Tíminn - 10.02.1965, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. febrúar 1965
TÍMINN
TJÓN
11. rnnald 'af bls. 1.
sagði þær fréttir í dag, að bátur-
inn Gissur hivíti hefði orðið fyrir
áfalli í gærkvöldi milli klukkan
10.30 og 11, þegar hann var að
koma inn úr róðri. Hnútur kom
á bátinn, og fyllti stýrishúsið,
vélin stoppaði, og urðu skipverjar
að kasta akkerum. Þeim tókst þó
að koma vélinni í gang aftur eft-
ir nokikurn tíma og komu inn í
nótt eða morgun.
Líklegt er talið að öll siglinga-
tæki séu ónýt því sjór komst í
radar og dýptarmœli, og talstöðin
ónýttist. Skipstjórinn á Gissuri
hvíta, Óskar Valdimarsson, tjáði
VÍÐIDALSÁ
Framhald at bls. 16
dag afí tv8 tilboð hefðu komið í
alia ána fyrir næsta sumar, og auk
þess hefðu komið tilboð í einstaka
hluta hennar. Nokkrir einstakling
ar höfðu ána á leigu í fyrra, og
greiddu þá þrjúhundruð þúsund
fyrir hana. Þess ber að geta að þá
þöfðu bændurnir 20 daga í ánni,
fimm þá fyrstu og 15 þá síðustu.
Tiiboðið frá Stangavciðifél. Rvík
ur nær hins vegar yfir allt veiði-
tímabilið, 15. iúní—15. sept. mið-
að við sex stengur í ánni á dag.
Samkvæmt samningi við fyrri
lcigjendur geta þeir gengið inn
í hæsta tilboðið í ána, en ekki hef
ur verið gengið að fuUu frá því
enn hvort þeir munu gera það.
BÓKASAFNIÐ
Framhald at bls. 16.
í þeirri söfnun, sem má kallast
hafin, því nokkrar gjafir hafa þeg-
ar borizt annars staðar frá, m. a.
tvennar tíu þúsundir.
Biskupinn lýsti aðdraganda
þessa máls og þeirri nauðsyn að
koma í veg fyrir, að safnið yrði
selt úr landi eða því sundrað.
Eina ráðið til að koma í veg
fyrir slíkt væri að leita eftir fram
lögum og aðstoð þjóðarinnar. Um
talaða upphæð þyrfti í minnsta
lagi að fá, en síðan verður að
koma safninu fyrir og gæta þess
í Skálholti. Því fylgir einnig mikill
kostnaður. Út í þetta er lagt í
þeirri bjartsýnú trú, að íslenzka
'þjóðin skilji hvað hér er í húfi.
Það kom fram á fundinum, að
sérfróðir menn telja kaupverð
safnsins mjög hóflegt, ennfremur
að þar muni vera bækur, sem eru
ekki til í Landsbókasafninu og að
þar eru nærfellt öll þeirra^ tíma-
rita, sem gefin voru út á íslandi
fyrir síðustu aldamót. Þar er um
165 tímarit að ræða, aðeins 2
vantar í safnið.
Skipulag fjársöfnunarinnar er
ekki fullráðið en þetta blað mun
taka við framlögum til hennar.
fréttaritaranum, að báturinn hefði
ekki fengið annan sjó á sig en
þennan eina, og engin slys höfðu
orðið á mönnum um borð.
Þá sagði AA, að nokkuð hefði
brotnað af rúðum í húsum í Horna
firði og þar í kring, til dæmis
fóru 16 rúður úr félagsheimilinu
að Hrollaugsstöðum í Suðursveit.
Mikið hvassviðri var einnig á
Vestfjörðum, og sagði GS á fsa-
firði, að hávaðarok hefði verið þar
í gær og nótt. Þar fyrir vestan
fuku fisikhjallar með fiski í, og
einnig fauk afgreiðsluskúr, sem
Vestanflug hefur á flugvellinum
á Ísaíirði, og einnig fauk benzín
afgreiðslu- og sælgætissöluskiir í
Skutulsfirði.
Að lokum náðum við tali af
Eiríki bónda í Arnarfelli í Eyja-
firði en hann varð fyrir töluverðu
tjóni af völdum óveðursins í nótt.
