Alþýðublaðið - 30.10.1955, Blaðsíða 8
HEILDARÚTGÁFA af ritverkum Guðmundar skálds Frtð-
jénssonar á Sandi kemór út nú fyrir jóiin. Hún verður alls sjö
'foiindi, en aðeins sex koma út nú, hið síðasta á næsta ári.
Þrjú biridin eru sögur, tvö
'kvæði og tvö bréf og ritgerð-
ir. Eitt bindi af heildarútgáf-
u.nni kom út fyrir nokkrum ár-
•u.m, og geta þeir, er það eiga,
fengið hin bindin,"e:r þá vantar.
Ritið verður afgreitt til áskrif-
enda fyrir jól, en sakir anna,
verður ekki unrit að koma herini
í bókaverzlanir fvrir áramót,
BOKN SKALDSINS EKU
ÚTGEFEND.UR.
Ritverkið er gefið út a-f börn
um skáldsins. Það er prentað í
Prentverki Odds Björnssonar á
Akurevri, og á frágangur allur
að vera mjög vandaður. Kostar
verkið til áskrifenda óbundíð
360 kr., í rexinbandi 480 kr, og
í geitarskinnsbandi 600 kr. Þeir,
FORSEAHJÓNIN fóru í op-
inbera heimsókn í Árnessýslu
í gær. Var þeim haldin veizia í
Selfossbíó og sátu hana hátt á
annað hundrað manns víðs veg
ar að úr Árnessýslu.
Heimsótti forsetinn helztu
byggingar á Selfossi svo sem
rnjólkurbúið, Landsbankaúti-
búið og fleiri byggingar.
S
S
S
S
S
s
s
s
s
'S
s
C ur funtl næstkomandi þriðjub
S dagskvöld kl. 8.30 í Alþýðu-^
•'faúsinu við Hverfisgötu. \
. S
KVENFÉLAG Alþýðu
flokksins í Reykjavík held
Fundarefni: Ýmis félags-S
S mál. Einnig verða rædd þingS
S mál. i
S >
og hefur því verið ákveðið að sem kýnnu að vilja eignast rit-
íáta það ekki koma í bókaverzl verkið með áskriftarverði geta
anir fyrr en sjöunda bindið gefið sig fram við eitthvert af
kemur út á næsta ári. j útgefendunum, börnmn skálds-
| ins. — eða í Reykjavík og Hafn
EFNI RITVERKSINS. j arfirði í síma 9821.
I skáldsagnabindunum þrem-
uv birtast: Eini.r, Óiöf í Ási,
Undir beru lofti, Tólf sögur.
Tíu sögur, Úr öllum áttum, Sól
liyörf, Kveldglæður, Héðan og
handan, Sögur úr byggð og
borg og auk þess um 30 sögur,
sem sumar hverjar hafa ekki
birzt á prenti áður. Tvö bindi
eru kvæði, og þar birtast: Úr
heimahögum, Kvæði, Utan af
víðavangi og auk þess um 130
kvæði, sem sum hafa birzt a „SÖGUR HERLÆKNISINS“ eftir Topelius í þýðingu
prenti aður, en onnur ekki, Þa ,1"
verður eitt bindi bréf o« rit- ' Matí»iasar Jochumssonar koma út í nýrri útgáfu Isafoldar-
gerðir frá tímabilinu 1893— prentsmiðju og verður fyrsta bindi þeirra af þremur á jóla-
1918, og sjöunda bindið, sem út ' markaðinum í ár. Verður það upphaf af heildarútgáfu á ritum
kemur á næsta ári, verður Matthiasar, fnimsömdum og þýddum: Ijóðum hans, bréfum. rit
gerðum og þýðiugum, svo og ævisögu skáldsins. Mun útgáfa
þessi taka langan tíma, en henni á að verða lokið fyrir 1970,
þegar hálf öld er liðin frá andláti Matthíasar.
Dagbókarbloð ©g bréf Ólafs heitins
Davíðssonar meðal Jolabókanna í ár
foréf og ritgerðir frá tímabil-
inu 1918 og til þess, er skáldið
lázt. Hvert bindi er um 500
blaðsíur.
