Vísir - 24.12.1926, Blaðsíða 1

Vísir - 24.12.1926, Blaðsíða 1
Ritstjóri: „ STEINGRlMSSON. Simi: 1600. Prentsmiðjusimi: 1578. Afgreiðsla: ALSTRÆ Sími 400. Prentsmiðjusími: 1578. 16. ór. Föstudaginn 24. desember 1926. 301. tbl. Við jötuna í Betlehem. Guðspjallamaðurinn Lúkas segir oss í þessum kafla frá at- burðiun einnar nætur. Hann leiðir oss inn í fjárbyrgi í Betle- hem, leiðir oss upp að óásjálegri jötu og bendir oss á lítið barn, nýfætt, sveipað fátæklegum reif- um, liggjandi þar. Hann sýnir oss unga móður, sem þar hefir alið barnið. Ósegjanleg gleði skín af ásjónu hennar, því mað- ur er í heiminn borinn; hún horfir á Iþetta barn, undrandi, því þetta barn var æðra en öll önnur börn, og móðirin vissi það. Undrun hennar og gleði var því æðri en allra annara mæðra, sem börn hafa alið, því liún vissi að þetta barn var alveg á ein- stæðan hátt gefið henni, hún vissi að yfir þessu barni hvíldi sérstök velþóknun Guðs; það hafði engillinn sagt henni. Og hún trúði án þess að skilja og var glöð og sæl; hún vissi að vegna þessa barns myndu all- ar kynslóðir hana sæla segja. Tilbeiðsla og lotning og mikill fögnuður og lofgjörð hefir áreiðanlega búið í sál liinnar ungu meyjar og móður. Sömu lofsöngshljómarnir, sem fyltu sál hennar frá því, er hún í barnslegri undirgefni sagði: „Sjá, eg er axnbátt Drottins, verði mér eftir orði Iþínu!“, lof- söngshljómamir, er brutust fram, er hún sá Elísabetu og sagði: „Önd mín miklar Drott- in og andi minn hefir glaðst í Guði frelsara mínum,“ þessir lofsöngshljómar hafa áreiðan- lega bxiið i sál hennar nú, er þessi fyrirheitni sonur var fædd- ur. Svo sterka, svo himneska jólagleði hefir víst engin sál íundið nokkru sinni síðan. pessi sonur — hún vissi þegar nafn lians — var hennar milda jóla- gleði. Og nafn hans var J e s ú s, eins og hann var nefndur af englinum, áður en hann var get- inn í móðurlífi. Og ef vér eftir laðan guð- spjallamannsins göngurn í anda inn i byrgið, sjáum vér einnig Jósef standa þar hjá. Fyrir hann var þetta líka undursamleg nótt. Nú var sá svéinn fæddur, sem hann vissi að hafði æðri upp- runa en sérhvert annað jarðar- innar barn. Hann vissi að þessi J e s ú s, því einnig Jósef þekti þá þegar nafn hans, var gjöf Guðs öllu mannkyninu til handa. Og hvihk gleði, æðri allri föðurgleði, hlýtur að hafa fylt sál Jósefs, þvi hann vissi að sér var gefin tignarstaða af Guði, sú, að vera fósturfaðir þessa sveins. Hann átti að vera barninu faðir á jörð, vemda það og annast, vaka yfir hinum fyrstu árum þess á jörð, leiða það við hönd sér með fullum föðurréttindum og föðurskyld- um. Hann vissi að þessi sveinn var af lieilögum anda getinn, sonur Guðs. J?að hafði hann fengið að vita af englinum. Hann skildi ekki, hvað í þessu lá, en hann trúði og gladdist. Heilög jólagleði hlýtur að hafa fylt sál Jósefs á þeirri heilögu nótt. pegar vér eftir leiðsögn guð- spjallamannsins göngum inn i byrgið,, þá er það þó barnið sjálft, sem vekur mesta gleði og undrun hjá oss. par lá hann reif- aður, hinn nýfæddi sveinn, dá- samlegt barn fyrir andans aug- um vorum, sem vitum enn bet- ur og meira um hann en þau María og Jósef vissu þá. pau þurftu að vísu eigi að spyrja, hvað yrði úr þessum sveini, eins og spurt var við vöggu Jóhann- esar skírara, því þau vissu þeg- ar að hann átti að frelsa lýð- inn af syndum hans; þau viss'u að hann mundi verða mikill og verða kallaður sonur lúns hæsta. pau vissu að honum mundi gefið verða