Vísir - 24.12.1927, Page 5

Vísir - 24.12.1927, Page 5
V í S i H CLEÐILEGRA JÓLA óskar öllum s'mum viðskiftavinum Jón Hjcirtarson & Co. Morguninn eftir lagöi hann af stað og kvaöst ekki mundu fara Jengra en aö Gili þann daginn. Eg baÖ honum engra fararheilla. --o—■ Eg . svaf einn i kotinu þrjár nætur og þótti gott aö vera laus viÖ. Þorfinn. Þriöju nóttina, aö- iaranótt Þorláksmessu, ruku hundarnir upp meö urri og illum látum. Þóttist eg þá vita, aö fsak mundi kominn á næstu grös. Eg klæddist snemma þenna morgun, gekk til húsa og anna'ö- íst venjuleg morgunstörf. Síöan hreytti eg kúna og mataöist. Kýr- in var nytlág og skifti eg allri mjólkinni milli mín og hundanna. Þeir skildu ekkert í þessu örlæti og voru kátir og þakklátir. — Að því búnu tíndi eg saman alt mat- arkyns, ruddi þvi i búrkistu Stein- varar, skelti í lás og stakk lyklin- mn i vasann. Kistan var stór, traustlega járnbent og læsingin örugg, —Eg kveikti ekki upp eld jvann morgun og gætti þess vand- íega, aö ekkert matarkyns lægi á glámbekk neinssta'Öar í kotinu. En mér láðist aö taka magálana úr eldhúsrótinni. — Þessu næst hélt eg til húsanna á ný og hafði rakkana með mér. Eg lokaði ]vá inni i fjárhústótt, en var sjálfur á gægjum. —- Eg vonaðist fastlega eftir fsaki þenna dag og ætlaði honum að gripa i tómt heima. Dagurinn leið til rökkurs og enginn kom. Mér fór að leiðast biðin, en vildi þó ekki geíast upp. VeÖri var þann veg farið, að logn var hið neðra i dalnum, en vind- súgur og kóf til fjalla. Tungl óð i skýjum og rak' stundum fyrir en stundum frá. Mikil fönn var á jörðu og þung færð. Biðin var að verða óþolandi. Senn var liðið að dagsetri og eng- inn kominn. Samt ætlaði eg að Öoka við enn, fór inn i tótt og tók aö leysa til morgundagsins. Skömmu siðar gægðist eg út. Sá eg þá, að ísak var kominn í tún- fótinn. Staulaðist hann áfram, hægt og seint, og hafði skreppu mikla um öxl. Það var sagt urn ísak, að hann hefði aldrei sést pokalaus á ferð. Leið hans lá hjá fjárhúsunum. Eg stóð innan hurð- arinnar og gægðist út um rifu. ísak nam 'staðar við dyrnar og talaði hátt við sjálfan sig. Datt tnér þá í hug að gera honmn nokkura glettu og tók að blása þ>ungt og mæðilega. — ísaki brá svo við, að hann datt kvlliflatur og bað guð almáttugan að hjálpa •sér, en því var hann ekki vanur. Hann spratt upp þegar og hljóp sem fætur toguðu heim að bænum. Sá eg þá, að ísak var allra manna frástur á fæti, þeirra er eg hefi sóð hlaupa. Nú vissi eg ekki, hvað ísak mundi taka til bragðs, er liann hitti engan mann í bænum. Frá- leitt vissi hann neitt um það, hvernig ástatt væri uni fóstru mina, né heldur að Þorfinnur væri farínn að heiman. — Og svo hafði ■eg gert hann hræddan. Eg vissi að Isak var ákaflega mvrkfælinn. Ef til vill kvnni hann að rangla af stað, eitthvað út í náttmvrkrið, gefast upp og verða úti. Eg fylt- ist gremiu við siálfan mig og ein- 'hver þyngsla-geigur lagðist yfir sáí mína. Alt i einu mintist eg þess, að fóstra mín hefði sagt, að Xsak væri veiklaður á geðsmunum. Og á sama augnabliki þóttist eg viss um, að hann mundi verða brjálaður. Eg dokaði við og hugleiddi, hvað eg ætti nú til bragðs að taka. Mér þótti ófýsilegt að dveljast ollu lengur i húsunum og ])ó enn þá ófýsilegra, að fara heim og eíga von á að rekast á ísak band- vitlausan. Eg bjóst alls ekki við, að hann væri mitt meðfæri, er hann hefði mist vitið, þvi að fóstra niín hafði sagt mér, að vitstola menn fengi tvöfalt afl eða þre- fait. Eg afréð að fara heim og taka því sem að höndum bæri. Samt beiö eg enn nokkura hríð. Þegar minst varði sá eg, að fariö var að rjúka úr eldhússtrompinum. Þá taldi eg víst, að alt mundi vera i lagi. — Og eg hljóp heim í ein- úm spretti. —o— ísak: sat við hlóðirnar, blés i eldinn og söng ástavísu. Stóri- potturinn var kominn í hófbönd- in og eldurinn logaði glatt. Eg gekk til hans og heilsaði glaðlega. — ísak leit upp stórum augum og sá eg þá strax, að hann var ölvaður. — „Sæll og ljúfur ! — Eg hefi setið hér árans-lengi, finst mér, og drukkið út úr ergelsi — drukkið í mig kjark, gæti eg kannske líka sagt, því að hér er alt fult af draugum. — Eg skildi ekkert í þessu. — Engin lifandi sála í kotinu. — En þung sog og andardráttur í hverju skoti.