Hjá honurn fuku tveir braggar,
var hey í öðrum en þrjátíu lömb
og tíu kvígur í hinum. Drápust tvö
lömbin, þar sem þau höfðu orðið
undir brakinu þegar bragginn lagð
ist saman. — Þetta voru gamlir
braggar, en voru vel frá gengn-
ir og búnir að standa af sér mörg
veður áður, sagði Eiríkur. Þetta
var alveg feikilegt veður hérna
að minnsta kosti, hélt hann áfram.
Alveg frá því í gærkvöldi um
tíuleytið og fram undir morgun,
og braggarnir voru að smáliðast
sundur hjá mér. Um tólfleytið í
nótt fór svo líka þakið af íbúðar
húsinu hjá mér. Það lenti á
símalínum og rafmagnslínum, og
sleit þær niður, og verið var að
enda við að koma símanum í lag
aftur nú upp úr fjögur í dag.
Nokkrar rúður brotnuðu í fjósinu,
og kýrnar lágu í glerjahrúgunni í
morgun, ég held þær hafi ekki
Skaddazt, en annars hef ég lítið
mátt vera að því að rannsaka það
enniþá, því ég hef verið að koma
skepnunum fyrir, sem voru í
bragganum.
VÍÐAVANGUR
Fr-amnaio a) síðu
að heyra það í stjórnarblöð-
unum að hann væri sannar-
iega enginn Iýðræðisflokkur,
heldur hið ómerkilcgasta hand-
bendi „kommúnista“, jafnvel
verri, ábyrgðarlausairi og ofsa-
fengnari en nokkur „kommún-
istafIokkuir“ Ósjaldan hafa
stjórnarblöðin hælzt um yfir
því að Framsóknarflokkuri'jin
væri raiwiar utangarðs í
þjóðlífinu, óþarfuir með öllu •
og landhreinsun að því að
losna við hann. Ekki er ýkja-
lanigt síðan stjórn'arflokkarnir
héldu þannig á nefndakjöri á
Alþingi að „kommúnistar“
fengu mann í nefndir á kostn-
að Framsóknarflokksins.“
Móðir okkar,
Rannveig Gunnarsdóttir
lézt þriðjudáginn 9. þessa mánaðar.
Eiginkona mín,
Lilja Árnadóttir,
Leifsgötu 6,
lézt í St. Jósefsspítals 8, febrúar. Fyrir mína hönd, dætra og
annarra vandamanna,
Böðvar Pálsson.
Hjartans þakkir færum við öilum þelm, sem auðsýndu okkur san>
úð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
Stefaníu Stefánsdóttur
frá Ketilsstöðum,
sérstakar þakkir færum við héraðslækninum Þorsteini Sigurðssyni,
fyrir alla hans hjálp er hann yeittl hinni látnu.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Kristín Gissurardóttir, Gunnar Gissurarson. fe
VIETNAM
Ástandið í Suður-Vietnam er ekki upp á marga fiska fyrir
Bandaríkjamenn þessa dagana. Framundan eru dimmir dagar og
glæsilegir tímar eru held'ur ekki að baki. Síðan Bandaríkin
tóku ð sér að verja S-Vietnam gegn skæruhernaði kommúnista,
hefur vegurinn aðeins legið niður á við fyrir þá þar í landi,
og kostað þá hundruð miliióna dollara.
I júlí 19'54 var Vietnam
skipt í tvo hluta eftir sjö ára
stríð Frakka í Indókína. Norð-
urhlutinn, sem var undir
stjórn kommúnista, var kall-
aður Democratic Republic of
Vietnam, en suðurhlutinn var
nefndur Republic of Vietnam.
Um 15 milljónir manna búa í
norðurhlutanum, en um 13
eða 14 milljónir í suðurhluta
landsins. Vietnam er um 100
mílna langt, en 330 mílur á
breidd, þar sem það er breið-
ast, en aðeins um 40 mílur,
þar sem það er mjóst. Að norð
an liggur Kína, en að sunnan
og austan liggur Tongkingfló-
inn, og að vestan liggur Kam-
bódía.
Árið 1773 var gerð uppreisn
í Vietnam, sem þá hét Annam.
