Vísir - 06.06.1945, Qupperneq 3
Miðvikudaginn 6. júni 1945
VISIR
3
Margs konar lagiæringar á raf
magnsstrengjum hér í bæ.
Víða kornið upp háspexmusfiöðvum.
^ísir hafði sem snöggvast
tal af Jakobi Guðjohn-
sen í gær og ínnti hann
Frétta af framkvæmdum
hjá Rafveitunm. — Honum
sagðist svo frá:
Víða hefir að undanförnu
verið grafið upp fyrir raf-
magnsstrengjum í bænum og
hefir það mestmegnis verið
gert til þess að lagfæra og
endurbæta jarðstrengina, en
slíks er alltaf þörf annað
veifið. Unnið er að því núna,
að framlengja miðbæjar-
strenginn til Vesturbæjarins,
og er það gert til frekara ör-
3rggis og varúðar. Alltaf má
l)úast við því, að strengur
bili um stundarsakir, og er
þá nauðsynlegt að geta grip-
ið til varastrengs á meðan.
Þá má og geta þess, að víða
í bænum'er unnið við það að
koma upp háspennustöðvum,
og er slíkt gert til frekara ör-
yggis. Hefir til dæmis verið
komið upp háspennjistöð á
liorni Ásvallagötu og Hofs-
vallagötu og verið er að
flytja háspennustöðina, sem
stóð á lóð Sjálfstæðisflokks-
ins við Austurvöll. Verður
sú spennistöð grafin í jörð
niður.
Enn fremur er nú verið að
laka niður loftlínurnar í
Kléppsholti, sem voru orðn-
ar mjög slitnar og ótryggar,
Nýfifi hraðfrysfiihús
fiekið fiil sfiarfa
í Grímsey.
Nýtt hraðfrystihús tók ný-
Iega til starfa í Grímsey og
tókst frysting ágætlega.
Hraðfrystihús þelta er út-
búið fullkomnusu tveggja
þrepa Vilter hraðfrystivélum.
Fer liraðfrystingin fram með
lofti sem er 30 til 40 gráðu
kalt og er blásið með miklum
hraða gegn um frystivágna
þá sem flökin eru í.
Frystingin tekur 2 Ví*
klukkutíma en afköst eru 8
—10 tonn af flökum á sól-
arhring. Auk þess eru kældar
geymsiur fyrir flök og síld.
Aðaleigandi frystihússins
er Garðar Þorsteinsson hrl.
Hraðfi'ystihúsið i Grímsey
er fjórða hraðfrystihúsið af
þessari gerð, sem setl er upp
hér á t.andi.
Fyrir voru hraðfrvstihús
Laxins h.f. í Reykjavík, Ilrað-
frystihúsið ísafold, eign Þrá-
ins Sigurðssonar á Siglufirði
og hraðfrystihúsið Hafnir
h.f. i Höfnum. Um úlvegun
og uppsetningu allra þessaia
frystikerfa annaðist Gísli
Halldórsson h.f. og Vélsmiðj-
an .Íötunn h.f. í Reykjavík.
í undirbúningi eru nú
fleiri hús með loftfrystingu.
Þar á meðal mjög slórt hr.að-
frystihús á Eskifirði og í
Reykjavik sem veist verða í
sumar. Hefir Gísli Ilalldórs-
son h.f. einnig útvegað vélar
lil þeirra.
Hraðfrysting með lofli
þykir hafa gefizt prýðilega
vel og hið sama má segýi um
týeggja þrepa frvstiaðferðina
sem hagnýtt er í þessum
kerfum. Hvorttveggja eru hér
á landi nýjung.ar, sem inn-
leiddar voru með framan-
greindum liraðfrystihúsuin.
og í staðinn liafa verið settý
ir niður jarðstrengir.
Efnið, sem notað er til
þessara framkvæmda, var
keypt með Sogsvirkjunar-
efninu forðum og mun mest
af því verða notað núna.
Leikvangur og sund-
iaug á Þingvöllunt.