----- Þess vegna skvetti eg í mig. — —- Vínið brynjar mannkindina gegn draugtim og forynjum." — Og hann dró þriggja pela flösku, vel hálfa, upp iir vasa sínum og drakk vænan gúlsopa.-------- Eg sagði honum hvernig ástatt væri um fóstru mina og að Þor- f'nnnr hefði labbað sig út á hérað. ísak góndi á mig langa hrí'ð, eins og skynskiftingur. Því næst sagði liann: „Svo að þú ræður þá yfir matnum og öllu sainan —.“ Eg ansaði því fáu, en sagði ]tó eitthvað á þá leið, að mér fyndist yfir heldur litlu að ráða. „Því trúi eg vel. Þorfinnur hef- ir náttúrlega rifið það skásta í sig áður en hann íór.“ — Svo tók hann hlemminn af pottinum og mælti: „Eg fann þessar magáls- rytjur héma uppi í rótinni og svo var eg ekkert að tvinóna við það. Bara demlxli þeim í pottinn! Á einhverju verður maður að nær- ast. Líkaminn heimtar sitt-------. , Og nú er þióðhaginn ísak svang- ur — svangur og drukkinn og sorgbitinn.---------Eg er ákaf- lega sorgbitinn vegna þess, að Steinvör er að deyja. — Steinvör er indælis-manneskja, langt of góð handa Þorfinni. Hann hefir eisrinlee'a aldrei verið neinn maður, skinnið að tarna! Og það get eg sagt þér, að Steinvör elskaði mig, lægar hún var ung. Hún var alveg friðlaus af ást. — En eg var drvldinn og leit ekki við henni. Eg stefndi hærra á þeim árum — stefndi á hæstu hæðir, þó að ekki yrði neitt úr neinu. — En oft hefi eg öfundað Þorfinn af henni. Það er ekki ónýtt, að hafa aðra eins konu og Steinvöru til að stjana við sig nætur og daga — elda matinn — draga af sér vosklæð- in og klóra sér á bakinu. — Ef satt skal segja, þá held eg, að eg hafi nú eiginlega öfundað Þor- finn bróður minn einna mest af l'ví. — En nú mun hann öfunda mig, það sem eftir er lifdaganna, því að nú er minn heiðursdagur í nánd-------—Og svo fór hann aö kyrja sömu ástavísuna á nýjan leik. Mér leist ekki á karlinn. Og‘ eg stákk upp á því, að hann færi að sofa. En nærri því var ekki kom- andi. — „Listamaðurinn ísak hef- ir aldrei sofnað frá heitum magál- t'm! Og liann ætlar ekki heldur að gera það núna. — — En eg rkil hvað fyrir þér vakir, hrekkja- lómurinn! Þú ætlar að sitia að krásunum sjálfur. En bíddu hæg- ur, kunningi! Eg fer ekki eitt fet frá hlóðunum þeim arna, fyrr en magálarnir eru soðnir og eg ætla að borða þá sjóðandi upp úr pott- inum.----------Þegar ])að er bú- ið skal eg sofa og dorma og þá skal eg lika segja þér fallega sögu, þar sem spónasmiðurinn ísak er höfuð-paurinn. — Já, drengur minn! Það gerast enn þá æfintýr í henni gömlu veröld. — — — En nú skulum við drekka og vera glaðir." — Hann veifaði flöskunni, skygði hana við glæð- urnar og drakk sýnu meira en áð- ur. — Svo varð þögn langa hríð og mér sýndist hann vera farinn að dotta. En alt i einu reif hann sig upp og' sagöi: — „Lengi varð eg að biða — lengi lengi, því að syndirnar voru miklar. Eg var óskaplegur maður á þrítugsaldrin- um —tór illa með kvenfólk, kysti cins og vitlaus maður, gaf undir fótinn — dró á tálar. Eg var hverjum manni glæsilegri á þeim árum. Hár og grannur, höfðing- legur á velli, augnn sí-logandi, en yfir öllu sköpunarverkinu þetta fágæta, undursamlega og dular- íulla seiðmagn, sem engar konur fá staðist.