Alþýðublaðið - 21.08.1957, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 21.08.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 21. ágúst 1957. Alþý^nbSaSiS 7 FINNSK LIST er ekki göm- ul. Sögulega séð var fyrst lagð- lir að henn;. grundvöllur, þegar listaféiagið’ var stofnað í Hels- ingfois árið 1846. Félagið leysti öll þau vandamál, sem ríkið er annars vant að leysa, kom til dæmis upp listaskóla og sýn- ingarsölum, og að síðustu reisti það 1888 listasafnið Atheneum í Helsingfors. Flestir finnskir málarar hafa leitað sér menntunar í Þýzka- landi og Frakklandi, og hafa þeir flutt með sér heim listræn áhrif þaðan. Meðal hinna fyrstu, er vann sér frægð sem listmálari, var Gustav Verner Hohnberg (1830—1860), sem þrátt fyrir stutta ævi hafði .mikilvæg og vekjandi áhrif á samtíð sína í Finnlandi. Hann gekk á listaskóla-nn í Dússel- •dorff og bar þess vott alla daga, en þrátt fyrir þetta er það þó fyrst og fremst andlit Finn- lands, sem maður sér í list hans. Vinsælastur varð hann fyrir málverkið: „Söngur hinna finnsku skóga“, og vakti það .ekki aðeins eftirtekt meðal inálara, heldur og hjá almenn- Ingi, sem skynjaði í listaverk- inu ævintýrasvip finnskrar máttúru. Olfuprentun gerð eftir þessu málverki prýðir mörg finnsk heimili. — Annað þekkt- asta listaverk hans er „Haust- morgunn", og hlaut hann fyrir það gullmedalíu listaskólans í Dússeldorff. Auk þessa er nafn jhans tengt hinum frægu kalk- málverkum í dómkirkjunni í Ábo. Meðal þeirra, sem teljast mega tengiliðir milli finnskrar og franskrar málaralistar, er A1 bert Edeífeldt (1854—1905) frægastur. Það málverk, sem borið hefur nafn hans lengst, er af hinum fræga franska efna fræðingi Pasteur. Eftirlíkingar af því hafa borizt um allan heim. Myndin sýnir efnafræð- ínginn í tilraunastofu hans við rannsóknir. — A. Edelfeldt vann sér fyrst frægð fyrir mál- verkið „Blanka drottning“, sem sýnir unga og fallega konu með dálííinn dreng á hné sér. Einnig þetta málverk hefur náð mik- illi frægð. Það er oftast nær kallað ,,Að ríða á hné“. Hafa margir, bæði menn og konur, fundið í þessu listaverki endur- gjöf lífsins eða lýsingu á þeim Albert Edelfelt. dýrmætu augnalikum, er þeir sjálfir sátu með barn á hné sér og hossuðu því. Albert Edelfeldt hefur einn- ig málað fræg söguleg málverk, meðal þeirra „Karl hertoga hjá líki Klás Flemmingssonar". Það segir frá þeim atburði í sög- unni, þegar hertoginn stendur y-fir líki óvinar síns og rífur í skegg hans með þessum orðum: ,,Ef þú hefðir lifað nú, mundi íhöfuð þitt ekki lengur vera fast á kroppnum11. En ekkja Klás sem heyrði orð hans, svar- aði stolt: „E-f bóndi minn hefði lifað nú, væruð þér ekki kom- annað brenglað og hjákátlegt I fari manna. , Meðal myndhöggvara e£^alt er Runebarg (1838—1920), son- ur stórskáldsins fræga, hinn fyrsti, sem vert er að geta. Hann var undir sterkum áhrif- um af Bertel Thorvaldsen, en gerði þó tilraunir á öðru sviði en því klassíska. Meðal annars bjó hann til einkennilega högg- mynd, sem hami kallaði ..lil- marinen srníðar tung-lið“. Eftir nafninu að dæma hefur hann j þar viljað túlka atriði úr Kale- | valaóðnum. Þetta misheppnað- i ist þó algjörlcga. c-g hann bjó | heldur aldrei til fleiri myndir | af því tagi. Fiægastur varð | hann fyrir myndastyttuna ,,Finnland“. sem er reist föður hans, Myndastyttan sýnir unga stúlku, sem situr við fætur karlmannslíkneskju. Það er Finnland. sem hlustar iotning- arfullt á skáldmeistara sinn. Myndastyttan „Lögin“ túlkar einnig mikilvægan sannleika úr.eðli finnsku þjóðarinnar, því a ðhjá henni hafa lögin aliíaf verið í hávegum höfð. Á torg- inu fvrir framan stórkirkjúna í Helsingfors er mikil stytta eft : ir hann af Alexander II. Rússa- ' keisara. Það er víst einasta stytt an,. sem til er af rússneskum ; keisara. í Rússlandi voru þær 1 allar eyðilagðar eftir bylting- Mynd þessi vav tekin á 85 ára afmæli Jean Sibeliusar. Paasikivi frv. Finnlands- forseti er þar í heimsókn hjá tónskáldinu. B jarni M. Gíslason: inn inn fyrir vorar hallardvr“. Málverkið er þróttmikið í litun- um. Tungumál sögunnar verður áhrifameira á léreftinu. Albert Edelfeldt vann sér þó ekki mesta frægð fyrir söguleg málverk, heldur fyrir andlits- myndir af ýmsum heimskunn- um stórhöfðingjum, sem fengu hann til að mála sig, og svo fyr ir stórbrotin málverk af finnsk- ri náttúru, einkum af strönd- inni og fiskimönnum, sem sigla hraðbyri í áttina til síns kæra Suomi (Finnlands). Þekkt ast af þessu tagi er „Á hafinu“. Eftir hann liggja einnig frægar teikningar af 'hinum mörgu, ein kennilegu fullhugum í skáld- verki Runebergs „Sögur Stáls merkisbera“. List hans hafði mikla þýðingu fyrir Finna. Hinn ferski og höfðinglegi blær hennar eyddi mörgum ímvnd- uðum drungaskýum. j Næstum allir þeir Finnar, sem beita penslinum við list- sköpun, eru dugandi andlits- málarar. Eero Jarnfeldt (1863— 1932), sem einnig er frægur mál ari, hefur eins og' A. Edelfeldt unnið sér frægð fyrir ýmsar andlitsmyndir, en þó mesta fyr- ir málverkin af náttúrunni. Ilm inn af Finnlandi, safaríkan og kjarnmikinn, hefur engum tek- izt að festa á léreftið sem hon- um. Það eru ekki sérstaklega litirnir, heldur sterk tilfinning af angan, sem gagntekur þann, er skoðar list hans. Frægast er málverkið „Á afviknum stað í skóginum", og sýnir það fólk, sem er að brenna skóginn. Það er gömul venja í Finnlandi að brenna tré og nota öskuna sem áburð. þessari frumstæðu rækt- unaraðferð lýsir hann á mál- verkinu, en þó fyrst og fremst náttúrubarninu sjálfu, sem frjálst og óháð stendur mitt í reyknum. Marga aðra málara, sem ó- tvírætt hafa tryggt sér virðu- legt sæti í listasögu Finnlands, mætti nefna, þar á meðal Pekka Hallonen, Anti Faven og Juho | Riissanen, sem allir hafa mál-1 að í sterkum, þjóðlegum litum, | djarft og fagurlega, en hér verð- um vér að láta oss nægja að staldra við Akseli Gallen-Kall- ela (1865—1919), þann mann, sem hefur haft sterkust áhrif á þjóðarvakningu Finnlands með málaralistinni. Eins og flestir finnskir lista- menn hófst hann upp úr fátækt. Hann byrjaði að mála landið og fólkið, bændur við erfiðisvinnu, eða þá sömu menn, þegar þeir leita sér hvíldar í dálitlum mið- degisblundi eða strjúka sterka líkamana hrísi í upphitunum, i gufufylltum baðstofum. Það er | margt í fari þessa fólks, sem | minnir á íslenzka bændur og sumargleði þeirra, þegar þeir taka sér í hönd tuggu af vel. verkaðri töðu og bera hana að vitum sér. — En það er einnig 1 vetur yfir myndum hans, þoka | og náttmyrkur. Þá situr