íðinm
BORARFIRÐI eystra í gær:
Tíð hefur verið ágæt undan-
farið, en sjósókn hefur þó verið
lítil, enda var ekki unnt að taka
fisk til frystingar meðan slátr-
un stóð yfir. Afli hefur verið
góður þegar róið hefur verið.
8—10 trillur stunda sjó héðan.
— Slátrun er nú lokið og voru
lörnb með bezta móti. SP
íl stolið
I FYRRINOTT var stolið bíl
í Reykjavík, en hann fannst í
gær — á hvolfi. I
MattMas Jochumssom.
UNDANFAEIÐ hafa íhaldsbiöðin „Hamar í Hafnar-
firði og Morgunblaðið haldið uppi skrifum um frystihús-
byggingn Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og afflutt það mál á
alla vegu. Hið saima í málinu er, að frystihúsbyggingin er
nú komin vel á veg og þegar búið að slá upp fyrir fyrstu
hæð hússins. Verður hún steypt upp núna næstu daga. —
Alþýðublaðið mun nú á næstunni gera ýtarlega grein fyr
ir frystihúsmálirm alveg frá uppha.fi þess og gefst þá tæki
færi til þess að lelðrétta allar fyrri rangfærslur íhalds-
blaðanna um málið.
Sunnudagur 30. okt. 1955
LandheJgin rædd á alþingi:
Engin ákvæði í íslenzkum lö
Frumvarp Hannibals Valdimarssonar um
stækkun landhelginnar til umræóu
FRUMVAKP Hannibals Valdimarssonar um fiskveiðalamS
helgi Islands var tekið íil fyrstu umræðu á alþingi í gær. Fluttg
flutningsmaður framsöguræðu og vakti í upphafi máls síns at->
hygli á þeirri furðulegu staðreynd, að engin ákvæði c.ru til S
íslenzkum lögum um takmörk íslenzkrar fiskveiðalandhelgi! 1
Þessar upplýsingar voru
gefnar blaðamönnum í gær, þeg
ar þeim gafst kostur þess að
frétta um útgáfustarfsemi ísa-
foldarprentsmiðju í ár, en hún
gefur út að venju margt ágætra
bóka.
NONNASÝNING. ■
Nýtt bindi af heildarútgáfu
Nonnabókanna kemur í haust.
Er það bókin „Nonni í Ame-
ríku“ og verður 9. bindi heild-
útgáfunnar. Nonnabækurnar
verða alls í þrettán bindum með
ævisögu skáldsins og kemur hið
síðasta út á aldarafmæli þess
1957. Er þá ákveðið að efna í
Reykjavík til sýningar á hand-
ritum og ritum séra Jóns, og
mun Haraldur Hannesson ann-
ast undirbúning hennar.
„ÉG LÆT ALLT FJÚKA“.
Meðal annarra jólabóka ísa-
foldar í ár eru ,,Ég læt allt
fjúka“, sem eru dagbókarblöð
og bréf Ölafs heitins Davíðs-
sonar þjóðsagnaritara í útgáfu
Finns Sigmundssonar lands-
bókavarðar, „Harpa minning-
anna“, ævisaga Árna Thorstein
sons tónskálds, sem Ingólfur
Kristjánsson hefur ritað, og
smásagnasöfnin „Þrettán spor“
eftir Þórleif Bjarnason náms-
stjóra og „Hlustað á vindinn“
eftir Stefán Jónsson kennara.
SEX NÝJAR BÆKUB.
Á þriðjudag koma frá ísa-
(.Frh. á 7. síðu.)
Lögin um vísindalega vernd-
un fiskimiða landgrunnsins frá
1948 og reglugerðin, sem sett
var á grundvelli þeirra laga 19.
marz 1952, innihalda engin á-
kvæði um takmörk fiskveiða-
landhelginnar.
Um þetta eru aðéins til á-
kvæði í gömlum tilskipunum,
og má engan veginn við svo bú-
ið standa.
SKILGREINING Á VÍÐ-
ÁTTU LANDHELGINNAR.
í þessu frumvarpi er því í
fyrsta sinn sett fram ákveðin
skilgreining á víðáttu fiskveiða
landhelginnar með þessum orð-
um:
„Fiskveiðalandhelgi Islands
tekur til landgrunnsins alls.
