Vísir - 24.12.1936, Side 25

Vísir - 24.12.1936, Side 25
VÍSIR 25 GLEÐILEG JÓL! VEGGFÓÐRARINN h/f. • < * m H GLEÐILEG JÓL! -ii'í. É& Éé á'ífe SOFFÍUBÚÐ. H S. Jóhannesdóttir. JH GLEÐILEG JÓL! MÁLARINN. £Uz. ^M4. j»fe H GLEÐILEG JÓL! > J| . • .ste Tipinh Anrtprssnn Irl spóslrpri í'ife Ig, GLEÐILEG JÓL! M 4$g. Verslunin BALDUR, j&L Framnesveg 23. iii i_Aj 1JL1 yLi jJfci yti yu »Ju iju yU yLt íju 1 ju yu yu yu yU yU yu yU yu >Ji 1X1 mmmMmmmmmmmmmmmi&mmmmmmm&i :\ m GLEÐILEG JÓL! IA GLEÐILEG JÓL! wme$ I Klapparstíg 30. Einu sinni var Sam nærri fall- inn, því að hann gekk eins og maður með háan flibba, sem horfir háðum megin á nefið á sér i einu.. Þegar þeir voru komnir götuna á enda, ráikust þeir á ræfilslegan náunga, sem stansaði félaga Sams og talaði til hans. — Eg hefi enga smápeninga, maður minn, sagði vinur Sams og hélt áfram. , —- Eg bið ekki um ölmusu, herra minn, sagði náunginn og gekk á eftir þeim. Eg er að reyna að selja lilut. Hvað er það? Ræfillinn horfði í kringum sig og hvislaði svo eitthvað í eyra mannsins. — Hvað? — Nokkuð sem eg fann, sagði hinn í hálfum hljóðum. — Hvað er það? sagði Sam ákafur. Flækingurinn stakik hendinni ofan í vasa sinn og dró upp stórt gullnisti, alsett demöntum, sýndi þeim og rendi því svo strax aftur í vasa sinn. Kunn- ingi Sams gaf honum olnbog- skot og hvíslaði: — Það er þetta. Loí'ið okkur að sjá það aftur. Betlarinn dró það aftur upp úr vasa sínum og hélt því dauðalialdi meðan þeir skoðuðu það. — Hvar fanstu það, sagði Sam. . — Skamt frá Mint. — Hvað viltu fá fyrir það? —- Eins mikið og eg get, sagði betlarinri. Eg veit ekki livað mikils virði það er, það er það versta. Ilvað segið þið um tutlugu pund? 1 Sam hló. Það var hlátur sem hann hafði einu sinni fengið greiddan með glóðarauga. — Tuttugu pund. Ertu geng- inn af göflunum, hvað? Eg skal gefa þér nokkra blanka shill- inga. — Jæja, skipstjóri, það ger- ir ekkert til, engu hefir verið spilt. Eg ætla að tala við ein- hverja aðra. Ef til vill er lika hægt að fá fundarlaun, mikil fundarlaun. Það getur verið hundrað punda virði. Kunningi Sams dró hann til hliðar og hvíslaði að honum að þetta væri tækifæri, sem ekki fengist nema einu sinni á æfinni. — Og ef þú vilt heldur geyma það en fá fundarlaun- in, þá er eg viss um, að þú getur altaf fengið 100 pund 1‘yrir það. — Eg hefi engin tuttugu pund, sagði Sam. — Hvað mikið hefirðu? Sam fór í vasa sinn og taldi peningana. Samtals niu pund fjórtán sliillings og tveir pence. — Þú hefir kannske meira heima, sagði vinur hans. — Ekki rauðan, sagði Sam, sem var rétt að þvi er litinn snerti., — Þú getur ef til vill feng- ið lán, sagði vinurinn með mjúkri og góðlegri rödd. Eg skyldi með hinni mestu ánægju lána þér peningana, en því miður hefi eg ekkert á mér. * * * Sam hristi höfuðið, en að síðustu, þótt betlarinn hefði sagt, að hann léti heldur drepa sig en að selja nistið undir 20 pundum, urðu þeir kaupsáttir með því að Sam greiddi níu pund, silfurúrkeðju, tvo vindla, sem hann hafði óvart sest á, og tygilkníf. — Flýttu þér og láttu nistið i vasa þinn. Láttu ekki nokk- urn mann sjá það, sagði betl- arinn, um leið og hann afhenti Sam djásnið. Betlarinn skildi við þá, en vinur Sams horfði á eftir honum. Hann kvaddi í skyndi, og sagðist verða að tala piltinn og fá hann til að þegja um þessi kaup. Sam sneri heim á leið. Hann kom varla við jörðina og hann gerði sér jafnvel lítið fyrir og fór að dansa eftir lirukassa- músik, sem hann hitti á göt- unni. Peter og Ginger voru ekki heima. Heldur ekki hús- móðirin, sem geymdi peninga fyrir hann. Lítil stúlka, ellefu ára gömul, var heima, og þeg- ar hann bað hana að hjálpa sér um nokkra koparskildinga, hélt hún yfir honum slíka þrumuræðu um eyðslusemi lians, að honum féll allur ketill í eld og hann varð orðlaus. Þegar húsmóðirin kom heim, þurfti hann fyrst að hlusta á oi’ðaflaum hennar í hálftíma, áður en hann fékk aurana, og þegar þeir loksins komu, þurfti hann að týna þá upp af gólf- inu og þakkaði fyrir að fá þá. * * * Hann gekk til hvílu áður en Ginger og Peter komu heim, en honum var svo mikið í huga, að hann gat ekki sofnað. Löngu eftir að hinir voru háttaðir, lá hann vakandi og hugsaði um það, hversu mikið af heimsins gæðum væri hægt að veita sér fyrir hundrað pund. Öðru hvoru tók hann nistið undan koddanum og þuklaði á því. Svo fanst honum, að hann þurfa nauðsynlega að sjá það nokkrum sinnum og kallaði til hinna að hætta að hrjóta, — 7 v

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.