Vísir - 04.02.1953, Page 1
43. árg.
Miðvikudaginn 4. febrúar 1953
28. tbl.
Yfir 1000 manns hafa
farizt i fiólunum.
Astandfð enn mjög alvarlegt í Holiandi.
Einkaskeyti til Vísis. —- London í morgun.
Samkvæmt tilkynningu hollenzku ríkisstjórnarinnar í
morgun er tala drukknaðra af völdum ofveðurs og sjávargangs
komin upp í 870 og fólks saknað svo hundruðum skiptir.
Horfurnar eru enn stóralvarlegar á syðri eyjunum í Schelde-
Vestmaititaey|aliöfai fiill
af bátum að síldveiðnm.
Aflinn í gær
350 tunnur.
Frystihús í Ve. fuil-
komnust á landinu.
Sjór flæðir þar óhindrað
inn og út um skörðin í flóð-
görðunum og eru tugþúsund
ir manna á eyjum og ós-
hólmum í hættu staddir. —
Drees forsætisráðherra sagði
í þingræðu í gær, að um
50.000 manns yrði að bjarga
með því að.flytja þá í bát-
um og smáskipum,
Víða hagar svo til, að ekki
verður komið við nema flat-
botnuðum bátum. Notaðir eru
til flutninganna allir þeir bát-
ar, sem Hollendingar eiga, Bret
ar hafa lagt til Rínarbátaflota
sinn, Frakkar hafa sent 15 vél-
báta, og koptar eru notaðir, þar
sem þeim verður við komið.
Tjón í Englandi.
Samkvæmt tilkynningu, sem
birt var í morgun, er kunnugt,
að 260 manns hafa farizt í Bret-
landi, en fólks er enn saknað
í hundraðatali. Um 30.000
manns hafa orðið að flýja heim-
ili sín, og búa um 6000 þeirra
í bráðabirgðabækistöðvum, og
er komið upp æ fleiri slíkum
stöðvum, en yfir aðra hefur ver-
ið skotið skjólshúsi á heimilum
hjálpsams fólks.
Björgunarstarfið.
A öllu svæðinu frá Humber
til Thames-ósa unnu hermenn,
lögreglu- og slökkviliðsmenn að
varnarstörfum í alla nótt í
birtu kastljósa, að því að fylla
skörð og treysta garða og dæla
burt vatni. 1500 valdir slökkvi-
liðsmenn úr ýmsum borgum
landsins stjórna dælustarfinu.
— Vatn hefur víða sjatnað. •—
Sums staðar er fólk byrjað að
hverfa til heimkynna sinna, en
aðkoman er ömurleg, allt gegn-
blautt og leirugt. — í Sheerness
í Kent óttast menn afleiðingar
þess, að frárennsliskerfið hefur
bilað.
Frekar tregn.r
afil tegara.
Afli ó íslenzka togara hefur
verið misjafn að undanförnu,
yfirleitt heldur tregur.
Hafa flestir togarar komið
með 180—200 lestir eftir um
12 daga útivist, og með allskon-
ar fisk. — Undantekning er
Fylkir, sem fékk ágætis afla og
kom með 330 lestir eftir 11—
12 daga, mest þorsk. Aflinn fór
í' herzlu. Fylkir lagði upp í
Hafnarfirði nú í vikunni.
Togararnir eru á veiðum á
venjulegum miðum fyrír vest-
an land, Halanum, við Víkur-
álinn o. s. frv.
Kom með slasaðan
mann.
Seyðisfirði í morgun.
Brezki togarinn Sisapon frá
Grimsby kom hingað í dag með
slasaðan mann.
Hafði maðurinn misst þrjá
fingur. Togarinn fer strax aftur
á veiðar. — Fréttaritari.
Hann ftjólaði að Hálsi í Kjós
Leitað að 13 ára dreng í gærkveldi.
í nýju stjórninni frönsku er Ðidault utanríkisráðherra, en
hann tók við af öðrum kunnum stjórnmálamanni, Schuman,
sem verið hafði utanríkisráðlierra Frakka í fleiri en einni
stjórn. Þessi mynd var tekin, er Schuman býður Bidault vel-
kominn og óskar honum til heilla með framtíðina.
Um tvö leytið í nótt var lög-
reglunni tilkynnt að 13 ára
drengur hafi farið að heiman
frá sér um fjögur leytið í gær
og væri ókominn fram.
Drengurinn hafði farið á reið
hjóli og vissi heimilisfólkið ekki
hvert för hans var heitið. En
þegar heimkomu hans seinkaði
kom því til hugar að hann
myndi hafa skroppið suður í
Garðahverfi til fólks, er hann
þekkti þar. Var því símað þang-
að suður eftir, en þegar piltur-
inn hafði ekki komið þangað
var tekið að óttast um hann og
þeim mun fremur sem hann
átti vanda til aðsvifa.
Var lögreglunni þá gert að-
vart um hvarf drengsins og leit-
aði hún veginn og meðfram
veginum suður í Grafarhverfi,
ef ske kynni að pilturinn hefði
fengið aðsvif og lægi þar ósjálf-
bjarga. Á þessari leið varð lög-
reglan einskis vör.
í morgun var auglýst eítir
drengnum í útvarpinu og
skömmu síðar bárust tvær til-
kynningar um hann, önnur frá
Brúarlandi í Mosfellssveit, þar
sem hann hafði orðið vart í gær,
en hin frá Hálsií í Kjós, þangað
sem hann hafði komið í gær-
kveldi og gistj nótt. \lr dreng-
urinn staddur þar, þegar lýst
var eftir honum í útvarpinu.
