Vísir - 01.10.1954, Blaðsíða 11

Vísir - 01.10.1954, Blaðsíða 11
Föstudaginn 1. október 1954 vtsm 11 Lestrarhæfni barna (Framh. af 4. síðu) lœra að lcsa, mjög létt lestrar- efni, þar sem lögð er áherzla á stutt orð og sem skemmtilegasta frásögn. Tíðni orðanna þarf að vcra slík, að öll orð í byrjenda- bók komi oftar en einu sinni fyr- ir en á því er mikf.il misbrestur í íslenzkum lesbókum og hlýtur það að skapa óþai-fa örðugleika við lestrarkennsluna. Telja sál- fræðingar, sem mest hafa um þessi mál fjallað, að þegar bam- ið er komið á nokkurn rekspöl með lestur í fyrsta bekk megi hvert nýtt orð ekki koma þéttar en á hver 40 þekkt, á þann hátt telja þeir tryggast að venja börn- in á hrukkulausan og eðlilegan lestur. Bækur Steingríms Arasonar Norðurlandabúar hafa lagt mikla áherzlu á að semja lesbæk- ur, þar sem tíðni orðanna sé í samræmi við þær kröfur, sem rannsóknir hafa sýnt að eru rétt- mætar og gætu slíkar bækur orð- ið til fyrirmvndar þeim, sem kynnu að vilja bæta úr bóka- skorti okkar á þessu sviði. Af ís- lenzkum lesbókum eru bækur Steingríms heitins Arasonar langnæst því að fullnægja þeim kröfum, sem nú eru gerðar til lesbóka, enda var þeim ágæta kennara og sálfræðingi fátt ó- kunnugt, sem máli skipti í kennslu barna. Ef barnið er komið á þann aldur og hefur notið svo langrar skólavistar að eðlilegt mætti telj- ast., að það væri orðið læst er víxlan bókstafa eitt öruggasta merki þess að um lestrarörðug- leika sé að ræða. Ég vil biðja ykkur að veita því eftirtekt, að ég nota orðið lestrarörðugleika en ekki orðblindu, en það er orð, sem vei’ður að teljast fi’æðilega mjög vafasamt og ekki hefur reynslan staðfest réttmæti þess, því á norræna lestrarsérfræð- ingaþinginu, sem haldið var í Kaupmannahöfn dagana 18.—22. ágúst í sumar treysti enginn fyr- irlesari sér til þess að segja með vissu um það hvort orðblinda væri til nema sem hugtak. Lestrarörðugleikar arfgengir? þegar komið er að erfiðustu dænium um lestrarörðugleika, sem menn þekkja, ber læknum og sálfræðingum ekki sem bezt saman um orsakir til örðugleik- anna. Um hagnýtar aðgerðir er hins vegar enginn ágreiningui’. Sumir lækna vilja halda því fram, að lestrarörðugleikar séu arfgengir eða stafi af sköddun á heila. Til þess að bæta úr þeim, telja þeir að finna þurfi veilur i heilanum og lækna þær, ef til vill með uppskurði. Rannsókn- ir, er finnski prófessorinn Maki, hefur gert á heila og lestrarhæfni manna sem særðust á höfði í síðustu heimsstyrjöld, virðist benda eindregið til þess, að á- koma á vissum svæðum hejlans muni valda meiri lestrartnifl- unum en ákoma á öðrum svæð- um lrnns. Hugsanlegt er að rann- sóknir Mákis og annarra vísinda- manna sem eru sömu skoðunar og hann, eigi eftir að leysa vandamál lestrarörðugleikanna að nokkru leyti; en þangað til sá ánangur næst, ef hann næst þá nokkurntíma, er ekki um annað að ræða en nota þær kennslu- og geðverndan’áðstafanir, sem þeg- ar hafa sýnt sig að vera happa- drjúgar. Eitt af því sem teljast verður grundvallaratriði þegar athuga skal barn, sem á við lestrai’örð- ugleika að etja er að athuga með hvaða aðferð barninu hefur ver- ið kennt og hvort hún hefur átt við barnið. Orðmyndaaðferðin eða sú aðferð sem hefst á því að segja og skoða orðin áður en far- ið er að hugsa um stafi eða hljóð orðanna, er að því leyti eðlileg- asta lestraraðferðin að takmark- ið með lestrarkennslunni er, að börnin lesi í orðmyndum. Reynsl- an hefur samt sýnt, að ef barn- ið á við sjónminnisörðugleika að stríða er hrein orðmyndaaðferð ekki heppileg en betra að nota stöfunar- og jafnvel liljóðaaðferð að mikiu leyti. JJegar heymarminni er lélegt Hafi barnið hins vegar lélegt heyrnai-minni er hljóðaaðferðin Iítt hæf eða réttara sagt óhæf. Við slík börn er réttast að beita orðmyndaaðferð og nota hljóða- aðferðina aðeins sem hjálparað- ferð ef menn telja sig hafa eitt- livert gagn af að nota hana, en gildi hennar er nú mjög dregið í efa af fræðimönnum m. a. sök- um þess að aðferðin er ekki eðii- leg, fremur leiðinleg og auk þess óhæf við kennslu