Vísir


Vísir - 20.11.1952, Qupperneq 5

Vísir - 20.11.1952, Qupperneq 5
Fimmtudaginn 20. nóvember 1952. VlSIR 2400 hús byggð í bæn- um á árunum 1941—50. M*4Wjf ai rom /J6'J íhú&ar- hús wneö 4JJJ íhúöum- I ítarlegu yfll'lltl uin 'vm’ sem Þs höfðu verið téknar notkun í hermannaskálum hér í bænum. Þá voru samtals 1884 íbúðir. í kjöllurum. Af þeim voru 710 taldar lélegar, 149 mjög lélegar og 84 óhæfar. Hin- ar voru ýmist taldar góðar eða sæmilegar. í þessum kjallarai- byggingar og byggingarmál í Reykjavík sem hagfræð- ingur bæjarins, dr. Björn Björnsson, hefur samið, og birtast mun í Árbókum Reykjavíkur á næstunni, gefur hann ýmsar mark- verðar upplýsingar varð- andi þessi mál. Á árabilinu 1941—1950 hafa verið byggð hér í Reykjavík nærri 2400 hús, eða sem svarar 240 húsum að meðaltali á ári. Mest var byggt hér á árunum 1945—’46, en á þeim tveimur árum voru byggð hér yfir 700 hús og áætlaður byggingar- kostnaður, þeirra röskar 180 milljónir króna. Langmestur hluti þessara bygginga eru íbúðarhús, eða 1565 að tölu, þar næst koma geymsluhús, gripahús, bílskúr- ar og þess háttar. Þriðju í röð- inni koma verksmiðjuiyvinnu- stöðvar verzlunarhús, skrif- stofuhús og þvíumlíkt, en pau hús eru um 160 talsins. Loks koma svo menningarstofnanir, svo sem skólar, sjúkrahús, samkomu- og íþróttahús, kirkj- ur ó. fl., en þær byggingar eru 19 að tölu. Mikill meiri hluti íbúðarhús- anna voru steinsteypt, aðeins um 330 hús sem byggð voru úr timbri. í þessum 1565 íbúðarhúsum voru samtals 4355 íbúðir og samanlagður herbergjafjöldi í þeim um 15000 talsins. Á árabilinu 1931—51 voru byggðir í Reykjavík 95 verka- mannabústaðir með samtal's 372 íbúðum. Samanlagður bygging arkostnaður þessara húsa var um 18 milljónir króna. Þá hefur Reykjavíkurbær byggt samtals 35 íbúðarhús með 256 íbúðum. Af þessum húsum eru 6 við Hringbraut, 4 við Lönguhlíð, 9 við Skúlagötu og 16 í Höfðaborg. Árið 1950 bjuggu 1281 manns í þessum húsum. Byggingarkostnaður við þau mun hafa numið um 16 V2 milljón króna. Fyrir utan framangreindar bæjarbyggingar eru svo Bú- ■ staðavegshúsin, en bygging þeirra var hafin sumarið 1949. Þar eru samtals 53 hús með 212 ibúðum. Árið 1928‘voru um 800 kjall- araíbúðir í bænum, eða um 15% af íbúðafjöldanum í heild. Á árabilinu frá 1930—’38 eru kjallaraíbúðir ekki skráðar í skýrslum byggingafulltrúa, þar sem þær voru samkvæmt lög- um ekki leyfilegar. En frá og með árinu 1939 eru kjallaríbúð- irnar taldar með að nýju í skýrslum byggingarfulltrúa, þar sem hann taldi að þær væri raunverulega viðurltenndar með því að húsaleigunefnd á- kvað leigu í þeim. Síðan lætur nærri að fjórða hver íbúð, sem tekin hefur verið í notkun eft- ir 1939 sé í kjallara. Vorið 1946 fór fram skoðun á öllum kjallaraíbúðum* og íbúð búðum bjuggu samtals nær 6100 manns. Talið er að vegna hins mikla húsnæðisskorts í bænum á undanförnum árum muni tiltölulega lítið af kjall- araíbúðunum, sem voru í notk- un 1946, hafa verið rýmt. Við húsnæðisskoðunina 1946 voru 326 braggaíbúðir í notkun með um 1300 íbúum. Af þessrnn braggaíbúðum voru aðeins 14 taldar góðar og 84 sæmilegar, en 139 töldust lélegar, 70 mjög lélegar og 19 óhæfar. Á undan- förnum árum hafa búið um 2000 manns í herskálaíbúðum. SjómannshugEeiðingar. ILandhelgiismúlin ag Bretar. Eg hrökk við— og eg hygg að mér sé óhætt að fullyrða, að allri sjómannasveit íslands hafi brugðið í brúrg er