Uppreisninni var stjórnað af
15 ára gömlum pilti af hinni
kunnu Nguyenætt, sem hét
Nguyen Anh. Hann stjórnaði
ríkinu til 1820 og var náinn
vinur Frakka. Eftirmenn Nguy
ens bundu endi á hina miklu
vináttu við Frakkland. Árið
1883 hófust miklar ofsóknir á
hendur kristnum mönnum í
Vietnam, sem leiddu til þess,
að Frakkar tóku stjórn lands-
ins í sínar hendur. Það var
svo ekki fyrr en eftir seinni
heimsstyrjöldina, að Vietnam
fékk sjálfstæði að nafninu til,
en í rauninni lauk yfirráðum
Frakka ekki fyrr en 1956.
Það var Pierre Mendés-
France, sem varð forsætisráð-
herra Frakklands 1954, sem
ákvað að hætta átökum Frakka
í Indókína, enda stefndi að
beinum ósigri fyrir þá í þeirri
baráttu. Vietnam var þá skipt
í tvennt við Ben-Hoi ána, sem
liggur á 17 breiddargráðu. Ho
Chi Minh varð forseti N-Viet-
nam og situr þar enn við völd
en hann hafði stjórnað skæru-
liðum kommúnista í mörg ár.
N-Vietnamstjórnin hefur síð-
an byggt upp landið að ein-
hverju leyti, og notið til þess
stuðnings frá Kína, Sovétríkj-
unum, Póllandi, Tékkóslóvakíu
og fleiri kommúnistaríkjum.
Suður-Vietnam var stjórnað
um sinn af Bao Dai, fyrrver-
andi keisara Annamríkisins.
Árið 1950 voru haldnar lýð-
ræðislegar kosningar í landinu
og Ngo Dinh Diem var kos-
inn fbrsaiíi vráSherra S-Viet-
nam. Þrem dögum seinna lýsti
Ðiem þvi yfir, að hann myndi
stjórna landinu sem forseti,
samkvæmt stjórnarskránni.
Diem forseti kallaði fulltrúa
sína í franska þinginu heim
árið 1956, en það markaði lok
nýiendustjórnar Frakklands. *
staðinn skiptust löndin a
sendiherrum.
f maí 1956 undirritulu full-
trúar Bretlands og Sovétríkj-
anna samninginn. (en þessi
tvö lönd hö,fðu forseta ráð
stefnunnar í þetta sinnl um
að allsherjai kosningum um
sameiningu Vietnam skyldi
frestað um óákveðinn tíma.
Meiri hluti landsmanna býr
í þorpum og lifir á akuryrkju
og landbúnaði. Trúarbrögð
landsmanna eru afar marg-
hreytileg, stór hluti er Búdda-
trúar, um tvær milljónir eru
kaþólskar og all stór hópur
hefur nokkurs konar forfeðra-
trú. Stærsta útfutningsvara
landsmanna eru hrísgrjón, og
fyrir stríð var Vietnam þriðji
stærsti hrísgrjónaútflytjand-
inn í heiminum.
Friður er orð, sem varla
þekkist lengur í Vietnam, enda
hefur verið svo til stanzlaus
ófriður þar í meir en tuttugu
ár. Kommúnistar hættu að vísu
skæruhernaði sínum í meir en
ár í S-Vietnam á tímabilinu
1955—1957. Þá barðist stjórn-
in við að útrýma öðrum smá-
flokkum skæruliða og upp-
reisnarmanna. Kommúnistar
byrjuðu svo aftur 1957 baráttu
sína fyrir að steypa stjórn,
landsins og þar með tryggja
völd Ho Chi Minhs. Á sex ár-
um tóku uppreisnarmenn
kommúnista um 13.000 þorps-
leiðtoga af lífi til þess að skapa.
öngþveiti og efla eigin að-
stöðu. Síðan hefur stríðið vax-
ið stig af stigi fram til þessa
dags.
Diem stjórnin í Saigon bað
Bandaríkin um aðstoð um
svipað leyti í baráttu sinni við
skæruliða. Þá voru sendir fleiri
hernaðarfulltrúar í ameríska
sendiráðið í Saigon og „sér-
fræðingar" til að þjálfa her-
menn stjórnarinnar. f kring-
um 1961 var lið Bandaríkja-
manna orðíð um eitt þúsund
manns, en skömmu seinna
hafði Kennedy forseti aukið
liðið um ellefu þúsund menn.
Bandaríkjamenn könnuðust
lengi vel ekki við, að hér væri
um stríð að ræða, og litu á
átökin sem skæruhernað komm
únista, sem styrktir væru af
Rauða Kína. Þeir hafa t.d.
aldrei viljað kalla hermenn
sína í S-Vietnam „hermenn"
heldur eru þeir kallaðir „sér-
fræðingar". Að vísu taka þeir
ekki beinan þátt í átökunum,
en eru jafnan með sem ráð-
gjafar og þeir þjálfa herinn.
