Alþýðublaðið - 24.12.1955, Síða 10

Alþýðublaðið - 24.12.1955, Síða 10
sykur og kandís), skonrok, kex og kringlur. Þá var og kextegimd er kallað var keinakex, glerhart og bleytt- um við það með kaffinu, Smjör keypti faðir minn sjaldan, oftast margarine, nú kallast það smjörlíki. Oft fékk ég þetta í pappírspokum, en oft hafði ég líka með mér að keiman vasaklút eða kodda- ver, til þess að bera í heim, væri mér ætlað að taka mik- ið „út í reikning“, fékk ég með mér koddaverið. Það skeði að ég hafði kandíssyk- ur í sjóvettling. Almenning- ur.var þá ekki farinn að nota körfur, þótt það þekktist hjá „betra“ fólki Og af því ég nefndi sjóvettlinga, þá minn- ist ég þess, að þeir voru verzl- unarvara þá, og eru kannske ennþá. Ég þekkti gamla konu á Bergstaðastígnum, og kom það fyrir, að hún bæði mig að selja fyrir sig vettlinga, £em hún hafði prjónað. Ég Æeldi þá oftast hjá Geir Zoega og fékk 12—15 aura frir par- ið. Þetta þætti lítið nú, en gott verð þá. Vettlingarnir voru gríðar stórir og úr grófri ull. Mér var oft ekki um þessar ferðir fyrir föður minn, olli því oft leti, en þó ekki síður hitt, að allt var tekið „út í reikning“ hjá kaupmanni. Flest vinna var þá greidd í vörum, menn fengu sjaldan peninga, þó það hafi komið fyrir. Faðir minn mun ekki ávallt hafa fylgst vel með um það, hvernig reikningar hans stæðu hjá hinum ýmsu kaup- mönnum, en lét „taka út“ vörur, meðan því var ekki hafnað. Það g'at því verið far- ið að hallast á gjaldaliðinn, án þess að hann hefði tekið eftir því. Þannig man ég eftir því einu sinni, í þessum vöru- kaupum fyrir hann, að mér var fremur illa tekið — mér var neitað um flest af því, sem faðir minn hafði ætlað mér að „taka út“ í það sinn. Blóðið hljóp méi' til höf- uðs, búðin var full af fólki —• mér þótti minnkun að þessu. Ég stóð grafkyrr augnablik, en svo runnu tárin niður kinnar mér, og ég’ þaut út úr búðinni! Ég hefi sótt mörg lísi- pund af kolum fyrir föður minn, borið þau heim á hryggnum eða ekið þeim heim í hjólbörum. Líka hefi ég margan pottinn sótt fyrir hann af steinolíu, stundum keypti hann aðeins þrjá pela á flösku. Ynni faðir minn við upp- skipun við höfnina, sem ekki kom sjaldan fyrir, varð oft- ast að færa honum matinn. Síst var að tala um þægindi við slíka máltíð eða kræsing- ar í mat. Stundum setti hann sig inn í eitthvert pakkhús við höfnina, eða sat á tunnu eða bara steini. Maturinn var soðinn fiskur og kartöflur á diski, kalt eða þá hálfkalt kaffi á þriggja pela flösku, stundum var sokkur hafður um flöskuna til að halda kaff- inu lengur heitu. Oft flæktist ég á drengja- árum mínum hingað og þang- að um bæinn og kom þá fyrir, að einhver bæði mig að hlaupa erindi fyrir sig, í búð eða eitthvað annað, en fékk sjáldan nokkuð fyrir það. Einu sinni var ég á rangli í Templarasundi, fyrir fram- an Templarahúsið. Þar var þá leikið, líklega af Leikfélagi Reykjavíkur, en líka geta það hafa verið templarar. ^lðnó" var þá enn ekki byggt. I miðj- um leik mínum þarna við húsið, kemur kvenmaður 10 ÉG KOM RÖLTANDI á eftir kúnum niður eftir árbökkun- um