Vísir - 19.01.1946, Blaðsíða 4
4
V I S I R
Laugardaginn 19. janúar 1946
VISIR
DAGBLAÐ
Utgefandi:
BLAÐAUTGÁFAN VlSIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 1660 (fimm línur).
Verð kr. 5,00 á mánuði.
Lausasala 40 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Skemmtileg vitleysa.
Wommúnistar eru að ýmsu leyti seinheppnir
í áróðri sínum nú fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar. I fyrradag ráðast þeir þpnnig
gegn „íhaldinu“ fyrir að heildsölum hafi fjölg-
að um helming hér í bænum á 20 árum, þ. e.
a. s. árunum 1921—1941. Nú er það vitað,
að ekki er það bæjarstjórnin, sem veitir leyfi
til heildsölu, heldur fulltrúar ríkisvaldsins,
enda hefur hæjarstjórnin bókstaflega ekkert
um jjað að segja, hvort mönnum er veitt leyfi
1il heildsölu eða ekki, jíifnvel jjótt jæir upp-
fylli engin skilyrði, ef ríkisvaldið veitir mönn-
um þessum leyfið þrátt fyrir það. Að þessu
leyti skjóta kommúnistar því yfir markið, en
einnig að öðru leyti er röksemdafærsla þeirra
fráleit. Árið 1920 bjuggu hér um 17 þúsundir
manna, en árið 1941 yfir 40 þúsundir, þannig
að íbúatalan hefur meira en tvöfaldazt á þessu
árabili. Hafi heildsalafjöldinn verið eðlilegur
árið 1921, hefur þeim mátt fjölga allvcrulega
lil þess að fara fran^. úr hófi, eða gera betur
en tvöfaldázt miðað við fólksfjölda. Enn cr
sá annmarki á, að kommúnistar hljóta að
miða við þann fjölda, sem leyst hefur heild-
söluleyfi, en hins vegar ekki við þá, sem starf-
andi eru, mcð því að vitað er að margir hafa
kcy.pt leyfi, án þess að hafa nú nokkra starf-
rækslu með höndum, ýmsra orsaka vegna.
, Þannig er allt á eina bókina lært — og ein-
fóm vitleysa —, er kommúnistar liyggjast að
aiá sér niðri á meiri hluta bæjarstjórnar vegna
leystra heildsöluleyfa, en þetta er nú mál-
ílutningur, sem segir sex, og undrar nokkurn
þótt „ihaldið skjálfi“ af ótta við slíkan mál-
ílutning. Notadrjúg verður vitleysan komm-
únistum, ef þeir vinna mörg atkvæði með
þcssu.
Af ofangreindu má annað læra. Kommún-
istar eru gersamlega málefnalausir og liafa
ekki cinu sinni nægjánlegt áróðursefni gegn
Sjálfstæðisflokknum vegna bæjarmálefna.
Þeir verða að leita að tylliástæðum, einmitt
á þvi tímabili, sem Framsóknarflokkurinn og
Aljjýðuflokkurinn fóru hér lengst af mcð völd,
og bera þá fram ásakanir fyrir það, að at-
vinnufrelsi.skuli hafa ríkt í landinu. Uppfylli
þeir mcnn öll skilyrði, sem um heildsöluleyfi
sækja, getur híð opinbera á cngan hátt skor-
azt undan að veita leyfið með Óðru móti en
því, að afnema atvinnufrelsið jafnframt. Séj
heildsalafjölgunin árásarefni, felst i þvi að
kommúnistar vilja afnema atvinnufrelsið, en
skipa mönnum fyrir verkum, — hvar þeir
oiga að sitja og standa, hvað þeir megi gera
■og ekki gera og væntanlega á hið opinbera
;ið hafa forsjá slikra ráðstafana. Þetta er merg-
urinn málsins. Kommúnistar vija afnema at-
vinnufrclsið, þannig að menn vcrði að hlíta
þvi, sem þeim er sagt af til jæss skipuðum
ráðamönnum. Fáar þjóðir inunu unna frels-
inu meira en Islendingar, og er því ósennilegt
;ið slíluir áróður heri árangur, nema síður sé.