hásæti Daviðs, for- föður lians og að á hans ríki mundi enginn endir verða. En þau vissu ekki hvernig þetta myndi verða; þau trúðu og það var þeim nóg. En vér vitum nú livernig þetta varð. pegar vér í anda göngum inn að jötunni í Betlehem, sjáum vér ekki aðeins ungbarnið nýfætt, heldur hinn fullorðna mann, sem gekk um kring og kendi og gerði undur- samleg dásemdarverk, sjáum liinn lcrossfesta,, upprisna og himinfarna frelsara. — Vér vitum, hvernig hann hefir verið með lærisveinum sín- um í nítján aldir. Vér vit- um það sem þau María og Jósef ekki vissu þá, að hann er O r ð i ð, sem var í upphafi, O r ð i ð, sem var hjá Guði og var Guð. Vér þekkjum náðina hans, að hann, þótt hann rikur væri, gerðist fátækur vor vegna til þess að vér mættum auðgast af hans fátækt. Vér höfum reynt Eftir síra Friðrik Friðriksson. og vitum að hann er frelsari vor allra, sem trúum á hann. Vér, sem frelsaðir erum af hans óverðskulduðu náð, vitum að hann er sannur Guð af sönnum Guði getinn en ekki skapaður, ljós af ljósi, og upplýsir hvern mann, er til hans kemur. Vér trúum ásamt öllum Guðs sönnu börnum, að hann sé sameðlis Föðurnum og eitt með honum, svo að honum beri tilbeiðsla, lieiður og Iþakkargjörð. — Og er vér sökkvum anda vorum niður í þessa iliugun og göng- um svo imr að jötunni í Betle- hem, þá fögnum vér að þessi mikli sonur Guðs hefir tekið á sig vort hold og orðið sannur ínaður í öllu líkur oss, að synd- inni einni undanskilinni. Og það er fögnuður jólanna, fögnuður, sem þó ekki heyrir jólunum ein- um til, heldur öllum ársins dög- um. Sá sem þekkir Jesúm af eigin reynd, þekkir frelsið í hon- um og hefir tekið á móti hans fjTÍrgefandi náð, sá maður get- ur á hverjum morgni er hann rís úr rekkju sagt: 1 d a g e r m é r f r e I s a r i f æ d d u r. Sá maður getur mitt i sínu dag- lega verki, liversu annríkt sem hann á, allra snöggvast litið upp til himins og sagt: Guði sé lof, í d a g er mér frelsari fædd- ur. í andstreymi og bágindum, í sjúkdómum og þrengingum, í vonbi'igðum lífsins og sorgum þess, getur þessi vissa gefið huggun og styrk og frið; og hví- líkur kraftur er fólginn í þess- ari liugsun, þegar hinar xnarg- víslegu fi-eistingar ásækja mann; ef liinn trúaði maður getur að eins gefið sér ráðrúm til að segja við sjálfan sig þetta eina orð: „Mér er frelsari fæddur, hvernig gæti eg aðliafst slíka óhæfu og þá, sem þessi freisting vill fá mig til,“ já, þá er sigurinn unn- inn og afl freistingarinnar brot- ið á bak aftur. — Og hvílík hvöt til hins góða liggur einmitt í þessari vissu, máttug hvöt til þess að vanda alt sitt líf og fram- ferði fyrir aughti Guðs og manna, til þess að kappkosta af fremsta megni að hegða sér samboðið þessum dýrmæta fjár- sjóði, og þeirri tign, sem leiðir af því að hafa meðtekið Guðs son fæddan i hjarta sér. Eða þegar áliyggjur og kvíði legst þungt á lijartað, hversu núkill styrkur er þá fólginn í þeirri meðvitund. J?vi auðveldlega get- ur sá maður, sem á þessa vissu, dregið af henni þessa ályktun með postulanum: Hann sem ekki þyrmdi sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss alt með honum?“ Vér ályktum því þannig: Fyrst mér er frelsari fæddur, og af Guði gefinn mér, mundi hann þá spara hið minna við mig og gefa mér ekki á sínum rétta tíma alt það, sem eg i raun og veru þarf með, og gjöra þann enda á freistingunni að eg fái staðist. þetta er að eiga hina sifeldu ár- löngu jólagleði, þann daglega fögnuð, sem enginn skilur né skihð getur, nema sá einn, sem reynir hann. J?egar eg þvi sé trúaðan mann ganga niður- beygðan og gleðivana eins og öll heimsins mæða og byrði lægi á honum, þá get eg sagt með sjálfum mér: „pessi bróðir hef- ir gleymt í bili, að honum er frelsari fæddur; eg ætla að minna hann á það.