Vísir - 18.01.1952, Qupperneq 1
I
42. árg.
Fösíudaginn 18. janúar 1952
14. tbl.
Fulltrúar á fiskimálaráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Talið frá vinstri: Hj. Nilsson (Svíþjóð),
Knud Ree, fiskimálaráðherra (Danmörk), Peder Holt (Noregur) og prófessor Nordal, sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn.
Chs&r’chill sefjir rið MmnclstrúlkýtBpigt fj:
„Láttim þaS ráða lírsSitum að Bretar
og iaitdarik|antemi troði sömu slóð."
Kjarnorkuvopnin draga úr heimsstyrjaidarhættunni.
Sleppið þeim ekki, fyrr önnur betri tiltæk.
Winston Churchill forsætisráðherra Bretlands ávarpaði báðar
deildir Bandaríkjaþings í gær. Risu þingmenn og aðrir við-
staddir úr sætum sínum og fögnuðu honum hið bezta, er hann
gekk um þingsalinn í ræðustólinn. Þetta var í þriðja skipti, sem
ChurchiII ávarpaði bjóðþing Bandaríkjanna. Athöfninni var
sjónvarpað.
Churchill kom víða við í
ræðu sinni og ræddi afstöðu
Breta til ýmissa helztu heims-
vandamála, en í upphafi ræðu
sinnar, sem stóð 35 mínútur,
gerði hann ítarlega grein fyrir
efnahagsmálum Breta og til-
ganginum með komu sinni til
Bandaríkjanna. Hann lagði á-
herzlu á það, að Bretar yrðu
sjálfir að leysa efnahagsvanda-
mál sín og velja sér leið til
efnalegs sjálfstæðis og vék að
því hve mjög þeir legðu sig
fram til þess að auka fram-
leiðsluna, enda orðið mikið á-
gengt. Þeir hefðu og lagt mikið
af mörkum öðrum þjóðum til
hjálpar. Endurvígbúnaðurinn
til varnar legði þeim miklar
byrðar á herðar og í þeim efn-
um væri vandamál við að
glíma, sem nauðsynlegt hefði
verið að ræða við Bandaríkja-
stjórn. Hann væri ekki kominfi
til þess að biðja um gull, held-
ur stál og ekki um pappír, held
ur verkfæri. Churchill sagði, að
Bandaríkjastjórn yrði við
mörgum tilmælum hans, af
miklu höfðinglyndi.
Kma-mál.
Hann kvaðst alls ekki vera
viss um, að Kína yrði stjórnað
af kommúnistum marga manns
aldra og óvinsamlegt Banda-
ríkjunum, og það hefði verið
rétt stefna hjá Bandaríkja-
stjórn að spyrna gegn ofbeldi
í Kóreu, en þar hefðu Banda-
ríkjamenn borið 9/10 hluta
byrðanna. Bretar hefðu sýnt
sama hug með því að standa
þar við hlið Bandaríkjamönn-
um og hét Churchill fullum
stuðningi Breta, ef samkomu-
lagsumleitanirnar um vopna-
hlé færu út um þúfur. Hann
endurtók það, sem Eden sagði
í ræðu sinni í Columbia-há-
skólanum, að ofbeldishættan
væri ekki úr sögunni í Asíu,
þótt samkomulag næðist í Kór-
eu. Lofsvert kvað hann hvað
mikla þolinmæði fulltrúar Sam
einuðu þjóðanna hefðu sýnt við
hinar erfiðu og langdregnu
samkomulágsumleitanir í Kór-
eu.
Kvað hann stefnu Trumans
forseta í Kóreumálinu hafa
Framh. á 6. síðu.
Brennunni
frestað enn.
Álfabrennu íþróttafélaganna
á íbróttavellinum er enn frestað
í kvöld vegná yfirvofandi óveð-
urs.—
Spá Veðurstofunnar í morgun
var svo óhagstæö að íþrótta-
félögin treysta sér ekki til ann-
ars en að aflýsa brennunni enn
einu sinni. Spáir Veðurstofan
suðaustanátt með hvassviðri og
snjókomu og segir bað sig sjálft
að hvorki álfar né áhorfendur
kæra sig um að vera úti í.því-
líku veðri, enda ekki háiít
gaman að brennu nema veöur
sé stillt og gott.
Haribakur seldi
fyrir 14 þús. pund.
Harðbakur seldi ísfiskafla í
Grimsby árdegis í dag. Áreið-
anlegar fregnir hafa ekki bor-
izt um söluna, en hann mun
hafa haft um 3000 kit og selt
fyrir um 14 þús. stpd. Hefir
þannig fengizt ágætt verð fyrir
aflann.
B.v. Askur seldi ísfiskafla í
Grimsby í gær, 2553 kit fyrir
11.378 stpd.
Hefir þannig fengizt á 5.
stpd. fyrir kittið og er það ágætt
verð.
-----♦-----
Carfsen fagnaft sent
þlóðhöfðlngja.
Þegar Kurt Carlsen skip-
stjóri kom til New York í gær
var honum fagnað sem þjóð-
höfðingja. Stráð var ,,kon-
fetti“ úr öllum gluggum húsa,
við götur þær er ekið var um,
yfir Carlsen og skipverja hans,
en í fylkingunni, voru auk
þeirra sjómenn, hermenn,
slökkviliðsmenn og lögreglu-
þjónar.
