Vísir - 09.06.1945, Síða 3
Laugardaginn 9. júní 1945
VISIR
Vörurnar sem Svíar
selja Islendingum.
^iðskiptaráð kefir nú aug-
lýst eftir umsóknum fyr-
ir vörum samkvæmt við-
skiptasamningnum við Sví-
þjóð. Hér fer á eftir skrá
yfir þær vörur, sem leyfi
verður veitt fyrir og hversu
mikið samningurinn ákveð-
ur af hverri tegund.
• Sv. kr.
Eldspýtur ......... 200.000
Timbur, 6500 standards
Síldartn., 125.000 stk.
Pappír og
pappi, 7000 tonn
Stál............... 100.000
Kanthal-efni ...... 100.000
Verkfæri .........1.000.000
Hnífar og skæri . . 125.000
Rakvélar, rakhnif-
ar, rakblöð .... 230.000
Kúlulegur.......... 250.000
Bátamótorar ..... 1.000.000
Varablutar í báta-
mótora ......... 100.000
Verkfæravélar .... 250.000
Landbúnaðarvélar 750.000
Skilvindur og
strokkar . .• 630.000
Saumavélar 125.000
Prjónavélar 90.000
Kæliskápar og is-
skápar 400.000
Þvottavélar 30.000
Skilvindur fvrir
síldarverksm. . . 600.000
Rafstöðvaefni . ... 9.400.000
Rafmótorar . .. 2.100.000
Rafmagnsheimilis-
tæki .............. 500.000
Símaefni......... . 1.750.000
Reiðbjól, 1000 stk.
Skip 28 —
(þar af 15—20 togarar)
Vélbátar 55 stk.
Byssur............... 100.000
Vitaefni ............. 300.000
Skotfæri .............. 25.000
Samkvæmt samningum,
leyfir íslenzka ríkisstjórnin
innflutning fj'rir öllum of-
angreindum vörum og lýsir
því jafnframt yfir, að veitt
verði gjaldeyrisleyfi til
greiðslu á vörunum.
Ákveðið hefir verið að starfrækja
nppeldisheimili fyrir börn að
KumbaravogL
Drykkjumannahæli verður að Kaldaðarnesi.
Þann 22. maí skrifaði Um
dæmisstúkan nr. 1 bæjar-
ráði, þar sem spurst var
fyrir um það, hvort bærinn
muni vilja taka við húsum
og jörð að Kumbaravogi, til
þess að reka þar uppeldis-
heimili fyrir börn. Vísir snéri
sér til Jóns Gunnlaugssonar
Stjórnarráðsritara í gærdag
og innti hann frekari frétta
af þessu máli. Sagðizt Jóni
svo frá:
pkkur var kunnugt um
j)að, að bærinn vildi áður fá
þennan stað til þess að reka
þar barnaheimili og þess
vegna viljum við láta hann
ganga fyrir núna. Er það
ætlunin að leiga staðinn til
fimm ára, vetur og sumar, en
aftur á móti hefir ekki komið
-neitt svar þessu viðvíkjandi
ennþá frá bænum. Fari svo,
að bærinn vilji ekki taka
þessu boði er ])að ákveðið, að
templarar reki þar á sínum
vegum barnaheimili.
Hvað um drykkjamanna-
liælið?
Það verður flutl að Kald-
aðarnesi nú á næstunni. Er
þegar byrjað að lagfæra
gamla sýslumannshúsið þar á
staðnum og verður það vænt-
anlega ibúðarfært, að
minnsta kosti yfir sumar-
mánuðina, eftir um það bil
eina viku. Annars var þetta
liús í mikilli niðurníðslu, t. d.
al’ar rúður brotnar, skilrúm
rifin burt o. s. frv. Þá mun
það og ællun ríkisins að láta
reisa viðbótarbús á staðnum,
því drykkjumannahælinu er
þarna ætlaður staður í fram-
tiðinni. Það er Björn Rögn-
valdsson húsasmiðameistari
sem sér um lagfæringar á
gamla sýslumannshúsinu
núna.
Eru nokkrir braggar not-
hæfir þarna?
Það getur maður varla
sagt. Á staðnum voru um það
bil 500 braggar, sem allflestir
eru nú orðnir með öllu ónýt-
ir og . er~ þegar búið að rífa
nokkuð af þeim niður. Ann-
ars er það meiningin að nota
haldbeztu braggana fyrir
vinnuhús og^þess háttar, t. d.
lil að láta liöggva þar steina,
því liælismenn munu vinna
að því.
Verður ekki rekinn bú-
skapur á jörðinni?
Eg geri ráð fyrir að það
verði eitthvað, enda er þarna
ágætt fjós og ennfremur stór
hlaða.
.Rétt er að geta þess liér, að
stjórn sumarheimilis templ-
ara liefir einnig boðiðReykja-
víkurbæ hús templara að
Jaðri til leigu, með það fvrir
augum að rekin verði þar
heimavistarskóli. Þessu bréfi
liefir ekki heldur verið svar-
að.