í hlýju sumarkvöldsins, berfættur með brúna skúf- húfu, sem móðir mín hafði heklað handa mér. I hendinni hélt ég á písk til að hotta á kýrnar, sem lötruðu rólegar og jórtrandi heim til mjaltá. Umhverfis sungu spóarnir úti yfir enginu, og blóðbergið ilmaði upp úr sandinum. En austan frá blikandi ánni heyrðist áraglamur og hróp selveiðimannanna. Sumir bændanna reru, en aðrir stóðu úti í miðjum straumn- um í vatni upp undir hendur og ráku kópana eins og fé í reknótina. Þar voru þeir rot- aðir með þungum kylfum, en síðan skorið í háls þeim, svo’ að vatnið í bátunum litaðist af þeirra unga blóði. — En hér voru hálfsoltnir, harð- vítugir náttúrumenn að verki, og það var- engin miskunn hjá Magnúsi. Afkoman var erfið og kaupmaðurinn heimtaði sitt, en þó var síð- asta plágan verst. Það voru sem sé komnir Mormónar í sveitina. Þeir töluðu um ein- hvern Jósef Smith, er þeir líktu við Krist, buðu bænd- um að eignast margar konur og vildu helzt láta þá flytja af landi burt til hins heilaga staðar Salt Lake City í Utah. Menn áttuðu sig ekki al- mennilega á, hvar sá staður var. Bara vissu þeir, að það var einhversstaðar hinum megin við hafið og' að þar var heiðríkt veður og gott að vera. Þó að ég væri ekki nema 9 ára gamall var ég þó mest hrifinn af því, að þar máttu menn eiga margar kon- ur af ýmsum þjóðum. Svo rakst ég á tvo dökk- klædda menn. Þeir komu á eftir mér niður með ánni með gular leðurtöskur í höndum, fullar af prentuðum, leynd- ardómsfullum Mormónabók- um. Þeir klappa mér á koll- inn og tala íslenzku með annarlegum hljóm. Þeir fylgj- ast með mér heim að bænum og bjóða foreldrum mínum Mormónabækurnar til kaups með gjafverði, meðan þeir tala um Jesú Krist, þúsund ára ríkið og Jósef Smith, en foreldrar mínir álíta þetta villutrú og vilja ekkert sinna hvatlega út frá Templarahús- inu, fær aug'a á mig og segir: „Drengur minn! Getur þú skröppið fyrir mig heim til mín á Amtmannsstíg, og beð- ið móður mína að gefa þér „rulluna“ mína!“ „Rulluna“? segi ég, „get ég borið hana?“ „Borið hana? Þetta er lítil bók, sem þú getur haft í vasa þínum! Flýttu þér nú!“ Þetta var Gunnþórunn Halldórsdóttir, leikkona. • Ég þekkti þá ekki orðið „rulla“ yfir annað en „tau- rullu“, og þekkti þá líka svo vel það fyrirbrigði, að ég vissi, að það var ekki nein léttavara, sem hægt var að hafa í vasa sínum. Hafði svo oft verið með að „rulla“ í kjallaranum hjá Jóni Jens- syni, Þmgholtsstræti 27, og vissi því hvað það var. 'Œdtir ges Eftir ísleif Sigurjónsson ÍSLEIFUR SIGURJÓNSSON fæddist í Skálholti í Biskups- tungum 14. nóvem-ber 1896, en -fluttist ungur að Efri-Sýrlæ-k í Flóa og ólst þar upp fram yfir fermingu. Þa’ðan eru svip- myndir þær, -er hann bregSur upp í þeim endurminningum sínum, sem hér -birtast. — ísleifur var um sinn við nám í Kennaraskólanum -og Flensbor.g, en -síðár í Askóv o.g E»en Internationale Höjskole í Helsingör. Siðasíliðin 20 ár hefur hann átt heima í Kaupmalinahöfn. bókum þeirrá. En ég er þeg- ar orðinn á öðru máli — og þegar þeir kveðja morg'uninn eftir, óska ég þess í kyrrþey, að ég væri