Vísir - 18.01.1952, Blaðsíða 8
Föstudaginn 18. janúar 1952
'e
Frá húsameéstara s'íkistEiiS:
llnnið að filépisppcirátt-
uns að iigregiistii hér<,
Mfgs§€íjZBm$mí)Q’‘€&sbbh&gg_’>NE&ei£s* vúlíkisims
ntimmi mú &eb. bebs sSímbs íggeriss st mu'.
Á árinu 1951 hafa bygginga-
framkvæmdir á vegum þess op-
inbera verið minni en undan-
farin ár, samkvæmt því er
húsameistari ríkisins liefir
skýrt frá.
Jafnframt getur hann þess
að sarndráttur þessi í bygginga-
frarnkvæmdum stafi að nokk-
uru leyti af efnisskorti.
Af opinberum byggingafram
kvæmdum í Reykjavík má fyrst
og fremst geta framkvæmda
og undirbúnings að fram-
kvæmdum í sjúkrahúsmálum.
Þar hefir m. a. blóðbankinn
á Landsspítalalóðinni verið
nærri fullgerður. Langt er kom
ið viðbyggingu við röntgen-
deild Landsspítalans. Tillögu-
uppdráttur hefir verið gerður
að ungbarnaheimili og loks er
undirbúningur hafinn að end-
anlegum uppdráttum hjúkrun-
arkvennaskóla.
Af öðrum byggingafram-
kvæmdum hér í Rvík má nefna
það, að unnið er að staðsetningu
og fyrirkomulagi nýs kennara-
skóla, ásamt tilheyrandi hús-
um. Eldhús og aðliggjandi her-
bergi hafa verið fullgerð í Þjóð-
leighúsinu, fullgert hefir ver-
ið hjúkrunarkvennahús fyrir
Landsspítalann og loks hafa
tillöguuppdrættir og áætlanir
verið gerðar um lögreglustöð.
Á Vífilsstöðum hafa verið
.gerðir uppdrættir að stækkun
hælisins, vegna samkomusalar
og stækkaðrar setustofu.
Að sjúkrahúsum utan Rvík-
ur hefir verið unnið að sjúkra-
húsinu nýja á Akureyri og bygg
ingu læknisbústaðar í Búðar-
dal, en uppdrættir gerðir að
Þvottahúsi við Kristneshælið,
viðbyggingu við spitalann á
Seyðisfirði og að læknisbústað
í Borgarfirði eystra.
Uppdrættir hafa verið gerðir
að útvarpshúsum 1 Eyjafirði og
Sauðárkróki, og að tveimur
húsum fyrir ríkisútvarpið á
Vatnsendahæð. Þá hefir enn-
fremur verið fullgert póst- og
símahús í Hrútafirði.
Að kirkju- og kapellubygg-
ingum hafa uppdrættir verið
gerðir að slíkum byggingum á
Yztaskála, Húsafelli og Skálm-
arnesmúla.
Unnið hefir verið að sund-
laugar- og sundhallarfram-
kvæmdum á Akureyri, Heliis-
sandi, Kolviðarnesi, Höfn í
Hornafirði, Stykkishólmi, Húsa
vík, Reykjum í A.-Húnavatns-
sýslu og Hafnarfirði.
Annars er mest unnið að ým-
iskonar skólabyggingum víðs-
vegar um landið. M. a. er heima
vistarhús Menntaskólans á Ak-
ureyri fullgert. Gagnfræða-
skólahús í Vestmannaeyjum
gert fokhelt og undirstöður
steyptar að gagnfræðaskóla-
húsi á Siglufirði.
Unnið hefir verið að héraðs-
skólunum að Skógum, Eiðum
og Laugarvatni og loks hefir
einnig verið unnið að fjölmörg-
um barnaskólum og félags-
heimilum víðsvegar um landið.
Þjóðvegir í Bretlandi .
teppast í tugatali.