Náttúrufræðingurinn,
1. hefti 15. árgangs er komið
út. Hitið er fjölbreytt og vandað
eins og endranær. Af efni rits-
ins má nefna: Veðurstofan 25
ára (Björn L. Jónsson). Ofursmá-
sjáin og lægstu lífverurnar (Sig-
urður Pétursson). Fræ og fjölg-
un (Ingólfur Davíðsson). Heim-
sókn í risafuruskóg (Árni Frið-
riksson). Þvert yfir Vatnajök-
ul sumarið 1875 (W. L. Watts).
Um lifnaðarhætti isl. fjallarefs-
ins (Theódór Gunnaugsson).
Kamelljónið (Arni Friðriksson).
Lítið sníkjudýr (Halldór Vig-
fússon). Auk þess er ritið prýtt
fjölda mynda.
Kennaraskólalóð.
Bæjarráð samþykkti að ætla
lóð undir kennaraskóla og æf-
ingaskóla í sambandi við hann á
Skólavörðuholtinu, vestan Bar-
ónsstigs og norðan Eiriksgötu,
noður að lóð fyrirhugaðrar gagn-
fræðaskólabyggingar. Lá fyrir
bæjarráði bréf frá kennaraskóla-
stjóranum, þar sem falazt var
eftir þessum stað.
Gagnfræðaskólinn í Iteykjavík.
Bæjarráð liefir samþykkt, að
heimila borgarstjóra að fala
gamla sttýrimannaskólann á leigu
næsta vetur til gagnfræðaskóla-
halds.
I.R. vasm Reykja-
víkurboðhlaupið.
7. Boðhlaup Ármanns
umhverfis Reykjavík
fór fram í fyrrakvöld í
blíðskaparveðri.
Orslit hlaupsins urðu
þau, að sveit I.R. bar
sigur úr býtum, rann
skeiðið á 17:38,6 mín.,
sem er nj'tt met í hlaupinu.
önnur í mark varð sveit Ár-
manns á 18:00,8 mín. og 3.
sveit K.R. á 18:17,4 mín. Eru
þetta allt þeir beztu tímar,
se mfélögin hafa náð hvert
fyrir sig.
Ármann hafði forystuna
eftir fyrsta sprettinn, 1675
h., en á þeim næsta, 800 m.,
komst l.R. í farabrodd og
náði brátt góðu forskoti. Bil-
ið hélzt nokkurn veginn alla
leið i mark, þó með smá-
breylingum.
1 hinni sigursælu sveit I.R.
voru þessir menn: Sigurgísli
Sigurðsson (1675 m.), Jó-
hannes Jónsson (800), Hallur
Símonarson (200), Svavar
Gestsson, Haukur Glausen,
örn Clausen, Magnús Bald-
vinsson, Sigurður Sigurðsson,
Gylfi Hinriksson, Jóel Sig-
urðsson og Valgarð Runólfs-
son (150 m. hver), Hannes
Berg (200), Finnbjörn Þor-
valdsson (400), Kjartan Jó-
hannsson (800) og Óskar
Jónsson (1500). Gamla met-
ið var 18:09,0 mín., sett aí'
Ármanni 1941. I.R. vann nú
Alþýðublaðsbikarinn í annað
sinn í röð.
Framkvæmdanefnd þessa
boðhlaups þyrfti endilega að
koma betra skipulagi á það.
Eins og nú er, úir og grúir
hlaupaleiðin af hjólreiða-
mönnum og bílum, sem sigla
í kjölfar þess, sem leiðir
hlaupið eða einnig á undan.
Inni á velli, þar sem hlaupið
hefst og endar,' verður svo
varla þverfótað fyrir hjólum
og áhorfendum og einkum
hefur reynzt tafsamt fyrir
keppendur að komast leiðar
sinnar inn um«hliðið og inn
á brautina.
Nýkomnir odýrir
KVENSKÓR.
VERZI.C
.2285.
Snmaiieyfið.
Harla líklegt má telja, að
undanfarna góðviðrisdaga
hafi margir farið að velta því
fyrir sér, hvcrnig þeir eigi að
verja sumarleyfinu, ekki sízt
drengir og piltar, því það
fylgir þeim aldrinum, að láta
slíkar bollaleggingar ekki
bíða fram á síðustu stund.
En hinir hafa áreiðanlega
ekki verið svo fáir, er þurftu
ckki að hugsa sig um, því að
þetta var þegar álcveðið, og
það fyrii- löngu: „Auðvitað
fer ég í Skóginn!“
En þó einkennilegt megi
heita, þá munu þó vera marg-
ir drengir og piltar í Reykja-
vik, sem ekki vita neitt um
þennan „Skóg“, og til þess
eru þessar línur ritaðar, að
benda þcim á, að í Vatna-
skógi er gott að vera.
K.F.U.M. í Reykjavík hefir
rekið þar sumarstarf síðan
sumárið 1923 og hafa vin-
sældir þessa starl's farið vax-
andi með árunum,.og er Ijós-
astur votturinn uril það auk-
in aðsókn að sumarbúðunum.
