Tíminn - 25.03.1965, Qupperneq 1
ísinn dunar
• 'i'i'ii'ifiMiittáriTifiBíir r - i iíinrnmiyhi
af öskrum
bjarndýra
MB—Reykjavík, miðvikudag.
f dag heyrðust greinilog bjarn
dýrsöskur frá Mánarbakka á Tjör
nesi og virtust þau koma skammt
frá landi. Virðist því bersýnilegt
að ísbirnir hafist við á ísnum fyr
ir norðan, enda þarf það engum
að koma á óvart eftir reynslu fyrri
ísára. Má því hvenær sem er bú-
ast við því að ísbimir geri vart
við sig í mannabyggðum nyrðra og
vissara fyrir ibúa þar að vera við
öllu búnir.
Blaðið átti í kvöld tal við Aðal
geir Egilsson á Mánarbakka og
sagðist honum svo frá:
Kári Jónasson, blaðamaður við
Tímann, var fyrr en nokkurn
varði kominn í jeppa upp á há-
bungu Langjökuls nú fyrir
skömmu. Hann hafði verið send-
nr upp á jökulinn til að tala við
og taka myndir af þýzkum kvik-
myndaleikurum. Vinnufélögum
Kára á Tímanum þótti 'hlýða að
taka á móti iöklafaranum með
rjómatertU/ sem var eftirlíking af
jöklinnm og rauður jeppi efst.
Hér er Kári að skera tertuna, en
á bls. 6—7 í dag skrifar hann um
jökulferðina.
— Við erum búnir að heyra
þessi öskur nokkrum sinnum í
dag, í fyrsta skipti milli klukkan
þrjú og hálf fjögur og síðast klukk
an rúmlega fjögur. Okkur virtust
öskrin koma örskammt frá, en
hæg norðan gola var á, svo öskrin
gátu borizt langt að, en sagt er
að þau heyrist ótrúlega langt að,
ef veðurskilyrði eru þannig. Við
vorum á göngu hér austur með
sjó í leit að minkum, þegar við
heyrðum öskrin. Með mér var
Þórður Pétursson minkaeyðir frá
Húsavík og piltur þaðan. Ástæðan
fyrir ferð okkar var sú, að hér
sást í gær slóð eftir mink og ætl
uðum við að drepa hann.
— Hverju líktust þessi öskur?
— Ef ég á að miða þau við ein-
hver dýrahljóð, sem ég hefi áður
heyrt, þá voru þau einna líkust
dimmu nautsöskri, nema öllu
hljómmeiri, og einstaka sinnum
brá fyrir eins og góli.
— Við héldum heim, skömmu
eftir að við heyrðum öskrin, en
fórum svo aftur austur með í von
um að heyra meira og getá betur
áttað okkur á þessu en komum
heím í rökkrinu, án þess að verða
neins varir.
Framhald á 11. síðu.
FRELSISGÚNGUNNILAUKIGÆR
E.J.-Reykjavík, miðvikudag.
í rigningu í kvöld kom frelsis
gangan svonefnda til Montgo-
mery í Alabama eftir að hafa
gengið 80 km leið frá Selma
með dr. Martin Luther King,
friðarverðlaunahafa, og Ralph
Bunche, aðstoðarframkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, í
fararbroddi. 4000 hermenn úr
þjóðvarðaliði Alabamaríkis
vernduðu göngumennina á leið
þeirra samkvæmt skipun
Bandaríkjastjórnar, eins og
sést hér á myndinni. Gangan
gekk mjög friðsamlega fyrir
sig, en á einstaka stað hrópaði
þó hvítur múgur haturs- og
ókvæðisorðum að göngumönn-
um.
Aðeins um 300 manns gengu
mestan hluta leiðarinnar.
Það kom þó ekki til af
því að fleiri hefðu ekki feng-
izt í gönguna, heldur vegna
þess, að dómstóll einn í Ala-
bama bannaði fleirum að ganga
alla leið vegna umferðarörygg-
is á þjóðveginum. Um 5000
manns gekk fyrsta daginn.
Þegar göngumenn komu inn til
Montgomery í kvöld var úr-
hellisrigning, en þeir létu það
ekki á sig fá, heldur héidu
ótrauðir áfram og báru fána
sína hátt.
Baráttumenn fyrir jafnrétti
í Alabama höfðu tvisvar sinn-
um áður reynt að fara í göngu
til Montgomery frá Selma, en í
bæði skiptin stöðvaði lögregl-
an þá, í fyrra skiptið af mikilli
grimmd.
Höfrungavaða drapst í
hafísnum við Þórshöfn
KJ-Reykiavík, míðvikudag.
f gærkvöldi voru þrír menn frá
Þórshöfn á ferð úti á Sauðanesi,
skammt utan við Þórshöfn, og
komu þá auga á höfrungahóp, sem
var innilokaður í ísnum skammt
undan landi, og lét all ófriðlega.
f morgun fóru svo menn frá Þórs
höfn tii að huga að höfrungunum,
skutu þeir og skáru ellefu höfr-
unga, en það sem eftir \ar drapst
í vökinni og sökk.
Tíminn hafði í kvöld tal af
Gunnlaugi Sigvaldasyni verzlunar
manni á Þórshöfn, en hann og Gísli
Pétursson kaupfélagsstjóri fóru
strax út að vökinni í gærkveldi
þegar fréttist um höfrungana.
— Við fórum í gærkveldi út á
Sauðanes, sem er skammt fyrir ut
an Þórshöfn, strax og fréttist um
að höfrungahópurinn væri þar
innilokaður í vökinni Staðurinn
þar sem höfrungarnir lokuðust
inni er um einn kílómetra utan
við flugvöllinn, og um 150 metra
frá fjöruborðinu. Þegar víð kom
um þangað út eftir blasti við okk
ur heldur óhugnanleg sjón, og
mikil óhljóð bárust að eyrum
okkar. Höfrungarnir, um 40—50
að tölu börðust um í vökinni. og
strokkuðu upp og niður. ísinn í
kringum vökina var þá þegar orð
inn blóðlitaður, og lágu þrír þá
dauðir á ísnum sem höfðu stokkið
upp á hann og orðið þar til.
Kraumaði þarna eins og í potti,
og gufu lagði úr vökinni vegna
hamagangsins í höfrungunum.
— í morgun fóru svo þrír
menn héðan frá Þórshöfn og
höfðu þeir smábát með sér til
þess að komast í gegnum ísskæn
una og út að vökínni. Voru þetta
þeir Gísli Pétursson kaupfélags-
stjóri, Jóhann Jónasson útgerðar
Framhald á 11. síðu
AÐALFUNDUR MIÐSTJÓRNAR HEFST Á MORGUN KL. 2.
Aðalfundur miðstiórnar Framsóknarflokksins hefst kl. 2 á morgun í félagsheimili flokksins,
Tjarnargötu 26. Áætlað er að fundurinn standi í þrjá daga. Fundurinn hefst með yfirlitsræðu
formanns, Eysteins Jónssonar, skýrslu ritara, EJelga Bergs, og skýrslu gjaldkera, Sigurjóns
Guðmundssonar. Auk miðstjórnarmanna eru boðaðir á fundinn, formenn kjördæmissam-
bandanna og ritstjórar allra flokksblaðanna.