Carlsen var sæmdur heiðurs-
peningi borgarinnar fyrir af-
rek sitt.
Snjóbíll Guðm Jónassonar
hefir verið fenginn til þess að
flytja Skaftafellssýslupóst til
j Víkur.
i Norðurlandapóstur komst að
i Fornahvammi í gærkvöldi og
I flytur snjóbíll hunn norður yfir
] heiði í dag til Hvaoamstonga.
Sleöar notaðir viH mjólk-
urflutninga austan fjalls.
énmi til
Vísir hefir átt stutt viðtal við
forstjóra Mjólkursamsölunnar
og spurt hann um horfur varð-
andi mjólkurflutningana.
Kvað hann ganga greiðlega
að koma mjólkinni til bæjarins
frá búunum, og unnt hefði verið
til þessa að senda í búðirnar
svipað magn af mjólk og vana-
lega, en til þess hefði orðið að
minnka rjómaframleiðsluna.
Aðalerfiðleikarnir_ væru í
sveitunum, að koma mjólkinni
til búanna, og víða hefði orðið
að nota sleða til mjólkurflutn-
„JökulE66 á að
fiyfja 32 far-
þega.
Breytingum á ,,Jökli“, —
Douglasflugvél Loftleiða, —
miðar vel áfram.
„Jökull“ er flugvélin, sem
Loftleiðamenn björguðu af
Vatnajökli á sínum tíma við
hinar erfiðustu aðstæður, ems
og menn muna, en síðan var
'flugvélinni flogið til Bretlands,
!að undangenginni bráðabírgða-
skoðun hér, og hefir verið unrúð
að breytingum á henni þa:.
Er unnið að þessu verki hjá
fyrirtæki einu, er hefir bæki-
stöð sína á Blackbushe-flug-
velli, skammt suður af London.
Hjálmar Finnsson, framkv.stjóri
Loftleiða ,tjáði Vísi í morgun,
að gera mætti ráð fyrir, að
flugvélin kæmi liingað fyrri
hluta marzmánaðar n.k., og
myndi . hún þá þegar hef ja
innanlandsflug. Hún mun geta
flutt 32 farþega, er viðgerðinni
er lokið.
inga, þar sem fjölda margir
mjólkurflutningabílar hefðu
bilað bæði austanfjalls og 1
Borgarfjarðarhéraði. Erfiðleik-
arnir við að flytja mjólkina til
búanna væru stórkostlegir, og
ef. ekki rættist úr, gæti svo
farið að ekki fengist nægt
mjólkurmagn, til að fullnægja
eftirspurninni.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegagerð ríkisins batnaði færð
nokkuð í gær í Flóanum. —
Brotist var með erfiðismunum
að Húsatóttum á Skeiðum. —•
Samgönguerfiðleikar eru miklir
í uppsveitum og Holtin enn
ófær.
Fært er að Seljabrekku í
Mosfellsdal á Þingvallaleið, og
að Hvammsvík í Kjós á Hval-
fjarðaríeið.
Rutt var í gær af vegunum til
Keflavíkur og Grindavíkur.
-----♦-----
I
Öryggisráðið
ræðir iiashmir-
málim.
Öryggisráðið ræddi Kashmir-
deiluna í gær.
Malik fulltrúi kvað Vestur-
veldin eiga sök á deilunni og
vildu þau fá herstöðvar í
Kashmir, en Graham, sátta-
semjari Sameinuðu þjóðanna,
ræki í hvívetna erindi Vestur-
veldanna.
Fulltrúi Breta sagði, að Malik
hefði talað|eins og hann væri
haldinn móðursýki, en fulltrúi
Bandaríkjanna kvað ásakanir
hans ekki svara verðar.
Fiskaflinn 360 þús. lestir
í nóvemberlok.
60 þús. leslyin melri
Fiskaflinn í nóvember varð
16.012 smálestir.
Þar af var síld 710 smál., en
til samanburðar má geta þess,
að í nóvember 1950 var fiskafl-
inn 26.028 smál., þar af síld
7.408 smál.
Fiskaflinn frá 1. janúar til
30. nóvember 1951 varð alls
359.894 smál., þar af síld 84.617
smál., en á sama tíma 1950 var
fiskaflinn 297.566 smál., þar af
síld 57.317 smál. og 1949 var
aflinn 325.229 smál., þar af
síld 71.306 smál.
Hagnýting þessa afla var sem
hér segir( til samaabm-ðar eru
settar í sviga tölur frá sama
tíma 1960).
en á sama tfsnaJ950.
ísvarinn fiskur 47.448 smál.
(30.113 smál.). Til frystingar
87.901 smál. (52.804). Til sölt-
unar 62.750 smál. (98.512). Til
herzlu 6.689 smál. (475). í
fiskimjölsverksmiðjur 67.334
smál. (56.415). Annað 3.155
smál. (1.931).
Síld til frystingar 5.061 smál.
(5.947). Síld til söltunar 20.090
smál. (25.722). Síld til bræðslu.
59.466 smál. (25.636). Síld til
annars ekkert (11 smál.).
Þungi fisksins er miðaður við
slægðan fisk með haus að und-
anskilinni síld og þeim fiski,
sem fór til fiskimjölsvinnslu,
en hann er óslægður.