Skip senda út neyðarmerki
Miklir stormar liafa enn
geisað við Bretland og hafa
skip á Ermarsundi og við Norð-
ursjó átt í miklum erfiðleikum
og sum sent frá sér neyðar-
merki.
Meðal þeirra er þýzka skóla-
skipið Pamir, sem er stórt og
mikið seglskip, eitt seglskipa
þeirra, sem var í kornflutning-
um frá Ástralíu, og fræg voru á
sinni tíð, og nú flest úr sög-
unni. Björgunarbátur fór skip-
inu til aðstoðar.
Þegar skipið bað um aðstoð
var það á Norðursjó, 30 mílur
frá landi. Var beðið um að
senda skip eða björgunarbáta
eftir 49 sjómannaefnum og að
draga skipið til hafnar.
Seinustu fregnir frá Pamir
herma, að storminn hafi lægt,
og skipið sé úr hættu.
Skip nokkurt strandaði
»við Land’s End og var á-
höfninni, 38 manns bjargað.
Hollenzkt skip sendi frá sér
neyðarmerki. B j örgunarbátui
frá Margate flutti skipverja til
lands, nema skipstjórann, sem
kaus að halda kyrru fyrir á
skipinu, í von um, að það mundi
haldast á floti þar til lægði, og
þá yrði auðið að draga það til
hafnar.
Fannkoma og
umferðartruflun.
Fannkoma hefir verið mikil
að undanförnu í Skotlandi og
norðurhéruðum Englands o’g
sagt, að yfir 40 Þjóðverjar séu
tepptir, vegna allt að tveggja
metra djúpra skafla.
Samskot eru hafin í Glasgow
til aðstoðar þeim, sem harðasl
urðu úti í ofviðrinu á Orkneyj-
um, Hjaltlandi og Suðureyjum,
en talið er að á eyjunum séu
um 4000 bændur, og mikill
fjöldi þeirra meiri eða minni
aðstoðar þurfi.
Ferðafélagið efnir tii Ijós
myndasýningar í iiaust.
Sýningin vea*ður í tiiefni.^af
aldárfjóirðungsafmæli F.i.
Forráðamenn SVFÍ skýrðu
blaðamönnum frá því í gær, að
félagið hefði keypt brjá fimmtu
af sjúkraílugvél Björns Páls-
sonar, en Vísir hefir áður greint
nokkuð frá þessum áformum.
Björn Pálsson hefir reynzt hinn
dugmesti maður við sjúkraflug-
ið, eins og alkunna er, farið um
40 ferðir og lent á hinum erfið-
ustu stöðum, en horium var of-
viðá að reka; sjúkrailug'ið einn.
Hinsvegar þykir sýnt, að við
rriegum ekki án sjúkrafiugvélar
vera, og því hefir SVFÍ gengið
inn í kaupin. Þá hefir Alþingi
aukið framlag sitt til sjúkra-
flugs í 50 þús. kr. á ári. .
Hvar er bíleigandinn ?
Kannsóknarlögregluna vant-
ar bíleiganda, sem eiga mundi
bifreið, sennilega svarta að lit
og af lítilli Fordgerð.
Ur þessari bifreið hefir verið
stolið bylgjubreyti og hátalara
frá útvarpstæki.
Rannsóknarlögreglan hefir
fundið þjófana og telja þeir sig
hafa stolið þessu laust eftir sl.
áramót úr framangreindri bif-
reið þar sem hún stóð á bíla-
stæðinu hjá Hótel Skjaldbreið.
Hins vegar hefir eigandi bif-
reiðarinnar ekki kært þennan
þjófnað enn sem komið er, en
lögreglan vill hinsvegar koma
hinum stolnu munum til hans.
-----♦-----
Gott heilsuíar
í bœniun.
Samkvæmt seinustu skýrsl-
um frá skrifstofu borgarlækn-
is var heilsufar gott í bænum
um jóla- og nýársleytið, en
skýrslurnar ná fram til 5. þ. m.