barna, sem hafa lélogt heymarminni. Ef kennari, sem beitir annarri I hvorri þessari aðferð einvörð- v ungu, finnur að eitt eða fleiri börn ná ekki þeim árangrí, sem hann teldi æskilegan án þess þó, 1 að hann gruni þau um mjög litla greind, er skynsamlegt að liafa aðferðaskipti og þó oft gott að reyna bæði stöfunar- og orð- myndaaðferð og nota hljóðað- ferðina sem hjálparaðferð. Að vísu telja þjóðverjar og ensku- mælandi þjóðir hljóðaðferðin sé forkastanieg, Danir eru að gefast upp á þvi að nota hana og Svíar hafa sannað með rann- sóknum á eineggjuðum tvíbur- um, að jafnvel í Svíþjóð, þar sem ritmál og talmál er í allgóðu samræmi hvort við annað, hafi aðferðin enga þá yfirburði, sem réttlæti notkun herniar. Hafa þessar niðurstöður orðið til þess, að fyrstu orðmyndaaðferðarbæk- umar hafa nú verið samdar á sænsku og gefið góða raun. Samanburður á tvíburum Rannsóknin á gildi orðmynda- og liljóðaaðferðarinnar var gerð með þejm hætti að öðrum ein- eggjaða tvíburanum var kennt með orðmyndaaðferðinni en hin- um með hljóðaaðferðinni. Sömu kennarar kenndu tvíburunum og voru þannig fengin beztu vís- indalegu skilyrði, sem völ er á til þess að reyna tvær mismun- andi aðferðir. Tala tvíburanna var 36. Rannsókninni, sem enn er ekki að fullu lokið, stjórnar fil. lic. Jon Næslund, ritari við Pedagogiska Institutet í Stokk- hólmi. Næslund taldi það mjög varhugavert, að flestar lesb'ækui' Svía miðist við hljóðaaðfeiðina og kcnnslan í kennaraskólunum sé einnig of hóð henni, úr þessu verði að bæta á næ íu árum. í lestrarbeklc er þó ekki nóg að binda sig við eina ókveðna lestr- araðferð, nær sanni er, að allar liugsanlegar aðferðir beri að reyna og öll þau hjólpartæki sem reynslan hefur sýnt að koma að gagni, NiiSurlag. Stúlka óskast Café Höll, Austurstræti 3, sími 1016. fyrír KjÖTVERZLANÍR. þófSur HTeitíiOn Grettijjóíu 3, jimi 80360. frá Innflutnmgsskrifstofunni. Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. desem- ber 1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjár- festingamála o. fl. hefur verið ákveðið að úthluta skuli’ nýjum skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. október til og' með 31. desember 1954. Nefnist hann „FJÓRÐI1 SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“, prentaður á hvítan pappír j með svörtum og rauðum lit. Gildir hann samkvæmt því, j sem hér segir: REITIRNIR: Smjörlíki 16—20 (báðir meðtaldir) gildi fyrir í’ 500 grömmum af smjörlíki, hver reitur. REITIRNIR: SMJÖR gildi hvor fyrir sig fyrir 500 grömm- um af smjöri (einnig bögglasmjöri). J(a aupi gull ocj áilj-ur Kleppsholt! Ef Kleppshyltingar þurfa aS setja smáauglýsingu i Vísi, er tehið viS henni I Verzlun Guðmundar H. Albertssonar, Langholtsvegi 42. Það borgar sig bezt að auglýsa í Vísi. Köflótt kjólaefni bentugt í skólakjóla. Verð frá fcr. 15,25 pr. m. VERZLff Verð á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur. r „FJÓRÐI SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“ afhendist að-; eins gegn því, að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað! stofni af „ÞRIÐJA SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“ ‘með! árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári,! eins og form hans segir til um. Reykjavík, 30. september 1954. Innflutningsskrifstofan Tilkynning Frá og með deginum í dag hættir Ferðaskrifstofa ríkisins afgreiðslu á sérleyfisbifreiðum. Frá sama tíma byrjar Bifreiðaafgreiðslan s/f afgreiðslu á sérleyfis- og hópferðabifreiðum og verður í sömu húsakynnum og Ferðaskrifstofan hafði áður. Sími hinnar nýju afgreiðslu verður eftirleiðis 8 19 11. Reykjavík 1. okt. 1954. Ferðaskrifstofa ríkisins Bifreiðaafgreióslan s.f. Skrifstofnstúlka helzt með verzlunarskólaprófi, óskast 1. nóvember. — Þarf að hafa laglega rithönd. Tilboð auðkennt: „Skrif- stofustúlka — 101“, sendist Vísi fyrir mánudags- kvöld, 4 n. m. 1 e Dtáfjhfog? ■ts Wé ®r MSÍ vantar böm til þejs að bera blaðið út í ýrns hverfi. Leitið upplysinga á afgreiðslu blaðsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.