Landgrunnið takmarkast af
linu, sem dregin er 50 sjómíl-
um utan yztu nesja, eyja og
skerja við landið, en þar sem
200 metra dýptarlína land-
grunnsins nær út fyrir 50 sjó-
mílna línuna, takmarkast land
grunnið af henni.“
Um framkvæmd löggæzlu
innan fiskveiðalandhelginnar
og stærð gæzlusvæðis er það
lágmarksákvæði í frumvarpinu,
að það skuli aldrei vera minna
en 16 sjómílur, en að öðru leyti
sé gæzlusvæðið ákveðið með
reglugerð á hverjum tíma.
GÖMUL 48 SJÓM.
LANDHELGI.
Framsögumaður vakti at-
hygli á því, að á sínum tíma
hefði danskur konungur fyrir
mörgum öldum ákveðið 48 sjó-
mílna landhelgi við ísland og
ættum við óhikað að standa á
þeim sögulega rétti.
I viðbót við þann helga sögu
lega rétt kvað Hannibal sjálf-
sagt að styðja mál okkar rökuim
vísindanna, kenningunni um
landgrunnshelgi, sem að vísi&
væri aðeins nokkurra áratugaá
gömul, og með .fordæmi þeirra
þjóða, sem ákveðið hafa land-
helgi sína á síðari árum allt upp;
í 200 sjómílur. — Einnig bentl
hann á aukna börf stækkaðraí?
landhelgi vegna sívaxandi veiði
tækni. T.d. mundu rafsmagns-
veiðarfæri framtíðarinnar vafa
laust gera botnvörpuna í sinni
núverandi mynd úrelt veiðar-*
færi.
Að lokum kvaðst Hannibal
vona, að slíkt stórmál sem þetta
yrði ekki gert að ágreinings-
máli í þinginu og heldur ekki
svarað með þögn og afskipta-
leysi. —• Þingheimi sæmdi ekk-
ert annað en að sameinast sems
einn maður um að helga Is-
j landi landgrunnið allt, og baS
I ætti að gerast, hiklaust strax 4
þessu þingi.
i Málinu var einróma vísað til
annarrar umræðu og sjávarút-
vegsnefndar. j
Sfyrkur íil verkfræði-
Þýzkalandi.
nams i
RÍKIRSSTJÓRN Vestur-
Þýzkalands býður fram styik
að fjárhæð 2750 þýzk mörk
handa verkfræði eða verk-
i fræðinemum, sem komnir erir,
iagt áleiðis með nám sitt, til
ellefu mánaða námsdvalar viffi
verkfræðiháskóla í ÞýzkalandS
árið 1956.
Umsóknir um styrkinn send-
ist menntamálaráðuneytinu fyr
ir 20. nóvember næstkomandi,
og mun ráðuneytið láta í té
sérstök eyðublöð undir umsókn
irnar. Ráðuneytið mun og veita
nánari upplýsingar varðandt
styrkveitingu þessa.
arleikhús í Sfokkhólmi
. í því verða tvö leiksvið og áheyreoda-
saiir, er rúma 1300 og 400 manns
SVÍAR ráðgera að reisa glæsilegt borgarleikhús í Stokk-
hólmi. í leikhúsi þessu verða tvö leiksvið: eitt aðalleiksvið md
áheyrendasal, sem á að rúma 1300 manns í sæti, og æfingarleile
svið og verða þar sæti fyrir 400 manns. Áætlað er að bygging
þessi muni kosta um 30 milljónir sænskra króna, og að b.vgg-
ingu hennar verði lokið árið 1961.
Leikhúsinu hefur verið valin
staður á suðurbökkum Lagar-
ins, en þar er eitt hið fegursta
útsýn yfir Stokkhólmsborg.
Á eftstu hæð leikhúsins verður
salur fyrir listsýningar og hljóm
leika, en í kjallara leikhúsins
verður bílastæði fyrir leikliús-
gesti. Fastráðnir leikarar við
leikhúsið verða 40 og auk þess
fjórir fastráðnir leikstjórar. _