Vísir - 01.10.1954, Qupperneq 7
Föstudaginn 1. október 1954
vísm
Mikif ðfvun í bænum í nótt.
IVIokkur átök á götuzu úti.
í nótt bar með meira móti á
ölvun manna meðal í bænum
og á nokkurum stöðum kom til
smáátaka, en til sögulegra tíð-
inda dró bó ekki.
í þessu sambandi má þó
geta þess, að í nótt var hringt
til lögreglunnar frá Hverfis-
götu og henni skýrt frá því að
menn væru þar í handalögmáli.
Lögreglan fór á staðinn og hitti
þá fyrir aðeins einn mann, al-
blóðugan. Kvað hann hafa
verið ráðist á sig og hann illa
leikinn, en ársarmennina
þekkti hann ekki og voru þeir
allir bak og burt þegar lög-
reglan kom á staðinn. Lög-
reglan hjúkraði hinum særða
manni, sem mun þó ekki vera
meiddur að ráði.
í Hafnarstrætinu datt ölvað-
ur og lenti með andlitið í göt-
una. Hann skarst töluvert á
höfði og varð að flytja hann á
Landspítalann þar sem gert var
að sárum hans.
Slysfarir.
Árdegis í gær varð sex ára
gamall drengur fyrir bifreið
í Austurstræti og fótbrotnaði.
Hafði drengurinn skotizt út á
götuna frá systur sinni, sem
var í fylgd með honum, og
lenti þá á bifreiðinni.
Laust eftir hádegið rann bif-
reið aftur á bak á mann á
Tunguvegi við Skógargerði.
Maðurinn varð milli bifreiðar-
innar og staurs og meiddist
nokkuð á hægri fæti.
Óknyttir.
Frá einu úthverfa bæjarins
var í gær kært til lögreglunnar
yfir ólátum og hrekkjabrögð-
um drengja. Hafði sá sem
kærði, handsamað einn piltinn
og hélt honum í vörzlu sinni
þar til lögreglan kom á staðinn.
Las lögreglan yfir piltinum, á-
samt öðrum ólátasegg sem hún
handsamaði og veitti þeim
ámi'hningu fyrir athæfi þeirra.
Slökkviliðið á ferð.
Um hádegisbilið í gær varð
elds. v.art í litlum skúr á lóð
sem Vélsmiðjan Sindri hefur
til umráða við Faxagarð. Kom
eldurinn upp í legubekk og'
læsti sig síðar í vinnuföt og
fleira dót, sem í skúrnum var
geymt. Töluverðar skemmdii'
urðu þai-na, en; eldurinn fljót-
lega slökktur éftir að slökkvi-
liðið kom á vettvang.
Seinna um daginn kviknaði
í kössum, sem stóðu viði tóman
íbúðarbragga á Skólavörðu-
holtinu. Var talið að krakkar
hefðu kveikt í þeim. Slökkvi-
liðið slökkti í kössunum áður
en eldurinn fengi læst sig í
skúrinn.
1000 félagar í
SRFÍ.
Sálarrannsóknafélag Islands
hélt aðalfund sinn sl. mánudag.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin, en hún er þannig skipuð:
Síra Jón Auðuns dómprófastur,
forseti. síra Sveinn Víkingur,
varaforseti, og meðstjórnend-
ur þau Gunnar Kvaran stór-
kaupmaður, frú Soffía Har--
aldsdóttir, Eggert P. Briem
skiifstofustj., Ingimar Jóhann-
esson fulltrúi og Sigurlaugur
Þorkelsson skrifstofustjóri.
Reikningar félagsins báru
það með sér, að hagur þess er
góður, en félagar eru alls um
1000.
Stjórn félagsins greindi frá
því að þann 12. október nk.
væri væntanlegur hingað á
vegum þess skozkur miðill, frú
Thompson, og verður hún hér
um hálfan mánuð.
Félagið heldur út tímaritinu
Morgni, sem út kemur tvisvar
á ári. Fundir félagsins eru
ágætlega sóttir og' starfsemi
þess með blóma.
Sceiba béii
vaSi.
Einkaskevti1 frá AP.
Róm í morgiin.
f gær fór fram atkvæðagreiðsla
Tim vantrauststillögu á stjórnina
í öldungadeild ítalska þingsins,1
og hafði stjórnin sigur.
Teflilu kommúnistar fram
helzta nianni sinum í baráttunni
gegn stjórninni i umræðtun urn
Möntesi-málið, Togliatti, foringja
flokksins, en Sc.elba svaraði sjálf
ur og varðist vel. Bandamenn
konimúnistá í máli þessu cru ný-
fasistar og konungssinnar,: þ: e:
flókkarnir lengst til Iiægri.
Höíum fengið ameríska
kuldajakka
stæríð 12—14—16—
18—2 0, kuldahúf ur,
eyrnaskjók
Hettuúlpur
(íslenzkar),
drengjaúlpur,
drengjapeysur,
drengjabuxur,
drengjaskyríur,
herranærföt '
stutt og síð,
hanzkar,
skmníóðraðir,
ullartreflar,
sportsokkar,
ullarsokkar ( kven ),
náttföt
og margt fleira ný-
komið.
Falíegir
herrafrakkar
fyrirKggjaiidj.
Hretiar lóásson,
klæðskerí, Laugavég 11.
Ktildahúfur
á böm — unglinga — og
fullorðna.
Erum nýbúnir að fá mjög
fjölbreytt og vandað úrval
af okkar alþekktu góðu
kuldahúfum.
Komið, á meðan úr nógu
er að velja.
Geysir" h.f.
ATVINISIA
2 frammistöðustúlkur og eldhússtúlka óskast sem
fyrst. Uppl. til kl. 8 í kvöld á Sólvaílagötu 9 II. hæð.
//
i Fatadeildin.
MAGNUS THORLACIUS
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa
Aðalstíæti 9. — Sími 1875.
■gnp
hentugar fyrir verzlanir fást
á eftirtöldum stöðum:
Máíing & Járnvörur
Verzf. Brynja
Verzl. Hamborg
Heildsölubirgðir:
K. lorange
umboðs- og heildverzlun,
Freyjugötu 10. — Sími 7398.
Stúlka óskast
í verzlun strax, helzt vön.
t-jitta itltí/iitt btitiiti.
Bankastræti 14. (Upplýsingar í síma).
Gott billiardborð
óskast til kaups. Tilboð sendist á afgreiðslu blaðsins fyrir
þriðjudagskvöld merkt: „Billiard — 108“.
Hötuin opiiföð
búðina í iiV|ii 111 húsakymtum
á Skólavörðustíg V2
l
ísttuttt
I9Í isseriug
Mlt&ddir huappar
R&liiskó&ar
Gerö hEtappacföi
Xstj^ÆtMtj sautu
Húllé'ölduu
Suk /e tl rÍÖfJVE'Ö
llikið af nýjum vörum
Skólavörðustíg 12. — Sími 82481.
*
l
>
s
»
t