Vísir - 19.11.1954, Qupperneq 7
JTöstudaginn 19. nóvember 1954.
Tlsm
Ung listakona, sem vinnur
í kyrrþei.
Vísir hefur hitt að máli korn-
«nga lisíakonu, Guðbjörgv
Benediktsdóttur að nafni, sem
þrátt fyrir ungan aldur hefur
skapað mörg listaverlc, bæði
höggmyndir og teikningar, en
unnið ÖU verk sín í kyrdþey
og hvergi komið opinberlega
fram.
Guðbjörg er fædd á Siglu-
firði 20. júlí 1931 og er því
^aðeins 23ja ára. Átta ára. að
aldri fluttist hún ásamt for-
•eldrum sínum til Seyðisfjarðar,
en tveimur árum síðar hingað
suður og frá þeim tíma hefur
hún dvalið í Reykjavík.
Iiin unga listakona skýrði
blaðamanni Vísis svo frá, að
hugur hennar hafi frá því er
hún var um fermingaraldur
hneigst að listum. Fyrsta vakn-
ing hennar í þessa átt varð á
^kvöldnámskeiði Handíðaskól-
ans hér í Reykjavík.
Seinna gerðist hún svo fast-
ALLT
Verð kr.
61.700.00.
EÍNKAUMBOÐ FYRIR
HINN NÝJA
Morris llxíord
5—8 mamia biíreið
FaMegur — Traustur —
Sparneytinn — Þægilegur
Guðbjörg Benediktsdóttir.
ur nemandi Handíðaskólans á
árunum 1950-52 og hafði þá
ýmsa ágæta kennara, bæði í
teikningu og höggmyndalist.
Meðal kennara hennar voru
þau Tove Ólafsson, Sigurður
Sigurðsson, Jóh. Jóhannesson,
Falk Bang og Aage Nielsen-
Edwin.
Síðast tók hinn nýlátni
myndhöggvari Einar Jónsson
Guðjörgu að sér og kenndi
henni í einkatímum. Mun
Einari hafa líkað vel við nem-
anda sinn og'lét sér mjög annt
um gengi hans í hvívetna og
hvatti Guðbjörgu eindregið til
framhaldsnáms. Telur Guð-
björg Einar hafa haft mest
áhrif á sig allra manna og taldi
hann afburða kennara. — Því
miður var Einar §kki íengur
heill heilsu og minna varð úr
kennslunni fyrir bragðið en
skyldi. En þeir tveir mánuðir,
sem Guðbjörg var í námi hjá
Eiriari í fyrrasumar verða henni
BARN (höggmynd).
ógleymanlegir og hafa markað
djúp og ákveðin spor í list-
ferli hennar.
Eins og sakir standa nýtur
Guðbjörg ekki neinnar til-!
sagnar, en vinnur samt af
kappi og sleitulaust að hugðar-
efnum sínum, bæði að teikn-
ingu og myndmótun, og einkum
bó að hinu síðartalda. Hug-
þekktustu viðfangsefnin er
fólk — fólk eins og það gerist
og gengur í gleði og sorg, í
fjörgalsa og örvinglun. I svip
eða svipbrejúingum þessa fólks
er lífið sjálft túlkað í öllum
hinum mikla breytileik þess.
Guðbjörg vinnur í kyrrþey.
Hún spreytir sig á verkefnun-
um tilsagnarlaust því hún vill
sjá hvað hún getur á eigin
spýtur — áður en hún leggur
út á langa og oft þyrnum
stráða braut listnámsins. Hins-
vegar er það hennar ákveðni
ásetningur að fara utan til
frekara náms og þá fyrst og
fremst í því skyni að lsera
höggmyndalist, því höggmynd-
in er hennar yndi og það form
sem hún hefur valið sér til
túlkunnar.
Guðbjörg hefur enn ekki á-
kveðið hvert halda skulý til
námsins. Hún vill áður kynna
sér hvaða kennarar henti sér
bezt, hvert viðhorf þeirra er
til listar og hvernig kennslu-
aðferð þeirra er.
ATH. MORRIS fólksbifreiðar eru með ryðfría yfirbyggingu.
EINNÍG HINN VINSÆLI
moEtitns mmm
4 MANNA BIFREIÐ
STÆRSTB SIVIABILL HEHV3SINS
Allar upplýsingar veittar á skrifstofunni.
Verð kr. 44.900.00.
H.F. Egill Vilhjálmsson
LAUGAVEGI 118. — S!MI 81812.
VIÐSJÁ VISIS:
Eftir kosningarnar í
Bandaríkjunum.
Samstarf flokkanna. — Talii vist, aB Eison-
kower og Stevenson verði forsetaefni 1956
KONA (teikning)
„Nýtt hlutv©rk“ í
Tjarnarbiói.
„Nýtt hlutverk“ kvikmynd
Oskars Gíslasonar, verður sýnd
í Tjamarbíó kl. 7 og 9 í kvöld.
Myndin, sem byggð er á sögu
eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson,
eins og kunnugt er, hefur verið
sýnd úti á landi í sumar við
ágæta aðsókn, en nú gefst
Reykvíkingum enn kostur á að
sjá hana.
í Newsweek er svo að orði
komist um kosningaúrslitin í
Bandaríkjunum, að hvorugur
flokkurinn hafi unnið greini- J
legan sigui', og vissulega hafi
þjóðin hvorugum flokknum
hafnað.
