Vísir - 22.12.1952, Síða 1
42. árg.
Mánudaginn 22. desember 1952
294. tb l
GlobemasftervéS BiauHieodlr
og HG menn bíða baua»
SýrlensEk íarþegaflugvél fersí,
liollenxks flugbáis saknað.
Einkaskeyti frá AP.
Nevv York í morgun.
86 menn hafa látið lífið af
völdum flugslyssins mikla, sem
varð í Bandaríkjunum s.l. laug
ardag, en það er mesta mann-
tjón af völdum flugslyss, er sög
ur fara af.
Þrír létu lífið af völdum
brunasára, eftir að þeir höfðu
verið fluttir í sjúkrahús.
Þetta var herflutningaflug-
vél af Globemaster-gerð og
voru samtals í henni 115 menn,'
allir hei*menn, flestir að fara
' heim í jólaleyfi. Slysið varð
nokkrum mínútum eftir að flug
vélin lagði af stað. frá Larson-
flugvellinum í Washingtonfylki
og var áformað að fljúga til
Kelly-flugvallar, nálægt San
Antonio, Texas. — í .nauðlend-
ingu flugvélarinnar kviknaði í
henni og brunnu margir þeirra,
sem fórust, inni í flugvélinni.
Þegar voru: sendar sjúkra-
bifreiðir á vettvang, en um það
bil og slysið varð fór að snjóa,
en snjór var fyrir á jörðu all-
mikill, og torveldaði þetta björg
unarstarfið.
Næstmesta flugslys, sem orð-
ið hefur, varð í marz 1950, er
Tudur-flugvél fórst í Wales
sunnai’lega, á leið frá írlandi til
London, og fórust þá 80 menn.
Skammt frá Damaskus fórst
í gær sýrlenzk flugvél af Da-
kotagerð og biðu 9 menn bana,
en 6 var bjargað. Flugvél þessi
var á leið frá Aleppo til Da-
maskus og var ein þeirra, sem
leitaði að hollenzkum Katalina
flugbát, sem saknað var, en tal
ið var að hann hefði hrapað til
jarðar í Libanon. Flak hans
hafði ekki fundizt er síðast
fréttist. Hann var á leið frá
Persaflóa til Kýpureyjar, en á ■
þessum slóðum brast á fárviðri
um helgina. Á Kýpur tók þök
af húsum og tré sleit upp með
rótum og hauzt af margvíslegt
tjón annað.
Dlviðri víða
um lönd.
Einkaskéyti frá AP. — .
London í morgun.
Um síðastliðna helgi var
livassviðrasamt á meginlandinu'
úrkomur miklar víða og flóð
sums staðar.
Urðu menn víða fyrir all-
miklu eignatjóni af völdum
veðurs og margs' konar eigna-
tjóni. Bordeaux brast varnar-
gerðir, svo að vatn flæddi inn
í eitt hverfi borgarinnar og á
annað þúsund manns urðu að
yfirgefa heimili sín.
I bayersku Ölpunum er sagt
frá snjóflóðum, en fregnir um
manntjón hafa ekki borizt. Á
ströndum austurhluta Miðjarð-
arhafs og eyjum þar í SV-Asíu
geisaði fárviðri og hlaust af
margvíslegt tjón.
Þjóðverjar beztu vi-
skiptamenn Svía.
Stokkhólmi. — V.-Þýzkal.
er nú bezti viðskiptavinur Svía,
en þá koma Bretland og Banda-
ríkin.
í september keyptu Svíar í
V.-Þýzkalandi fyrir 140 millj.
s. kr,, en af Bretum fyrir 101
millj. kr. Svíar seldu Þjóðverj-
um fyrir 84.1 millj. s. kr. í sama
mánuði, og Bretum fyrir 83
millj. kr. (SIP).
iÞótnssr í nlíumaliwtn;
Forstjóri Olíufélagsins dæmdur
i 100 þúsund króna sekt.
Nýir borgarar
flýta sér í
heiminn.