Engin ný mænusóttartilfelli
hafa komið til sögunnar á und-
angengnum vikum. Kíkhósta
hefir orðið vart, en mjög fá til-
felli, 4 tilfelli dagana 23. des.
til 30. og 5 31/12,—5/1.
Ferðafélag íslands efnir til
Ijósmyndasýnmgar í Reykjavík
ó komandi hausti.
Sýningin verður haldin í
Listamannaskálanum og verð-
ur sennilega opnuð um mán-
aðamótin október-nóvember,
en getur þó ef til vill dregist
fram um miðjan nóvember-
mánuð.
Ferðafélagið efnir til sýning-
arinnar í tilefni af 25 ára af-
mæli sínu, sem er á þessu ári.
Félagið var stofnað haustið
1927 en síðan hefir það efnt
til þriggja afmælis-ljósmynda-
sýninga. Það var á 5 ára af-
mæli félagsins, 10 ára og 20
ára afmælinu.
Síðastá ljósmyndasýningin
var haldin 1947 í Listamanna-
skálanum. Þrátt fyrir tilfinn-
anlegan efnisskort' á ljós-
myndavörum þá, bárust um
400 myndir til sýningar, en
auk þess voru sýnd þar ýmis
ferðatæki og ferðaútbúnaður,
ljósmyndavélar o. fl. Þá var
þar sérstök ljósmyndavinnu-
stofa, þar sem unnið var að
ljósmyndastækkunum vissa
tíma dags. Sýningin vakti mikla
athygli bæjarbúa, enda sóttu
hana hátt á 6. þúsund manns.
Ekki hefir ennþá verið á-
kveðið neitt um fyrirkomulag
þeirrar sýningar,' sem nú fer í
Arásir á báða
bóga.
Bandarísk risaflugvirki hafa
gert nýjar árásir á brýr og
járnbrautarstöðvar í Norður-
Kóreu.
Kommúnistar hafa gert marg
ar árásir til að þreifa fyrir sér
um styrk andstæðinganna, en
þeim var öllum hrundið.
Ekki hefir þokast neitt í sam-
komulagsátt í Panmunjom.
hönd. En gera rná þó ráð fyrir
að þar verði léð rúm öilum teg-
undum mynda, enda þótt Ferða-
félagið sjálft leggi höfuð-
áherzlu á íslenzkar landslags-
myndir. Ennfremur verða vafa-
laust sýndar að þessu sinni lit-
myndir og jafnvel kvikmyndir,
og sá háttur hafður á, að þær
verða sýndar á sýningartjaldi
vissa tíma kvölds.
Sérstök dómnefnd verður
kvödd til að dæma um beztu
myndir og verðlaun veitt höf-
undum þeirra.
Stjórn Ferðafélagsins mun
síðar tilkynna nánar tilhögun
sýningarinnar, svo og þátttöku-
skilyrði og annað sem máli
skiptir.
----4-----
Andvigur þátt-
töku í Evrópu-
her.
Jafnaðarmannaflokkurinn í
Vestur-Þýzkalandi hefir lýst
yfir því, að hann telji ekki sam-
þykkt þingsins um þátttöku í
stofnun Evrópuhers löglega
méð einföldum meirihluta,
heldur þurfi % atkvæða til lög-
legrar samþykktar. Náist ekki
samkomulag ætlar flokkurinn
að berjast fyrir þingrofi og
nýjum kosningum.
---- ♦
Samþykkt með 53
gega 5.
Stjárnmálanefndin sam-
þykkti í gær með 53 atkvæð-
um gegn 5 að vísa seinustu til-
lögum Vishinskys til afvopn-
unarnefndarinnar. Fulltrúar
tveggja þjóða greiddu ekki at-
kvæði.
Þessi einstæða mynd. var tekin af bandamka natnsngaskipi»« „Flying Eni skömmu
úSur en J»aS sökk. Kortið er sett er inn á myndisa sýnir þni- -ai drátta gin slitnaði
(krosssnn) og þar sem það loks sökk (hringurma).