“ pegar eg sé Krists Iærisvein xnjög niður- sokkinn i eftirsókn tímanlegra gæða og áfjáðan í gróða og hagnað, svo að hann g'leymir að gæta sálar sinnar, og vanrækir f jársjóðu náðarinnar, þá verð eg að segja: „pessi lærisveinn hef- ir núst sjónar á þeim gleðiboð- skap, að honum sé fxælsari fæddur.“ — Eða eg sé mann umsvifamikinn í stjórnmálum og algerlega niðursokkinn í flokkabaráttu svo að hann læt- ur öll andleg efni sitja á hakan- um, þá sé eg að annað hvort hef- ir hann gleymt þessu eða þá aldrei tekið á móti boðskapn- um: p j er er fi'elsari fæddur. — Eða eg heyri menn tala eða sé þá skrifa léttúðlega um trú- arefni og bera fram ahskonar getgátur og vafaspursmál imi opinberun Guðs í Kristi, og með- höndla guðsorð með virðingar- leysi eða i gremju eða með fíflslegum gárungahætti, þá ber mér ekki að reiðast honum né heldur undrast mikihega, þar sem það af tali hans eða skrif- um er ljóst að hann veit ekki, hvað hann er að fara með, hefir aldrei þekt þetta orð i raun og veru um hina undursamlegu fæðingu Guðs sonar, þótt hann kunni ef hl vill alt jólaguðspjall- ið utan að; það hefir þá aldrei verið meðtekið með hjartanu, og sá maður hefir aldrei getað reynt á sjálfum sér þetta orð: I dag er yður frelsari fæddur. pvi annars mundi hann ekki hafa talað né skrifað áþann veg. Mér ber þvi að hafa meðaumk- un með honum og kenna inni- lega í bi’jósti um hann, og biðja fyrir honum, að hann konúst til þekkingar á sannleikanum, og oss ber ef vér getum að færa þessum mönnum boðskapinn blátt áfram og afdráttarlaust, án þess að fara að deila við hann eða stælaumþað,semhann hefir ekkert vit á; — annað mál er það, að oss, sem reynsluna eigum, ber eins vel og vér get- um með þolinmæði og í mikilli einlægni að svara og rökræða í auðmýkt vafaspurningum og efasemdum leitandi sálar og greiða úr því með mikilli var- færni og með bæn um vísdóm. pað er annað, en þrætui og þjark við hrokafulla angurgapa, sem þykjast vera vitrir en aug- lýsa heimsku sína með þvi að geyja. þá hluti, sem þeir hafa ekki sjálfir reynt, og þykjast þó færir um að leggja úrskurð á. J?að væri fyrir neðan virðingu sjáandi manns að fara að deila um liti við blindfæddan mann. sem ekki vildi láta sannfærast eða þættist vita betur um litina en hinn sjáandi. En þú sem hefir mætt frels- ara þínum og hefir reynt á sjálf- um þér að fagnaðarerindið um Krist Jesúm, getinn af lieilögum anda, fæddan af Maríu mey, e r kraftur Guðs til sálu- h j á 1 p a r, og hefir verið það sjálfum þér, síðan þú mættir sjálfur hinum lifandi frelsara og komst til trúarinnar á hann, þú veist nú á hvern þú trúir og þarft ekki á vitnisburði annara að lialda; þú átt hina sönnu jóla- gleði; hún býr þér í hjarta og hún gerir þig sælan og sterkan að sama skapi senx þú lifir í henni. pú ált vissuna og þyrftir i rauninni enga sérstaka jóla- daga, þar sem alt árið eru þér jól. Sæll ert þú, þvi þú átt i trú þinni fulla vissu um náðarút- valningu þina og guðsbarnarétt þinn. Svo þarft þú ekki að ótt- ast eða hræðast neitt nema synd- ina og syndarrótina í sjálfum þér. pví þú veist að þú átt lífið

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.