Fn þannig er allur málflutningur kommúnista.
Nenni menn að eltast við hann og kryfja hann
til mergjar, kemur í ljós, að þar er um
„skemmtilega villeysu“ að i’æða, sem enginn
getur tekið alvaplega, ,cn .jsýpir hins vegar
hvílík „blessuð börn“ eru hér að verki, en
sjáldan hafa þeir auglýst málefnaleysi sitt
hetlfr éll í þessu árásarcfni.
Fundarboð
Þar sem stjórn Fasteignaeigendafélags
Reykjavíkur hefir neitað að boða til fund-
ar í félaginu fyrir í hönd farandi bæjar-
stjórnarkosningar, bjóðum vér undirrit-
aðir meðlimum Fasteignaeigendafélagsms
og öðrum húseigendum í Reykjavík til
fundar, sem haldinn verður í samkomu-
húsinu Röðli við Laugaveg, þriðjudaginn
22. janúar 1946 kl. 8j/2 e- h-
Til umræðú:
Afnám húsaleigulaganna og afstaða
húseigenda til bæjarstjórnarkosn-
inganna 27. janúar 1946. Málshefj-
andi: Snorri Jónsson.
Skorað er á húseigendur að fjölmenna.
Snorri Jónsson,
Halldór Kr. Júlíusson og
Þorbjörn Jónsson.
Tilhymming til
HafníirðiwBfja
Eyðublöð undir kröfur um endurgreiðslu úr rík-
issjóði á hluta af kjötverði fyrir tímabilið 20. sept.
til 20. des. 1945, verða afhent bæjarbúum í eftir-
töldum verzlunum: v.
Verzlun Gísla Gunnarssonar,
Verzlun Guðm. Magnússonar,
Verzlun Jóns Mathiesen,
Kaupfélagi Hafnfirðmga,
Kjötbúð Vesturbæjar,
Pallabúð,
Stebbabúð.
Þeim, sem kröfur ætla að gera um endurgreiðslu
úr ríkissjóði á hluta af kjötverði, ber að snúa sér
til ofangreindra verzlana og fá þar eyðublöðin og
senda þau síðan útfyllt hingað á skrifstofuna, eigi
síðar en 20. febrúar næstkomandi.
Athygli manna er vakin á því, að kröfuna skal
aðeins gera vegna kjötneyzlu á tímabilinu 20. sept.
til 20. des. 1945.
I
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
16. janúar 1946,
. Guðmundur í. Guðmundsson.
Almennur
launþegafundur
verður haldinn í Tjarnarcafé á morgun,
sunnudag, kl. 2 e. h.
FUNDAREFNI:
Skýrt frá launakjarasamningi, sem fé-
lagið hefir gert við atvinnurekendur.
S T J Ó R N I N.
••r-.i- ii ■"
Veðurliamur. Það eru Ijótu illviðrin, sem hér
hafa gengið tlag eftir dag að und-
anförnu. Sífellt hvassviðri, stundum hífandi rok,
og oft hellirigning í þokkahól. Þök fjúka af
hlöðum vestur í Heigal'ellssveit, hattar af kon-
um og körlum hér í bæntim og allt ætlar um
koll að keyra í verstu hryðjunum. Bátar kom-
ást ekki á sjó dögum saman, engin verðmæti
skapast handa þjóðinna og kosningahríðin geis-
ar um land alít. Það er ekki hægt annað að
segja, en að af nógu sé að taka, þegar menn
taia um veðurfarið um þessar mundir, þvi að
við getum rætt um kosninga-gjörningaveður,
þegar allt annað þrýtur.
♦
ótti sjó- Fyrir nokkrum dögum sagði eg frá
mannsihs. því -hér, að eg heíði hitt gamlan
mann og spurt hann, hvað hann
liéldi um horfur á vertíðinni, sem er að byrja.
