Alþýðublaðið - 01.06.1954, Blaðsíða 3
ÍPriðjudag'ur I. júní , 1954
r
Útvarp Reykjavík,
19.30 Tónleikar: Þjóðlög frá'
ýmsum löndum (plötur).
20.30 Erindi: Krisvin trú og
barnarvernd; III. (Gísli Jóns- j
son alþingismaður). |
21 Undir Ijúfum lögum: Carl
Billich o. fl. leika létt klass-
isk lög.
21.30 Upplestur: „Þýzkalands-
för Ko'bba gamla“, smásaga
eftir Martin Andersen Nexö,
í þýðingu Gunnars Gunnars.
sonar (Sólveig Guðmunds-j
dóttir).
21.45 Tónleikar: Lög úr óper-1
ettunni ,,Leðurblakan“ eftir,
Johann Strauss (plötur). ,
22.10 fþróttir (Sigurður Sig-
urðsson).
22.25 Kammertónlekiar (plöt-
tir): Kvintett fyrir píanó og '
strengi eftir Ernest Bloch'
(Alfredo Casella og Pro Arte
kvartettinn leika).
Vettvangur dagsins
Stórfeilt smygl á ýmsum vörum á sér stað — Nauð-
, . syn á nýiium aðgerðum — Siðferðisleg skylda
þegnanna.
KBOSSGATA.
Nr. 6G8.
Lárétt: 1 veiði, 8 hnöttur, 7
íborgaði, 9 öfugur tvíhljóði, 10
álát, 12 svefn, 14 sögn, 15 væta,
17 skel.
Lóðrétt: 1 ábreiðu, 2 gangur,
3 tónn, 4 askur, 5 bita. 8 dugn-
aður, 11 veruleiki, 13 fóru af
jbaki, 16 greinir.
I/a.usn á krossgátu nr, 667.
Lárétt: 1 skammur. 6 ina, 7
ötan, 9 dd, 10 rif, 12 ge, 14
jTýri, 15 ave. 17 naskur.
Lóðrétt: 1 stungan, 2 afar, 3
ími, 4 und, 5 raddir, 8 nit, 11
ífýlu, 13 Eva 16 es.
NYLEGA HEFUR eitt af
dagblöðum bæjarins birt grein
ar um innfluíning á nylonsokk
um. Kanivsýs!umaður upplýsti
aS mikiÖ væri smyglaS af þess
ari vöru. Opínberir aðiíar svar
uðu honum — og deilunni lauk
með því, að ritstjóri blaðsins
skar niður umræður. Almenn-
ingup fylgdist vel með þessum
deilum — og maður fór ekki í
neinar grafgötur með það hvcr
bar sigur af hólmi.
ÞAÐ ER STÓRFELLT
SMYGL á vörum hér í bær,-
um. Það er smyglað nylonsokk
um í stórum stíl, og ekki að-
eins nylonsokkum, heldur og
ýmsum öðrum vörum. Ég full-
yrði, að í fáum löndum muni
vera hægt að smvgla eins
miklu af vörum og hér ■— og
veit ég ekki ástæðuna til þess.
En smyglvórur er hægt að fá
keyptar á opnum markaði í
ýmsum verzlunum.
ÉG GET EKKI sarrnað þetta,
enda ber mér ekki skylda. til
þess, hins vegar veit ég.það. En
ef yfirvöldin vilja komast fyr-
ir þetta, þá geta þau sent
starfsmenn sina í búðir og lát
ið þá kaupa þessar vörur. Hér
er, í sumum tiiiiellum um á-
kveðin merki að íæða, sem
ekki hefur verið layfður inn-
flutningur á — Og væri þá erf
itt að fá að vita hvar kaupmað
urinn hefur fengið vöruria?
ÞETTA ER ískyggilegt á-
stand. í öllum löndum eru til
menn, sem reyna að fara í kring
•um lögin í eiginhagsmuna
skyni, en þeir eru tiltölulega
fáir, miðað við fjöldanna. Ilér
eru þeir ótrúlega margir. Þess
ir menn hafa enga sarovizku
gagnvart afkomu þjóðar sinnar
í heild. Afkoma samfélagsins
kemur peim ekki við. Þeir
hugsa aðeins um það eitt að
skara eld að sinni köku.