Ngo Dinh Diem var steypt
af stóli árið 1963 af herfor-
ingjunum og var skömmu síð-
ar myrtur ásamt bróður sín-
um, sem stjórnaði leynilög-
reglu landsins. Síðan hefur
ríkt ógnaröld í landinu, og
hver uppreisnin orðið á fætur
annarri, og sífellt er verið að
skipta um stjórnir. Bandaríkja
menn eru jafnt og þétt að
sökkva dýpra og dýpra í þessa
endaleysu. Sagt er, að þeir hafi
orðið stjórn landsins meir eða
minna í höndum sér, hvort
sem þeim líki það betur eða
ver. Eitt er víst, að bandaríska
þjóðin hefur alla tíð verið á
móti þessum átökum, sérstak-
lega þar sem Vietnambúar
vita ekki hvað þeir vilja og
vegna þess, að urtgir Banda-
ríkjamenn láta lífið í „stríði".
sem ekki má kalla „stríð.“
Óstjórn og öngþveiti er orð-
inn hluti af hinu daglega lífi
! S-Vietnam. Hver hópurinn
er upp á móti öðrum, og oft-
ast án þnss að vita hvers vegna.
Einn af fréttariturum New
York Times sagði nýega við
undirritaðan, að það væri grát-
legt að sjá þessa hópa stríða
hvorn við annan án þess að
vita í rauninni hvers vegna
þeir gætu ekki unnið saman
á móti skæruliðum kommún-
ista. Hann sagði m.a.. að há-
Hér aS ofan er kort af Víetnam,
þar sem kommúnistar og Banda-
ríkjamenn hafa slcipzt á árásum
undanfarna daga.
skólanemar skiptust í marga
flokka eða hópa, og sjaldnast
gætu þeir unnið saman að
lausn á einu eða öðru vanda-
máli. Eins væri það með hina
mörgu og mismunandi trúar-
flokka og aðra þjóðfélagshópa.
Einn erfiðasti hópurinn í
S-Vietnam í dag eru munkar
Búddatrúarmanna og það
furðulegasta er, að aldrei hefur
eiginlega komið í Ijós, hvað
þeir vilja eða að hverju þeir
stefna. Sumir segja, að þeir
séu aðeins að auka veldi sitt
og ítök í stjórn landsins. Hér
er um lítinn hluta af munk-
um að ræða, megnið af þeim
vill heldur helga sig Búdda-
trúnni. Búddatrúarmenn eiga
í flestum tilfellum meira eða
minni þátt í götubardögum
eða endalausum uppreisnum,
sem herja á Saigon.
Ástandið í Vietnam í dag er
erfitt fyrir Washington og um
leið hættulegt fyrir heiminn.
Bandaríkjamenn eru sokknir
of djúpt í þetta stríð til að
geta snúið við án þess að
missa andlitið. Ef þeir hörfa
nú í dag, þá má reikna með
að smærri þjóðir segi, að ekki
verði hægt að treysta á Banda-
ríkin, ef á hjálp þarf að halda
gagnvart heimsvaldastefnu
komimúnista. Hans J. Morg-
enthau, sem er kunnur banda-
rískur stjórnmálafræðingur
segir, að Bandaríkjanna bíði
nú þrír möguleikar: f fyrsta
lagi getur S-Vietnam sagt þeim
að hypja sig — en það er ólík-
legt, í öðru lagi má halda aðra
Genfarráðstefnu og lýsa yfir
algjöru „hlutleysi" í Suðaust-
ur Asíu — sem þýðir, að veldi
Rauða Kína væri viðurkennt
í Suðvustur-Asíu, og í þriðja
lagi gæti Washington samið
við stjórnina í N-Vietnam um
samsteypustjórn í S-Vietnam,
sem myndi þýða það, að Ho
Chi Minh stjórnin myndi ná
völdúm þar. Það myndi gera
Vietnam að nokkurs konar
Júgóslavíu segir Morgenthau
að lokum.
Næstu dagar skera e.t.v úr
um, hver endalokin verða í
Vietnam eða hvort heimurinn
má búast við öðru Kóreu-
stríði. —jhm. ‘