Vísir - 23.02.1946, Qupperneq 6
6
V I S I R
Laugardaginn 23. febrúar 1946
heldur fund n. k. sunnudag, þann 24. þ. m. kl.
3,30 síðdegis í Kaupþingsalnum.
DAGSKRÁ: Félagsmál.
Fjölmennið og mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Reykvíkingafélagiö
heldur fund n. k. miðvikudag, 27. þ. m.
í Listamannaskálanum kl. 8,30 síðdegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg fundarstörf.
2. ERINDI: Reykjavík fyrir 80 árum, flutt
af Helga Helgasyni, verzlunarstjóra.
3. UPPLESTUR..
4. MYNDASÝNING.
5. DANS.
Fjölmennum stundvíslega!
Stjórnin.
Símaverkfræðingur
Staða símaverkfræðings flugmálastjóra er laus
til umsóknar..
Umsóknarfrestur til 26. þ. m.
Nánari upplýsingar á skrifstofu flugmálastjóra.
Reykjavík, 22. febrúar 1946,
Flugmálastjórinn,
Erling Ellingsen.
Tilkyranin;
frá Vifa kift tátn élaráðuK eij tin u.
Að gefnu tilefni er þeim, sem ferðast til út-
landa, bent á, að samkvæmt 13. gr. reglugerðar
um innflutning og gjaldeyrismeðferð 16. jan. þ. á.,
er óheimilt að taka með sér til útlanda meira en
150 krónúr í íslenzkum gjaldeyri, eða jafngildi
þess í erlendum gjaldeyri. Hafa þegar verið gerð-
ar ráðstafanir til að menn fái ekki skipt í erlend-
um bönkum þeim gjaldeyri, sem er ólöglega flutt-
ur úr landi. Brot gegn reglugerðinni varða sektum
allt að 100.000 krónum.
Viðskiptamálaráouneytið,
21. febr. 1946.
Gott steinhús
í Sogamýri til sölu, kjallari, hæð og ris, 5 herbergi
og eldhús og 4 herbergi og eldhús. —
Stærri íbúðin laus til íbúðar nú þegar — en
hm á næstunni. Verð 150 þús.
^r4(menaa ^aátei^aaáaian
Bankastræti 7.
Tökum að okkur alls konar vinnu við
RAFMAGNSLAGIMIR
Einnig viðgerðir á rafmagnsvélum og tækjum.
/Za^tnayHAOerkA tclin
Barónsstíg 13. — Sími 1254.
Handdælur 1” og 2”
Rennilokur frá Yl' td 3”
Koparunionar Yl' til 2”
Vatnskranar Yl'
Gaddavír
Vírnet 1”.
/í CinarAAcH & Junk
Hver vii ekki fá sérlega fallega,
ódýra og góða prentun 0
Við höfum fengið umboð fyrir bezta firma Dan-
merkur er selur allsk. bréfhausa, reikninga, nótur,
verðlista, auglýsingar og auglýsingaspjöld. Firmað
hefir í þjónustu sinni hina færustu menn, sem teikna
og gera tillögur um tilhögun, útlit og litasamsetn-
ingu fyrir yður. — Nú sem stendur er tiltölulega
stuttur afgreiðslutími. — Sýnishorn eru hér á
staðnum og allar nánari upplýsingar gefnar. —
Talið við oklcur sem fyrst.
Ytjeuuanliíon CY C(o. L.j.
Austurstræti 14. Sími 1887.
Sœjarjréttii*
Næturlæknir
í nótt og aðra nótt er i Lækna-
varðstofunni, simi 5030.
Næturvörður
i nótt og aðra nótt er í Lauga-
vegs Apóteki. „
Næturakstur
í nótt annast bst. Hreyfill, simi
1633. Aðra nótt annast bst. Bif-
röst, sími 1508, aksturinn.
Helgidagslæknir
er Pétur Jakobsson, Rauðarár-
stíg 32, simi 2735.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messa'ð kl. 2, síra
Jón Auðuns; kl. 5, síra Sigurbjörn
Einarsson docent.
Hallgrímssókn: Kl. 11 árd.
barnaguðsjjjónusta í Austurbæj-
arskóla, sr. Sigurjón Árnason. —
Messa á sama stað kl. 2 sðd., sr.
Jakob Jónsson.
Nesprestakall: Messað i kap-
eilu Háskólans kl. 2 e. h., sr. Jón
Thorarensen.
Laugarnespestakall: Barna-
guðsþjónusta kl. 10 árd. Messa
kl. 2 siðd. Sr. Garðar Svavarsson.
Fríkirkjan: Barnaguðsþjónusta
kl. 2. — Síðdegismessa kl. 5, sr.
Árni Sigurðsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Mess-
að kl. 5, sr. Jón Auðuns.
Bjarnai’staðir: Messað kl. 2 e. h.
sr. Garðar Þorsteinsson.
Útská'laprestakall: Barnaguðs-
þjónusta i Sandgerði kl. 11 árd.
Messað að Útskálum kl. 2 siðd.
sr. Eiríkur Brynjólfsson.
50 ára
er í dag Sólveig Ólafsdóttir,
Bergþórugötu 11.
Bridgekeppnin.
Fimmta umferð verður spiluð
að Röðli á morgun kl. 1 e. h. Þá
spila saman sveitir Lárusanna,
sveit Harðar og Möllers, Dungals
og Gunngeirs og Einars B. og
Guðm. Ó. Öllum er heimill að-
gangur.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25
Samsöngur (plötur). 20.30 Ein-
söngur (frú Sigriður Pétursdótt-
ir): a) Eg lít í anda liðna tíð.
b) Til næturinnar (sami). c)
Vögguljóð (Sigurður Þórðarson).
d) Myndin þín (Eyþór Stefáns-
son). e) Til eru fræ (Merikanto).
20.45 Upplestur: „Jökullinn" eft-
ir Johannes V. Jensen, bókarkafli
(Sverrir Kristjánsson). 21.15
Leikrit: „Kvöldmáltíð kardinál-
anna“ eftir Julie Dantas (Har-
aljjur Björn^sen o. fl.). 22.00
Fréttir. 22.25 Uanslög. 24.00 Dag-
skrárlok.
Happdrætti Háskóla íslands.
Athygli skal vakin á því, að
dráttur i 2. flokki happdrættis-
ins fer fram á mánudag, en þann
dag verða engir miðar afgreiddir.
í dag eru því allrasíðustu fovöð
að endurnýja og kaupa mjða.
Hjúskapur.
í dag .verða gefin saman i
hjónaband, af síra Jóni Thoraren-
sen, ungfrú Sigíður Símonardótt-
ir, Klapparstíg 44, og Gunnar
Arnkelsson, Frakkastíg 14 B.
Heimili ungu hjónanna verður á
Þrastargötu 3B.
Samskot.
. .A<5 gefnu tilefni skal það tek-
ið fram, að samskotabeiðni sú,
sem birt var hér i blaðinu á
fimmtudag, var á misskilningi
byggð. Var ekki óskað eftir söfn-
un þessari. ■
í DAG er siksti söludagur í 2. flokki. Muniíl al endurnýja.
Mappdrmttiö.