orðinn stór, svo að ég gæti orðið Mormóni, farið til hins fjarlæga sólar- lands, sem þeir kalla Utah og eignazt margar konur af ýmsum þjóðum. Ég stalst í laumi til að lesa lítið Mor- mónakver, sem þeir höfðu gefið fyrir gistinguna. Næsta sunnudag á eftir töluðu préstarnir á stólnum aðvÖrunarorð. Þeii’ vöruðu sauðsaklaust og fáfrótt fólkið við villutrú þessari, sem vildi tæla fólkið burt úr landinu og svipta þjóðina allri von um sáluhjálp. Síðar hefur þó sag- an sýnt, að Mormónar eru myndarfólk í fyrirmyndar- landi. Einn af þessum sáluhjálp- arbrautryðjendum æsku dagá minna var Niels Anderson, sænskur að ætt og' uppruna, útsendari frá ritstjóranum og trúboðanum Davíð Östlund, sem gaf út aðventistablaðið Frækornið í Reykjavík fyrir mörgum árum. Það var eitt sumarkvöld, er ég kom heim frá smala- mennsku, að ég sá tjóðraðan hest rétt fyrir utan túnið, en þannig lagaða meðferð á hest- um hafði ég' aldrei séð. Þegar ég kom heim, sá ég risastór- an, ljóshærðan mann bisa við töskur sínar og reiðtygi úti í hlaðvarpaiium. Ég' heyrði hann tala á einhverju syngj- andi máli til heimafólksins, og var mér strax ljóst, að hér var einn Biblíu- og guðsorða- bókasalinn á ferðinni. Eftir að hann hafði boðið bækur sínar óg blöð til kaups, var honum boðið að vera, því að liðið var að kvöldi. Sagði hann oklcur margt af lífi æskuára sinna yfir í Svíþjóð, því að hann talaði nokkurn veginn íslenzku og var með afbrigðum lipur maður og’ al- úðlegur. „Hér er svo rólegt“, sagði hann, „að hér gæti ég unað alla mína dagá, ef ég hefði ekki meðtekið andann, skírn- ina og helgihald laugardags- ins, er drottinn hvíldist á við endi sköpunarverksins, og væru þessar grundir komnar yfir til Svíþjóðar, væru þær allar plægðar upp og gerðar að kartöflugörðum og bylgj- andi kornökrum. Þið eigið gott að eiga þetta víðfeðma land fyrir bændur komandi kynslóða“. Um morguninn tíndi hann saman stóran blómvönd af baldursbrá, sem hann sagði að minnti sig á æskudagana í Svíþjóð. Líka teiknaði hann blýantsmynd af uppáhalds- kettinum okkar, sem einatt fylgdi okkur bræðrunum sem ísleifiir Sigiirjótisson. tryggur hundur um árbakk- ana á fuglaveiðum, þegar vel viðraði. Svo kvaddi Bóka-Niels. Hann borgaði næturgreiðann með stórri bók í grænu bandi. Hún hét: „Spádómar frelsar- ans“. Hann sté á bak hesti sínum og hvarf á bvaut, far- andpostuli fyrir þeim alþjóð- lega trúarflokki, sem Sjöundadags aðventistar eru, en þeir finnast í öllum álfum heims og em alls staðar fyrir- myndarmenn. Geislabrot uin Guðmund gamla Idki. Það yar liðið fram í marz- mánuð. Hvítar fannbreiður þökktu skjóllausa flatneskj- una. Fjöllin í fjarska litu út eins og hvítár skýjaborgir undir frosthörðum himni í skafi’énningsstormi útmán- aða kuldans. Þjórsá var ein ísbreiða, alsett hvítum fönn- um og bláum svellbungum, sem tóku í sig traustabresti með þungum dunum, líkt og fallbyssuskot í fjarska. Hér og þar fram með ánni kúrðu bæirnir, hálfgrafnir undir snjó í klakadróma vetrarins. Lífið virtist einangra sig í kuldanum, þótt áin væri nú ekki lengur neinn landa- mæravörður