Tíminn - 02.03.1965, Qupperneq 12
12
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. marz 1965
Rangers gekk illa
með St. Mirren
— en möguleikar líösins hafa nú aukizt.
Alf—Reykjavík, mánudag.
Merkileg árslit urflu í Skotlandi í 1. deild s.l. laugardiag, en þá
töpuðu öll „toppliðin” stigum. Og Hearts, sem er í efsta sæti,
mátti gera sér að góðu að tapa 1:7' á heimavelli. Við þessi úrslit
aukast möguleikar Rangers, sem vann St. Mirren á heimavelli 1:0.
Þórólfur lék með og átti þátt í miarkinu, en það kom eftir samleik
hans og Forrest, en Wood rak endahnútinn. Þórólfur meiddist
snemma í leiknum og lék eftir það á kantinum .
VALUR I
1. DEILD
Um helgina fóru fram þrír leik-
ir í 2. deild íslandsmótsins í hand
knattleik. Valur og Akureyri mætt
ust á laugardagskvöld, og sigraði
Valur með 31:19. Byrjunin hjá
Akureyri var góð, 4:0, en Vals-
menn áttu eftir að átta sig á hlut-
unum, og áttu þeir góðan siðari
hálfieik.
Með þessum sigri hefur Valur
tryggr. sér sæti í 1. deild á næsta
keppnistímabili, þótt svo að liðið
eigi eftir að leika þrjá leiki.
Önnur úrslit urðu þau, að Kefla-
vik og Þróttur gerðu jafntefli,
25:25. Og á sunnudagskvöld sigr-
aði ÍR Akureyri með 39:34.
Annars átti Rangers í miklum
erfiðleikum og mátti raunar þakka
fyrir að hljóta bæði stigin. St.
Mirren átti góðan fyrri hálfleik
og var þá óheppið að skora ekki,
átti m.a. skot í stöng. — Rangers
hefur nú 31 stig eftir 23 leiki, en
Hearts í efsta sæti er með 37
stig eftir 26 leiki .
Á Englandi hefur Chelsea nú
forystu eftir sigur gegn Stoke,
en Leeds gerði jafntefli við Totten- j
ham. Manehester Utd. átti ekki í j
erfiðlei'kum með Úlfana á heima-!
velli og vann 3:0. í 2. deild tap- j
aði Newcastle fyrir Bury, — og j
eykur það spennuna varðandi j
stöðu efstu liða.
Hér koma úrslitin:
1. deild:
Birmingham—Sheffield W. 0:
Burnley—Arsenal 2:
Everton—Blaokpool 0:
— Skrifa'ðu nafnið þift fyrir mig. Þarna hópast skozkir drengi
gegn St. Mirren á Ibrox s.l. laugardag. Þannig gengur þetta fyrir
leikur hefst og eftir leik, þá hópast unglr drengir að loikmönnum
um eiginhandaráritun. Og eftir myndinni hér að ofan að dæma
vera óspar á að skrifa nafnið sitt fyrir drengina.
r í kringum Þórólf Beck fyrir leikinn
sig í sambandi við hvern leik. Áður en
frægustu knattspyrnuliðanna og biðja þá
virðist Þórólfur hafa nóg að gera — og
Fulham—Sunderland
Manchester Utd.—Wolves
Nottingham F.— Leicester
Sheffield Utd.— Blackbum
Stoke—Chelsea
Tottenham—Leeds
WBA—Aston Villa
West Ham—Liverpool
Mynijln að ofan er frá leik Rangers oq St. Mirren. Þarna er Þórólfur Beck í baráttu um knöttinn.
Unglingalandslið gengst
fyrir ,*bítlatónieikum“!
— í f|áröflunarskyni. í Kvöld leika pilfarnir gegn úrvalsliöi HSÍ.
Alf—Reykjavflc, mánudag.
Piltamir í unglingalandslið-
inu í handknattleik fara inn á
nýstárlega braut í fjáröflunar
skyni vegna utaníarar liðsins
á næstunni, en sem kunnugt er,
þá tekur liðið þátt í Norður-
landamótinu, sem haldið verður
í Danmörku. Piltamir standa
nefnilega fyrir „bítlatónleik-
um” n.k. fimmtudagskvöld i
Austurbæjarbíói, — og hafa
fcngið fimm kunmar iunlendar
hljómsveitir tii að koma fram,
Hljóma frá Keflavík, Tóna,
Tempó, Sóló og Toxic, en
kynnir verður Ómar Ragnars-
son.