“ —------ Mér leiddist þetta raus og eg óskaöi þess, að karlinn ylti út aí steinsofandi. Nú var hann sestur flötum beinum á gólfið og sýni- lega orðinn dauðadrukkinn.------- „Kantu vísuna sem eg var að syngja áðan?- Nei, auðvitað kantu hana ekki — þú ert svo ómentað- ur, greyið.-------Eiginlega held eg nú, að hún sé eftir mig — nema cí ske kynni, að einhver annar hefði oröið fyrri til að setja hana saman. — — Eg man það ekki. --------Hún byrjar svona.-------- Nei, heyrðu nú, gamli spónasmið- ur.-----Nú hefir eitthvað hlaup- ið i baklás í kollinum á þér. —.“ „Drektu svo að þú munir,“ sagöi eg. Eg sá, aö ekki var ann- r.ð ráö vænna, en að láta hann sofna þar sem hann var kominn. „Emn segir — drektu svo að þú munir —• annar — drektu svo að þú gleymir-------en snillingurinn ísak segir: drektu svo að þú mun- ir og gleymir — — rnunir það yndislega — gleymir sorgunum. ------ — Eg ætla að drekka-----.“ Og hann helti i sig vænum teyg. Flaskan seig úr höndum hans niður á gólfið og það, sem eftir var í henni, fór til spillis. Andar- taki síðar var hann steinsofnaður. Eg reyndi að hagræða honum eftir föngum, lagði hann endi- langan á gólfið og lét pokann hans undir höfuðið á honum. Þvi næst sótti eg ábreiðu inn i rúm og breiddi ofan á hann. Loks skip- aði eg hundunum að leggjast hjá honum og það gerðu þeir. Að þvi búnu fór eg áð sinna f jósverkunum. Eg svaf illa um nóttina. — Undir miðnætti hafði mér loks tekist að vekja ísak og drasla honum inn i rúm. Hann var þá enn mjög rykaður, máttlaus eins og tuska, barðist við klýjuna og kvaðst mundu deyja á næstu augnablikum. — Eg lét hann vita, að nú væri magálarnir soðnir, en hann loka'öi augunum, hristi höfuð- ið og stundi hátt. Eg settist hjá honum og bráðlega seig á hann mók. Og skönmiu síðar var hann farinn að hrjóta, en við og við umlaði hann og stundi í svefnin- um. Mér leið illa. Eg var hræddur um, að ísak kynni að hafa ofkælst og mundi fá lungnabólgu. Og þá iæri laglega komið fyrir mér, ein- um og hjálparlausum, langt frá öllum bæjum. Samviskan ávítaði mig harðlega og lengi nætur mátti eg ekki sofa. Eg bað guð að fyrir- gefa mér syndir mínar og gæta þess, að ísak yrði ekki veikur. — Siðan las eg bænirnar mínar og eftir það sofnaði eg. En eg hafði ekki sofið lengi, þegar eg þóttist heyra gegnum svefninn, að kallað væri á mig. — Eg heyrði þetta hvað eftir ann- að, en eg var svo syfjaður, að eg gat ekki ansað. — Loksins varð eg þess var, að skriðið var upp i bólið mitt og farið undir sæng- itia. — Þá glaðvaknaði eg á svip- stundu. Mér varð ljóst þegar í stað, að þarna væri ísak kominn, dauöur eða lifandi. — Eg hrökk upp að þili og spurði ærið hrana- lega, hvað hann væri að flækjast. „Vertu ekki hræddur, Steini r.iinn.----Það er bara eg og rétt að eins með lífsmarki. Mig lang- ar til að fá að deyja í holunni þinni og eins ætlaði eg að biðja l'ig að lesa eitthvað gott og kristi- legt fyrir mig, því að mér veitir víst ekki af. — Fresturinn er tnginn, en syndirnar miklar, eins «g gengur.“ Eg fann að karlinn nötraði all- ur og mér leist ekki á blikuna. Eg spurði, hvort hann langaði ekki í \olgan sopa. Kaffið rnundi taka úr honum hrollinn. „Nei, nei — eg kem engu nið- ur. Eg hefi sárustu kvalir í hverj- um einasta lim og dauðahryglan er sest fyrir brjóstið.“ Nú varö löng þögn. ísak blés þungan, bylti sér og stundi, en megnan brennivíns-daun lagði úr vitum hans. „Hefirðu miklar þjáningar, ísak minn?“ „Óbærilegar! — Eg get tæplega varist hljóðum og er eg þó í sann- leika eitil-harður. Eg cr víst byrj- aður að deyja." „Þú veröur þó a'ö minsta kosti að borða magálana áður en þú skilur við,“ sagði eg- og var hinn hressasti. „Nei, nú mega allir magálar ciga sig mín vegna. Eg skyldi ekki hafa möglað í fyrra um þetta leyti, ef góðum guði hefði þókn- ast að kalla mig til sín þá. — Þá hefði enginn grátið viðskilnað miim. Nú er öðru máli að gegna.