maður- inn heima og kennir börnun- um að lesa við dálitla týru, eða við ljósglætuna. spm fellur inn um gluggann. Frá þessu segir í eitt af frægustu málverkum hans, „Fyrstu kennslutímarn-1 ir“. Frá hversdaffsleikanum og I stritinu við náttúruna hvarf hann til þjóðsagnanna. Hann er sá fyrsti, sem náði verulegum tökum á því að túlka persónur Kalevalaóðsins, og hefur hann með þeim listaverkum sínum gefið Finnum heilt þjóðminja- safn. Meðal annars hefur hann málað hina fögru Aino, þegar hinn gamli söngvari biður um ást hennar og hún leitar skjóls í bylgjum hafsins. Myndin er j eins og þungt andvarp örlag-1 anna. ITann hefur einnig málað myndina „Móðirin hjá líki i Lemminkaines", ímynd hinnar' finnsku ættmóður, sem með kærleika sínum sameinar þjóð- arlíkamann. Og á málverkinu „Stíðið um Sampo“, töframyllu menningarinnar, eru sterk á- tök um hamingjugullið. Það er sérkennilegur þjóðernisblær yf- ir öllum verkum hans, ekki sízt „Bölvun Kullervos“, sem hatursfullur kreppir hnefana gegn dularkyngi örlaganna. Þá er málverkið af „Joukahainen að baki Wáinámöinen11 eins og dimmur og ógnandi andardrátt- ur fláræðisins, sem leggur við hlustir til þess að geta svikið hin góðu öfl. Akseli Gallen-Kallela er með al mestu málara heimsins, hug- myndaríkur og mjög sjálfstæð- ur í lits sinni. Bylgjur þakklæt- is hafa flætt honum í fang frá þjóðinni, sem hann hefur haft áhrif á með margvíslegum hætti. Meðal annars hefur dá- lítið hús, sem hann lét byggja afsíðis inni í landinu og kallaði „Kallela“, verið gert að fyrir- mynd þjóðlegs byggingarstíls í Finnlandi. Auk þess hefur list hans auðgað og frjóvgað marga málara, einkum Hugo Simberg, :-sem aldrei hefur þó náð tök á þjóðsögunum Kalevalaóðsins, sem á hinn bóginn náð sérkenni legu valdi á því að afhjúpa draugatrú og djöflasýki eða Mikill listamaður er lí-ka Ro- bert Stigel (1852—1907), sem á sínum tíma vakti næstum einstæða eftirtekt með hinni kröftugu hópmynd „Skipbrots- menn“. Eftir að hafa þreytt sig á höggmyndastíl gullaldarinn- ar, bvrjaði hann á sögupersón- um Kalevalaóðsins, ög það fór fýrir honum eins og Akseli Gall en-Kallela, að beztu verk hans spruttu upp úr þeim jarðvegí. Hann lætur Wáinámöinen spila á kanteluna með glæsilegri frá- sagnarlist. Og myndastyttan „íllmarinen smíðar Sampo“, er einnig glöggt dæmi þess, hvern- ig þjóðarmeðvitundin vinnur úr efniviðnum. Robert Stigel var mörgum sinnum heiðraður fyr- ir list sína, meðal annars fékk hann listaverðlaun í Helsing- fors árið 1887 og gullmedalíu í París árið 1900. Kunnur meðal finnskra myr.c! höggvara er einnig Wille Wall- gren, sem hefur gert margar A. Gallen-Kallela. fallegar smámyndir úr silfri og silfri og bronsi, en mestur lista- maður í þessari grein er Vaino Aaltonen (f. 1894) sem þegar á bezta aldri hefur getið sér heimsfrægð. List hans er inn- blásin af einhverju, sem líkist styrkleika elztu myndagerðar, eilífðarþunga, alvöru, dýpt og hæð. Hann fylgir engu nýmóð- insgjálfri, heldur, er eins og all ir beztu listamenn Finna, þ.jóð- legur og trúr því, sem hann skil ur og þekkir. Hann hefur fund- ið það sem æðsta köllun sína að túlka þroskaferil andlegs lífs þjóðarinnar með því að höggva Framhald á 8. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.