Piltarnir hafa undirbúið þetta
algerlega sjálfir, og hafa fyrr-
greindar hljómsveitir komið til
liðs við þá og ætla að leika
endurgjaldslaust. Hvers vegna
fara piltarnir út í þetta fyrir-
tæki? Skýringin er sú, að á
undanförnum árum hefur eina
fjáröflunarleiðin verið sú að
safna auglýsingum í leikskrá,
en það er bæði leiðinlegt starf
og tímafrekt. Og nú á sem sé
að reyna þetta. Þá má geta þess
a® á þriðjudagskvöld (þ.e. í
kvöld) fer fram leikur að Há-
logalandi milli unglingalands-
Iiðs og úrvialsliðs HSÍ, auk
leiks milli Fram og Ármanns,
og rennur allur ágóði tiJ styrkt
ar unglingalandsliðinu.
Er sérstök ástæða til að
hvetja fólk til að koma að Há-
logalandi og styrkja þannig
piltana. Líklega þarf ekki að
hvetja neinn til að sækja „bítla
tónléikana”, sem verða kl. 7.15
og 11.30 á fimmtudagskvöld í
Austurbæjarbíói, — þar verð-
ur örugglega fullt hús í bæði
skiptin.
2.deild:
B olton—N orwich
Cardiff—Swindon
Coventry—Portsmouth
Huddersfield—Manch. C.
I pswich—Swansea
Middlesb.—Crystal Palace
Newcastle—Bury
Nothampton—Leyton
herham
"Vreston—Derby
Southampton—Charlton
5:2
2:0
1:2
1:0
3:0
0:0
2:3
2:0
1:1
2:2
4:0
Urslit á Skotlandi:
Aberdeen—Dunfermline 2:2
Celtic—Kilmamock 2:0
Dundee Utd.—Airdrie 3:2
Hearts—Dundee 1:7
Morton—Hibemian 3:2
Motherwell—Partick 0:2
Rangers—St. Mirren 1:0
St. Johnstone—Clyde 1:0
T. Lanark—Falkirk 1:2
Berjast Víkingur og
Ármann á botninum?
Haukar sigruöu Armann örugglega 28:16, og
hafa hlotiö 5 stig. FH vann Víking 31:15.
Alf—Reykjavík, mánudag
Ef verðlauna ætti cittlivert 1. deildar-liðanna í handknatt-
leik fyrir mestar framfarir á keppnistímabilinu, myndu Hauk-
ar frá Hafnarfirði tvímælaíaust verða fyrir valinu. Byrjunin
hjá Haukum í íslandsmótinu var mjög slæm og benti ein-
dregið til þess, að liðið myndi glata sætinu í 1 .deild, enda
föpuðust ailir fyrstu leikirnír. En nú hafa Haukar snúið far-
kosti sínum í þveröfuga átt og stefna burt af hættusvæðinu.
Og á sunnudagskvöld unnu Hauk
ar þýðingarmikinn sigur gegn Ár-
manni, 28:16 ,sem færir liðinu 2
dýrmæt stig. Hafa Haukar nú hlot
ið 5 stig, — og skilið Ármann og
Víking eftir á botninum. Era vax
andi líkur fyrir því, að fallbar-
áttan lendi á herðum Ármenninga
og Víkinga, en kannski er þó of
snemmt að spá nokkru um það, því
allt getur gerzt í hinum óútreikn-
anlega handknattleik.
Haukar mættu mjög ákveðnir
til leiks gegn Ármenningum á
sunnudagskvöld, og komu allan
tímann fyrir sjónir sem sterkari
aðilinn í viðureignini. Viðar Sím-
onarson og Þórður náðu á skömm
um tíma 2:0 fyrir Hauka, en Hörð-
ur Kristinsson jafnaði með víta-
köstum. Fyrstu mín. voru eini kafli
leiksins, sem hægt er að tala um
jafna viðureígn. Eftir þetta fór
Hafnarfjarðarliðið fyrir alvöru af
stað, og bilið jókst sífellt. í hálf-
leik var staðan 11:5, en þegar yfir
lauk var munurinn 12 mörk, 28:16.
í liði Hauka era margir efnilegir
leikmenn. Má þar nefna Þórð og
Sigurð Jóakimsson, einnig Viðar,
en hann æfir ekki með liðinu, þar
Framhald á 14. síðu.
Valdimar og
Jakobína Rvík-
urmeistarar
Reykjavíkurmótið í 'svigi var
háð í Bláfjöllum s.l. sunnudag.
Úrslit urðu þau í karlaflokki, að
Valdimar Örnólfsson varð Reykia
víkurmeistari, en í kvennaflokki
Jiakobína Jakobsdóttir. — Nánar
um mótið á síðunni á morgun.