“ Og hann andvarpaði sáran. „Eg fer að halda að þú sért trú- lofaður.“ — „Ætli þú eigir ekki kollgátuna. ------Jú, vissulega er eg trúlof- aður.------Og nú sefur hún heima í Hólkoti, blessaður engillinn nnnn, undir stóru dúnsænginni, og dreymir um íaðmlög og kossa og sterkar ástir.----En hér ligg eg, unnusta-myndin, og á ekkert ann- að eftir í henni veröld en að skilja við. — Einhver mundi nú kveina og gráta í mínum sporum.“ Og áður en varði var hann farinn að hágráta. «*. „Eg þekki nieðal, sem læknar alla sjúkdóma,“ sagði eg spek- ingslega. Isak settist upp í skyndi, þreif í mig áfergilega og spurði hvaða rneðal það væri. „Spen-volg mjólk úr þrílitri kú,“ sagði eg. „Þú manst víst, að Skrauta gamla er þrílit. — Og nú fer eg út og næ i sopa handa þér. ■—• En á meðan skalt þú hugsa um „engilinn undir dúnsænginni“ og' láta þér líða vel.“ „Eg ætla heldur að fá postill- una og reyna að lesa eitthvað fallegt, ef þú gætir brugðið upp ljósi. Eg ímynda mér, að guði sé það öllu þóknanlegra." ísak drakk spenvolga mjólkina t einum teyg, hallaði sér aftur á bak og lokaði augunum. „Nú finst mér eins og þjáningarnar sé lield- ur að réna.“ Eg þóttist sjá, að karlinn mundi nú fara að jafna sig og fór þess á leit, að hann segði mér frá trú- lofuninni. „Eg bað hennar, eins og þú get- ur nærri, skrifaði henni. -— á minn hátt. ísak smiður kann betur við, að alt sé formlegt. — Bréfið var ekki langt, að eins þrjú orð og oröin voru þessi: ,Eg elska þig/ — Og þau voru ekki skrifuð með venjulegu letri og ekki heldur á venjulegan pappírslappa -— ekki aldeilis. — Þau yoru rist á nauts- hyrning, skal eg segja þér, og letr- ið var höfðaletur. Eg hygg að þess konar sé nokkurn veginn eins- dæmi. — Og ef eg lifi, ætla eg að srniða annan spón, alveg eins og hamingjuspóninn minn, og gefa þér hann. Þú átt það skilið fyrir alt og alt, og þú átt að nota hann á siðan.“ Eg þóttist verða allshugar feg- inn og kvaðst kunna honum mikla þökk fyrir, en nú yrði eg að fá að heyra meira. ísak lifnaði allur við og sagði, að það væri nú annað hvort, því að vissulega ætti hann mér lifið áð launa. „Svoleiðis var,“ sagði ísak og tók rausnarlega í nefið — „svo- leiðis var nefnilega, að þegar eg var vinnumaður hjá prófastinum sáluga í Holti, feldi eg gríðar- sterkan ástarhug til dóttur hans. — Eg man þetta alt saman, eins 'og það hefði skeð í gær. Á jóla- íöstunni var eg að smíða spæni, og það voru fallegri spænir, er mér óhætt að segja, en sést höfðu þar um slóðir. Meðal annars smíð- aði eg þá einn íorláta-grip, svart- an og hvítan, úr afbragðs nauts- horni, og nú hugkvæmdist mér, að gefa blómarósinni spóninn í jólagjöf. Og eina nóttina datt mér i hug, að grafa ástarjátninguna á hann sjálfan og það gerði eg. Mér fanst eitthvað frumlegt við það. Auðvitað skildi hún ekkert i höfða- letri, en gamall maður var þar á bænum, og hann gat stafað sig fram úr þvi. Nú koma jólin, og á aðfangadagskveld fæ eg henní spóninn, en hún þakkar mér fyrir. En á jóladagsmorgun er hún öll umsnúin, fleygir i mig spæninum og segist ekki vilja sjá liann. — Þaö kom við hjartað í mér, skal eg segja þér. — En eg sá strax i hendi rninni, að spónninn gætí orði'ð mér að liði seinna. Síðan hefir hann farið frá mér sex sinn- um í sörnu erindunum, en altaf komið aftur. Eg var farinn að lialda, að hann yrði mér ekki að neinu liði. Samt hafði eg hann alt- af með mér á ferðalögum, ef ske kynni, að mér þætti ráðlegt, að senda hann í nýjan leiðangur. —

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.