VIÐ VERÐUM að stemma
stigu við þessu. Og það getum
við ekki, ef yfirvöldin hafa
ekki forystu fyrir því. Ef því
heldur áfram, sem verið hefur,
þá hlýtur það að, enda með. því,
að þjóðin verður gagnsýrð af
þessari pest — og þá förumst
við öll að síðustu. — Ég held,
að réttast sé fyrir yfirvöldin,
að fá konur og karla til pess að
rannsaka þessi mál öll, ganga
í búðirnar, kaupa vörnua og af
henda svo öðrum til rannsókn
ar á því hvernig þær hafa kom
ist til landsins.
ALÞINGI ÁKVEÐUR tolla
og skatta til þess að fá tekjur
til að standast sameiginleg út'
gjöld þjóðarinnar. Allir viður
kenna nauðsynin á þessu, þó
að þeir hins vegar rífist út úr
því, að tollar og skattar séu of
háir, og komi óréttlátlega nið-
ur á þjóðfélagsþegnana.
SMYGL ER GLÆPUR, og
okkur ber að berjast gegn því
það er siðferðisleg skylda okk-
ar og um leið fjárhagslegt at'
riði fyrir alla. Því meir sem
smyglað er tollfrjálsu inn :
lándið, þvf hærri verða skatt-
arnir á okkur.
I DAG er þn.ðjudagurinn 1.
Júní 1954.
Næturlæknir er í læltnavarð
stofunni, símj 5030.
FLUGFEBÐIR
Loftleióir.
Hekla, millilandaílugvél Loft
leiða h.f., er væntanleg' til
Reykjavíkur kl. 11 á morgun
írá New York. Flugvélin fer
feéðan kl. 13 áleiðis til Stafang
surs, Óslóar, Kaupmannahafnar
og Hamborg'ar.
SKIPAFRÉTTIR
Skipadeild SÍS.
M.s. Hvassafell íer f-rá Ak-
ureyri í dag til Sauðárkróks.
M:s. Arnarfell er í Álaborg.
M:s. Jökulfell kenuir væntan-
iega til Reykjavíkur á morgun
frá New York. M.s. DísarfeÍÍ
kom til Reykjavikur í gær-
feveldi frá Leith. M.s. Bláfell er
á Vopnafirði. M.s. Litlafell er
í olíuflutningum milli Faxa-
teveldi til Rotterdam, Hamborg
ar og Reykjavíkur. Arne Prest
rus lestar um 31/5 í Antwerp-
en og' Hull til Reykjavíkur.
Btkisskip.
Hekla er á Austfjörðuin á
norðurleið. Esja er á Austfjörð-
am á suðurleið. Herðubreið er
á leið frá Austfjörðum til Rvík
ur. Skjaldbreið er á Skagafirði
j á leið til Akureyrar. Þyrill er á
; leið til Hollands. Skaftfelling-
ur fer frá Reykjavík í dag t;I
Vestmannaeyja.
Eimskip.
Brúarfoss fór fra Rotterdam
í gær til Ifuil og Reykjavíkur.
■ Dettifoss kom til Húsavíkur
(30/5, fór. þaðan í gærkveldl til
Akursyrar Skagastrandar, ísa
fjarðar, Akraness og Reykja-
víkur. Fjallfpss fer frá Reykja-
vík í kvöld til Vestur og Norð-
■ urlandsins. Goðafoss kom til
ÍNew York 25/5 frá Portlsnd.
j Gullfoss fór frá Reykjavík
29/5 til Leit.h og Kaupmanna-
jhaí'nar. Lagarí'oss er i Reykja-
vík. Reykjafoss fór frá Reykja-
vík í gærkveldi til Vestmanna-
eyja og Hamborgar. Selfoss fór
frá Seyði'sfirði 30/5 til Raufar
hafnar, Sauðárkróks, Flateyjar
'á Breiðafirði og Reykjavíkur.
Tröllafoss f.ór frá Reykjavík
20./5 til New York. Tungufoss
fór írá Kristiansand í gær-
B L Ó D O G X I M A R 1 T
Unga ísland, barna- og
unglingaiblaðið gamla,. sem
ekki heíur ko.mið út urn hríð,
er/nú komið út í nýjum bún-
ingi. Júní—Júlíheftir ber þaö
meS sér, að lögð veröur áherzla
á leiðbeiningar í ýmsum tóm-
stundastörfum og hugðarefn
um banra og ungUyga, enda
mun ritið hafa samband við
íómstundaþátt Jóns Pálssonar
í útvarpinu. Einnig eru þar
sögur og frásögur, dægradvöl
o. m. fl„ Mikill fjöldi mynda
prýðir heftið.
