuirinn á brott með sér tösku hennar er innihélt m.a. um 6 þúsund krónur i penincum, auk fleiri verðmæta. Konan var á gangi eftir Fjölnis veginum um stundarfjórðungi fyr ! ir tíu í morgun. Réðst þá aftan að henni maður og hrifsaði af ! henni tösku, sem hún hélt á í Framhald a 3. síðo Norræna skíðagangan hófst í Reykjavík í gærkvöldi og gengu þá um 70 Reykvíkingar 5 km. vegalengdina. Fyrstu göngumenn voru ýms'ir framámenn í Reykjavík og forystuménn íþrótta- mála. Gangan var skipulögð frá íþróttahúsinu að Hálogaiandi og var gengið þar um nágrennið. f dag hefur mairgt skólafólk tekið þátt í göngunni og svo mun væntanlega verða á morgun (föstudag) en það er siðasti dagur- inn, sem gangan er skipulögð frá Hálokalandi fyrir Reykvíkinga. Ástæða er til þess að hvetja fólk til að ganga 5 km. og stuðla að þvi að fsland verði sigurvegari í Norrænu skíðagöngunni. Nú þarf ekki að kvarta yfir snjóleysi! Á myndinni hér til hliðar sjást Eysteinn Jónsson. alþingis- maður, Stefán Kristjánsson, formaður Skiðasambamdsins. og Kristjana Jónsdóttir, kona Stefáns, ganga fyrstu metrana Borgar- f} stjórinn i Reykjavík, Geir Hallgrímsson, var meðai þeirra, sem fyrstir gengu. J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.