Nýir borgarar \úrðast ætla
fiýta sér í heiminn fyrir
blessuð jólin, og hafa sjúkra-
flutningamenn slökkviliðsins
átt annríkt í nótt og í morg-
un a£ þessum sökum.
Frá kl. 6 í morgun og til
klukkan 10 fluttu slökkvi-
íiðsmenn 6 konur frá heim-
ilum sínum í fæðingardeild-
ína, en í nótt voru fimm kon-
ur fluttar sömu erinda. Má
segja, að 'þetta séu ánægju-
legar jólagjafir viðkomandi
foreldrum.
Annars hefur verið tíð-
indalítið á slökkvistöðinni
um helgina. Síðdegis í gær
voru slökkviliðsmenn kvadd
ir aS P-götu 12 í Kringlu-
mýri, þar höfðu börn kveikt
í torfi utan á skúr. Tókst
fljótlega a'ð slökkva án þess,
að tjón yrði verulegt. — Þá
var slökkvilið gabbað að
Laugavegi 78 í nótt.
Enn er verkfaR
á Akranesi.
Þrátt fyrir samkomulag það,
sem gert var á grundvelli til-
lagna ríkisstjórnarinnar á föstu
dag, er vinnustöðvun enn á
Akranesi, og Trésmíðafélag
Reykjavíkur, sem ekki er í Al-
þýðusambandi Islands, er enn
í verkfalli.
En verkalýðs og sjómannafé-
lagið á Akranesi gerir þá kröfu,
að endurnýjaðir verði samning-
ar ,sem vinnuveiíendur sögðu
upi? á sínum tíma, og gengu úr
gildi fyrir um það bil IV2 ári.
Var þessum samningum sagt
upp vegna ákvæðis um notkun
eigin bifreiða vinnuveitenda við
atvinnurekstur þeirra sjálfra.
Trésmíðafélag Rvikur hefur
gert nokkrar kröfur, sem heild-
arsamningarnir ná ekki yfir.
Ólöglegur ágóði, kr. 1.600.165.05,
upptækur og rennur í ríkissjóð.
í fyrradag var kveðinn upp í verðlagsdómi Reykjavíkui’
dómur í olíumálinu, sem svo hefur verið nefnt, en það spannst
út af innflptningi á olíu til Olíufélagsins h.f. um það bil er
gengisfellingin varð veturinn 1950, og gjaldeyrisyfirfærslum í
sambandi við þann innflutning.
Ekki er gerlegt að rekja mál ur, Haukur Hvannberg, greiði
þetta til hlítar hér, enda er það ( málsvarnarlaun skipaðs verj-
almenningi allvel kunnugt af! anda síns, hrl. Ragnars Jóns-
miklum skrifum um það fyrvjsonar, kr. 3500. Annan sakar-
og síðar, og dómurinn sjálfur kostnað greiði akærðir allir in.
rúmlega 71 bls. vélrituð. solidum að 1/10 hluta, en 9/10
Dómsniðurstaðan er svohljóð- hluta greiði ákærðir Sigurður
andi: jjónasson og Haukur Hvann-
Ákærður, Sigurður Jónasson, • berg in solidum.
greiði krónur 100.000 í sekt til j Dómi þessum skal fullnægja
með aðför að lögum. —
Valdimar Stefánsson.
Rannveig Þorsteinsdóttir.
Dómur í máli þessu hefur
verið birtur verjendum hinna*
ákærðu, og gera þeir fastlega.
ráð fyrir, að honum verði á-
frýjað til Hæstaréttar.
Jólasveinar eru ofaricga í huga yngstu borgaranna þessa dag-
ana. Þeir koma m. a. fram í sýningargluggum verzlana, og í
gær útbýtti einn slíkur gjöfuin fyrir Véla- og raftækjaverzlun-
ina í Bankastræti. Var mynditt tekin við það tækifæri.