Tíminn birti 29. okt. s. 1, að blaðið Fishing News í Englandi, hefði ásakað íslendinga fyrir að eiga sök á hinu hörmulega sjóslysier varð, er brez.kur togari fórst við Hvarf á Grænlandi á sl. hausti. Þessari fólskulegu illkvitni blaðsins í garð íslendinga fá engin orð lýst. Reiðin sýður svo í brezkum togaraútgerðarmönnum, að þeir kunna sér ekki málshóf yfir því, að íslendingar hafa, sér til sjálfsbjargar, neyðst til að útvíkka landhelgislínu sína svo sem lög og réttur standa til. En þessir menn gæta þess ekki, að íslendingar sjálfir verða að sitja við sama borð og aðrir fiskveiðamenn. íslend- ingar sjálfir hafa orðið að hverfa af heimamiðum á fjar- lægar slóðir. Þeir hafa t. d. nú undanfarið leiíað á veiðislóðir 6—700 mílur norðvestur frá Hvarfi á Grænlandi, og eru á þeim slóðum enn. Mundu þeir gera þetta, ef hægara væri um heimatökin? Nei, en þeir verða ] að virða sína landhelgi og ætl- ast einnig til þess, að aðrar þjóðir geri hið sama, þótt van- ist hafi veiðiþjófnaði um alda- bil. En því miður hafa hvorki Bretar né aðrir útlendingar sýnt íslandi virðulega fram- komu í landhelgismálunum á umliðnum öldum og framkom- an reynast óhæfa. Eða halda þeir, að íslend- ingar séu þess ekki minnugir, er togarinn Royalist hugðist kaffæra yfirvald ísfirðinga, Hannes Hafstein, inni á Dýra- firði foTðum, er hann var að skyldustörfum landhelgisgæzl- unnar, þótt þeim ekki tækist að vinna bug á sundþreki hetj- unnar. Eða halda þeir að gleymst hafi í minni íslendinga. er brezkur togari, sem var að veiðum langt inni í Breiða- firði, beitti ofbeldi við yfirvald Barðstrendinga, Guðmund Björnsson, og sigldi með hann ásamt Snæbimi Kristjánssýni hinum kunna í Hergilsey til Bretlands. Þessir atburðir gerðust á fyrsta tug aldarinnar sem vér lifum á. Kannske brezkir togaraút- vegsmenn vilji svo halda, að þeir geti talið þjóðunum trú um, að þeir hafi ávallt hagað sér sem englar í íslenzkri land- helgi? Verði þeim að trú sinni. Og svo leyfa þeir sér að bera það á borð, að íslendingar séu valdir að sjóslysi brezks tog- ara við Grænland. Hvermg hefur framkoma ís- lendinga reynst, þegar voði hefur steðjað að útlendum veiðiskipum við ísland? Hverj- um var að þakka bjöi-gunaraf- rekið mikla og víðfræga við Látrabjarg, er togarinn Dhoon strandaði þar fyrir fáum árum? Hversu margar fórnfúsar hend- ur hafa tekið þátt í björgun út- lendinga við suðurströndina? Þeir, sem bjargast hafa, eiga frá þeim afrekum sannarlega margar kærar og ógleymanleg- ar endui-minningar. Það væri ekki úr vegi að aðstandendur Fishing News gerðu sér þess grein. Og svo kemur síðast það, sem kastar tólfunum, í Morgun- blaðinu 7. þ. m. — frásögn úr brezka tímaritinu Fish Trades Gazette frá 25. okt. sl. um „að brezkir sjómenn séu ekki óhultir í Reykjavík" (!!!). — Trúi nú þeir, sem trúa vilja. Nei, íslendingar munu aldrei sýna Bretum óréttlæti, en þeir heimta að eiga sína landhelgi, og munu eftir getu verja hana af lífsnauðsyn og kemur það jafnt niður á íslendingum sjálfum og útlendingum. Þetta mættu brezkir togai-aútvegs- menn láta sér skiljast. Löndunarbannið á togara- fisk íslendinga í brezkum höfn— um dærnir sig sjálft. 