milli aðskilinna sveita. Einn var sá, er ekki lét kuldann hefta sínar húsvitj- anir. Það var Gvendur kíkir, enda var gangfæri gott. Gamall maður, hár og grannur, fölur yfirlitum og þoginn í baki, en með form- fínt höfuð, sem minnti á nor- rænan höfðingja eða fágaðan þstamann, kom niður eftir ái’bökkunum í bylkófinu. Hann bar strigapoka á löng- um göngustaf með broddi í öðrum enda, hinni svonefndu vatnastöng, er minnti á spjót forfeðranna. Hann var klæddur í gamlan, gráan frakka, karbættan. Um mittið hafði hann gamla söðulgjörð, A fótum bar hann gráa tog- tir sokka og grófa leðurskó utan* yfir. Buxumar voru gyrtar niður í sokkana. Heildar svip- urinn myndrænn og her- mannlegur. Minnti hann á Friðþjóf Nansen norðurfara, er mjög var umtalaður og myndir birtar af um þessar mundir, en þetta mun hafa verið um 1907. Með einu oroi sagt: Aúðséð var á Guð- mundi, að hann var af eld- fornum ættstofni og eitthvað í svipnum, sem minnti á sigr- aðan hershöfðingja. Nú kom hann inn í baðstofuna til okkar, hélaður og hálfkalinn utan úr frostinu, og baðst gistingar. Eftir að hann haíði borðað um kvöldið heita kjötsúpu, þiðnaði gamli maðurinn upp, dró augað í pung, tók í nefiö og sagði sögur frá fjarlægum sveitum eða ræddi um ná- ungann á næstu bæjum, þar sem hann hafði gist. Var hann bæði biíurorður og hæðinn, frásagnarsnillmgur án þess að hann eiginlega vissi það sjálfur eða fólk veitti því sérstaka eítirtekt, Lék hann vanalega persón- umar um leið og hann lýsti þeim og hermdi eftir að sama skapi. Morguninn eftir fór hann f útigangskuflinn sinn á ný„ borðaði morgunverð og var í bezta skapi. Bað karl migy að fylgja sér úr garði, þótt ungur væri, og leyfði móðir mín það. Við gengum frá bænum yfir hvítar hjarn- breiðurnar í gliti miðdags- sólarinnar, og fylgdi ég hon- um út á miðja ána í áttina að Sandhólaferju, Ég bar annað veifið fyrir hann pokann, því að Guðmundur mun hafa verið um sjötugt og farinn að þreytast á förumannsbraut- inni gegnum lífið. Þegar hann kvaddi mig, klappaði hann á kollinn á mér og bað guð launa mér greiðann. I fjarska dundu frosthrestir og íhellan titraði í krampáteygjum hins komandi vors. Sigurgeir skakki. Það var jólaföstukvöld, Blákalt náttmyrkrið huldi landið. Regnið lamdi á hurð- unum með ljósagangi og þrumugný milli skörpustu hryðjanna, Sunnan frá haf- inu og austan frá ánni heyrð- ist öldugnýr í fjarska. Við vorum nýbúin að borða kvöldverð, og allt heimafólk- ið sat í baðstofunni, upptekið við sögulestur eða handa- vinnu, og virtist njóta lífsins í matardvala heimilisværðar- innar, meðan hrikti í stoðum og sperrum undan stormi skammdegisnæturinnar. „Það er illfært á landi hvað þá á sjó í svona veðri“, sagði gam- all maður, um leið og hann stakk hornspæni milli súðar og sperrukjálka yfir rúmi sínu. „Já, bara, að það verði ekki togarastrand og mannskaði eins og á Fljótshólafjöru fyr- ir tveimur árum“, svaraði stúlka, er sat á rúmi sínu við spunarokk skammt frá hon- um, meðan steinolíulampirm Framhald á bls. 19. ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.