B R ÚÐ K A UP
I dag verða gefin saman í
hjóna-band í Háskólakapellunni
af séra Jóni Þorvarðssyni ung-
frú Katrín Magnúsdóttir, Guð
brandssonar, Bólstaðanhlíð 7,
og Þorsteinn. Baldursson (Þor-
steinssonar kaupmanns)f Klapp
arstíg 37. Heímili þeirra verð-
ur að Bólstaðarhlíð 7.
L'stasafn Eiiiars Jónssonar
verður opnað í dag og verð-
ur onið fvrst um sinn á hverj-
um degi kl. 13.30 til 15.30. —
Gengið er inn í safnið frá
Skólavörðutorgi. Aðgangseyrir
5 krónur.
Skógræktarferð.
Rangæingafélagiö í Reykja-
vík fer skógræktarferð í Heið
I mörk kl. IV2 í kvöld. Farið
verður frá Varðarhúsinu.
flóahafna.
% :
Frá og með 1. júní n.k. og þar til öðruvísi verður á-
kveðið heimilast meðlimum sjómannafélaga þeirra, er að
togarasamningunum stóðu, að láta skxa'iiga togara fyrir
sömu kjör og gilt hafa.
Reykjavík, 31. maí 1954.
Stjórnir,
Sjómannafélags Reykjavíkur, Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar, Sjómannaféíags Akureyrar, Sjómannafélags ísa-
fjarðar, VI.- og sjómannafélags Keflavíkur, Verkalýðs-
l'élags Patreksfjarðar, VMf. Þróttar, Siglufirði og Fiski-
matsveinadeild Sambands matreiðslu og framleiðshr-
manna.
ReikRingu
E.f. Eimskipaféiags íslands fyrir árið 1953 liggur frammi.
í skrifstofu félagsins frá og með degínum í dag til sýnis
fyrir hluthafa.
Reykjavík, 29. maí 1954.
STJÓRNIN.
Sumarstarf K.F.U.M.
Sumardvalaflokkar fyrir telpur og stúlkur hafa ver-
ið ákveðnir eíns og hér segir:
1. fl. 18.—25. júní fyrir telpur 9—13 ára
2.
3.
4.
5.
6.
7.
— 1.— 8. júlí
— 8.—15. júlí
— 15.—22. júlí
— 22.-29. júlí
— — 9—13 ára
— — 9—13 —
— — 9—13 —
— stúlkur 13 ára og eldri.
3.—10. ágúst fyrir telpur 9—13 ára.
10.—15. ágúst fyrir stúlkur 17 ára og eldri.
!
(Námskeið í handavinnu og matreiðslu, ef náeg þátt-
taka fæst).
Þátttaka er heimil öllum telpum og stúlkum á framan
greindum aldri. Umsóknum verður veitt móttaka og nán-
ari upplýsingar veittar í húsi KFUM og K frá 1. júní n.k.
alla virka daga nema laugardaga, frá kl. 4,30—6,30 e.h.
— Símí 3437.
STJÖRNIN.
Hjartans þakkir færi ég öllum vinum mínum og
starfsfólki fyrir þann heiður og vinsemd, sem það sýndi
mér á 70 ára afmæli mínu þann 22. þ. m. með heim-
sóknum, skeytum og blómum og góðum gjöfum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Jónasson Hafnarfirði.
\
I
§
V.
i
i
Að gefnu tilefni tilkynnist hér með, að oddviti
Kópavogshrepps hefur ekki heimild til að ráðstafa bygg-
ingalóðum og ræktunarlöndum í iandi ríkisins í Kópa-
vogsheppi.
Umsóknir um lóðir eða ræktunarlönd ber að senda
til trúnaðarmanns ráðuneytisins, hr. Hannesar Jónsson-
ar, félagsfræðings, Hátröð 9, Kópavogi, og mun hann þá
hlutast til um að gerðir verði löglegir lóðarsmningar.
Athygli þeirra. sem hafa ekki enn fengið lóðarsamn
inga fyrir lóðum, sem þeir hafa þegar byggt íbúðarhús á
eða hafið framkvæmdir á, er vakin á því, að snúa sér
sem fyrst til trúnaðarmanns ráðuneytisins.
Dóms- og kirkjumálaráðuneyíið
— JarðeignadeilA —