12. nóvember. Sjómaður. Til Alþingis. Eins og kunnugt er, brann bær Sigríðar í Brattholti nú i haust. Mér finnst það ekki við- eigandi ellilaun til hennar, að' þjóðfélagið láti hana svo að segja liggja úti á gaddinum £ vetur, við hlið brunarústanna af bæ hennar, án þess að það- sýni í neinu að það meti þjóð- rækni hennar nokkurs. Það mun ekki heldur örfa aðra til að sýna þjóðrækni, sem alltaf er þó verið að prédika. fyrir fólkinu, ef sú dyggð er svo- einskis metin. Sú þjóð, sem. þannig býr að sínum þjóðrækn- ustu þegnum, er sannarlega i hættu stödd. Vill nú ekki Al- þingi sjá sóma sinn og veita Sigríði í Brattholti ríflcgan, kvaðalausan og skattfrjálsan styrk til að endurbyggja bæ- inn sinn? Það gæti forðað henni frá því að þurfa, í ellinni, að- yfirgefa fossinn sinn og fara „á- mölina“. Eg held að þeim tíma þings- ins væri vel varið, sem færi í að samþykkja ákvæði um þetta, þótt einhver ofstjórnar- og eignaránslögin yrðu þá að bíðá á meðan. Jón N. Jónasson. Fá smiösréttindi. Hallgrímur Magnússon, Langholtsvegi 188, hefir fengið leyfi til þess að standa fyrir byggingum í Reykjavík sem múrsmiður. — Þá hefir Jón Helgason, Barmahlíð 59, feng- ið leyfi til þess að standa fyrir byggingum í Reykjavík sem húsasmiður. KWÓMÐþankaK Gustaf VI. Adolf Svíakonungur varð 70 ára fyrir skömmu, en hann heldur ennbá fullri starfsorku og var mynd þessi tekin af honum við vinnuborð sitt um svipað leyti og konungur átti afmæli.. STÖRF TOLLVARÐA og annarra löggæzlumanna eru vandasöm og oft vanþakklát. Oft verða þeir að taka skjótar ákvarðanir og treysta umsvifa- laust á dómgreind sína og sam- vizkusemi, án samráðs við aðra starfsbræður sína. Gerir þetta vitanlega miklar kröfur til þeirra, sem slík störf hafa á hendi. Tollgæzlumönnum er kylt að koma í veg fyrir smygl og allan ólögmætan innflutn- ing til landsins, hvort heldur er um að ræða áfengi, tóbak eða annan varning. ❖ Fyrir skemmstu bar svo við á Akureyri, að yfir- tollvörðurinn þar stóð að verki danskan sjómann, sem smyglaði miklu magni af áfengi i land, án þess að vita, að sjálfur yfir- tollvörðurinn væri væntanleg- ur ,,kaupandi“. Samkvæmt frá- sögnum blaða hér syðra gerðist smygl þetta með talsvert ó- venjulegum hætti, og hefur að- ferð tollvarðarins við embættis- reksturinn í þetta skipti vakið jmeira umtal en venja er til við j slík tækifæri. Engum dettur í hug að mæla smygláformum hins danska sjómanns bót, en eg hefi orðið þess var, að sumum finrist þáttur tollvarðarins ekki glæsilegur, og því er á þetta minnzt hér. ♦ Verður ekki annað séð af frásögn eins blaðsins hér, en tollvörðurinn hafi tjáð sig’ fúsan til þess að kaupa allt það áfengi, er sjómaðurinn gæti fest hönd á, og þótti hinum er- lenda manni þetta allgott tilboð og hóf að bera áfengið í land, nokkra kassa, eða samtals yfir 30 flöskur. Síðan var sjómað- urinn handtekinn fyrir smygl. ♦ Vitaskuld bar tollverðin- um að gera þetta áfengí upptækt og koma þannig'í veg fyrir, að áfengi þetta yrði selt hérlendis á ólögmætan hátt. En sumum finnst, að tollvörðurinn hafi með tilboði sínu um áfeng- iskaupin, beinlínis hvatt sjó- manninn til þess að lauma á- fenginu í land. Það liggur í augum uppi, að sök sjómanns- ins verður ekki véfengd, og sjálfsagt hefði hann haft ein- hver önnur ráð með að smygla þessu áfengi, ef tollvörðinn hefði ekki borið þarna að. En þó verður illmögulegt að verj- ast þeirri hugsun, að aðferðin, sem beitt var af hálfu tollvarð- arins, standist ekki hárná- kvæma gagnrýni. Dugnaður í starfi er lofsverður, en getur stundum birzt í vafasamri mynd. ThS.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.