Hann sagðist vera hræddur við allt þetta hlið-
viðri, sem við höfðum þá orðið aðnjótandi um
Iangan tíma; að við værum húnir að taka svo
mikið fyrirfram af því, að ekkert yrði eftir
nema illviðri, það sem eftir væri af 'þessuin
vetri. Nú hitti eg hann aftur i fyrradag og þá
sagðist hann vera hræddur urn, að hann æll-
aði líklega að reynast sannspárri, en hann
helði gert ráð fyrir, þegar liann hitti mig á
dögunurn. „En þetta getur breytzt aftur,“ bætli
hann sVo við.
*
Á veðra- Þegar illviðrin byrjuðu að hrjá okk-
mótum. ur, varð mér hugsað til þess, sem
gamall harnaskólakennari minn sagði
við mig-fyrir einu eða tveim árum. Hann sagði,
að ísland væri á veðramótum, — það mætti
hugsa sér línu dregna um norðurhvel jarðar,
eklci langt frá Islandi. Annars vegar við lin-
una væri langvarandi góðviðri, en illviðri liin-
um megin. Línan færðist jafnan til, svo að ís-
land væri ýmist í góðviðriint eða hryssingn-
um, en þess á milli lægi hún yfir það og væri þá
gott veður sums staðar, en illt annars staðar á
landinu. Mér finnst þelta vera einföld skýring á
veðrinu okkar liér liti á tslandi.
*
Ivraftaverk. Eg hefi veitt þVi eftirtekt, að allt
sem snertir undur eða kraflaverk,
vekur mikla athygli meðal lesenda minna. Eg
ætla þess vegna að skýra frá kraftaverkasögu,
sem gerðist í Bandarikjunum i haust. Kona
ein, Ninabelle Cross, sem legið hafði rúmföst
í 16 ár, varð allt i cinu lieilbrigð. Hafði Kristur
birzt henni, sagði hún, og sagt henni að rísa
á fætur, þvi að hún hefði verk að vinna. Sið-
an liefir þessi kona, er var kennslukona í borg-
inni, áður en hún lagðist í rúmið; 23 ára göm-
ul, ekki kennt sér neins meins.
*
Hryggjarlið- Læknirinn, sem stuntlaði^stúik-
ur brákaðist. una, heitir W.;E. Minerýóg lief-
ir hann vottað, að stúlkan hafi:
fengið ýmsa sjúkdóma og jafnan annan, þegar
einn var læknaður. Miner var fyrst kallaður
til hennar 1929, er hún hafði fengið heilabólgu
og fékk luin þá tíðiun krampa. Datt hún þá
einu sinni út úr rúmi sínu með þeim afleið-
ingum, að einn hryggjarliðurinn brákaðist og
var stúlkan máttlaus ujip að mitti eftir það,
unz hún stóð upp og var alheil. Gal lnin sein-
ast setið uppi i rúmi sin'u, en alls ekki gengið.
*
Frekari Eftir þetta tók stúlkan, að sögn
veikjndi. læknisins-, ýnisa sjiikdóma aðra,
hvern á fætur öðrum, svo að þegar
lnin, eftir langa mæ.ðu, tók að skána af einum,
þá tók annar við. Kvaðst læknirinn hafa verið
búinn að missa alla von um, að ungfrú Cross
mundi nokkuru sinni geta gengið aftur. Að lok-
um segir hann: „Eg hefi lært læknavísindi, en
eg er sannfærður um., áð ungfrú Cross Jækn-
aðist af guðdómlegum vBldúm, en ekkn fyrir -
mitt tilstilli.“ Hefi eg þá sagt þessa sögu, eins
og cg las hana, og kann hana ekki lengri.
*
Happdrættið. Hefir þú munað eftir að endur-
nýja miðann þinn i Haþpdrætti
Háskóla íslands? Varstu búinn að gleyma, að
það verður dregið í fyrsta flokki hálfum öðr-
um mánuði fyrr en áður, vegna þess að flokk-
arnir eru orðnir tólf? Ef þú ætlaðir að fá sama
númerið og þú hafðir í fyrra, þá liafðir þii
forgangsrétt að því þangað til i dag. Eftir það
er hann útrunninn. En þig hefir ef til vill
drcymt, að þú qigir að fá stærstu vinningana
á eitthvert annað númer? Jæja, en þá skaltu
líka flýta þér og reyna að klófesta það, áður
en -einhver annar nær i það. — •