í Washington er litið svo á,
J af þeim, sem bezt fylgjast með
bak við tjöldin, bæði republik- ^
önum og demakrötum að kosn-
I
mgaurslitin bendi til að j
• Eisenhower verði aftur í
kjöri * forsetakosningun- j
um 1956.
• Adlai Stevenson verði
fyrir valinu sem forseta-
efni demokrata.
• „Óformlegt“ samstarf
verði milli hægfara re-
publikana og hægfara
demokrata um lagasetn-
ingu næstu tvö árin.
• Republikanar byggja
mikið á persónulegum
vinsældum Eisenhowers
og að almcnningur að- J
hyllist þá stefnu hans, að
fara gætilega og hófsam- |
lega að því að leysa öll
aðsteðjandi vandamál
þjóðarinnar og að sú
stefna hans muni tryggja
honum framhaldssess í
Hvíta húsinu.
® Demokratár munu á hinn
bóginn reyna að nota sér |
nauman meirihluta á
þingi til þess að fá sinn
mann valinn f forseta- [
stól. Munu þeir leggja
áherzlu f., að kvnna sér
nánara það sem þeir
kalla „einokunar“- og
„undanláts“-tilhneigingar
stjórnar republikana, og
nota sér það £ baráttunni
næstu tvö árin.
Vinir og nánir samsarfsmenn
Eisenhowers forseta eru á einu
máli um það, aö úrslit kosning- '
anna á dögunum, muni að öll- '
um líkindum hafa þau áhrif, 1
að Eisenhower leggi á hilluna
áform sitt um að draga sig í
hlé, er forsetatímabilinu lýkur,
og setjast að á Gettysburg-
búgarði sínum, en það hefði
hann persónulega helzt kosið.
Hefði flokkur h'ans sigrað
glæsilega mundi hann hafa tal-
ið sig geta falið einhverjum
öðrum flokksforystuna, t. d.
Nixon varaforseta, en hefði
hann beðið mikinn ósigur hefði
hann litið svo á, að þjóðin vildi
hann ekki fyrir forseta lengur,
og því væri réttast af honum
að draga sig í hlé. En nú urðu
}■' osningaúrslitin þau, að um
leið og hann getur litið svo á
að honum hafi verið vottað
traust og sé það honum hvatn-
ing til þess að vera áfram leið-
togi flokksins og þjóðarinnar.
Eisenhower forseta er skyldu-
ræknin í blóð borin. Frá barn-
æsku hefur hann verið þjálf-
aður til þess að setja skyld-
urnar við land og þjóð ofar
öllu. Hann lagði að lokum út í
seinustu kosningabaráttu vegna
þess, að hann yar mjög brýnd-
ur á því, að skyldan við flokk-
inn krefst þess. Fór hann þar
ekki að ráðum nánustu ráðu-
nauta sinna. Einn vina hans í
Washington telur vafasamt, að
hann hafni tilmælum flokksins
um að verða í kjöri, ef að hon-
um verði lagt að gera það fyrir
flokkinn og þjóðina. Kosning-
arnar fóru á þann veg sem bezt
varð kosið fyrir þá, sem vilja,
að hann verði aftur í kjöri.“
Einnig er almennt búist við
því í Washington, að Stevenson
verði aftur forsetaefni dema-
krata, og er m. a. bent á, að
hin nýja fylking ungra fylkis-
stjóra, sem komin er til sög-
unnar, muni styðja hann, því
að hann hafi barist fyrir þá í
kosningunum. Stevenson hafi
og mikil völd og áhrif í mið-
stjórn flokksins.
Samstarf
flokkanna.
Næstu tvö árin, er demokrat-
ar hafa meirihluta á þingi, en
republikanar fara með stjórn
landsins, munu báðir flokk-
arnir hafa kosningarnar 1956
í huga. Undir venjulegum
kringumstæðum mundi, þegar
svona er ástatt, hafa komið til
„kaldrar styrjaldar“ milli þings
og stjórnar, en báðir aðilar
virðast nú ákveðnir í að forð-
ast slíkt. Eisenhower sagði í
einni kosningaræðu sinni, að
slíkt væri að varast. Eisenhow-
er vill samvinnu við demokrata
og hefur heitið samvinnu flokks
síns, og demokratar hafa og
heitið samvinnu. Einn leiðtogi
demokrata kvað svo að orði, að
það mundi ekki verða neinum
erfiðleikum bundið að hafa
samvinnu við Eisenhower. —
Samvinna hans við flokkinn, er
hann var yfirhershöfðingi hafi
J verið hin bezta, ,og reyndin
muni verða hin sama nú.
A.-Þjóðverjar að njóssi
t:m við Nc:*ö3.
Osló (AP). — Norska lögregl-
an í norðurþlula landsins varð
nýlega vör við grunsamlegar
myndatökur manna a togara frá
A.-Þýzkalandi.
Var togarinn á ferð mjög nærri
landi við Norður-Xor.eg, þar sem
Norðmenn hafa virki og fall-
byssustæði til landvarna. Var
togarinn stöðvaður, og kom í
ljós, að skipverjar liöfðu meS-
ferðis myndavélár, og voru all-
ar filmur gerðar upptækar, en
siðan var togaranum heimilað
að halda áfram för sinni.