Þingvallanéfndin hefir með
svarhréfi sínu til Í.S.I. til-
kynnt, að hún sé hlynnt því,
að byggður verði leikvangur
á Þingvöllum og sundlaug á
hentugum stað, svo að lands-
mót íþróttamanna geti farið
fram þar.
Millilandakeppni
í knafitspyrnu
í Reykjavík.
íslenzkt landslið valið.
Næstkomandi föstudag fer
fram knatlspvrnukeppni
milli íslenzks úrvalsliðs og
úrvalsliðs frá setuliði Breta
hér á landi. Eins og geta má
nærri verður þetta mjög
spennandi og skemmtilegur
leikur en engu skal siaá(5 um
það, hvernig honum lýkur.
Hefir nú verið valið í ís-
lenzka landsliðið og er það
þannig skipað; talið frá
markmanni; Anton Sigurðs-
son Vik., Guðbjörn Jónsson
K.R., Björn ólafsson Vaf,
Birgir Guðjónsson Iv.R;,
Sveinn Iielgason Val, Sæ-
mundur Gíslason Fram, Haf-
Iiði_ Guðmundsson K.R., Jón
Jónsson K.R., Albert Guð-
mundsson Val, Óli B. Jóns-
son K.R. og Ellerl Sölvason
Val. — Varamenn eru Her-
mann Ilerinannsson Vaf,
Sigurður ólafsson Val og
Haukur Antonsson Fram.
Dómari verður Victor Rae,
en Guðjón Einarsson til
vara. Línuverðir verða einn-
ig lærðir knattspyrnudómar-
ar, annar brezkur en liinn
íslenzkur.
Eins og menn vita hófst
úthlutiin á bifreiðum frá
setiiliðimi fgrir alllöngu og
hefir hún gengið mjög vel.
Nefnd sú, sem annast út-
hlutuniha hefir tekið á móti
iE/tí bifreiðum frá setuliðinu,
þar af 90 „jeppum“ og hefir
flestum þeirra verið úthtut-
að.
Síðast liðnar tvær vikur
hefir dregið mjög úr afhend-
ingu bifreiða lil nefndar-
innar, sérslaklega smærri
bifreiðum (jeppum) og má
búast við að lítið sem ekkert
berist af þeim í þessum mán-
uði. Stafar það af því að
setuliðið hefjr þessar bif-
reiðar í notkun ennþá, og
mun nefndin fá þær jafn-
óðum og þær losna.
Eftirspurn eflir bifreiðum
hefir verið gífurlega mikil,
sérstaldega eftir jeppunum,
en því miður mun ekki verða
hægt að fullnægja eftir-
spurninni eftir þeim, því að
Hvað kostar að
fljúga í framtíð-
inni?
Pan Amerícan Airways
gerir framtíðaráætlanir.
Sú spurning er ofarlega í
hugum margra um þessar
mundir hvort flutningar og
flugsamgöngúr yfirleitt muni
verða svo ódýrar í framtíð-
inni, að flugvélar verði
hættulegir keppinautar skipa
að því leyti.
Ameríska tímaritið Popul-
ar Mechanics skýrir fyrir
skömmu frá því, að flugfélag-
ið Pan American Airways
hafi gert bráðabirgðaáætlun
um flug milli New York og
22 færliggjandi borga eftir
stríðs, * en félagið hefir í
hyggju að reka flugferðir á
langleiðum milli ýmissa
stærstu horga veraldarinnar
með að minnsta kosti 150
stórum flugvélum strax og
styrjöldinm líkur.
I þessari bráðabirgða-
áætlun er gert ráð fyrir að
unnt verði að fljúga frá Ncw
York til Fairbanks í Alaska
á 13 klukkustundum og kosti
farið þá leið. 97,50 eða rúm-
lega (500 íslenzkar k'rónur.
Vegalengdin sem hér er um
að ræða er nokkru lengri en
frá Reykjavík til New York.
Frá Now York til London er
gert ráð fyrir 13,48 klukku-
stundum fyrir 103,50 doll-
ara sætið aðra leiðina, frá
New York—Buenos Aires á
21 klst. og 36 mín. fyrir 162
dollara, New York—Sydney í
Ástraliu á 42 klst. fyrir 315
dollara. Þá er í þessari áætl-
un gert ráð fyrir að félagið
haldi uppi ýmsum skemmti-
leiðum svo sem um helgar
frá Ntíw York til París og
fleiri borga á meginlandi Ev-
rópu.