(Ljósm: P. Thomsen)
Stokkhólmi. — Sænsku kúlu-
leguverksmiðjurnar — SKF —
hafa opnað fjórðu verksmiðj-
una í Frakklandi.
í hinni nýju verksmiðju
starfa 4000 manns, en allar
frönsku verksmiðjurnar fram-
leiða um % þess kúlumagns,
sem framleitt er í aðalverk-
smiðjunni í Gautaborg. (SIP).
ríkissjóðs, og komi varðhald í
9 mánuði í stað sektarinnar,
verði hún eigi greidd innan
fjögurra vikna frá birtingu
dóms þessa.
Ákærður, Jóhann Gunnar
Stefánsson, greiði kr. 10.000 í
sekt til ríkissjóðs, og komi varð
hald í tvo mánuði í stað sektar-
innar, verði hún eigi greidd
innan fjögurra vikna frá birt-
ingu dóms þessa.
Ákærður, Haukur Hvann-
berg, greiði kr. 30.000 í sekt til
ríkissjóðs, og komi varðhald í
fjóra mánuði í stað sektarinnar,
verði hún eigi greidd innan
fjögurra vikna frá birtingu
dóms þessa.
Sjórn Olíufélagsins h.f., þeir
Vilhjálmur Þór, Ástþói’Matthí-
asson, Jakob Frímannsson, Kar-
vel Ögmundsson og Skúli Thor-
arensen og stjórn Hins íslenzka
steinolíufélags, sem skipuð er
sömu mönnum, greiði f. h. fé-
laganna in. solidum ríkissjóði
upptækan ólöglegan ágóða, kr.
1600165.05. Ákærðir, Sigurður
Jónasson og Jóhann Gunnar
Stefánsson, greiði in solidum
málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda þeirra, hdl. Guðmundi Ás-
mundssonar, kf. 5000. Ákærð-
Bylting undirbúin
á Kúbu.
New York (AP).
Komizt hefur upp um bylt-
ingaráform nokkurra kúb-
anskra liðsforingja og hafa 7
forsprakkar verið handteknir.
Áform þeirra var að steypa for-
setanum af stóli.
Lögreglan í New York hefur
óg fundið allmiklar vopnabirgð
ir, sem fara áttu til Kúbu. Fjór-
ir menn voru handteknir. Einn
þeirra kvaðSt hafa annast vopna
kaupin fyrir tilmæli fyrrver-
andi forseta á Kúbu, sem nú er
búsettur í Florida.
Hreinsa 39 mlllj.
tenieta lofts á klst.
Stokkhólmi. — Sænskrf
verksmiðju hefir verið falið að
smíða loftræstingartæki fyrir
stærstu verksmiðjur Indlands.
Er þar um Tata-járn- og stál-
smiðjurnar að ræða, en það er
til dæmis um stærð loftræst- .
ingarkerfisins, að loft er sogað
úr verksmiðjunum og blásið
inn aftur um alls 10.000 op. Alls.
eru hreinsuð um og kæld 39
millj. ten. fet á klst. Þúsund.
hestafla mótor knýr loftræst- -
ingartækin. (SIP).
5—600 meraii
iijá Eimskip.
Sem stendur vinna um 560
—580 manns við uppskipun hjá
Eimskipafélaginu, og hafa þeir
aldrei verið fleiri.
í gær og fyrradag var unnið
til kl. 10 að kvöldi til þess að
flýta fyrir uppskipuninni, en
í kvöld verður unnið til kl. 8..
Uppskipun er lokið úr Lagar-
fossi, og langt komið að los.a
Gullfoss og Reykjafoss, en ver-
ið er að skipa upp úr Selfossi
og Vatnajöklí.
Til viðbótar 560—580 manns,.
sem eru á tímakaupi við upp-
skipun hjá Eimskip, eru svo ein.
ir 40—50 vörubílar frá Þrótti..
Hefur uppskipun gengið mjög'
greiðlega, að því er Vísi var
tjáð í skrifstofu Eimskipafélags
ins í morgun.