Bridfje:
Hörðnr tekur
við femstifinni.
í fimmtu umferð bridge-
keppninnar, sem spiluð var í
fyrrakvöld tókst sveit Harðar
Þórðarsonar að sigra sveit Ein-
ars B. Guðmundssonar og er
því orðin efst í keppninni.
Aðrir leikir fóru þannig að
Gunngeir Pétursson vann
Ragnar Jóhaimesson, Stefán
Stefánsson vann Zóphonías
Benediktsson, Ásbjörn Jóns-
son vann Jón Guðmundsson,
Einar Guðjohnsen vann Her-
mann Jónsson og Guðjón Tóm-
asson vann Margréti Jensdótt-
ur.
Standa stig efstu sveitanna
nú þannig að sveit Harðar er
efst með 9 stig, en næstar eru
sveátir Eiruars Baldvins og
Gunngeirs með 8 stig hvor.
Sjötta umferð verður spiluð
á sunnudagskvöldið.
Atkvæði greldd um
héraðsbinii í Eyjum
og á ákureyri.
Ákveðið hefur verið, að at-
kvæðagreiðslá skuli fram fara
um héraðahapn í Vestmanna-
eyjum og á Akúreyri.
Bæjarstjórnarfundir voru í
báðum þessum kaupstöðum í
gær, og voru þá gerðar sam-
|þykktir um alli -"eðagreiðslu. í
Vestmannri' ’ rn mun atkvæða,
Fiskþurrð í
Grimsby í s.
1. viku.
Þá fengust 5 stpd.
fyrir kit.
Fyrir ofviðrið, sem skall á í
Bretlandi fyrir seinustu helgi,
var fiskverð mjög hátt í
Grimsby, og sýnir það, að fisk-
þurrð hefur verið þar.
Var fiskverðið þá um 5 stpd.
kittið, en 3 stpd. þykir gott. —
Brezkir togarar héldu lengi út
við Grænland í vetur, talsvert
lengur en vanalega, enda veð-
urfar gott lengi fram eftir. En
ekki gekk vel hjá þeim, sem
lengst héldu út. Þeir munu hafa
verið að veiðum undan Hvarfi,
en skyndilega breytti um veð-
ur og gerði hörkufrost, og mun
það hafa komizt upp í 18—20
stig, en í svo miklu frosti gadd-
ar fiskinn svo fljótt á þil-
fari, að hann skemmist, og vill
hinn magri Grænlandsfiskur
losna úr roðinu, er haim þiðn-
ar aftur. Munu allmargir brezk-
ir togarar hafa komið frá
Grænlandi síðast með lítinn eða
engan afla, því að sumir voru
að sögn nýkomnir á miðin, er
breytti um veður.
greiðslan fara fram hinn 22. þ.
m., »;n ekki hefur verið tekin
ákvörðun um, hvenær hún fari
fram á. Akureyri.
Síldveiðin í Vestmannaeyja-
höfn vekur óskerta athygli allra
kaupstaðarbúa, en þar liafa
bátar mokað upp síld síðustu
dagana.
Veiðin hefur til þessa ein-
göngu fengizt úr svokallaðri
Friðarhöfn, en það er innsti
hluti hafnarinnar, undir Klif-
inu, og mest verið gerð af
mannavöldum.
í vikunni sem leið urðu Vest-
mannaeyingar síldar varir á
þessum slóðum og s. 1. laugar-
dag veiddust þar 4—6 smá-
lestir, sem telja verður ágætan
afla. Þarna er um að ræða smá-
síld, feita og fallega, 4—5
þumlunga að stærð. Af ein-
hverjum ástæðum varð lítið
vart við síld á þessum slóðum
í fyrrad., en í gærmorgun tölu
sjómenn að þarna hafi veiðzt
allt að 80 tunnum síldar og 300
tunnur í gærkveldi.
Erjur vegna
veiðanna.
Vestmannaeyingar vita ekki
til að síld hafi gengið inn á
höfnina um fjölmargra ára
skeið, a. m. k. ekki í neitt því-
líkum mæli, sem nú. Sumum
þykir líklegt að höfnin sé full
af síld, enda þótt ekki hafi
verið, enn sem komið er, reynt
að veiða hana nema á örlitlu
svæði. En þar er hinsvegar svo
mikil þröng á þingi af bátum,
sem allir ætla sér að ná í síld,
að næstum horfir til vand-
ræða, enda erjur skapazt milli
áhafna bátanna út af þessu. Og
almenningur, sem í landi er,
leggur leið sína niður að höfn-
inni til þess að horfa á aðfar-
irnar.
Síldina hafa Vestmannaey-
ingar hugsað sér að nota í beitu,
enda ekki um annan markað að
ræða fyrir hana svo vitað sé.
Útgerð verður mikil á vetr-
arvertíðinni frá Vestmannaeyj-
um. Sennilega róa þaðan um
70 bátar, fleistir stórir og góðir
bátar. Auk þess verður eitt-
hvað um aðkomubáta og eru
þeir fyrstu komnir þangað.
Undanfarnar vertíðir hafa um
2000 manns komið til Eyja á
ári og nú eru komnir þangað
1200—1400 manns, en von á
fleiri seinna.
Fullkomnustu
frystihúsin.
Á. árinu seim leið voru gerðar
miklar breytingar og endurbæt-
Framh. á 7. siðtfc