Sumargistihúsið í Reykjaskóla
teluir tit starfa 18. þ. m.. Sund-
laug og gufubað er til afnota fyr-
liætt er við að nefndinni ber-
ist ekki nógu margir.
Þá hafa nefndinni borizt
margar fyrirspurnir um
hvort nokkrir varahlutir
muni fást i bifreiðar, sem
hafa verið keyjitir frá setu-
liðinu, og má segja að all-
ínikið af varalilutum mun
verða keypt, en hvern-
ig sölu á þeim verður hagað
er ekki hægt að segja að
sinni. Nefndin mun að sjálf-
sögðu tilkynna það, þegar
að því kemur.
Fyrírspum.
Þeir, sem kynnu að geta
gefið upplýsingar um Einar
Guðmundsson, sem fæddur
er 9. febrúar 1926 í Hollandi,
eðtt aðstandendur hans, cru
vinsamlega beðnir að láta
það utanríkisráðuneytinu í
té. (Frá utanríkisráðuneyl-
inu).
ir gesti.
Sölnneínd setuliðsbifreiða hefir út-
hlntaS 340 bilreiSnm.
Neíndin helir úfihlufiað 90 „jeppurn"
Söngskemmtun
frk. önnu Þórhallsdóttur var
endurtekin í Gamla Bíó
mánudaginn 21. maí kl. 11.30
e. h.. Það verður þvi miður
eklci sagt, að hún hafi surig-
ið fyrir fullu liúsi álieyr-
enda, eins og sakir hefðu átt
að slauda til. Það er leitt til
þess að vita, að Reykvíking-
ar, sem eru söngelskir og ó-
nízkir á góðar undirtektir
við þá, sem getu hafa og dug
til þess að leggja út á lista-
mannsbrautina, skuli hafa
látið fálæti sitt bitna á söng.
konu þessari. Sá er ekki til-
gangurinn með Íínum þesS-
um, að leggja íaglegt mat á
söng frk. önnu, en hún á
annað betra skilið en tóm-
lætið og þögnina. Hún sýndi
það ótvírætt með söng sin-
um í þessi tvö skipti, að hún
er gædd óvenjúlegúfn' ineð-
fæddum sönggáfum. Frk.
Anna hefir mjög fallega
náttúrurödd, sem að visu-er
óskóluð, en hún er líka ó-
skemmd. Lög þau, er hún
söng, voru falleg og vel val-
in við hæfi raddarfnnar og
hún.söng þau með næmum
listrænum skilningi svo að
unun var á að hlýða. Það var
sál í söng hennar; þess gælli
alveg sérstaklega í meðferð
hennar á íslenzku lögunum.
Söngkonan er nú á förum
héðan til söngnáms erlend-
is. Er vonandi að það verði
henni til frama og að hún
hljóti tilhlýðilega viðurkenn-
ingu, þótt síðar verði. Víst
er um það, að henni fylgir
góður liuguiT og árnaðarósk.
ir þeirra,.er á hana hlýddli.
Hún lél það ekki koma fram
í söng isinum, að hún varð
að sVngja fyrir hálftómu
húsi áhevrenda, og hún
mun e’.'ki heldur láta það á
sig fá, þótt hún liafi ekki að
baki sér hrós fjöldans. Það
getur verið gott, en er ekki
nauðsynlegt. — Það verður
gaman að hlusta á liana, þeg-
ar hún kemur aftur. Þá fær
liún vonandi góðar undir-
teklir hjá almenningi. Megi
henni vel farnast.
S.
I þýzkum fanga-
búðum.
Ngja Bíó sgnir um þessar
mundir fréltamgnd, er fjall-
ar m. a. um þýzkar fanga-
búðir.
Iíér skal ekki gerð tilraun
lil að lýsa þvi, sem myndirn-
ar sýna, enda er það vart
Iiægt. Þær eru hrvllilegar og
lærdómsríkar í senn, en þó
skal engum ráðlagt að sjá
þær, sem liefir ekki taugarh-
ar i fullkomnu lagi. — Aðal-
myndin á eftir heitir Dular-
fulli maðurinn og leilcur
Peter Lorre aðallilutverkið.