K.F.U.M. hefur nú til um-
ráða 3 liektara lands með-
fram suðurströnd Eyrarvatns
í Svínadal, en þar er Vatna-
skógur, um 90 kílómetra frá
Reykjavík. Aðstæður þar til
sumardvalar eru hinar ákjós-
anlegustu fyrir röska drengi.
Þar er eitthvað fyrir alla:
Stórt stöðuvatn, sem bæði
má synda i og róa á, þvi að
ekki vantar bátana þar, eins
og myndin hér að ofan sýn-
ir; fjöll og hæðir, svo að all-
ir geta farið í fjallgöngur við
sitt hæfi; knattspyrnuvöllur
dágóður, og aðrar hagkvæm-
ar aðstæður til allskonar
íþróttaiðkana, fjölskrúðugur
gróður fyrir ])á, sem áhuga
hafa á jurtalíli, og mikil
náttúrufegurð fyrir þá, sem
dá fallegt landslag.
Sennilega hafa drengirnir,
sem í Vatnaskógi hafa dval-
ið, ekki gert sér svo skýra
grein fyrir, hvað það er, sem
sérstaklega laðar þá þangað
aftur, en eitt vitaþeir glöggt:
að í Vatnaskógi er gott að
vera.
En úr því að þetta er allt
svona ágætt, er þá nokkur
þörf á því, að vekja athygli
á því? Nei, eiginlega ekki,
— en það er nú svona með
þá, sem þekkja Vatnaskóg og
veruna þar, þá langar til að
sem flestir þeirra, sem ekki
eru svo lánsamir, fái að sjá
það með eigin augum og
reyna það sjálfir, hvað golt
er að vera í Vatnaskógi.
Skal nú ekki fjölýrt um
þetta frekar, en aðeins tekið
fram, að ráðgert er að starf-
ið hefjist 14. júní og verði að
mestu óslitið til 22. ágúst.
Nánari upplýsingar er hægt
að fá í auglýsingunum, sem
birzt hafa í blöðum bæjar-
ins (sbr. Visi 7. þ. m.), og
svo á skrifstofu K.F.U.M.
daglega kl. 5—7 e. h. (simi
3437).
Ráðlegt væri fyrir þá, sem
hafa hug á að dvelja í Vatna-
skógi í sumar, að leita upp-
lýsinga og tilkynna þátttöku
sem fyrst, því þó hægt sé að
taka á móti mörgum í sum-
arbúðirnar, þá eru því þó
takmörk sett scm öðru.
D.
Kópavogni — nágienm.
Framfarafélagið Kópavogur heldur fund á
sunnudaginn kemur kl. 2 síðdegis í her-
mannaskála við Hafnarfjarðarvæg og Digra-
nes. —
FUNDAREFNI:
Vegamál, skólamál, póstsamgöngur, vatnið
o. fl.
Allir, sem eiga eignir eða lögheimili í þeim
hluta Seltjarnarneshrepps, er liggur sunnan
Reykjavíkur, eru góðfúslega boðaðir á fund-
inn. —
Gefst þeim þá tækifæri til að ganga í félagið,
sem ekki hafa þegar gert það.
STJÓRNIN.
Avaip há Máttúru-
lækningafélagi
Islands.
Á morgun, sunnudaginn 10.
júní, verða seld hér í Rvík,
nierki til ágóða fyrir Heilsu-
hælissjóð Náttúrulækninga-
félags íslands.
Stefnumið þessa félags eru
bæjarbúum svo kunn, að um
þau þarf ekki að fjölyrða. Þó
skal það tekið fram hér, að
heilsubót og heilsuvernd, eru
þau mál, sem félagið berst
fvrir.
Til framgangs þessum
málum er mikil þörf heilsu-
hælis, sem félagið hyggst að
reisa, helzt í nágrenni Rvík,
svo fljótt sem nægilegt fjár-
magn er fyrir hendi. Mun
það mála sannast*að heilsu-
fari margra manna er á þann
veg liáltað, að vist á sIiloT
liæli, væri þeim mikil nauð-
sjrn. Breylt írataræði, léttara
og hollara fæði. Dagleg böð,
útivist í heilnæmu sveitalofti,
fullkomin kyrrð, og reglu-
bundnari lifnaðarhættir,
mundu verða mörgum tauga-
þreyttum manni til mikilla
heilsubóta.
Náttúrulækningafél. hefir
fengið einn dag á ári staðfest-
an sem fjársöfnunardag til
framgangs þessu nauðsynja-
máli. Félagið héitir því á al’a
góða menn að kaupa merkin
á morgun, og styðja með því
aðkallandi mannúðar- og
heilbrigðismál. — Foreldrar
og aðrir aðstandendur ung-
linga, levfið þeim að selja
merki Náttúrulækningafé-
lagsins á sunnudaginn. —
Hvetjið þau til þess að ljá öll-
um góðum málum fylgi sitt.
Fyrir hönd fjársöfnunar-
néfndar. — G. Þ. B.