Góður afii á Siglu-
firði.
Aflabrögð 4 Siglufirði hafa
að undanförnu verið með
allra bezta móti, sérstaklega
á hinum stærri línubátum,
enda hafa sjóveður verið
mjög góð. Nokkrir viðlegu-
bátar voru á Siglufirði í vet-
ur, frá Dalvík og Ólafsfirði,
en þeir eru nú allir farnir
heim. Nokkrir togbátar lögðu
einnig upp afla sinn í skip
á Siglufirði og hafa afla-
brögð þeirra einnig verið
með bezta móti. Færeysk skip
og íslenzk liafa að undan-
förnu tekið þar fisk í ís.
Svíþjéðarflugið
enn á vegum her-
stjórnarinnar.
Morgunblöðin í gær skýi*a
fvá því, að beinar flugsam-
göngur séu byrjaðar milli
Stokkhólms í Svíþjóð og New
York, yfir ísland. Enn frem-
ur að það sé amerískt félag,
sem hafi byrjað þennan
rekstur.
lilaðið hefir snúið sér til
sendiráðs Bandaríkjanna hér
og innt eftir nánari upplýs-
ingum um þetta. Var hlaðinu
tjáð, að ekki væri um neina.
verulega breytingu að ræða í
þessum efnum frá því,. sem
áður hefir verið. Ekkert sér-
stakt amerískt félag hefir
leyfi til að starfrækja flug á
þessari leið enn, en hins veg-
ar mun eitthvert flug eiga
sér stað á þessari leið á veg-
um ATG (Air Transport
Gommand), en það er raun-
verulega deild í Bandaríkja-
hernum, sem sér um alla
loltflutninga fyrir heririn og
meðal annars hefir flutt all-
marga íslendinga vestur ujn
haf og að vestan-, síðan erfið-
leikar urðu á þeim flutning-
um með skipum af styrjald-
arástæðum. Ef einhverjum
íslendingum verður leyfl að
lljúga með þeim flugvélum
ATG, sem kunna að fljúga til
Svíþjóðar á næstunni, yerður
leyfisveiting fyrir slíku fari
háð sömu skilyrðum og ver-
ið liefir hingað til mcð sömu
flugvélum til Ameríku.
Svíar munu liins vegar
hafa í hyggju að hefja flug-
ferðir á þessari leið innan
skamms, að minnsta kosti
reynsluflug, og getur |)á ræzt
úr í þessum efnum frekar en
nú cr raun á.
13 hús skemmast
a! eldingu.
Þrettán hús skemmdust í
Nottingham í Bretlandi af
eldingu í fyrradag.
Laust eldingunni niðúr i
húsaröð í borginni og tók af
flestum þeirra skorsteinana,
en skemmdi önriur meira að
aulci. Níu manns urðu fyrir
ýmsum meiðslum, svo að
flytja varð þá í sjúkrahús.
Nýir iar e. t. v.
ánæstaári,
Líklegt er, að bílar, út-
varpstæki, þvottavélar og
önnur slík tæki komi á al-
mennan markað í Banda-
ríkjunum um mitt næsta ár.
Nefnd sú, sem hefir yfir-
stjórn stríðsframleiðslunnar i
Bandarikjunum með hönd-
um, hefir skýrt frá því, að
reynt verði að fullnægja eft-
irspurninni eftir fjölmörgum
nauðsynjum með því að leyfa
verksmiðjum smám saman
að hefja framleiðslu líkt og
á friðártímum. Ákveðið verð-
ur á næstu mánuðum, hversu
mikið af þeim hergagnaverk-
smiðjum, sem nú eru í gungi,
þurfi að halda áfram fyrri
iðju vegna stríðsins við Jap-
an. Þegar búið verður að
ganga úr skugga um það,
verður að líkindum hægt að
hefja framleiðslu á þéim
nauðsynjum, sem almenning
hefir skort einna mest á síð-
ustu árum.